Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 1

Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 1
2001  FIMMTUDAGUR 29. MARS BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A JÚLÍUS HAFSTEIN SKIPAÐUR FORMAÐUR C-ÞJÓÐA Í BLAKI /C3 FORRÁÐAMENN úrvalsdeildarliðs Grindavík- ur hafa sett sig í samband við Friðrik Inga Rún- arsson og óskað eftir viðræðum við landsliðs- þjálfarann um að hann taki við þjálfun Grindavíkurliðsins. „Friðrik Ingi er efstur á óskalista okkar en málið er á frumstigi þessa stundina og ekkert ljóst hvernig málin þróast,“ sagði Guðfinnur Friðþjónsson í samtali við Morgunblaðið í gær. Úrvalsdeildarlið Þórs frá Akureyri leitar einnig eftir þjálfara fyrir næsta keppnistímabil og forráðamenn liðsins hafa kannað áhuga Friðriks Inga um að hann taki við þjálfun liðs- ins. Grindvík- ingar vilja Friðrik Inga Jón hættir með ÍR SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins mun Jón Kristjánsson ekki ætla að endurnýja samning sinn við 1. deildarlið ÍR-inga í hand- knattleik en tveggja ára samningi hans við Breið- holtsliðið lýkur eftir tíma- bilið í vor. Ástæða þess mun vera sú að Jón á erfitt með að sinna þjálfun vegna starfa sinna og herma heimildir Morgunblaðsins að forráðamenn ÍR séu byrjaðir að leita að eft- irmanni Jóns. Jón vildi ekki tjá um sig þetta þegar Morgunblaðið talaði við hann í gær og sagði aðeins að málin kæm- ust ekki á hreint fyrr en mótið væri búið hjá hans mönnum. ÍR-ingar höfnuðu í átt- unda sæti deildarkeppn- innar sem lauk í fyrrakvöld og mæta lærisveinar Jóns deildarmeisturum KA í 8 liða úrslitunum um Íslands- meistaratitilinn sem hefjast 6. apríl. ALEXANDER Ermolinskij, leik- maður og þjálfari úrvalsdeild- arliðs Skallagríms í körfuknatt- leik, verður þjálfari liðsins á næsta keppnistímabili. Ermol- inskij gerði tveggja ára samning við Borgarnesliðið sl. haust og samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins verða allir íslenskir leikmenn liðsins áfram hjá félag- inu. Ljóst er að rússneski framherj- inn Evgjeni Tomalovski leikur ekki með Skallagrími á næsta keppnistímabili og enn ekki er vitað hvort Bandaríkjamaðurinn Warren Peebles verði fenginn aftur til félagsins. Hlynur Bæringsson er samn- ingsbundinn Skallagrími á næsta keppnistímabili en mörg úrvals- deildarlið hafa sýnt áhuga á að fá hann í sínar raðir. Ermolinskij áfram með Skallagrím Örn keppir í 400 m fjórsundi,100 og 200 m baksundi, 50 og 100 m skriðsundi auk 50 m flugsunds. „Ég er að hefja æfing- ar af fullum krafti fyrir heims- meistaramótið í 50 metra laug í sumar og vantaði mót í lengri braut. Því ákvað ég að skrá mig inn á Sjálandsmótið,“ segir Örn sem reiknar með að stinga sér alls ellefu sinnum á mótinu gangi allt að óskum. Það verður því mikið álag á honum á stuttum tíma, en mótið hefst föstudaginn 6. apríl og lýkur tveimur dögum síðar. „Það er gott að fara í gegnum mörg sund á stuttum tíma því á HM syndi ég væntanlega sjö sund á lengri tíma; það verður því létt í samanburði við þetta,“ sagði Örn. Örn hefur ekki synt 100 m bak- sund í 50 m laug síðan á Sjálands- mótinu í fyrra og segist hann því bíða þess sunds með nokkurri eft- irvæntingu. „Þá var ég ekki upp á mitt besta þannig að tíminn var ekkert sérstakur. Takist mér að synda á um 56 sekúndum að þessu sinni verð ég nokkuð sátt- ur.“ Örn hefur keppt oftar í fjór- sundi upp á síðkastið en áður. Bætti hann m.a. Íslandsmetið í 400 m fjórsundi í 25 metra braut um tæpar 12 sekúndur á Innan- hússmeistaramóti Íslands í Eyjum á dögunum. Hann segist reikna með að keppa meira í fjórsundi á næstu misserum. „Fjórsundið eykur fjölbreytnina og til þess að búa mig betur undir það hef ég keppt meira í bringusundi í vetur en oft áður,“ segir Örn sem reikn- ar einnig með að keppa í nokkuð mörgum greinum á Smáþjóðaleik- unum í San Marínó í vor. Örn hefur HM-undir- búning í Danmörku ÖRN Arnarson, sundmaður úr Hafnarfirði og tvöfaldur Evr- ópumeistari í baksundi, ætlar að taka þátt í sex greinum á Opna Sjálandsmótinu í Danmörku um aðra helgi, en auk Arnar eru níu íslenskir unglingalandsliðsmenn í sundi skráðir til leiks á mótinu. „Ég verð gamli maðurinn í hópnum,“ sagði Örn í gamansömum tóni í samtali við Morgunblaðið í gær. Reuters Michael Owen fagnar marki sínu í Albaníu í gærkvöldi ásamt David Beckham, fyrirliða enska landsliðsins. Englendingar léku ekki vel en sigruðu þó 3:1 og gerði Andy Cole sitt fyrsta mark fyrir enska landsliðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.