Morgunblaðið - 07.09.2001, Page 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2001 C 3
Miðar á
enska boltann
! "
#
Guðmundur Rúnar Hallgríms-son úr Golfklúbbi Suðurnesja
hefur forystu í karlaflokki, með 343
stig en Kristinn Árnason úr GR er
næstur með 334 stig og Björgvin
Sigurbergsson þriðji stigi þar á eft-
ir. Næstir eru Heiðar Bjarnason úr
GKj og Örn Sölvi Halldórsson úr
GR en þeir eru með 326 stig.
Hjá konunum er Ragnhildur Sig-
urðardóttir úr GR með 358 stig í
efsta sæti og Herborg Arnarsdótt-
ir, einnig úr GR, með 325 stig í
öðru sæti. Ólöf María Jónsdóttir úr
Keili er þriðja með 237 stig og Kol-
brún Sól Ingólfsdóttir úr GK fjórða
með 233 stig.
Mótið um helgina, Samvinnu-
ferða-Landsýnar mótið, er hefð-
bundið. Leiknar verða 36 holur á
laugardaginn og 18 á sunnudaginn.
Fyrir að leika á CR vallar fá menn
25 stig og síðan lækkar það um
einn heilan fyrir hvert högg yfir
CR og hækkar að sama skapi um
hvert högg undir CR. Fyrir sigur í
mótinu fást einnig tíu stig auka-
lega, sex fyrir annað sætið og þrjú
fyrir það þriðja. Ef maður leikur á
CR vallar alla þrjá hringina fær
hann 75 stig og sigri hann fær hann
að auki 10 stig eða alls 85 stig. Af
þessu sést að baráttan um sigur í
mótaröðinni er mikil. Allir þeir sem
eru í baráttunni verða með um
helgina nema Björgvin Sigurbergs-
son sem tekur þátt í móti í sænsku
mótaröðinni. Sú breyting var gerð
á reglum um stigamótin fyrir þetta
ár að þegar menn keppa erlendis
með landsliðinu fá þeir ekki stig
miðað við árangur sinn þar og þeir
sem hafa verið í landsliðinu í sumar
hafa því ekki fengið stig fyrir það.
Þetta eru auk Björgvins, þeir Ólaf-
ur Már Sigurðsson úr GK, Har-
aldur H. Heimisson úr GR, Helgi
Birkir Þórisson úr GS, Ottó Sig-
urðsson úr GKG og Örn Ævar
Hjartarson úr GS sem var ekki
heldur með í fyrsta mótinu og á því
litla möguleika á að vera með efstu
mönnum. Alls hafa 156 kylfingar
fengið stig í mótaröðinni, allt frá
sex stigum og upp í 343 stig.
Konurnar eru heldur færri en
karlarnir og 21 hefur fengið stig í
sumar, sú sem fæst stig hefur feng-
ið er með tvö stig en Ragnhildur
eins og áður segir 358. Algengt er
að bestu stúlkurnar fái um 70 stig
fyrir árangurinn auk tíu stiga fyrir
sigur þannig að um 80 stig eru í
pottinum fyrir sigur. Það breytir
þó ekki þeirri staðreynd að aðeins
Ragnhildur og Herborg eiga raun-
hæfa möguleika á stigameistara-
titlinum.
Morgunblaðið/Friðþjófur
grímsson, GS, stendur best að vígi í karlaflokki fyrir síðasta
mótið sem fram fer á Golfvelli Oddfellowa.
Spenna fyrir
síðasta
stigamótið
SJÖTTA og síðasta stigamótið í Toyota-mótaröð Golfsambands Ís-
lands fer fram um helgina á Golfvelli Oddfellowa í Urriðavatns-
dölum. Mikil spenna er í karlaflokki þar sem nokkir kylfingar eiga
ágæta möguleika á sigri og hjá stúlkunum eru það tvær sem berjast
um sigur.
GUÐBJÖRG Norðfjörð, leik-
maður meistara KR í körfu-
knattleik kvenna, hefur ákveð-
ið að leika ekki með liðinu í
vetur.
Guðbjörg hefur leikið í nokk-
ur ár með KR en var áður í
Haukum. Hún var lengst af
fyrirliði KR en ekki þó í fyrra,
þegar hún eignaðist barn. Guð-
björg segist ekki ætla að leika
í efstu deild í vetur.
Það eru fleiri stúlkur sem
eru að yfirgefa skútuna í vest-
urbænum. Elísabet Samúels-
dóttir sem gekk til liðs við KR
í fyrra frá KFÍ hefur ákveðið
að leggja skóna á hilluna eins
og Sigrún Skarphéðinsdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir er
gengin til liðs við Hauka líkt
og þær María Káradóttir og
Birna Eiríksdóttir og Hanna
Kjartansdóttir er flutt til Dan-
merkur.
Þess má geta að Henning
Henningsson, sem þjálfaði KR-
stúlkur með svo glæstum ár-
angri í fyrra, sér um þjálfun
Haukakvenna í vetur.
