Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 3

Morgunblaðið - 29.03.2001, Page 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 C 3 Man. Utd - Derby Beint leiguflug til Manchester, gist í þrjár nætur á The Premier Lodge í miðbæ Manchester. Verð 50.400 fyrir fyrstu 50 meðlimi Man. Utd klúbbsins sem panta. Innifalið í verði: Flug, skattar, gisting í þrjár nætur með morgunverði, rútur til og frá flugvelli, miði á leikinn og íslensk fararstjórn. Meðlimir Man. Utd klúbbsins á Íslandi hafa forgang að skráningu í ferðina sunnudaginn 1. apríl kl. 18-19 í símum 585 4114 og 585 4115. MUNIÐ ATLASÁVÍSUNINA! Nánari upplýsingar veitir Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn í síma 585 4140. ATLasi ® 3. - 6. maí  JÓHANN Birnir Guðmundsson skoraði fyrra mark Lyn sem sigraði Odd Grenland, 2:0, í æfingaleik sem fram fór á heimavelli Odd í gær. Jó- hann skoraði markið með fallegu skoti í bláhornið eftir að hafa leikið á varnarmann Odd. Hann lagði enn- fremur upp síðara mark liðsins.  JÓHANN fellur vel inn í lið Lyn og með tilkomu hans, Runars Bergs og Hassans El Fakiris, sem allir hafa nýlega gengið í raðir Lyn, hefur liðið eflst til muna sem sést best á því að Odd Grenland burstaði Lyn, 5:1, snemma á þessu ári.  JÓHANN leikur á vinstri kanti í leikaðferðinni 4:3:3, ekki á hægri kanti eins og hann er vanur. Þjálfari Lyn segir að Jóhann nýtist betur vinstra megin þar sem hann geti auð- veldlega beitt vinstri fætinum við að senda boltann fyrir markið, og fái síðan betri skotfæri með þeim hægri.  JOHAN Cruyff beitti sömu aðferð þegar hann þjálfaði Barcelona. Hann lét vinstrifótarmenn leika hægra megin og öfugt til að þeir kæmust í hættulegri skotfæri.  SIGURVIN Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir KR og Sumarliði Árnason tvö fyrir Víking þegar KR vann leik liðanna í Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu, 4:2, í gærkvöld.  VÍKINGAR léku með sorgarbönd gegn KR til að minnast Halls Sím- onarsonar, fyrrum íþróttafrétta- manns, sem var varaformaður Vík- ings 1944-47 og fyrirliði fyrstu Íslandsmeistara félagsins í hand- knattleik 1946. Hallur lést í síðustu viku og verður jarðsunginn í dag.  ALEXANDER Ilic, nýi Júgóslav- inn sem er til reynslu hjá ÍBV, byrj- aði vel með liðinu í gærkvöld. Ilic, sem kom til landsins fyrr í þessari viku, skoraði öll þrjú mörk Eyja- manna þegar þeir gerðu jafntefli, 3:3, við ÍR í deildabikarnum á Ásvöllum.  BALDUR Aðalsteinsson, knatt- spyrnumaður úr ÍA, dvelur þessa dagana hjá þýska 3. deildarliðinu Uerdingen og æfir með því fram að páskum. Baldur lék með liðinu fyrir áramót og þjálfari Uerdingen bauð honum þangað aftur. Baldur hélt til Þýskalands að loknum leik 21-árs landsliðsins í Búlgaríu á föstudag.  TRYGGVI E. Geirsson ætlar að láta af formennsku hjá Knattspyrnu- félaginu Þrótti á aðalfundi þess nk. föstudag. Tryggvi hefur stýrt Þrótti í 16 ár.  CHELSEA hefur neitað þeim frétt- um að félagið sé á höttunum eftir tékkneska landsliðsmanninum Jan Koller sem leikur með Anderlecht í Belgíu. Framkvæmdastjóri belgíska liðsins sagði í vikunni að Chelsea hefði sett sig í samband vegna kaupa á Koller. FÓLK C-þjóðir Evrópu í blaki eru þærsem lakastar eru í álfunni. Ákveðið hefur verið að fyrsta mót þessara þjóða í karlaflokki fari fram í Andorra vorið 2002. Júlíus segist vonast til að einnig verði hægt að keppa í kvennaflokki strax á næsta ári en það ráðist alfarið af því hvort Blaksamband Evrópu samþykki að styrkja keppnina. „Þetta er ekki hægt nema að fá til þess styrk,“ seg- ir Júlíus. Tvær efstu þjóðirnar í keppninni hverju sinni vinna sér sjálfkrafa þátttökurétt í B-keppni Evrópu sem þegar er haldið úti. Þjóðirnar sem standa að baki C- keppninni, auk