Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 2
DAGLEGT LÍF 2 B FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Trúarstef í dægurmenningu Kvikmyndahetjur, rokkstjörnur og sagnapersónur eru meðal þeirra sem koma við sögu í mál- stofum um trú og samfélag á Kirkjudögum á Jónsmessu. Þrír fyrirlesarar gefa hér for- smekkinn, en öll fimmtíu erindin verða flutt á morgun, laugardag. ELSTA dæmi Orðabókar Háskól- ans um orðið „markaðssetning“ er frá árinu 1984. Árið 2001 setur markaðssetning alls konar vöru og þjónustu verulegan svip á dæg- urumhverfi Íslendinga. Útvarps- dagskrá er rofin reglubundið með „nokkrum skilaboðum“ og flett- iskilti fanga athygli manna á götuhornum. Sjónvarpsþættir, menningarstofnanir og list- viðburðir eiga sér og styrktarað- ila úr atvinnulífinu – svo mætti áfram telja. Kynningarleið sem nýtur vaxandi vinælda er áprent- aðar flíkur – gangandi auglýs- ingar. Halldór Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hvíta hússins, hef- ur starfað við auglýsingagerð í 30 Gangandi Markaðsmál í hádeginu og herferðir á kvöldin. Auglýsingar verða bókstaflega á vegi okkar í vaxandi mæli, límdar, prentaðar og saumaðar í klæði. Haukur Már Helgason hitti nokkrar auglýsingar á gangi og spurði reyndan auglýsingaref álits á fyrirbærinu. Morgunblaðið/Billi Tinna Magnúsdóttir fékk sinn bol gefins við opnun á nýrri tískuverslun. „Það er bara fínt að hafa þetta merki,“ segir hún. Fanney Dögg Jónsdóttir og Margrét Líf Árnadóttir voru merktar í bak og fyrir á Laugaveginum. Þær fengu húfurnar og ferðaskrif- stofubolinn að gjöf frá fyrirtækjunum og segja að þeim standi á sama þó fötin séu merkt ef þau eru góð. auglýsingar GUÐ á hvíta tjaldinu“ er yf-irskriftin á málstofutveggja MA-nema í guð-fræði, á Kirkjudögum. „Við ætlum að rekja notkun Krists- minna og Kristsgervinga í kvik- myndum,“ segir Þorkell Ágúst Ótt- arsson. „Við förum í gegnum efnið í ævisögulegri röð – það er, byrjum á vísunum til fæðingarinnar og endum á uppstigningunni.“ Eftir þessa kynningu á Kristi í kvikmyndum munu þeir félagar, Þorkell og Árni Svanur Daníelsson opna nýjan íslenskan vef um þetta sama efni. „Vefurinn heitir Deus ex Cinema. Við ritstýrum honum tveir, ég og Árni Svanur, en á bak við okk- ur er stærri rithópur.“ Áhugi og fordómar Vefurinn Deus ex Cinema er ansi viðamikill. Meðal efnis verður veg- legur gagnagrunnur yfir trúarlegar tilvísanir í kvikmyndum. Er svona mikill áhugi á efninu á Íslandi? „Já, það er það. Reyndar er rit- hópurinn að baki vefnum þegar sprunginn, það langar fleiri að skrifa um efnið en komast að. Fólki þykir gaman að fá nýtt sjónarhorn á nær- tækt efni. Kvikmyndin er eitthvað sem allir eiga sameiginlegt og þekkja. Það hafa ekki allir lesið heimsbókmenntirnar, en það eru fjöldamargar kvikmyndir sem þorri fólks hefur séð.