Guðbjörg hætt
með KR
SAMMY McIlroy hefur skrifað
undir nýjan tveggja ára samning við
norður-írska knattspyrnusamband-
ið og stjórnar því liðinu í undan-
keppni Evrópumóts landsliða sem
hefst á næsta ári.
ÞRÁTT fyrir lítið gengi á alþjóð-
legum mótum um árabil hafa Norð-
ur-Írar verið breskir meistarar
samfellt í 17 ár. Þeir unnu hina ár-
legu meistarakeppni bresku lands-
liðanna árið 1984, eftir keppni við
England, Skotland og Wales, en
keppnin var lögð niður í kjölfar
óeirða á leikjum Englands og Skot-
lands og hefur ekki farið fram síðan!
VALLARÞULURINN á Windsor
Park í fyrrakvöld ávarpaði íslensku
leikmennina og áhorfendurna á ís-
lensku, bauð þá velkomna með
nokkrum orðum og óskaði þeim
góðrar heimferðar. Framburðurinn
var merkilega góður, enda fékk þul-
urinn stutta framburðarkennslu hjá
íslensku blaðamönnunum áður en
hann tók til starfa.
ÍSLENSKA U-19 ára landslið
stúlkna í knattspyrnu hóf undan-
keppni EM í Búlgaríu með glæsi-
brag í gær en íslensku stúlkurnar
lögðu þá lið Búlgaríu, 7:0, eftir að
staðan í leikhléi var, 4:0. Dóra
María Lárusdóttir skoraði 2 mörk
og þær Elfa Ásdís Ólafsdóttir, Mar-
grét Lára Viðarsdóttir, Sólveig
Þórarinsdóttir, Dóra Stefánsdóttir
og Kristín Ýr Bjarnadóttir skoruðu
eitt hver. Næsti leikur liðsins er á
morgun við við Ungverjaland.
BJÖRN Jakobsson, leikmaður ÍR,
verður í leikbanni þegar ÍR mætir
Víkingi í 1.deild karla á sunnudag.
GUÐNI Bergsson og félagar hans
í Bolton gætu fengið liðsstyrk á
næstunni en Kiko, fyrrum landsliðs-
maður Spánverja og liðsmaður
Atletico Madrid er komin til
reynslu hjá toppliðinu í ensku úrval-
seildinni. Kiko er 29 ára gamall
framherji og er samningur hans við
Atletico Madrid útrunninn.
FÓLK
Bjarki Gústafsson, fyrirliðikörfuknattleiksliðs Vals/
Fjölnis á síðustu leiktíð og einn
besti maður liðsins í fyrra, gekk á
föstudaginn í raðir Hauka í Hafn-
arfirði.
Um helgina rann út frestur fyrir
körfuknattleiksmenn að skipta um
félag og verða löglegur um leið.
Þeir sem skipta um félag núna geta
ekki leikið með sínu nýja félagi fyrr
en eftir mánuð og því hafa menn
tíma til 11. september til að verða
löglegir í fyrstu leikina í úrvals-
deild sem verða 11. október.
Mikið var um félagaskipti síðustu
dagana í ágúst og má meðal annars
nefna að Herbert Arnarson skráði
sig í KR í síðustu viku en hann
hafði gert samning við félagið fyrir
nokkru. Kristján Guðlaugsson gekk
til liðs við ÍR frá Grindavík og Ósk-
ar Pétursson úr Haukum gekk til
liðs við Hamarsmenn í Hveragerði.
Nokkru áður hafði Svavar Birgis-
son gengið til liðs við Hvergerðinga
frá Sauðárkróki. Frá Hamri hefur
hins vegar Ægir H. Jónsson gengið
til liðs við Skagamenn.
Athygli vekur að Fannar Ólafs-
son er skráður í Hamri en hann
hefur leikið með Keflvíkingum.
Fannar skipti í Hamar í byrjun júlí
og lék með liðinu á Landsmóti
UMFÍ. Þar sem hann er í skóla í
Bandaríkjunum getur hann í raun
komið heim þegar hann vill og leik-
ið með sínu félagi, Hamri.
Hjá konunum er það helst að
frétta að Alda Leif Jónsdóttir er
gengin á ný í raðir ÍR en hún lék
með Holbæk í Danmörku í fyrra.
Bjarki til Hauka
HK úr Kópavogi og Völsungur fráHúsavík tryggðu sér í gær sæti
í 2. deild í knattspyrnu, en HK sigr-
aði KFS frá Vestmannaeyjum, 10:1,
samanlagt í tveimur úrslitaleikjum.
Vöslungur og Njarðvík skildu jöfn í
markalausum leik á Húsavík en fyrri
leiknum lauk með 2:2 jafntefli og
mörk Húsvíkinga á útivelli dugðu til
að liðið leikur í 2. deild að ári.
Völsungur og HK leika til úrslita
um sigurinn í 3. deild á sunnudaginn
kl. 16 en kl. 12 mætast KFS og
Njarðvík í leik um 3. þriðja sætið.
HK og Völsung-
ur upp um deild