Morgunblaðið - 07.09.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 07.09.2001, Síða 4
 TBR tekur þátt í Evrópukeppni félagsliða í badminton í Uppsölum í Svíþjóð og er í riðli með liðum frá Rússlandi, Belgíu og Spáni. Í fyrra- dag tapaði TBR fyrir rússneska lið- inu Lokomotiv Record, 2:5. Njörður Ludvigsson og Helgi Jóhannesson töpuðu tvíliðaleik, 2:7, 3:7 og 3:7. Ragna Ingólfsdóttir og Katrín Atla- dóttir töpuðu í tvíliðaleik, 1:7, 4:7 og 2:7.  HELGI Jóhannesson tapaði í ein- liðaleik 5:7, 4:7 og 0:7. Ragna Ing- ólfsdóttir sigraði í einliðaleik, 7:2, 7:0 og 7:5. Magnús Ingi Helgason tapaði í einliðaleik, 0:7, 2:7 og 6:8. Sara Jónsdóttir sigraði í einliðaleik, 7:0, 7:5 og 7:3. Baldur Gunnarsson og Halldóra Elín Jóhannsdóttir töp- uðu tvenndarleiknum.  VALUR hafnaði í sjötta sæti á al- þjóðlegu móti sem lauk í Montpellier í Frakklandi um helgina. Valur tap- aði þremur leikjum á mótinu, fyrir Montpellier, 28:20, fyrir franska landsliðinu, 33:22, og fyrir landsliði Alsír, 27:24. Eini sigurleikurinn var á móti ítalska liðinu Rubieira en þann leik unnu Valsmenn, 30:20. Sig- urvegarar á mótinu varð lið Mont- pellier sem lagði spænska liðið Granollers í úrslitaleik.  SNORRI Guðjónsson fyrirliði og leikstjórnandi Vals var markahæsti leikmaður mótsins, skoraði 31 mark.  ATLI Jóhannesson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmönnum ÍBV, var á dögunum boðið að koma til Stoke eftir leiktíð knattspyrnu- manna hér heima. Þeir afþökkuðu boðið að sinni þar sem þeir hyggjast ljúka stúdentsprófi um næstu ára- mót. Hins vegar kemur það til greina hjá þeim að fara út að því loknu.  ENGINN leikmaður úr efstu deild karla var úrskurðaður í leikbann á fundi aganefndar KSÍ í fyrrakvöld. Þrír leikmenn úr 1. deild úrskurðaðir í eins leiks bann. Þetta er ÍR-ing- urinn Ágúst Guðmundsson, Ragnar Árnason, Stjörnunni og Haukur Úlf- arsson, Víkingi. Þeir taka leikbannið út næstkomandi sunnudag en þá fer fram næst síðasta umferðin í 1. deild karla.  HARRY Redknapp, fyrrverandi framkvæmdastjóri West Ham, sagði við breska fjölmiðla á miðvikudaginn að hann gæti verið á leið til Leicest- er. Redknapp er nú starfsmaður Portsmouth en slakur árangur Leic- ester þykir auka líkurnar á því að Peter Taylor verði sagt upp. FÓLK Michel Zen-Ruffinen tók viðstöðu framkvæmdastjóra FIFA fyrir þremur árum, eða þeg- ar Josep Sepp Blatter sagði starfi sínu lausu til að gerast forseti sam- bandsins. Zen-Ruffinen var milli- ríkjadómari áður en hann hóf alvar- leg afskipti af knattspyrnustjórnun og sagði það einn besta skólann sem hann hefði notið fyrir lífið og starf sitt innan FIFA. Hann dæmdi í 23 ár, þar af 8 ár í efstu deild í Sviss og starfaði í tvö ár sem milli- ríkjadómari. Sjálfur lék hann knatt- spyrnu sem strákur en dómgæslan átti hug hans allan frá 15 ára aldri. Zen-Ruffinen kom í fyrsta skiptið til Íslands á föstudag og leist vel á land og þjóð. Hvað veistu um íslenska knatt- spyrnu? „Þar til ég kom vissi ég mun meira um knattspyrnu á Íslandi heldur en landið sjálft,“ sagði Zen- Ruffinen. „Nú er því öfugt farið því ég eyddi þremur tímum í flugvél- inni í að lesa mér til um landið og veit því