Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 6
kvæmdastjóri innkaupa á Land-
spítala, Sigurður Harðarson hjúkr-
unarfræðingur á gjörgæslu Land-
spítala í Fossvogi og Ingólfur
Björnsson hjúkrunarfræðingur á
vökudeild Landspítala við Hring-
braut. Jóhann hefur starfað í 31 ár
og var fyrsti karlkyns nemandinn í
Hjúkrunarskóla Íslands eftir tíu
ára hlé á sínum tíma og sá fjórði frá
upphafi. Ingólfur útskrifaðist fyrir
fjórum árum og Sigurður lauk námi
fyrir ári.
Hvers vegna lögðuð þið hjúkrun
fyrir ykkur?
Jóhann: Það var engin sérstök
ástæða fyrir því að ég fór í hjúkrun,
hún var einn af mörgum möguleik-
um sem komu til greina.
Ingó lfur: Ég segi það sama, ég
sótti bæði um nám í sjúkraþjálfun
og hjúkrunarfræði. Ég hafði ein-
faldlega áhuga á því að vinna með
fólki.
Sigurður: Ég fór í hjúkrun því
ég hafði prófað að vinna við að-
hlynningu ófaglærður. Samfélagið
er þannig að maður verður að vera í
starfi til þess að „fúnkera“, og ég
var siðferðilega sáttur við að vera
hjúkrunarfræðingur.
Ég sá tilgang í þessu starfi og er
ánægður með að fara á fætur á
morgnana til þess að sinna því.
Hvernig finnst ykkur starfið?
Jóhann: Mér finnst það mjög
skemmtilegt og fjölbreytt. Það býð-
ur upp á endalausa möguleika, sér-
menntun, starf erlendis og fjöl-
margt fleira. Starfið er líka í
stöðugri þróun og ekki eins í dag og
það var þegar ég útskrifaðist. Alls
ekki.
Sigurður: Sá möguleiki er allt-
af fyrir hendi að maður geti skipt
um vinnustað og gert eitthvað ger-
ólíkt, en samt haldið áfram að sinna
fólki, sem mér finnst gott.
Hvað með launakjörin, eru hjúkr-
unarfræðingar á launum sem karl-
menn sætta sig við?
Sigurður: Mér finnst skipta
meira máli að fara ánægður í vinn-
una. Ég yrði þunglyndur á að vera í
leiðinlegri vinnu þótt ég ætti
kannski næga peninga. Ég spáði
ekkert í launin þegar ég ákvað að
læra hjúkrunarfræði.
Ingó lfur: Maður er ekki bara
að velja sér nám út af laununum.
Jóhann: Ég velti því heldur
ekkert fyrir mér hvort hjúkrunar-
fræði væri kvenna- eða karlastarf.
Sigurður: Ég var svolítið hissa
á því áður en ég byrjaði að verið
væri að grínast með að strákur færi
í hjúkrun. Svo þegar ég byrjaði í
skólanum voru eitthvað um 120
stelpur í bekknum og tveir aðrir
strákar.
Ingó lfur: Ég lærði í Svíþjóð og
þar voru karlmennirnir eitthvað
fleiri, ekki mikið, en ekki jafnfáir og
hér.
Er meira brottfall meðal karla í
Sigurður Harðarson hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu.
Ingó lfur Björnsson hjúkrunarfræðingur á vökudeild.
karlmenn
KARLMÖNNUM í stétthjúkrunarfræðinga hefurekki fjölgað mikið á liðn-um árum. Samkvæmt
upplýsingum frá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga eru 34 karlar
skráðir í félagið en heildarfjöldi
félaga var 3.015 hinn 1. janúar síð-
astliðinn. Heildarfjöldi starfandi
hjúkrunarfræðinga er 2.237.
Flestir karlanna starfa við
umönnun og um það bil fimmtungur
sinnir störfum sem tengjast lyfsölu
og sölu á lækningatækjum, segir
Aðalbjörg Finnbogadóttir hjúkrun-
arfræðingur og starfsmaður FÍH.
Hlutfall yfirmanna í stétt karlkyns
hjúkrunarfræðinga hefur ekki verið
reiknað út að hennar sögn, en þó-
nokkrir úr þeirra hópi gegna
stjórnunarstörfum.
Segir Aðalbjörg hafa komið fram
í könnun Kjararannsóknanefndar
opinberra starfsmanna að karlar í
hjúkrunarstétt séu nokkuð hátt
launaðir miðað við konurnar.
Karlarnir sækja einnig meira í
geðhjúkrun að hennar sögn, sem og
skurð- og svæfingarhjúkrun, hjúkr-
un á gjörgæslu og ráðgjöf. Er það í
samræmi við val erlendra karl-
hjúkrunarfræðinga á starfssviði,
segir hún ennfremur.
Karlmenn í hjúkrunarstétt eru
umfjöllunarefni í umræðum um
hjúkrun á 21. öld í nýjasta hefti
Tímarits hjúkrunarfræðinga, en þar
kemur fram að 12–15% norskra
hjúkrunarfræðinga séu karlar.