Íslendinga, eru með- al annars Lúxemborg, N-Írland, Ír- land, Skotland, Malta, Andorra, San Marínó, Kýpur, Liechtenstein. Þá hafa Norðmenn og Albanar lýst yfir áhuga á þátttöku. „Verði hægt að festa þessa keppni í sessi er ljóst íslenska landsliðið verður tryggt með verkefni á hverju ári því C-keppnin verður þá haldin það ár sem Smáþjóðaleikar eru ekki á dagskrá,“ segir Júlíus og bætir við að það yrði mikil lyftistöng fyrir blakíþróttina í þessum löndum verði keppnin að veruleika. Hann segir það ráðast á fundi Blaksambands Evrópu í San Marínó íjúlí hvort fjárveiting fáist til keppn- innar. Þá verði fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til umræðu en hún verður síðan samþykkt á árs- þingi í haust. Óskað hefur verið eftir því að Blaksamband Evrópu leggi fram um 30.000 svissneska franka, um 1,5 milljónir króna, til styrktar keppni sex þjóða og leggi síðan fram 5.000 franka, 250.000 kr., með hverri þjóð sem bætist við. „Verði þessi ósk samþykkt þá er fjárhagslegum grundvelli keppninnar að verulegum hluta borgið,“ segir Júlíus. „Þá um leið er ég viss um að ákveðið verði að halda einnig keppni kvennalandsliða strax á næsta ári. Ég veit að bæði Malta og Lúxemborg hafa áhuga á að halda keppnina,“ segir Júlíus. Júlíus segir enn fremur að And- orra-menn ætla sjálfir að bera þann kostnað af karlakeppninni á næsta ári sem óskað er eftir að Blaksam- band Evrópu beri, komi ekki til fjár- veiting vegna verkefnisins. Júlíus Hafstein hefur verið valinn formaður C-þjóða Evrópu í blaki Vill koma á C-keppni JÚLÍUS Hafstein, formaður Blaksambands Íslands, hefur verið val- inn formaður nefndar C-þjóða Evrópu í blaki til næstu tveggja ára. Nefndin hefur á sinni könnu undirbúning að stofnun keppni C- þjóða í blaki karla og kvenna en slík keppni hefur ekki verið fyrir hendi til þessa. Spenna var í leikmönnum til aðbyrja með en hittni Keflvík- inga slakari og KR náði tíu stiga forskoti. Þá kom Kristín Blöndal inn á hjá Keflavík og hleypti lífi í lið sitt en það dugði ekki til lengdar. Eigi að síður tókst þeim að jafna í upphafi annars leik- hluta eftir glæsilega þriggja stiga körfu Brooke Schwartz, sem skaut langt inni á eigin vallarhelmingi. Á fyrstu sex mínútum annars leik- hluta skoraði hvort lið aðeins fjög- ur stig en í hálfleik hafði KR 40:35 forskot og enn gat brugðið til beggja vona. Það gerði síðan útslagið þegar gestirnir skoruðu 29 stig á móti sex frá Keflvíkingum á fyrstu 15 mín- útum síðari hálfleiks. Úrslit voru ráðin og þjálfarar leyfðu flestum leikmönnum sínum að spreyta sig. „Við komum ekki með sama hug- arfari til síðari hálfleiks og við luk- um þeim fyrri,“ sagði Brooke Schwartz, sem skoraði 25 af 52 stigum Keflvíkinga. „Svo þegar KR-stúlkur skoruðu fyrstu körf- urnar eftir hlé héldu þær sínu striki og litu aldrei aftur en við fór- um á hælana. Það verður auðvitað erfitt að fara í leikina sem eftir eru, en við höfum samt sýnt í fyrri leikjum okkar við þær að við get- um vel staðið í þeim. Við höfum líka engu að tapa og verðum að gefa allt í þá leiki,“ bætti hún við. „Mér finnst þessar tölur segja til um muninn á liðunum,“ sagði Hanna B. Kjartansdóttir, sem átti ágætan leik hjá KR eins og Heat- her Corby og Helga Þorvaldsdótt- ir. „Við komum nú með hausinn í lagi en gerðum það ekki síðast og það er okkar styrkur að geta það. Við ætluðum að byrja síðari hálf- leikinn af krafti, ná strax góðum spretti og stöðva þær með vörn- inni. Við hittum síðan vel, tókum fráköstin og allt hitt og það skilar 25 stiga sigri,“ bætti Hanna við og vill gera út um mótið í næsta leik og setja Íslandsmeistarabikarinn í skápinn hjá sigurlaunum bikar- keppninnar. „Það hlýtur að gera okkur hungraðar í sigur í næsta leik að