Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 B 13
LÍTILL kassi á stærð við spilastokk á eftir að
gera mörgum bílaþjófum erfitt fyrir. Kassinn er
settur í bílinn og skynjarar tengdir milli hans og
dyra bílsins og bíllása. Sé brotist inn í bílinn
sendir kassinn tölvupóst eða sms-skilaboð til
bíleigandans og um leið fer þjófavarnarkerfið í
gang með tilheyrandi bílflautuvæli og blikkandi
ljósum. Kassinn sendir líka frá sér boð sem
gervitungl nema og með þeim hætti er hægt að
staðsetja bílinn. Búnaðurinn verður væntanlega
fáanlegur í Evrópu strax á næsta ári og mun
kosta á bilinu 35-40 þúsund kr. Japanska trygg-
ingafélagið Tokio Marine átti þátt í þróun bún-
aðarins og býður félagið sínum viðskiptavinum
50% afslátt af iðgjöldum noti þeir búnaðinn.
Bílstuldur tilkynntur með
tölvupósti eða sms-skilaboðum
EINN af þekktari sportbílum heims, Porsche 911 Carrera, kemur á
markað næsta haust nokkuð breyttur. Breytingin er á framsvip bíls-
ins en jafnframt fær hann aflmeiri vél og enn vandaðri innréttingu og
er þetta allt saman liður í því að aðgreina bílinn enn betur frá minni
bílnum Boxster. Þrátt fyrir þessar breytingar verður verðið á honum
óbreytt ytra.
Nýtt útlit á framenda bílsins er fengið að láni frá Turbo-bílnum og
GT2. Framlugtirnar eru stærri og kringlóttari en áður. Fyrir vikið
setja þær sterkari svip á bílinn en um leið eykst birtumagnið. Ástæð-
an fyrir útlitsbreytingunni núna er ekki síst gagnrýni frá kaupendum
og áhugamönnum um að bíllinn sem nú verður leystur af hómi, sem
var settur á markað 1997, líkist um of Boxster, sem kostar um helm-
ingi minna en 911. Þessi staðreynd varð enn sýnilegri þegar Boxster
S kom á markað sem brúaði bilið milli 911 og Boxster hvað aflið
varðar.
Minnu munar á afli 911 Carrera og Turbo en áður. Bíllinn var með
300 hestafla vél og var sárlega farið að skorta afl í samanburðinum
við BMW M3 343 hestafla og Maserati 3200 GT, 370 hestafla. Af
þessum sökum hefur Porsche stækkað boxaravélina, sem hefur verið
vörumerki Porsche frá upphafi, úr 3,4 lítrum í 3,6 lítra. Með þessu
nást aukalega 20 hestöfl út úr vélinni og togið eykst sambærilega.
Stóru tíðindin eru þau að hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða eykst.
Nýr Porsche 911 Carrera fær svip Turbo-bílsins.
Nýr
Porsche 911
Carrera í haust
BMW 3 kemur á markað í haust lítillega
breyttur. Breytingin er ekki róttæk og er
henni greinilega ætlað að halda bílnum frísk-
legum í þeirri miklu samkeppni sem er á þess-
um markaði en Audi hefur sett nýjan A4 á
markað og auk þess eru komnar nýjar gerðir
af VW Passat og Ford Mondeo. Breytingarnar
eru hófsamar, ekki síst í þeim tilgangi að
skerða sem minnst endursölu fyrri gerða.
Engu að síður má sjá töluverðar breytingar á
nýja bílnum þar sem allir hlutir fyrir framan
framrúðu hafa verið endurnýjaðir. Kominn er
nýr framstuðari með stærra grilli og framlugt-
irnar hafa minnkað auk þess sem hliðarljósin
eru sams konar og á 5-línu bílnum. Undir vél-
arhlífinni verður að finna tvær nýjar bensín-
vélar, 115 hestafla, 1,8 lítra vél og tveggja lítra,
140 hestafla vél sem sagðar eru eyðslugrann-
ar eins og dísilvélar, þökk sé Valvetronic-
ventlakerfinu.
Nýr BMW 3 kemur á markað síðla árs.
Nýr BMW 3 í haust lítillega
breyttur
ÞÝSKIR stjórnmálamenn íhuga að setja lög
sem banna reykingar undir stýri á bíl þar
sem slíkt er talið valda hættu í umferðinni.
Norskir sérfræðingar í umferðarörygg-
ismálum eru hlynntir slíkum aðgerðum í Nor-
egi. Skammt er síðan notkun handheldra far-
síma var bönnuð við akstur í Þýskalandi.
Menn telja að reykingar við akstur séu álíka
truflandi og notkun farsíma. Reykjandi öku-
menn þurfi að nota öskubakka, sem dreifir
athyglinni, og þeir eiga það til að strá yfir sig
ösku og jafnvel missa niður glóð. Rita Steb-
Hesse, talsmaður þýskra jafnaðarmanna, seg-
ir að þeir sem reykja undir stýri stefni sjálf-
um sér og öðrum í umferðinni í óþarfa hættu.
Vilja banna reykingar
undir stýri
CITROËN hefur ákveðið að
hefja framleiðslu á Pluriel-hug-
myndabílnum sem smíðaður
verður á sömu botnplötu og vænt-
anlegir C2 og C3 smábílar. Plur-
iel er um margt óvenjulegur.
Hann er með tuskuþak sem hægt
er að fella saman ekki ósvipað og
á 2CV, gamla bragganum.
Hægt er að nota bílinn sem
fimm sæta fólksbíl eða pallbíl því
hægt er að fjarlægja aftursætin í
heilu lagi. Citroën vonast til að
endurheimta nokkuð af fyrra orð-
spori sínu sem framsækið fyrir-
tæki í hönnun þegar Pluriel kem-
ur á markað á næsta ári.
Talsmaður fyrirtækisins, Gerald
Ponce, segir að hönnuðir bílsins
hafi engu fórnað af hugmyndum
þeim sem kynntar voru í hug-
myndabílnum í Frankfurt 1999
heldur einungis endurbætt þær.
Pluriel á markað á næsta ári
Citroën hefur ákveðið að framleiða Pluriel.
Bíllinn verður óhefðbundinn jafnt
að utan sem innan.
Fólksbílaeigin-
leikar í fyrirrúmi
Það sem vekur
fyrst athygli við
þennan laglega
jeppling er rýmið
innandyra.