Einnig segir að hlutfall karla í
nefndri stétt í Frakklandi og Hol-
landi sé 20% og 5% í Bandaríkj-
unum. „Konur sem fara í hefðbund-
in karlastörf fá hvatningu frá
umhverfinu ... En ef karlmaður fer í
hjúkrunarfræði er nánast sagt: Er
ekki allt í lagi með þig, maður?“ er
haft eftir Ástu Möller þingmanni og
hjúkrunarfræðingi í tímaritinu.
Sigríður Snæbjörnsdóttir fyrr-
verandi hjúkrunarforstjóri hjá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur bendir á að
kannski haldi konurnar í stéttinni
körlunum niðri. „Þegar karlmaður í
hjúkrunarstörfum er í forsvari segj-
um við gjarnan: „Hvað er verið að
flagga þessum eina karlmanni?
Hvar eru allar konurnar?“
Valgerður K. Jónsdóttir, ritstjóri
Tímarits hjúkrunarfræðinga, fjallar
um „umhyggjusama karla“ í rit-
stjórapistli í blaðinu og segir lítið
hafa verið gert hér á landi til þess
að hvetja karla til starfs og náms í
hjúkrun. Bendir hún meðal annars
á að karlkyns hjúkrunarnema hafi
verið neitað um styrk úr jafnrétt-
issjóði námsmanna á þeirri for-
sendu að hann væri frekar ætlaður
konum í námi.
Af þessum sökum voru þrír
hjúkrunarfræðingar úr minnihlut-
anum inntir eftir sjónarmiðum sín-
um um karla og hjúkrun, þeir Jó-
hann Marinósson hjúkrunarfram-
hjúkrunarfræðistétt en kvenna þeg-
ar námi er lokið?
Jóhann: Konurnar hætta líka.
Margir hjúkrunarfræðingar fá til-
boð um betri laun annars staðar og
þægilegri vinnutíma, þá á ég við
störf þar sem menntun þeirra nýtist
á einhvern hátt, eins og í lyfjafyr-
irtækjum og þess háttar.
Er tekið meira mark á körlum í
stétt hjúkrunarfræðinga inni á spít-
alanum en konum?
Sigurður: Eldra fólk heldur
kannski stundum að maður sé
læknir.
Jóhann: Ég var deildarstjóri á
svæfingadeild kvennadeildar í
nokkur ár og kynnti mig alltaf sem
hjúkrunarfræðing fyrir sjúklingun-
um. Ég held ekki að það hafi verið
tekið meira mark á mér en konum í
sömu stétt. Nú eru 54% nemenda í
læknadeild konur og þegar ég starf-
aði á kvennadeildinni var helmingur
skurðlæknanna konur. Þetta var
allt saman meiriháttar fólk að vinna
með.
Sigurður: Fólk skynjar frekar
hvort maður er með reynslu eða
ekki.
Er ágreiningur milli karla í
hjúkrunarstétt og kvenna?
Jóhann: Nei, það held ég ekki.
En maður hefur kannski stundum
fundið fyrir því að konur í stéttinni
hafi fyrirfram mótaðar hugmyndir
um hvernig karlkyns hjúkrunar-
fræðingur eigi að vera. Við eigum
að vera viss týpa, sem er erfitt því
við erum auðvitað ólíkir innbyrðis.
Kannski hefur þetta breyst eitt-
hvað, en þegar ég var í Hjúkrunar-
skólanum á sínum tíma þurfti ég að
taka betri próf því ég var strákur
og þegar ég vann verkefni úti á
deild þurfti ég líka að vinna það bet-
ur af sömu ástæðu. Ég þurfti stöð-
ugt að vera að sanna mig.
Sigurður: Ég varð ekki var við
þetta í mínu námi.
Er kynjahlutfallið misjafnt eftir
deildum?
Sigurður: Við erum þrír á gjör-
gæsludeildinni í Fossvogi.
Ingó lfur: Ég er eini karlkyns
hjúkrunarfræðingurinn á vöku-
deildinni.
Af hverju, heldur þú?
Ingó lfur: Á deildinni eru ný-
fædd, pínulítil börn, kannski er það
ástæðan. Ég vann á barnadeildinni í
Fossvogi um tíma og það var ekki
heldur mikið um karlkyns hjúkr-
Hollt fyrir
að vinna
við hjúkrun
Karlar í stétt hjúkrunarfræðinga eru einungis um 1% á Íslandi, sem er lægra hlutfall en í nágrannalöndunum.
Umræða er talsverð í hjúkrunarstétt um „umhyggjusama karla“ og sagt er að lítið sé gert til þess að hvetja karl-
menn til þess að leggja hjúkrun fyrir sig. Helga Kristín Einarsdóttir hafði tal af þremur körlum úr nefndri stétt,
sem eru á einu máli um að hjúkrun sé skemmtilegt og fjölbreytt starf fyrir bæði kynin.
Morgunblaðið/Arnaldur
Jóhann Marinósson hjúkrunarframkvæmdastjóri innkaupa.
DAGLEGT LÍF
6 B FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