Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 3
á þjálfaranum og varnarjaxlinum
Auði Skúladóttur. Undir lok fyrri
hálfleiks skall tvívegis hurð nærri
hælum hjá Garðbæingum þegar
Sólveig Þórarinsdóttir skaut í slá
og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir yf-
ir eftir vel útfærða sókn KR.
Eftir hlé færðist enn meiri
þungi í sókn KR-stúlkna og Hel-
ena Ólafsdóttir skallaði knöttinn í
Hvort lið fékk eitt tækifæri tilað skora áður en Olga sneri á
vörn Stjörnunnar af miklu öryggi
og skoraði með
hnitmiðuðu skoti á
20. mínútu. Eftir
það var fátt um
færi en KR-ingar
voru þó mun beittari. Sóknarað-
gerðir þeirra strönduðu þó yfirleitt
stöng áður en Sólveig skoraði ann-
að mark KR eftir góðan undirbún-
ing Olgu.
Þrátt fyrir margar harðar atlög-
ur að marki Stjörnunnar tókst
vesturbæingum ekki að bæta við
því þeir voru oft of ákafir. Mesta
hættu skapaði Edda Garðarsdóttir
með þrumuskotum utan af velli
sem struku slá gestanna.
Réðum ferðinni
„Þetta var baráttuleikur frá
upphafi til enda en við réðum ferð-
inni,“ sagði Olga eftir leikinn. „Það
skipti höfuðmáli að við réðum yfir
miðjusvæðinu og á meðan svo er
höfum við stjórnina. Við erum allt-
af að ná betur og betur saman og
sjá hvaða leikskipulag hentar okk-
ur best svo að ég er bjartsýn á
framhaldið.“
„Við náðum ekki þeirri liðsheild
sem er okkar aðal og við þurfum
en ef hana vantar vinnum við ekki
þessi sterku lið – það gekk í sig-
urleiknum við Breiðablik þegar við
áttum allar toppleik,“ sagði Auður
eftir leikinn. „Við höfum nú fimm
daga til að stemma okkur fyrir
bikarleikinn og ég held að það
verði lítið mál að gera liðið klárt
því það er ekkert betra að fá langa
bið í næsta leik.“
Stjarnan auðveld bráð KR
Stefán
Stefánsson
skrifar
MARKADROTTNINGIN Olga Andrea Færseth lét að venju til sín taka
þegar KR vann Stjörnuna sannfærandi en þó aðeins 2:0 á í vestur-
bænum í gærkvöldi og skellti sér fyrir vikið í efsta sæti deildarinnar.
Olga skoraði annað markið og lagði hitt upp. Sigurinn gæti aukið
sjálfstraust KR þegar liðin mætast í bikarkeppninni í næstu viku, en
Garðbæingar hafa sýnt að þeir geta bitið frá sér.
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 C 3
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Þ á loft í glímu í + 48 kílóa flokki.
yrjun virtust Siglfirðingarnir til alls líklegir
n heimamenn komu smám saman betur inn
kinn og á þrítugustu og annarri mínútu
fékk Þorsteinn Gestsson góða
sendingu og skoraði fallegt
mark. Staðan var 1:0 fyrir
heimamenn í hálfleik. Á fimm-
tugustu og fimmtu mínútu ein-
Davíð Rúnarsson upp vinstri kantinn, fram
þrem varnarmönnum og náði skoti sem
aði rétt innan við fjærstöngina og staðan
orðin tvö mörk gegn engu.
glfirðingar náðu að koma betur inn í leik-
og áttu nokkur hættuleg tækifæri en Alex-
er Petrosci á línu fyrir Tindastól eftir gott
.
lokamínútu leiksins gaf Grétar Karlsson
a sendingu inn í teiginn og Þorsteinn Gests-
skoraði óverjandi fyrir Benedikt mark-
n Siglfirðinga. En strax í kjölfarið skoraði
ður Birgisson fallegt mark fyrir gestina og
var Gísli markvörður langt úti í teig.
estu menn í liði Tindastóls voru Þorsteinn
sson og Davíð Rúnarsson í framlínunni, og
ar Karlsson átti mjög góðan dag í vörn-
Hjá Siglfirðingum var Þórður Birgisson
ur en einnig áttu Agnar Sveinsson og
nar Hauksson nokkuð góðan leik.
aður leiksins: Þorsteinn Gestsson, Tinda-
Tindastóll
beittur í
granna-
slagnum
sson
r
DASTÓLSMENN náðu þrem dýrmætum
um þegar liðið sigraði dauft lið Siglfirð-
a á Sauðárkróksvelli í gærkveldi með
mur mörkum gegn einu.