Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 4
ASTON Villa gerði í gær eins árs
samning við fyrrverandi markvörð
danska landsliðsins, Peter
Schmeichel, með möguleika á
framlengingu að ári liðnu.
Schmeichel sem verið hefur hjá
portúgalska liðinu Sporting Lissa-
bon frá því hann sagði skilið við
Manchester United árið 1999 kem-
ur á frjálsri sölu til Villa þar sem
samningur hans við Sporting rann
út í síðasta mánuði. John Gregory,
knattspyrnustjóri Aston Villa, var
að vonum ánægður með komu
Schmeichel og sagði við blaða-
menn í gær að koma markvarð-
arins jafnaðist á við hvalreka.
„Peter Schmeichel er sigurvegari
og endurkoma hans í ensku úrvals-
deildina er frábær ákvörðun hjá
honum. Schmeichel mun verða að-
almarkvörður félagsins á komandi
keppnistímabili og ég hef þegar
sett pressu á hann því hann hefur
unnið meistaratitil með öllum
félögum sem hann hefur spilað
með,“ sagði Gregory.
Koma Schmeichel til félagsins
kemur í kjölfar sölu David James
til West Ham á 3,5 milljónir punda.
Schmeichel
til Aston Villa
MANCHESTER United hefur
gengið frá kaupum á argentínska
landsliðsmanninum Juan Veron frá
ítalska liðinu Lazio. Kaupverðið mun
vera 4 milljarðar ísl. króna. Veron,
sem er 26 ára, samdi við United til
fimm ára.
VERON er þar með orðinn dýrasti
leikmaðurinn í sögu enskrar knatt-
spyrnu.
JUVENTUS keypti í gær tékk-
neska landsliðsmanni Pavel Nedved
frá Lazio fyrir rúmlega 3,6 milljarða
króna. Nedved, sem er 28 ára gamall
miðvallarleikmaður, var keyptur til
Lazio frá Spörtu Prag eftir að hafa
vakið athygli á EM á Englandi árið
1996.
ARSENAL gekk í gær frá kaupum
á japanska landsliðsmanninum Jun-
ichi Inamoto, 21 árs miðjumanni.
Hann var keyptur frá Gamba Osaka
á 300 millj. ísl. kr.
DAVID Platt, knattspyrnustjóri
Nott. Forest, var í gær ráðinn þjálfari
ungmennaliðs Englands, skipuðu
leikmönnum undir 21 árs. Platt mun
hætta störfum hjá Forest en hann
hefur stjórnað liðinu síðastliðin tvö
keppnistímabil.
HELGI Kolviðsson og félagar hans
í Kärnten í austurrísku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu töpuðu í fyrrakvöld
fyrsta leik sínum í deildarkeppninni
þar í landi gegn Josko Ried 2:1 eftir
að hafa verið 1:0 yfir í hálfleik.
ANDRI Sigþórsson og félagar í
Salzburg gerðu jafntefli í sínum
fyrsta leik, 0:0 gegn Austria Memph-
is.
BARCELONA hefur verið að
fækka leikmönnum sínum. Portú-
galski landsliðsmaðurinn Simao
Sabrosa er á leiðinni til Benfica, eftir
tveggja ára dvöl á Spáni og hollenski
leikmaðurinn Boudewijn Zenden var
orðaður við Newcastle.
SÆNSKI landsliðsmaðurinn Fred-
rik Ljunberg, 24 ára, sem átti eitt ár
eftir af samningi sínum við Arsenal,
hefur skrifað undir nýjan fimm ára
samning við liðið. Ljunberg fær 1,7
milljarða ísl. kr. í sinn vasa fyrir
samninginn.
SPÁNSKA íþróttablaðið AS segir
frá því að forráðamenn Real Madrid
séu ekki búnir að loka peningabudd-
unni, þó að búið sé að kaupa Zinedine
Zidane á 6,6 milljarða ísl. króna.
Blaðið segir að liðið hafi hug á að
kaupa Patrick Vieira frá Arsenal og
Alessandro Nesta frá Lazio, sem
metinn er á 7,9 milljarða króna.
SOL Campbell er meiddur á ökkla
og getur því ekki leikið æfingaleiki
með Arsenal í Austurríki í lok júní,
gegn 1860 München, Real Mallorca
og AC Roma. Talið er að hann leiki
ekki fyrsta leik liðsins í ensku úrvals-
deildinni – gegn Middlesbrough.
