Vísir - 25.08.1979, Síða 7
Laugardagur 25. áglist 1979.
\ %* l.l ».
'
VÍSIR
7
GEISLAVIRKT GASIÐ LAK INN
í STJÓRNKLEFANN EN NEYÐAR-
ÚTGANGARNIR VORU LÆSTIR...
— dauöslys sem þagaö hefur veriö yfir, i kjarnorkuveri i Tékkóslavakiu
Tvö óhöpp hafa oröiö í kjarn-
orkuverinu AI sem staösett er
norðan við Bratislava i Tékkó-
slóvakiu. í fyrra slysinu fórust
tveir menn. Það geröist árið
1976 þegar verið var að setja
nýjan brennara i kjarnorkuver-
ið. Vegna tæknilegra galla
komst hann ekki i stæði það sem
honum var ætlað og skipti eng-
um togum að geislavirkt kol-
tvioxið undir 60 loftþyngda
þrýstingi streymdi inn i stjórn-
klefann. Tveir menn sem voru
við vinnu i klefanum létust. Það
er ekki vitað nákvæmlega um
málsatvik en nefnd sem rann-
sakaöi málið hélt þvi fram, að
neyðarútgangur hefði verið
læstur. Astæðan fyrir þvi var
þjófnaður úr kjarnorkuverinu.
Verkstjóri flokksins sem vann
að uppsetningu brennarans
komst út um aðaldyrnar og
seinna klæddist hann sérstökum
hlíföarfatnaöi, hélt inn i stjórn-
klefann og tókst að koma öllu
undir stjórn aftur.
Siðan var öryggiskerfinu
komið i gang og sogaði það gas-
ið út úr klefanum.
Annað slysið i sama kjarn-
orkuverinu gerðist 24. feb. 1977.
Brennari með úranstöngum of-
hitnaði. Astæðan var sú, að efni
það sem umlykur brennarann
og drekkur i sig raka, hafnaði af
ókunnum orsökum utan um úr-
anstengurnar og hindraði þar
með eðlilega kælingu kerfisins.
Afleiðingarnar urðu þær að
brennarinn ofhitnaði, hið eigin-
lega kælikerfi eyðilagðist og
varakælikerfið varð geislavirkt
og að lokum eyðilögðust raf-
hreyfillinn og fleiri mikilvægir
hlutar kjarnorkuversins.
Eftir þetta óhapp hefur AI
ekki verið i notkun. Tékkneska
rikisstjórnin hefur reynt hvað
hún getur til þess að fá verið I
gang aftur en það hefur ekki
tekist hingað til.
Sovésk smiði
kjarnaofninn upp er kostnaður-
inn, sem yrði um 365 milljarðar
isl. kr. ef til kæmi. Auk þess er
engin trygging til fyrir þvi hve
lengi slik viðgerð myndi duga..
Kjarnorkuverið AI á sér langa
og merkilega sögu. Það voru
gerðar áætlanir um það fyrir 22
árum siðan, er Sovétrikin
ákváðu að austantjaldsrikin
skyldu kjarnorkuvæðast.
Siðan sagði Tékkóslóvakia á
fyrsta þingi Sameinuðu þjóð-
anna, sem haldið var um kjarn-
orkumál að það hygðist nota
kjarnorku til friðsamlegra nota,
og átti að byggja AI 1960—61 en
vegna tafa varð verið ekki
gangfært fyrr en 1973.
Kerfið i verinu er sovésk
smiði. Það er kallað Barbotage i
Sovétrikjunum. Það saman-
stendur af sérstökum turni með
gasbirgðum i kjarnaklofnings-
herberginu. Hann á að soga upp
gasið ef óhapp verður og hindra
að gasiö dreifist inn i og utan
við kjarnaofninn.
Fi.
Aðalvandamálið við að gera
Fleiri slík slys
í Austur-Evrópu
Óhappið i AI er ekki einsdæmi
i Austur-Evrópu. Það hafa einn-
ig orðið slik slys i Sovétrikjun-
um en þar» sem og i Tékkó-
slóvakiujiggja upplýsingar ekki
á lausu um þau.
Þau tvö kjarnorkuslys, sem
fyrst og fremst er vitað um að
hafi gerst i Sovétrikjunum, eru
slysið i Úralfjöllum 1957/58 og
slysið i Mangyshlak 1974. Einnig
var bandariskum þingmanni á
ferð um Sovétrikin sagt að tvö
minniháttar kjarnorkuslys
hefðu orðið á siðustu árum i
Sovétrikjunum.
Og i ár var talið, að geislavirk
efni hefðu lekið úr kjarnorku-
veri I Júgóslaviu, en ekki er vit-
að um það óhapp i smáatriðum.
Opinberlega leggja Austur-
Evrópurikin mikla áherslu á ör-
yggisatriði i sámbandi við
kjarnorkuverin og af þvi að
stjórnvöld þar gera „aldrei”
mistök er ekkert látið uppi ef ör-
yggisvandamál koma upp.
Úrslitaleikur i Bikarkeppni K.S.Í.
FRAM - VALUR
Fram — K.S.Í. —
Á Lougardolsvelli sunnudog kl. 14.00.
Forleikur kl. 13.00: Volur - From í 5. flokki.
Hornoflokkur Kópovogs leikur fró kl. 13.30.
MEST SPENNANDI
LEIKUR SUMARSINS.
Forsala aðgöngumiða er
á Laugardalsvelli frá kl.
10 sunnudag.
Valur
í þessarí glœsilegu ísbúð geturðu fengið:
KAFFI, KAKÓ, KÖKUR, HAMBORGARA, SAM-
LOKUR, PIZZUR, PÆ MEÐ ÍS, BANANABÁTA,
ÍS-MELBA OG ALLA OKKAR SÍVINSÆLU ÍSRÉTTI.
Lítið inn í ísbúðina að
i.ík.- \ Laugalækó, ogfáiðykkur
kaffi og hressingu, takið
félagana með.
Opið
frá kl. 9-23.30
Allir þekkja ísinn frá Rjómafsgerðinni
LAUGALÆK 6 - SIMI 34555
3