Morgunblaðið - 27.03.2001, Side 7
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 B 7
24. 03. 2001
3
6 7 1 1 1
6 20 22 35
27Þrefaldur1. vinningur
í næstu viku
Fyrsti
vinningur
fór til
Noregs
21. 03. 2001
11 16 23
27 34 36
26 41
Ég er að sjálfsögðu langt frá þvíánægður með leik okkar að
þessu sinni,“ sagði Rudi Völler,
landsliðsþjálfari Þjóðverja eftir leik-
inn, en andstæðingarnir, Albanar,
hafa aldrei verið í hópi sterkustu
knattspyrnuþjóða Evrópu. „Við lék-
um af of mikill varfærni og sköpuð-
um okkur fá marktækifæri. En sigur
sem þessi verður eigi að síður til þess
að treysta liðsandann,“ sagði Völler
við og vonaðist um leið eftir að Alb-
anar væru ekki svo þreyttir eftir
leikinn að þeir gætu ekki gert Eng-
lendingum skráveifu á miðvikudag-
inn þegar þjóðirnar eigast við í Tír-
ana. Englendingar eru helstu
keppinautar Þjóðverja í 9. riðli. Á
morgun sækja Þjóðverjar Grikki
heim í Aþenu.
Albanar áttu síst minna í leiknum í
fyrri hálfleik. Börðust þeir af einurð
og einlægni en gekk illa að skapa sér
færi. Eftir markalausan fyrri hálf-
leik kom Sebastian Deisler heima-
mönnum yfir á 50. mínútu með föstu
skoti af 25 metra færi. Fimmtán
mínútum síðar jafnaði miðvallarleik-
maðurinn Bledar Kola leikinn. Alb-
anar hugðust láta hné fylgja kviði,
sóttu ákaft í framhaldinu og fengu
nokkur prýðileg færi en tókst ekki
að færa þau sér í nyt. Oliver Kahn,
markvörður Þjóðverja, reyndist
gestunum óþægur ljár í þúfu. Kom
hann í nokkur skipti í veg fyrir fleiri
albönsk mörk með framúrskarandi
markvörslu. Eftir heldur bragðdauf-
an lokakafla tryggði Klose sigurinn
undir lokin.
„Sagan hefur endurtekið sig enn
einu sinni,“sagði Medhi Zhega,
landsliðsþjálfari Albaníu eftir leik-
inn. „Enn og aftur vann það lið sem
hefur yfir meiri reynslu að búa.
Þrátt fyrir tapið þá get ég ekki ann-
að en verið stoltur af mínu liði,
frammistaða okkar var sem rós í
hnappagat allra leikmanna. Þeir
lögðu sig alla fram,“ sagði Zhega
ennfremur.
Miðvallarleikmaðurinn Mehmet
Scholl fékk gult spjald í leiknum og
verður því fjarri góðu gamni á morg-
un er félagar hans mæta Grikkjum.
Þá er alls óvíst hvort Oliver Bierhoff
verður í byrjunarliðinu gegn Grikkj-
um. Hann náði sér ekki á strik í
leiknum við Alabaníu og fór illa að
ráði sínu í ákjósanlegum marktæki-
færum. Hefur honum ekki lánast að
skora fyrir landsliðið í tæpt ár. Nú
var honum skipt út af í leikhlé. „Það
er ævinlega sárt að vera kallaður af
leikvelli. Ég verð hins vegar að horf-
ast í augu við það að ég náði mér ekki
á strik,“ sagði Bierhoff og bætti við
um leikinn í heild: „Af honum er ljóst
að við eigum enn í miklum erfiðleik-
um sem lið og eigum þar af leiðandi
langt í land áður en við förum að
sýna okkar besta.“
Nýliði barg
Þjóðverjum
NÝLIÐINN Miroslav Klose bargandliti Þjóðverja með því að skora
sigurmark þeirra í 2:1 sigri á Albaníu, tveimur mínútum fyrir leiks-
lok. Hann hafði nokkru áður komið inn á í sínum fyrsta landsleik.
Fram að marki Klose benti flest til þess að þjóðirnar skildu jafnar,
en 34 ár eru liðin síðan Þjóðverjar síðast megnuðu ekki að vinna
Albana. Áhorfendur á leikvanginum í Leverkusen, þar sem leik-
urinn fór fram, létu óánægju sína skýrt í ljós þegar á leið leikinn, en
tóku nokkuð af gleði sinni er Klose tókst að skora sigurmarkið.
Finnar komust skoruðu fyrstamark leiksins, sem fram fór á
Anfield Road að viðstöddum 44.000
áhorfendum, með marki Aki Riihil-
ahti með skalla. Knötturinn kom við
Gary Nevillie á leiðinni í markið,
breytti um stefnu þannig að Seaman
kom ekki neinum vörnum við.
„Dekkun okkar var stórlega ábóta-
vant þegar Riihilahti skoraði mark
sitt,“ sagði Eriksson og leyndi ekki
vonbrigðum sínum með hvernig
mark Finna bar að garði.
Rétt fyrir leikhlé jafnaði heima-
maðurinn Owen metin með einkar
laglegu skoti rétt innan vítateigs sem
hafnaði alveg út við stöng hægra
megin við markvörð Finna.