nokkuð. Ég þekki nokkra leikmenn án þess þó að geta borið nöfn þeirra fram, þar sem þau eru of flókin fyrir mig. Ég veit þó hversu mikilli velgengni þeir hafa átt að fagna, sérstaklega í Eng- landi. Einnig veit ég að landsliðið hefur staðið sig mjög vel að und- anförnu. Liðið er nú á réttri leið og á meira að segja möguleika á að komast í lokakeppni heimsmeist- aramótsins. Þetta er ekki stórt land en við höfum Íslendinga í nefnd- arstörfum innan FIFA svo við vit- um í gegnum þá hversu góðir Ís- lendingar eru í knattspyrnu.“ Gríðarlegur áhugi fyrir HM í Japan og S-Kóreu Hvernig gengur undirbúningur fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Japan og S-Kóreu næsta sum- ar? „Ég var í Japan í síðustu viku við fundastörf og við erum mjög ánægðir með hvernig undirbúning- ur gengur. Þetta er fyrsta skiptið sem HM er haldið í tveimur lönd- um. Sú ákvörðun var tekin fyrir fimm árum. Ég er fullviss um að keppnin muni takast fullkomlega. Áhuginn fyrir henni er rosalegur og við gætum örugglega selt fjórfalt fleiri miða en hægt er. Við vitum að það verður uppselt á alla leiki, skipulagið verður frábært og tæknileg atriði verða framkvæmd af mikilli nákvæmni. Við fórum fram á að hvort land hefði tíu velli tilbúna, sem er í raun of mikið. Þau urðu samt við því og glæsilegasti völlurinn kostaði 500 milljónir bandaríkjadala og það er hægt að setja þak yfir hann.“ Eigið þið hjá FIFA einhverjar skýringar á auknum áhuga á knatt- spyrnu í heiminum undanfarin ár? „Knattspyrna er einfaldur leikur og hann er meðal annars hægt að leika á götum úti og alls staðar. Einnig eru reglurnar einfaldar. Áhugi á knattspyrnu hefur farið vaxandi í löndum þar sem ekki eru til miklir peningar. Börn vita að ef þau standa sig vel í knattspyrnu er það leið út úr fátækt. Einnig leika flestir sér til ánægju og það er stór- kostlegt að sjá hvaða þjóðir eru al- vöru knattspyrnuþjóðir. Það sér maður um leið og stigið er inn á flugstöð hverrar þjóðar.“ Umboðsmenn og sumir leikmenn fá of mikið Sumir segja að peningar séu að eyðileggja knattspyrnu, hvað hef- urðu um það að segja? „Ég er ekki sammála því. Kannski eru peningar að eyðileggja íþróttir, en ekkert frekar knatt- spyrnu en aðrar íþróttagreinar. En það eru of miklir peningar í húfi, það verð ég að viðurkenna. Um- boðsmenn og sumir leikmenn fá alltof mikið í sinn hlut. Hins vegar skil ég vel að lið þurfi að greiða bestu leikmönnum sínum há laun þar sem þeir skapa tekjurnar fyrir félögin. Einnig er ferill knatt- spyrnumanna stuttur. Frekar vil ég þó að leikmenn fái of há laun heldur en að þeir séu keyptir og seldir fyr- ir háar upphæðir.“ Hvaða áhrif hefur hið nýja kerfi um kaup og sölu leikmanna sem tók gildi 1. september? „Við höfum unnið myrkranna á milli til að koma nýja kerfinu á og ég vona að það muni bæta ástandið vegna peningamála. Samningar við leikmennina gengu illa á tímabili en nú hefur náðst samkomulag. Nýja kerfið miðar að því að gera bæði minni félögum og leikmönnum sem ekki eru launaháir hærra undir höfði. Því held ég að breytingin sé til góðs.