“ Þorkell segir kvikmyndir þó ekki njóta sannmælis í menningarum- fjöllun. „Það eru gífurlegir fordómar í garð kvikmynda. Ef þú segir að þér finnist skemmtilegra að fara í bíó en í leikhús, þá er litið á þig sem menn- ingarfífl – þú kunnir ekki gott að meta. Stigskiptingin innan bók- mennta er skáldsaga, leiklist, kvik- myndir – svo geturðu kannski endað í tölvuleikjum eða einhverju svoleið- is. Tölvuleikirnir eru nýjastir, þeir eru í sömu sporum í dag og kvik- myndin var fyrir einhverjum áratug- um. Einu sinni sat fólk við eld og hlust- aði á sögumenn. Svo kom ritmálið og menn tóku að lesa og skrifa bók- menntir. Þegar útvarpið kom til sög- unnar litu margir á það sem ógnun við bækur. Í dag eru tölvur, Netið og kvikmyndir þeir miðlar sem mest móta veröld okkar. Eigi fræðin að vinna einhvers staðar, finnst mér það vera þarna.“ Hollywood er morandi í Biblíuvísunum „Ég ætla að tala um hvernig Kristsminni og Kristsgervingar eru notuð í kvikmyndum,“ heldur Þor- kell áfram. „Kristsminni er það þeg- ar vísað er til Krists án þess að inni- hald myndarinnar sé sótt þangað. Til dæmis í lok The Truman Show, þeg- ar Truman bindur um sig band sem myndar kross á honum, drukknar svo næstum því en rís upp aftur, virðist ganga á vatni, og gengur að lokum upp stiga inn í himininn. Kristsgervingar kallast það hins vegar þegar einhver hefur svipað hlutverk og Jesús Kristur, það er að segja frelsunarhlutverk gagnvart einstaklingi eða samfélagi. Truman hefur ekkert slíkt frelsunarhlutverk, nema fyrir sjálfan sig kannski, svo það er hæpið að tala um Kristsgerv- ingu í hans tilfelli. Það má kannski frekar sjá hann í hlutverki Adams ef út í það er farið.“ En vísa kvikmyndagerðar- menn í Hollywood viljandi til Biblíunnar? Geta ekki kapp- samir fræðimenn lesið svona skírskotanir úr hverju sem er? „Í fyrsta lagi er Hollywood morandi í Biblíutilvísunum. Ástæðan er einfaldlega sú að Hollywood veit að það er gott að byggja sögu á einhverju sem fólk þekkir. Fólk þekkir sagna- minnið um Krist. Þess vegna er mjög hentugt að byggja sögu inn í það eða vísa til þess. Kvik- myndagerðarmenn læra svo þessi minni hver af öðrum. Hitt má vel vera að oft lesi menn eitthvað í kvikmynd sem höfundinum gekk ekki til. En hvað með það? Það er allt í lagi. Myndir eru til að lesa þær, al- veg eins og bókmenntir. Við fáum þær sem endanlegan texta og þurfum ekki að hafa leikstjórann við hliðina á okkur til að segja hvað er réttur lest- ur og hvað rangur. Aðrir dæma hvort lesturinn er sannfærandi eða ekki.“ Saga Krists og kvikmynda á 60 mínútum Þorkell og Árni munu sýna brot úr fjölmörgum kvikmynd- um í erindi sínu á laugardaginn. „Við reynum að sýna úr öllum kvikmyndagreinum frá helstu tímabilum kvikmyndasögunn- ar, en aðeins eitt dæmi um hverja vísun – eitt dæmi um stjörnu, eitt dæmi um að ganga á vatni og svo framvegis.“ Málstofan er um klukku- stundar löng. Hún hefst klukk- an 11:00 í Iðnskólanum í Reykjavík, stofu 2 og þátttakendum er boðið upp á popp og kók meðan á henni stendur. Slóðin að vefnum sem verður opn- aður í lok málstofunnar er www.dec.hi.is. hmh Kristur, popp og kók Reuters Jim Carrey í hlutverki Trumans Burbank í kvikmyndinni The Truman Show. Í lok myndar gengur hann upp „himnastiga“ og yfirgefur „jarðvistina“ – ein af mörgum Biblíuvísunum í verkinu. Guð á hvíta tjaldinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.