Beckham skoraði síðan markið
sem reyndist nægja Englendingum
til sigurs strax í byrjun síðari hálf-
leiks og þar við stóð þrátt fyrir að
Finnar hafi sótt nokkuð í sig veðrið
undir lokin. Þetta var aðeins annað
mark Beckhams fyrir Englendinga í
39 landsleikjum. „Ég hef lengi beðið
þessa marks og vonandi líða ekki
þrjátíu leikir til viðbótar áður en það
næsta kemur,“ sagði Beckham sem
benti á að mark Owens hefði ekki síð-
ur verið mikilvægt fyrir enska liðið.
Beckham lék á tíðum ágætlega og
hefur greinlega haft gott af því að
hafa fengið að hvíla sig í undanförn-
um tveimur leikjum með Manchester
United. „Ég vona að Alex Ferguson
gefi Beckham oftar frí frá kappleikj-
um áður en að landsleikjum kemur,“
sagði Eriksson, landsliðsþjálfari með
bros á vör aðspurður um frammi-
stöðu Beckhams, sem var fyrirliði
Englendinga.
„Við fengum nokkur góð mark-
tækifæri og náðum að nýta tvö
þeirra,“ sagði Eriksson ánægður
með sigurinn að leikslokum. Hans
bíður hins vegar erfitt verk annað
kvöld þegar hann með sveit sína
sækir Albani heima. „Við þessi úrslit
er sem við höfum gengið í gegnum
endurnýjaða lífdaga í undankeppn-
inni. Við verðum að mæta einbeittir
til leiks og ná hagstæðum úrslitum í
Albaníu, annars vegur sigurinn á
Finnum ekki eins þungt,“ sagði
Beckham.
Uppselt var á leikinn og bar Eriks-
son mikið lof á stuðningsmenn Eng-
lendinga, en fyrir leikinn hafði hann
óskað eftir því við þá að þeir stæðu
að baki liðsins í heild og létu vera að
gera hróp að leikmönnum Manchest-
er United, en þeir verða seint vinsæl-
ustu leikmenn á Anfield, heimavelli
Liverpool.
Owen sagði að vissulega hafi leik-
ur enska liðsins ekki verið neitt til
þess að hópa húrra fyrir, en tók und-
ir með þjálfara sínum að sigurinn
væri aðalmálið. „Við héldum í enska
hefð og gerðum það sem þurfti til að
vinna.Vissulega voru Finnar nærri
því að jafna metin undir lokin, en
vörn okkar hélt,“ sagði Owen.
APDavid Beckham, fyrirliði Englands, fagnar sigurmarki sínu gegn Finnum, 2:1.
Lítill glans í
Liverpool
ENSKA landsliðið í knattspyrnu sýndi engin snilldartilrþrif gegn
Finnum, en Sven Göran Eriksson, landsliðþjálfari þeirra, getur þó
glaðst yfir sigrinum. Hann var mikilvægur. „Sigurinn skiptir mestu
máli í leikjum sem þessum. Annað jákvætt atriði var að okkur tókst
að snúa leiknum okkur í hag eftir að hafa lent 1:0 undir snemma
leiks,“ sagði Eriksson, en þetta var fyrsti leikur hans með landsliðið í
undankeppni HM. Mörk Michaels Owens og Davids Beckhams
nægðu til 2:1 sigurs á Finnum. Einnig geta Englendingar þakkað
markverði sínum, David Seaman, en hann sýndi stórbrotna mark-
vörslu undir lokin er hann varði í tvígang frá Jari Litmanen.
EF landslið Englands
kemst í lokakeppni heims-
meistarakeppninnar í
knattspyrnu, sem fer fram
í Japan og Suður-Kóreu,
fá leikmenn liðsins góðar
bónusgreiðslur. Hver leik-
maður fær þá 63 millj. ísl.
kr. í vasann. Það er ljóst
að lykilmenn í landsliðs-
hópi Englands eru David
Seaman, David Beckham,
Sol Campbell og Michael
Owen.
Sven Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englands,
mun aftur á móti fá 126
millj. kr. í sinn hlut, ef
Englendingar komast í
lokakeppni HM 2002.
Enska knattspyrnu-
sambandið hefur ákveðið
að setja tólf millj. punda í
bónusgreiðslur fyrir þá 24
leikmenn sem eru mest
með í riðlakeppninni.
Fá
góðan
bónus
Færeyingar höfðu ríka ástæðu tilþess að fagna fyrsta sigri sínum
í undankeppni HM er þeir lögðu
Lúxemborg á útivelli, 2:0, að við-
stöddum 2.500 áhorfendum. En
fögnuður þeirra var samt í skugga
þess að fremsti knattspyrnumaður
landsins, Todi Jonsson, fótbrotnaði
eftir aðeins 20 mínútna leik og verð-
ur hann frá keppni um talsverðan
tíma.
Fyrri hálfleikur var bragðdaufur á
þungum vellinum í Lúxemborg en
töluvert hefur rignt upp á síðkastið í
Lúxemborg. Þegar kom fram í þann
síðari var ljóst að Færeyingar voru
sterkari, þeir ætluðu sér sigur.
Christian Jacobsen, sem kom inn
á staðinn fyrir Jonsson, skoraði
fyrra mark Færeyinga eftir að hafa
fengið sendingu frá Össur Hansen.
Þetta gerðist á 75. mínútu. Sjö mín-
útum síðar innsiglaði Kurt Mörköre
sigur gestanna sem nú hafa fjögur
stig í fyrsta riðli, en þeir náðu að
gera óvænt jafntefli við Slóvena sl.
haust. Lúxemborg rekur hins vegar
lestina í riðlinum, er án stiga.
Færey-
ingar
fögnuðu
sigri