Vísir - 06.07.1979, Qupperneq 15
15
„Blámenn eru slst verri menn en íslendingar” — segir ein sem ekki vill birta nafn sitt.
Styðjum ðkvðrðun Benedikts
Ein sem vildi ekki láta
birta nafn sitt hringdi:
„Ég get ekki orða bundist
vegna einstaklega ósmekklegra
skrifa Kristjáns G. um ákvörðun
Benedikts Gröndal varðandi úti-
vist hermanna i Keflavik. 1 fyrsta
lagi vil ég benda Kristjáni á, að
það er misskilningur hjá honum
þegar hann heldur þvi fram að
hermennirnir verði eftirlitslaus-
ir. Málið snýst um það að þeir fá
ótakmarkað leyfi til útivistar
enda er okkur Islendingum ekki
stætt á að loka þá inni eins og dýr
i búri.
Mér finnst lika kynþáttahatrið
skina i gegn hjá Kristjáni þegar
hann talar um „eltirlitslausa blá-
menn” og i sömu setningu
”..þjóðinni til ófyrirsjáanlegs
tjóns og armæðu”. Hér er um að
ræða órökstuddar fullyrðingar og
sleggjudóma hjá Kristjáni svo
ekki sé meira sagt.
Ég hef kynnst nokkrum þessara
svokölluðu „blámanna” og get
fullyrt að þeir eru sist verri menn
en tslendingar. Mér finnst lfka út
i hött að fullyrða að ástandið á
skemmtistöðum muni versna við
þessa rýmkun á útivistarleyfi
hermannanna. Þessir menn
kunna yfirleitt að fara með vin,
mun betur en íslendingar, sem
yfirleitt eru svinfullir á skemmti-
stöðum og geta ekkert nema sleg-
ist þegar þeir þurfa að sýna karl-
mennsku sina. Kjörorðið er þvi:
Styðjum ákvörðun Benedikts”.
Bréfritari vill láta fjarlægja þungavinnuvélar af fjölförnum umferðargötum.
t> G ‘;krifar• þungavinnuvéla alls konar og er nýkominn erlendis frá
dráttarvéla sem eru að þvælast þar sem ég hef dvalið langdvölum
„Ég er alveg fjúkandi vondur hist og her á götum borgarinnar, en aldrei hef ég orðið var við tæki
og i reiði minni grip ég nú penn- og gildir þá einu hvort um miklar sem Þess> á fjölförnum umferða-
ann til að svala bræðinni. Astæð- umferðagötur er að ræða eða götum. Þess vegna spyr ég: Er
an fyrir þessum geðhrifum min- ekki. Til dæmis núna, þegar ég ekki hægt að setja einhverjar
um er sú, að undanfarna daga hef var á leið heim úr vinnu varð ég reglur Sem banna akstur þessara
ég þráfaldlega orðið fyrir truflun- þrisvar fyrir töfum af völdum farartækja á fjölförnum um-
um i umferðinni af völdum þessara hræðilegu ökutækja. ferðargötum???
Burt meö Dungavinnu-
vélar úr umferðinni
*
Hresst
aö
vanda1
r ELO og undramaðurinn^
Jcff Lynne
Gunnar Salvarsson, blaðamaður, skrifar um einhverja pott-
þéttustu og vinsælustu hijómsveit siðari ára, Electric Light Orc
Áestra.
,,Merkilegt hvað þid eigid
marga og góöa listamenn”
— segir Jörgen Bruun Hansen, húsaskreytingarmeistari,
listamaður og múrari, með meiru, i hressilegu spjalli við Magn-
ús Guðmundsson, fréttamanna VIsis I Kaupmannahöfn. Hansen
hefur verið tlður gestur á lslandi og kennt við Myndlista- og
handlðaskólann.
,.Keppum viö ódyrustu
fríhafnir Evrópu
Sæmundur Guðvinsson blaðamaður ræðir við Þórö Magnússon
fjármálastjóra um rekstur Frihafnarinnar á Keflavlkurflug-
velli, nýafstaðna kjaradeilu starfsmanna, lögreglurannsókn á
fyrirtækinu og fleira.
'------------------------------------X
,,Erum meö einhvern
meöalmann i huga”
sem er i rauninni ekki til, segir Egill Guðmundsson arkitekt
hjá Húsnæðismálastofnuninni. Jónlna Michaelsdóttir, blaða-
maður, ræðir við Egil og tvo aðra arkitekta um viðhorf þeirra til
arkitektúrs á islandi, húsbygginga og fleiri hluta.
James Dean
Leikarinn og „uppreisnarmaðurinn” sem varð imynd unga
fólksins. Hann lék I fáum myndum og vinsældir hans urðu aldrei
rneiri en eftir að hann dó.