Morgunblaðið - 19.06.2001, Blaðsíða 42
Teikning af 1. hæð hússins. Sýnir eld-
hús og stofu ásamt mismunandi
samgönguleiðum á hinar tvær hæð-
irnar.
H
JÓNIN Eisaku Ushida
og Kathryn Findlay eru
fræg fyrir að nota lífræn
form í húsagerð sinni,
reiknuð út frá stærðfræðilegum
einingum. Þegar árið 1990, í Truss
Wall-húsinu í Machida Tókýó,
brutu þau upp hefðbundnar
leiðir til þess að móta
tengsl rýmis og veggja.
Möguleiki sem aðeins
var framkvæmanlegur
með byggingartækni
sem notuð var við gerð
risavaxinna Búddalík-
neskja.
Truss Wall-húsið
stendur gagnrýnið í einhæfu
úthverfi Tókýó-borgar, sam-
síða fjölförnum járnbrautar-
teinum. Steinsteypt hvítmálað
húsið hringar sig utan um sjálft
sig og það virðist jafnvel sem
veggirnir séu reyrðir saman.
Fljótandi „slím-
kennt“ bygging-
arefni
Aðferðin til þess að ná
fram vægi milli hluta
hússins fólst í ákveðinni
byggingartækni – sem
upphaflega var hugsuð
fyrir ódýran byggingarmarkað en
reyndist of dýr í framkvæmd – og,
með hjálp stærðfræðigreinar stað-
fræðinnar.
Þannig gátu Ushida og Findlay náð
fram rými sem breyttist ekki við
teygingu og bjaganir. Samsettar
sveigjur hússins voru greindar í
sundur með því að skera lóðrétt á þær
á 20 cm millibili. Hlutarnir voru síðan
mótaðir til með því að beygja staðlaða
járnbenta bita inn í tiltekið mót. Log-
soðið fíngert vírnet var síðan lagt yfir
þessa bita og blautri steypunni hellt í.
Þessi byggingartækni olli því að
efnið – steypan – var „slímkennd“
þangað til hún var „fryst“ á ákveðn-
um tímapunkti þegar hún hafði náð
því að uppfylla kröfur rýmisins um
ákveðið notagildi.
Innanhússrýmið var þannig mótað
með því að nota hreyfingu sem virkt
afl, afl sem gróf sig inn í þétta rýmd-
ina. Afleiðingin var flæðandi rými
sem einkenndist af samrennsli staðn-
aðra og virkra þátta. Lögun rýmisins
bjó yfir nær ótakmörkuðu frelsi,
óþekkt allt frá tímum endurreisnar-
innar.
Skynjun rýmisins
Sérstök tengsl voru mynduð milli
líkamans og rýmisins, bæði gagnvart
Rýmið í Truss Wall-
húsinu í Japan
Mótaðir fletir svefnherbergisins hvetja til hugleiðinga um snertiskyn mannsins.
Eisaku Ushida
(fæddur í Jap-
an) og Kathryn
Findlay (fædd í
Skotlandi).
Margræði rýmdarinnar í Truss Wall-
húsinu er þjappað saman á „slím-
kenndri“ teikningunni.
42 C ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
.
aa
F
a
s
te
ig
n
a
m
ið
lu
n
in
B
e
rg F
a
s
te
ig
n
a
m
ið
lu
n
in
B
e
rg
Fasteignamiðlunin Berg, Háaleitisbraut 58, www.berg.is
Sími 588 55 30 • Fax 588 55 40
Netfang: berg@berg.is • Heimasíða: www.berg.is
Opið mánudaga- föstudaga frá kl. 9-17
Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali
Hannes Jóna Pétur Sæberg
Landið
PATREKSFJÖRÐUR Til sölu gott ein-
býlishús á Patreksfirði, 2ja hæða, 165 fm,
byggt úr timbri ásamt 48 fm bílskúr. Allar
uppl. hjá Pétri. Verð 4,8 m. 1956
Í smíðum
PARHÚS - HAFNARFIRÐI Höfum í
einkasölu stórglæsil. parhús á einni hæð, 144
fm auk 25 fm bílskúrs. Gluggar og útihurðir úr
harðviði. Bílskúrhurð frá Reynor. Húsið skilast
fullbúið að utan. Þessi eign býður upp á
mikla möguleika þar sem engir milliveggir
eru steyptir. Hagstætt verð. 1952
ESJUGRUND - PARHÚS Höfum til
sölu 123 fm parhús auk 21 fm innbyggðs bíl-
skúrs við Esjugrund á Kjalarnesi. Húsin af-
hendast fullbúin að utan og tilbúin undir máln-
ingu. Að innan eru húsin fokheld. Lóðin er
grófjöfnuð. Verð 9,2 m. 1919
ESJUGRUND - RAÐHÚS Til sölu 108
fm raðhús við Esjugrund, Kjalarnesi. 3 svefn-
herbergi. Húsið er á einni hæð og skilast full-
búið að utan, steinað. Lóð er grófjöfnuð. Hús-
ið er til afhendingar við undirritun kaupsamn-
ings. Verð 8,8 m. 1923
SÚLUHÖFÐI - MOS. Höfum til sölu
200 fm einbýlishús ásamt tvöf. bílskúr við
Súluhöfða, Mosfellsbæ. Aðeins eitt hús eftir.
