Morgunblaðið - 19.06.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 19.06.2001, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 C 9HeimiliFasteignir Bragi Björnsson lögmaður Úlfar Þór Davíðsson sölustjóri Börkur Hrafnsson lögmaður Magnús Ingi i Erlingsson lögmaður Sveinn Guðmundsson lögmaður lögg. fasteignasali Fagleg þjónusta lögmanna tryggir örugg viðskipti FAXAFENI 5 SÍMI 533 1080 www.foss.is Netfang: foss@foss.isFASTEIGNASALA VANTAR VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ EINBÝLISHÚS FALLEGT EINBÝLI. Fallegt einlyft einbýl- ishús. Björt stofa með arni og samliggjandi borðstofu, sjónvarpshol og fjögur svefnher- bergi. Parket á gólfum. Baðherbergi með sturtu og baðkari, flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Mjög stór bílskúr. Óráðstafað rými í kjall- ara. Frábær eign á góðum stað. Verð 21,9 millj. TJALDANES - ARNARNES. Glæsilegt einbýlishús með tvöföldum bílskúr. Húsið er mest á einni hæð eða um 200 fm og bílskúrinn. Á neðri hæð er 80 fm rými. Stofur eru glæsileg- ar. Arinn í stofu. Stór hellulögð sólstofa. Sjón- varpshol. Svefnherbergi eru 4. Glæsileg eign á besta stað á Arnarnesinu. SKÁLABREKKA -ÞINGVALLASVEIT Stórglæsilegt hús á tveimur hæðum. Neðri hæð er 102,4 fm. Efri hæð er 33,4 fm. Bílskúr er 33,4 fm. Lóðin er mjög stór eða 15.000 fermetrar. Lóðin er afgirt. Öll lóðin er í rækt, búið er að setja niður ca 1000 plöntur. Sólpallur u.þ.b. 100 fm með heitum potti. Gervihnattadiskur. Verð 18,9 millj. 5 HERBERGJA FROSTAFOLD – GRAFARVOGI Sér- lega rúmgóð 115 fm íbúð á besta stað í Grafar- voginum. Sérinngangur af svölum. Fallegt eld- hús, stór stofa og 4 svefnherbergi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, ný tæki, sturta og bað- kar. Góður bílskúr með geymslulofti. Verð að- eins 15,3 millj. FOSSVOGUR - MARKARVEGUR Mjög falleg og vel skipulögð 123 fm íbúð á 2. hæð neðst í Fossvoginum, auk 30 fm bílskúrs með millilofti. Parket er á allri íbúðinni nema baðherbergi og þvottahús eru flísalögð. Íbúðin er mjög björt og opin, eldhús, borðstofa, stofa og sjónvarpshol mynda eina heild. 3 góð svefn- herbergi. Stórar svalir. Verð 17,7 millj. 3JA HERBERGJA VESTURBÆR Vorum að fá í einkasölu ein- staka risíbúð sem býður upp á ótal möguleika. Stór stofa með gólfborðum, sjónvarpshorn, eld- hús með sjarmerandi innréttingu. Stór hjóna- herbergi og gott barnaherbergi. Baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Íbúð með sál. Verð 11,3 millj. 2JA HERBERGJA ÞINGHOLT - MIÐSTRÆTI Björt risíbúð í fallegu húsi í Þingholtunum sem er nýuppgert. Gólfborð á allri íbúðinni. Stofa rúmgóð. Baðher- bergi flísalagt. Verð 6,9 millj. LAUTASMÁRI - GLÆSILEG Glæsileg 74 fm íbúð á jarðhæð á besta stað í Kópavogi. Eikarparket á öllum gólfum nema baðherbergi sem er flísalagt. Verð 9,9 millj. EIÐISTORG 2ja herbergja góð íbúð á besta stað á Seltjarnarnesi. Eldhús opið innaf stofu. Góðar suður-svalir. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í sameign. Rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni. Verð 8,2 millj. ATVINNUHÚSNÆÐI BLÁ-HVÍTA HÚSIÐ Í SMÁRANUM TIL LEIGU 2400 fm atvinnuhúsnæði á fjórum hæðum til leigu. Möguleikar á skiptingu í 300 fm skrifstofu- og verslunareiningar. Tryggðu þér góðan stað fyrir rekstur þinn í hjarta höfuðborg- arsvæðisins í tíma. Staðsetningin hefur mikið auglýsingargildi. Traustur eignarhaldsaðili. Uppl. veitir Magnús. HAFNARFJÖRÐUR- GLÆSILEGT Til sölu eða leigu í miðbæ Hafnarfjarðar stór- glæsilegt húsnæði með útsýni yfir höfnina, í góðu lyftuhúsi. Lyklar og nánari upplýsingar á skrifstofu. HAMRABORG - KÓPAVOGI 244 fm at- vinnuhúsnæði í Hamraborg. Húsnæðið er bjart og mjög snyrtilegt og býður upp á mikla mögu- leika. Bílastæði beint fyrir framan. Gott að- gengi. Mikið auglýsingagildi. Uppl. gefur Sveinn. FAXAFEN Til sölu samtals 2264 fm hús- næði á góðum stað í Faxafeni. Uppl. gefa Magnús og Börkur. KRÓKHÁLS Til sölu eða leigu nýtt samtals 1580 fm húsnæði sem selst tilbúið til innréttinga við Krókháls. Þriggja hæða hús með lyftu. Góð aðkoma. MJÓDDIN Gott 600 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð. Leiguverð 850 kr. pr fm. SÍMI 533 1080 - FAX 533 1085 - HEIMASÍÐA www.foss.is - NETFANG foss@foss.is - GALTALIND - GLÆSILEG Stórglæsileg 3ja herbergja íbúð, á efstu hæð; í fallegu litlu 3ja hæða fjölbýli á frábærum útsýnisstað, í Lindunum. Glæsilegt eldhús með mahóní innrétt- ingum. Fallegt flísalagt baðherbergi. Sér þvottahús í íbúð. Stór og björt stofa. Tvö góð svefnherbergi. Stórar svalir með miklu útsýni. Verð 14,5 millj. BARMAHLÍÐ Mjög góð og björt risíbúð í 4-býli á góðum stað. Góð stofa og tvö svefn- herbergi. Parket og dúkar á gólfum. Sérhiti og rafmagn. Nýtt gler og póstar. Þak og rennur nýl. Dren lagnir endur- nýjaðar. Verð 8,7 millj. NÝBYGGINGAR KIRKJUSTÉTT - GRAFARHOLTI Falleg raðhús, alls 193,3 fm, á tveimur hæð- um á góðum stað í Grafarholtinu. Stutt verð- ur í alla þjónustu og skóla. Húsin verða af- hent fullbúin að utan en fokheld að innan og lóð grófjöfnuð. Hagstætt verð. RAÐHÚS - KJALARNESI Gott raðhús á einni hæð, 96 fm, frágengið að utan, fokhelt að innan. Verð aðeins 8,7 millj. Áhvíl. ca 7 millj. í húsbr. Tilbúið til afhendingar. ÓLAFSGEISLI – GRAFARHOLTI Stórglæsileg raðhús með innb, bílskúr á tveimur hæðum á besta stað í Grafarholtinu. Stórkostlegt útsýni. Húsin eru á tveimur hæðum og eru rúmlega 200 fm að stærð. Nánari upplýsingar og teikningar á www.foss.is. Aðeins 4 hús eftir. MARÍUBAUGUR – RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ Falleg raðhús ásamt sér- standandi bílskúr á einni hæð í Grafaholtinu. Húsin bjóða upp á fjölbreytta innri hönnun eftir þörfum hvers og eins. Stærð húsa eru 115 fm. Stærð bílskúrs er 27 fm. Nánari upp- lýsingar og teikningar á www.foss.is. Aðeins 4 hús í boði. PARHÚS - KJALARNESI Glæsilegt parhús, alls 123 fm. Afhendist fullbúið að utan en fokhelt að innan með grófjafnaðri lóð. Verð 9,5 millj. EINBÝLI Fallegt einbýli á 1 hæð í klasabyggð í Hf. með innb. bílskúr. Stærð alls 168 fm. Af- hendist fullb. og málað að utan en fokh. að innan. Verð 13,0 millj. Áhvíl. 7,7 millj. í húsbréfum. RAÐHÚS - BRÚNASTAÐIR Vel hannað raðhús á einni hæð, alls 130 fm, með inn- byggðum bílskúr. Afhendist fullbúið að utan en fokhelt að innan með grófjafnaðri lóð. Verð 13,0 millj. EINBÝLI - SÚLUHÖFÐI Fallegt einbýlishús á einni hæð, alls 190 fm. Afhendist fullbúið að utan en fokhelt að innan með grófjafnaðri lóð. Verð 13,6 millj. RAÐHÚS - KJALARNESI 1113 fm raðhús á góðum stað á Kjalarnesi. Afhendist fullbúið að utan en fokhelt að innan, með grófjafnaðri lóð. Verð 9,0 millj. ÞAÐ er yfirgengilegt hvaðgífurleg verðmæti fá aðfuðra upp í eldi hérlendisár