“ FIFA lenti í nokkrum vandræð- um vegna markaðsfyrirtækisins ISL. Eftir margra ára samstarf varð fyrirtækið gjaldþrota í vor. Hvaða áhrif hefur það á starfsemi FIFA? „Við höfum nú stofnað okkar eig- ið markaðsfyrirtæki og það er í raun mun hagstæðara fyrir okkur. ISL tók til sín töluverða upphæð í umboðslaun fyrir þau störf sem það vann fyrir okkur en núna fara pen- ingarnir til okkar sjálfra. Nú ræða sjónvarpsfyrirtæki beint við okkur, eða markaðsfyrirtæki FIFA, sem er mun hagstæðara.“ Sýningarréttur seldur hæstbjóðanda Tekjur af sýningarrétti frá knatt- spyrnuleikjum í sjónvarpi hafa vax- ið mjög undanfarin ár. Óttast FIFA ekki að nú sé ákveðnu hámarki náð? Sama á máske við launagreiðslur til leikmanna. Getur þetta tvennt ekki orðið til að fólki ofbjóði að lokum og það missi áhugann á íþróttinni, eða jafnvel hætti að vilja borga stórfé fyrir að horfa á kappleiki? „Það hefur nú þegar verið náð ákveðnum hámarkstekjum út úr sölu sýningarréttar í sjónvarpi. Við sjáum það á sölu á sjónvarpsrétti fyrir HM á næsta ári. Það er einnig nýtt fyrir okkur. Við seldum hér áð- ur fyrr allan sjónvarpsrétt til eins fyrirtækis sem sér til dæmis allri Evrópu fyrir efni. Upphæðin var alltaf sú sama, óháð því hve tekj- urnar yrðu miklar. Það verð var alltof lágt miðað við hvað sjón- varpsfyrirtækin græddu á að sýna knattspyrnu. Árið 1998 þegar síð- ustu kosningar áttu sér stað hjá FIFA var ákveðið að selja sjón- varpsrétt til hæstbjóðenda. Barátt- an stóð á milli tveggja fyrirtæki og eitt einkafyrirtæki keypti að lokum réttinn. Fyrir það fékk FIFA góða summu sem er jákvætt fyrir knatt- spyrnuna sjálfa. Það neikvæða er að sjónvarpsfyrirtæki í ýmsum löndum eru ekki tilbúin að greiða rétthafanum jafn háa upphæð og hann fer fram á fyrir réttindin. Verðið á sjónvarpsréttinum hefur tífaldast síðan á síðustu heims- meistarakeppni sem fram fór í Frakklandi. FIFA mun hins vegar ganga í málið verði niðurstöðum ekki náð fyrir HM og tryggja það að allar þjóðir, þar á meðal Ísland, fái sjónvarpsrétt,“ sagði Michel Zen-Ruffinen. irisbe@mbl.is Lítið land með góða knattspyrnumenn Morgunblaðið/Kristinn Michel Zen-Ruffinen, framkvæmdastjóri FIFA, segir verðið á útsendingarrétti HM-leikja 2002 vera tífalt hærri en 1998. Michel Zen-Ruffinen, framkvæmdastjóri Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, var staddur á Íslandi til að fylgjast með leik Íslands og Tékklands um síðustu helgi. Íris Björk Eysteinsdóttir hitti Zen-Ruffinen að máli og spurði hann út í íslenska knattspyrnu, nýjar reglur varðandi leikmannakaup, sjónvarpsrétt, undirbúning fyrir HM og fleira. KKÍ ræðir við Friðrik SAMNINGUR Friðriks Inga Rúnarssonar sem landsliðsþjálfara í körfu- knattleik rann út um mánaðamótin þegar ís- lenska landsliðið lauk keppni í forkeppni Evr- ópukeppninnar í körfu- knattleik. Að sögn Péturs Hrafns Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra KKÍ, eru samningaviðræður hafn- ar við Friðrik Inga um framhaldið. Verkefni fyr- ir landsliðið á næstu árum eru ekki mikil. Engir landsleikir eru fyrirsjáan- legir í vetur, næsta sumar verður Norðurlandamót og veturinn þar á eftir er undankeppni á ný og þar verður landsliðið meðal þátttakenda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.