Húsið er á einni hæð og afhendist fokhelt að
innan og tilbúið til pússningar að utan. Allar
uppl. gefur Hannes. Hagstætt verð. 1892
SÚLUHÖFÐI - MOS. Í einkasölu 142
fm parhús ásamt 33 fm sambyggðum bílskúr.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum. Full-
frágengið að utan með marmaramulningi.
Veggir fulleinangraðir og pússaðir, tilbúnir
undir sandspörtlun. Miðstöð og hiti kominn í
húsið. Teikningar á skrifstofu. Eign með frá-
bæra staðsetningu við Leirvog. 1890
Land
MOSFELLSDALUR Höfum í einkasölu
8,5 hektara landspildu í Mosfellsdal. Selst
óskipt. Heildarverð 10 millj. 1935
Einbýlishús
BRATTHOLT - MOS. Höfum í einka-
sölu eitt af þessum vinsælu einbýlishúsum,
145 fm ásamt 38 fm bílskúr. Fjögur svefnher-
bergi, stofa, borðstofa. Plastparket og flísar.
Fallegur arinn í stofu. Góður suðurgarður.
Frábær staðsetning, stutt í þjónustu, skóla
og útivist. Verð 17,9 m. 1917
ÁLMHOLT - MOS. Höfum í einkasölu
fallegt einbýlishús, 155 fm ásamt bílskúr 33
fm. Stór stofa, borðstofa og 4 svefnherbergi.
FALLEG EIGN MEÐ GRÓNUM GARÐI OG
GÓÐRI STAÐSETNINGU. VERÐ 21 m. Áhv.
4 m. 1085
Parhús
BJARKARHOLT - MOS. Í einkasölu
110 fm parhús ásamt 26 fm bílskúr á rólegum
og fallegum stað í Mosfellsbæ. Þrjú svefn-
herb. með góðum skápum. Einstaklega fal-
lega ræktaður garður. Verð 14,5 m. 1934
Hæðir
EFSTASUND Til sölu 150 fm efri hæð og
ris ásamt 54 fm bílskúr. Hæðin er öll endur-
nýjuð. Flísar og parket á gólfum. 1885
ENGJASEL Höfum fengið í sölu fallega
102 fm íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi ásamt
stæði í bílgeymslu. Falleg eign í barnvænu
umhverfi. 1939
4ra-5 herb.
STRANDASEL - 100 FM Höfum í
einkasölu góða 4ra herb. íbúð, 100 fm á 1.
hæð í litlu fjölbýlishúsi með sérgarði. 3 svefn-
herb., parket, dúkur og flísar. Góð eign með
frábæra staðsetningu. Verð 12,5 m. 1941
JÖRFABAKKI Í einkasölu góð 105 fm
íbúð á 3. hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi ásamt
herb. í kjallara. Mjög snyrtileg sameign. 1924
SELJABRAUT - M. BÍLSKÝLI Mjög
falleg 98 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í 4ra
hæða fjölbýlish. ásamt 30 fm stæði í bílskýli.
Innangengt er í bílskýli úr sameign. Þetta er
sérlega skemmtileg og vel umgengin eign,
sem vert er að skoða. Verð 11,8 m. 1903
ÞVERHOLT - MOS. Í einkasölu mjög
falleg 160 fm, 2ja hæða íbúð, „PENTHOUSE“
í 3ja hæða fjölbýlishúsi í Mosfellsbæ.