eftir ár. Nýlega hafa orðið tveir stórbrunar, sá fyrri í Hafnarfirði þar sem matvælafyr- irtæki gjöreyðilagðist, sá síðari á Akureyri, einnig í matvælafyrirtæki, og þá voru Akureyringar heppnir með vindáttina, hefði hún verið önn- ur en raun bar vitni hefði ekki verið líft í stórum hluta bæjarins. Reynd- ar má í þessu sambandi rifja upp brunann í Vestmannaeyjum þegar einn stærsti, ef ekki stærsti, vinnu- staður bæjarins eyðilagðist á einni nóttu. Ef farið væri lengra aftur í tímann væri sagan sú sama, stórbrunar og gífurleg eyðilegging auk vinnutaps og skaða einstaklinga af þeim sök- um. Slökkviliðsmenn hætta lífi og lim- um í baráttunni við ofurefli eldsins, þeirra afrek er oftar en ekki það að bjarga nærliggjandi húsum. Í bygg- ingunni, þar sem eldurinn kemur upp, verður sjaldnast við neitt ráðið. Forstöðumenn og eigendur koma á skjáinn, barma sér talsvert en bæta oftast við að sem betur fer hafi þetta allt verið tryggt, peningar komi og nú sé það næsta að byggja upp aftur. Það upplýsist oftast nær að þeir sömu menn hafi verið með allt niður um sig, brunavarnir allar í molum, eldfim efni liggjandi óvarin við hús- vegginn, opið milli brunahólfa og ekkert vatnsúðakerfi í húsinu. „Það var allt of dýrt að leggja slíkt kerfi en víst hafði okkur verið bent á slíka vörn.“ Hver borgar slóðaskapinn? Svarið við því virðist einfalt, það er auðvitað tryggingafélagið sem hafði brunatryggt eignina. En svarið er ekki svona einfalt, eða hvaðan fær tryggingafélagið fjármagn til að punga út milljóna- tugum eða hundruðum milljóna? Þeir peningar koma frá þeim sem eiga fasteignir sem ekki brenna, þeir koma frá þeim sem hafa þá fyrir- hyggju að hafa brunavarnir í lagi. þeir koma meira að segja frá fast- eignaeigendum sem urðu fyrir því óláni að það kviknaði í þeirra fast- eign sem þó brann ekki, t.d. vegna þess að innandyra var vatnsúðakerfi sem hafði verið þjónustað með þeim ágætum að það fór samstundis í gang og eldurinn kviknaði og drap hann í fæðingu. Í hvert skipti sem við horfum á stórbruna, hvort sem er beint eða á skjánum, skulum við muna það að hver eldtunga seilist ofan í veski flestra landsmanna, þetta er ekkert einkamál slóðanna sem stýrðu eða áttu þann atvinnurekstur sem í hús- inu var en er nú orðinn að ösku. Þjóðarátak Hvernig stendur á þessum ósköp- um, eru ekki til lög í landinu og stofnanir sem eiga að sjá til þess að þeim sé fylgt? Það er til slökkvilið í nánast hverju sveitarfélagi, þau slökkva ekki aðeins elda heldur halda uppi eftirliti með brunavörnum og pre- dika fyrirbyggjandi aðgerðir. Við höfum Brunamálastofnun rík- isins sem vinnur á landsvísu að fyr- irbyggjandi aðgerðum, en allt kem- ur fyrir ekki; á hverju ári hverfa milljónir ef ekki milljarðar í logum og reyk. Vel má vera að Alþingi þurfi að skerpa löggjöfina og brýna þar með þau vopn sem þarf til að koma skikki á þessi mál. Það á ekki að vera enda- laust hægt að gefa þeim, sem vinna að bættum brunavörnum, langt nef. Þar að auki þarf hvorki meira né minna en þjóðarvakningu, hver ein- asti þjóðfélagsþegn ætti að muna þetta næst þegar hann horfir á stór- bruna; þarna brenna þó nokkrir seðlar úr minni buddu. Nú er mál að linni Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is Mikið tjón er venjulega fylgifiskur stórbruna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.