SÆNSKI varnarmaðurinn Olof
Mellberg er genginn til liðs við Aston
Villa, sem keypti hann frá Santander
á Spáni fyrir 650 millj. ísl. kr. Hann er
næst dýrasti knattspyrnumaður Svía
– á eftir Zlatan Ibrahimovic, sem
Ajax keypti á dögunum fyrir 700 millj.
kr.
DAVID James er tilbúinn að verja
mark West Ham, eftir að liðið borgaði
Aston Villa 500 millj. ísl. kr. fyrir
hann.
JOHN Hartson fer ekki frá Cov-
entry. Gordon Strachan, knatt-
spyrnustjóri liðsins, segir að hann sé
ekki til sölu – hann sé einn af lyk-
ilmönnum liðsins í því verkefni að
vinna sæti í úrvalsdeildinni á ný.
ALLT bendir til að Tomasz Radz-
inski, miðherji Anderlecht, gangi til
liðs við Everton og taki stöðu Francis
Jeffers, sem Arsenal keypti.
HINN gamalkunni franski lands-
liðsmaður Laurent Blanc er klár í
slaginn með sínu gamla liði, Mars-
eille, sem hann lék með 1997-1999.
Blanc, sem er 35 ára, hefur leikið með
Inter á Ítalíu.
FÓLK
Landsliðshópurinn í alpagreinumhittist í fyrradag þar sem hann
tók þátt í óvissuferð. Í ferðinni var
hjólað, gengið og æft
nánast samfleytt í 17
tíma en hópurinn
endaði á því að fá
nudd í Laugar-
dalnum í gær.
„Þetta var mjög gaman en ég er
mjög þreytt. Þetta var jákvæð ferð
og góð samstaða skapaðist,“ sagði
Emma er Morgunblaðið hitti hana
að máli í gær. Hún hefur átti við
meiðsli í hné að stríða undanfarin tvö
ár en er öll að skríða saman. „Ég er
nýlega komin úr fjórðu aðgerðinni
núna. Krossböndin slitnuðu í hné
ásamt því að liðþófi rifnaði og fleira,“
sagði Emma sem stefnir að því að ná
fullri heilsu áður en keppnistímabilið
hefst í haust. „Núna eru þetta mest
þrekæfingar því ég get ekki hlaupið
eins mikið. Ég byrja 10. ágúst og
verð til 28. ágúst á skíðunum á jökli í
Noregi. Í framhaldi af því fer ég í
skíðaháskóla í Tärnaby í Svíþjóð,“
sagði Emma sem stundar nám þar í
íþróttasálfræði samhliða skíðaiðkun-
inni.
Emma er fædd og uppalin í Sví-
þjóð þar sem faðir hennar er sænsk-
ur en móðir hennar íslensk. Svíar
vildu ólmir fá hana í landslið sitt en
hún kaus að keppa frekar fyrir Ís-
lands hönd þrátt fyrir að aðstæður til
æfinga séu mun betri í Svíþjóð og
fjármagn þar mun meira. „Það er
ekki hægt að stunda þessar greinar
hér,“ sagði Emma sem er með skýr
markmið. „Í vetur ætla ég mér að
komast á Ólympíuleikana og gera
mitt besta. Svo stefni ég á að vinna á
Ólympíuleikunum 2006 á Ítalíu og
það er mitt stærsta markmið,“ bætti
Emma við. Hún mun í vetur keppa á
svokölluðum FIS-mótum sem eru
opin mót alþjóðaskíðasambandsins.
Sambandið gefur svo út heimslista í
nóvember og þeir íslensku skíða-
menn sem eru meðal 500 bestu í
heiminum í sinni grein fara á Vetr-
arólympíuleikana í Salt Lake City í
febrúar. „Ef vel gengur vonast ég til
að komast inn á Evrópubikarmóta-
röðina því ég er búin að vera meidd
svo lengi. Ég hlakka alveg rosalega
til að keppa aftur. Ég er búin að bíða
í tvö ár eftir þessu og leggja hart að
mér,“ sagði Emma sem er aðeins tví-
tug að aldri og á framtíðina fyrir sér í
brekkunum.