Skemmtilega hönnuð eign með suðursvölum
og mikilli lofthæð í borðstofu. Afar góð stað-
setning. ÁHV. 7,9 M. ÞAR AF BYGG.SJÓÐS-
LÁN 5,6 M. VERÐ 14,2 M. 1723
ASPARFELL - M. BÍLSKÚR Höfum í
einkasölu mjög fallega og vandaða 112 fm 4
herb. íbúð á 3. hæð ásamt 21 fm bílskúr. Eik-
arparket á gólfum, tvennar svalir. FRÁBÆRT
ÚTSÝNI. Verð 11,3 m. 1830
3ja herb.
FÁLKAHÖFÐI - MOS. Í einkasölu
glæsileg 91 fm 3 herb. íbúð á 3. hæð í fallegu
fjölbýlishúsi. Eignin er öll hin vandaðasta.
Parket og flísar á gólfum. Stórar suðursvalir.
Sérinngangur. Áhv. 6,0 m. Verð 11,8 m. 1937
LAUFENGI - BÍLGEYMSLA Höfum í
einkasölu glæsilega 3ja herb. íbúð, 96 fm
ásamt opinni bílgeymslu. Eldhús er nýlegt
með fallegri innrétt. og topptækjum. 2 svefn-
herb. með skápum, tvennar svalir. Parket og
flísar á gólfum. Áhv. 6,5 m. Verð 12,2 m. 1916
HAGAMELUR - VESTURBÆ Vönd-
uð 95 fm 3ja herb. kjallaraíbúð, lítið niðurgraf-
in í snyrtilegu fjölbýlishúsi Sérinngangur.
Þvottaherbergi innaf eldhúsi. Parket á holi og í
stofu. Verð 10,5 m. 1909
FLÉTTURIMI Til sölu falleg 83 fm 3ja her-
bergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Flísar
og parket á gólfum. Björt stofa, stórar svalir.
Áhv. 8,4 m. Verð 11,3 m. 1955
NÝBÝLAVEGUR - M. BÍLSKÚR -
LAUS STRAX Í einkasölu, 3ja herbergja
íbúð, 78 fm í 2ja hæða fjölbýlishúsi ásamt 27
fm bílskúr í Kópavogi. Nýtt parket á gólfum.
Góð sameign með sérsnyrtingu. Gott útsýni.
Sérbarnaleikvöllur í bakgarði. ÁHUGAVERÐ
EIGN. Lyklar á skrifstofu. 1852
2ja herb.
HRINGBRAUT - BÍLGEYMSLA
Höfum í einkasölu fallega 2ja herb. íbúð, 61
fm á 4. hæð með 32 fm stæði í bílgeymslu.
Svalir. Parket á gólfum. Góð eign með stæði
í bílgeymslu. Verð 8,2 m. 1911
Atvinnuhúsnæði
ÁLAFOSSVEGUR - MOS. Höfum til
sölu mjög hentugt 145 fm atvinnuhúsnæði í
M.bæ. Mikil lofthæð, möguleiki á millilofti. Lítil
skrifstofa og snyrting. Stórar rafmagnsvindu-
dyr. Malbikað bílastæði með góðu athafna-
plássi. Laust strax. Hagstætt verð. 1927
ESJUMELAR - MOS. Höfum til sölu
iðnaðarhúsnæði, 600 fm, sem möguleiki er á
að skipta í minni einingar, t.d. 100 eða 200 fm
bil. Mikil lofthæð, stórar innkeyrsludyr 4,0 m
br., 4,2 m hæð. GÓÐ STAÐSETN. Í NÝJU
IÐN.HVERFI. VERÐ KR. 58 ÞÚS. FM. 1781
Þekking - öryggi - þjónusta
Til sölu eða leigu mjög gott 947,6
fm málmgrindarhús með tveimur
innkeyrslud. og tveimur göngu-
dyrum á hliðinni. Eignin skiptist
þannig að fremst er verslunarhúsn.
með skrifst. Það eru stórir gluggar
í anddyri. Þetta er eign sem hentar
vel undir margs konar verslun og
iðnað. FRÁBÆR STAÐSETNING
SMIÐJUVEGUR - KÓPAVOGI
Höfum til sölu fallegt 235 fm einbýlishús á 1.650 fm eignarlóð ásamt
45 fm bílskúr. Fjögur svefnherbergi. Ný endurnýjað eldhús. Stór stofa
og borðstofa. Sólstofa 23 fm með nuddpotti. Parket, flísar og dúkur á
gólfum. Fallegur eign á einstökum útsýnisstað. Hagstætt verð.
Verð 21,0 m.
ÁSLAND - MOS.
EINBÝLISHÚS M. BÍLSKÚR