með sigri erum við orðnar Íslandsmeistarar og þurfum ekki að koma hingað aftur. Við höfum einnig fengið að prófa hvað er gaman að vinna bikar þó að við höfum líka prófað að missa af hon- um. Ég er í það minnsta ákveðin í að taka þátt í sigrinum því ég missti af fjörinu í bikarúrslitun- um,“ sagði Hanna en hún var fjarri góðu gamni og lá veik heima þegar lið hennar sigraði í bikarkeppninni fyrr í vetur. SEX stig á fyrstu fimmtán mínútunum eftir hlé drógu vígtennurnar úr Keflavíkurstúlkum þegar þær fengu KR í heimsókn í gærkvöldi í öðrum leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins. Vesturbæingar gengu strax á lagið, tóku endanlega öll völd á vellinum og sigruðu örugg- lega, 77:52, án þess að heimasæturnar hefðu nokkuð um það að segja. KR-stúlkur unnu þar með annan leik sinn og geta með sigri í þriðja leik liðanna á laugardaginn, sem fram fer í Vesturbænum, tryggt sér Íslandsmeistaratitil. Stefán Stefánsson skrifar KR-stúlkur kafsigldu Keflavík Sagan segir að KR tapi þriðja leiknum TÖLFRÆÐIN er ekki á bandi Íslands- meistara KR í körfuknattleik karla fyrir riðju viðureign liðsins í undanúrslitum slandsmótsins gegn Njarðvík í kvöld. Keppnistímabilið 1994–1995 var sú ný- reytni tekin upp að liðin þurftu að vinna rjá leiki í undanúrslitum til að komast í úrslit, í stað tveggja áður. Úrslitakeppn- sfyrirkomulagið var tekið upp í úrvals- deild karla keppnistímabilið 1986–1987 g fram til 1994 komust aðeins fjögur fstu lið deildarkeppninnar í úr- litakeppnina. Aðeins Skallagrímur og Njarðvík hafa apað tveimur fyrstu leikjunum í undan- úrslitum frá árinu 1995. Keppnistímabilið 994–1995 sigruðu Njarðvíkingar lið Skallagríms úr Borgarnesi í þrígang og Grindvíkingar sigruðu Njarðvík, 3:0, keppnistímabilið 1996–1997. Sama staða er nú uppi á teningnum í iðureign Njarðvíkinga og KR, þar sem Njarðvíkingar hafa sigrað í tvígang. „Við blásum á sögulegar staðreyndir. Við sönnuðum það í fyrra þegar við urð- um fyrsta liðið sem fer alla leið eftir að hafa endað í fimmta sæti,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, í samtali við Morgunblaðið í gær. Rimma Tindastóls og Keflavíkur er öfn – heimavöllur hefur ráðið úrslitum. Á íðastliðnu keppnistímabili fóru báðar undanúrslitaviðureignirnar í oddaleik. KR lagði Njarðvík á útivelli og Grindavík gerði slíkt hið sama gegn Haukum. Keppnistímabilið 1995–1996 vann Grinda- ík einnig undanúrslitaviðureignina við Hauka þrátt fyrir að hafa endað neðar í deildarkeppninni og 1998–1999 töpuðu Grindvíkingar 1:3 gegn Keflvíkingum em lagði nágrannaliðið í tvígang á heimavelli þeirra fyrrnefndu. Sagan er ví ekki eins afgerandi sé miðað við byrj- unina á einvígi Tindastóls og Keflavíkur. ÍBV prófar Dejan Jokic DEJAN Jokic, knatt- spyrnumaður frá Júgó- slavíu, verður til reynslu hjá ÍBV í æfingaferð liðs- ins til Portúgals í næstu viku. Hann kemur í stað landa síns, Milans Janose- vic, sem er meiddur. Jokic er 32 ára sóknarmaður eða kantmaður sem leik- ur með 1. deildarliðinu Mladi Radnik Pozarevac í heimalandi sínu en hefur áður spilað í Búlgaríu. Ólafur Stefánsson skoraði 10mörk í gærkvöld þegar lið hans, Magdeburg, vann Dormagen, 28:21, í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik. Magdeburg var lengi í vandræðum með Róbert Sighvats- son og félaga, staðan var 11:11 í hálf- leik og Dormagen komst yfir í seinni hálfleik áður en Magdeburg náði tökum á leiknum. Magdeburg komst með sigrinum í annað sæti deildar- innar. Guðmundur Hrafnkelsson lék vel í marki Nordhorn sem vann Wallau- Massenheim örugglega, 30:25. Guð- mundur var í miklum ham í fyrri hálfleik þegar Nordhorn komst í 8:2 og 10:4. Ólafur gerði tíu mörk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.