Dagný vakti
athygli á HM
Dagný Linda Kristjánsdóttir er
frá Akureyri en hún hefur mikið æft
erlendis undanfarin ár og var meðal
annars í skíðamenntaskóla í Svíþjóð
fyrir tveimur árum. Hún stóð sig
mjög vel á keppnistímabilinu í fyrra
og vakti athygli er hún náði 32. sæti í
bruni og 37. sæti í risasvigi á heims-
meistaramótinu í alpagreinum. „Ég
ætla að gera mitt besta í vetur og
reyna að bæta mig. Ég stefni alltaf á
að gera betur. Í fyrra var fyrsti vet-
urinn minn sem ég var ekki meidd og
það hafði mikið að segja,“ sagði
Dagný sem er nú laus við meiðsli.
„Í ágúst fer ég til Ástralíu til að
æfa þar og tek þátt í FIS-mótum og
held áfram að æfa fram á haustið.
Svo sé ég bara hvernig gengur. Ef
vel gengur þá fer ég kannski inn á
Evrópubikarinn og reyni mig þar.
Ég tók þátt í nokkrum mótum í fyrra
og fékk ágætis reynslu. Þar eru
margir keppendur svo maður getur
lent í að hefja keppni aftarlega og fá
slæma braut,“ sagði Dagný sem vill
helst bæta sig í Ástralíu. „Ég ætla að
reyna að bæta punktana mína og
reyna að ná Ólympíulágmarkinu í
stórsvigi. Ég þarf að vera meðal 500
efstu á heimslistanum en nú er ég
númer 503. Í bruni og risastórsvigi
get ég keppt á leikunum og ætla að
gera það,“ sagði Dagný sem er að
komast í gott form. „Ætli stefnan sé
ekki á að vera í toppformi í kringum
Ólympíuleikana, jafnvel fyrr,“ sagði
hún.
Kristinn Björnsson er reynslu-
mesti íþróttamaðurinn í hópnum og
nær að miðla af þeirri reynslu til
ungu keppendanna. „Það er gott að
hafa Kristin ef maður þarf einhvern
til að leita til en annars er þetta mjög
góður hópur í heildina,“ sagði
Dagný.
Skíðaíþróttin er gífurlega dýr en
landsliðsmenn fá nú allan útbúnað
frítt en það er aðeins nýtilkomið.
Fjölskylda Dagnýjar fjármagnar
mót hennar og æfingar að mestu
leyti. „Skíðasambandið hjálpar okk-
ur mjög mikið. Það er búið að semja
við styrktaraðila um búnað svo við
fáum það allt. Samt er mjög mikill
kostnaður við ferðalög og þjálfara og
það verður maður bara að fjármagna
sjálfur. Sumir eru með einhverja
styrktaraðila en hjá flestum kemur
þetta úr eigin vasa,“ sagði þessi stór-
efnilega skíðakona.
Þær eru eldsnöggar
niður brekkurnar
SKÍÐASTÚLKURNAR Dagný
Linda Kristjánsdóttir og Emma
Furuvik eru báðar í landsliði Ís-
lands í alpagreinum. Þær skipa
nokkra sérstöðu meðal íslensks
skíðafólks þar sem þær keppa
báðar í svokölluðum hraða-
greinum en hingað til hafa Ís-
lendingar ekki keppt mikið í
þeim greinum. Keppnisgrein
Dagnýjar Lindu eru brun, risa-
svig og stórsvig og Emma
keppir aðallega í bruni og er í
117. sæti heimslista al-
þjóðaskíðasambandsins.
Eftir
Írisi Björk
Eysteinsdóttur
Morgunblaðið/Billi
Skíðakonurnar Emma Furuvik, Ármanni, og Dagný Linda Kristjánsdóttir, Akureyri.
Rakel ristarbrotin
RAKEL Logadóttir, landsliðskona í knattspyrnu úr Val, er ristar-
brotin og óljóst hvort hún leiki meira með Valsliðinu á keppnis-
tímabilinu. Þetta er mikil blóðtaka fyrir Valsliðið.
Ásthildur Helgadóttir landsliðskona meiddist á hné á æfingu og er
óvíst hvort hún getur leikið með ÍBV gegn FH í Kaplakrika í kvöld.
Margrét Ákadóttir, landsliðskona úr Breiðabliki, meiddist á ökkla á
æfingu á miðvikudaginn og mun hún ekki leika með Breiðabliki gegn
Val í kvöld.