Vísir - 25.08.1979, Qupperneq 9

Vísir - 25.08.1979, Qupperneq 9
Laugardagur 25. ágúst 1979. fjölmiölun Elias Snæland Jónsson, rit- stjórnarfuH- trúi, skrifar. Vfsir birtir daglega niu teiknimyndasögur og á miövikudögum eru fjórar teiknimynda sögur prentaöar i fjórum litum. Meöal teiknimyndasagnanna eru sumar þekktustu myndasögurnar I heiminum svo sem „Hrollur”, „Andrés önd” og „Mikki mús”. Teiknimyndasögur hafa lengi veriö meöal vinsælasta efnis dagblaöanna: „ Tarsan99 hófferíí sinn í Vísifyrír um 40 árum Hvaö lesa flestir I dagblööunum? Margir lesa fréttir og fréttaviö- töl, einkum ef eitthvert „heitt” mál er á dagskrá. Efnisþættir eins og sögur af frægu fólki, neytendamál, Iþróttir og útvarps- og sjón- varpsfrásagnir eiga fasta lesendahópa. En eitt af þvi, sem veruleg- ur hluti lesenda dagbiaöanna les alltaf, hvort sem hinir fuliorönu vilja nú viöurkenna þaö eöa ekki, eru teiknimyndasögurnar. Hér á landihafa ekki veriö geröar áreiöanlegar skoöanakannanir á þvi, hvaö fólk les helst i dagblööunum. Margar slikar kannanir hafa hins vegar veriö geröar erlendis, og þær sýna ótvirætt, aö góöar teiknimy ndasögur vekja almennan áhuga lesenda, sem fylgj- ast meö eftirlætis söguhetju sinni dag hvern. Enda hefur þaö veriö svo frá þvi, aö teiknimyndasögurnar hófu göngu sina, aö góöar myndasögur hafa aukiö sölu þeirra dagbiaöa, sem þær hafa birst I. Bera sök á nafninu /,gula pressan"! Teiknimyndasögurnar eru reyndar ekki nema um einnar aldar gamlar, og þær sögur, sem vinsælastar eru i dag, eiga sér mun skemmri sögu. Almennt er taliö, aö Þjóöverji aö nafni Wilhelm Busch eigi heiöurinn af því aö hafa búiö til fyrstu teiknimyndasöguna en hún hét „Max und Moritz”. Hún var fyrirmynd þeirrar mynda- sögu sem margir þekkja, undir nafninu „Knold og Tot” — alla vega þeir, sem lesa dönsk viku- blöö. Sú myndasaga birtist fyrst I New York World áriö 1894. Teiknimyndasögur I litum eiga upphaf sitt I Bandarikjun- um, og slagurinn út af þeim varö til þess, aö orötækiö „gula pressan” — sem notaö hefur veriö I niörandi merkingu um sum dagblöö — varö til. Nafn þetta er þannig til kom- iö, aö fyrsta litmyndasagan, sem birt var I dagblaöi, bar nafnið „Guli strákurinn”. Þessi myndasaga hóf göngu sina i dagblaöi sem blaöakóngurinn Joseph Pulitzer — sem svonefnd Pulitzer-verðlaun eru kennd viö — gaf út. Gulur litur var áber- andi meðal þeirra lita sem not- aöir voru viö prentun mynda- sögunnar og gaf hann aðalper- sónunni nafn. Fljótlega kom i ljós, aö saga þessi var mjög vinsæl hjá les- endum, og hófst þá mikiö striö um myndasöguna. William Randolph Hearst, annar blaða- kóngur, keypti hana til sin, en brátt náöi Pulitzer sögunni aft- ur. Allt gekk þetta fyrir sig meö miklum buslugangi og varö til- efni orötaksins „gul pressa”. 250 myndasögur Allar þekktustu myndasög- urnar, sem birtast i dagblööum viöa um heim, eru nú i eigu fá- einna stórra fyrirtækja, sem selja dagblööunum birtingar- réttinn. Einna stærst þessara fyrirtækja er King Features Syndicate i Bandarfkjunum, en það mun selja langflestar þær myndasögur, sem birtast i is- lenskum dagblöðum. Þetta fyrirtæki selur 43 vinsælar myndasögur til 3.300 blaða um allan heim. 1 Bandarikjunum, þar sem myndasögurnar eru mjög vin- sæiar (60 milljónir lesa aö staö- aldri litmyndasögur i sunnu- dagsútgáfum dagblaöa þar i landi), eru nú rúmlega 250 myndasögur birtar i dagblööun- um. Fyrir þetta græða blööin miklar fúlgur. Hiö útbreidda blaö „Daily News” I New York greiöir t.d. árlega 800—900 milljónir króna fyrir teikni- myndasögur. Margvíslegar að efni og gerð Myndasögur þær, sem birtast I blöðum nú til dags, eru marg- vislegar aö gerö og efni. Les- endur VIsis geta fylgst meö flestum tegundum mynda- sagna, þvi blaöiö birtir niu teiknimyndasögur daglega og auk þess fjórar myndasögur I litum á miövikudögum. Margar af þessum myndasög- um eru ekki siöur geröar fyrir fulloröna en börn og unglinga, enda er þaö staöreynd, sam- kvæmt erlendum skoöanakönn- unum, aö rúmlega 40% fullorö- inna dagblaöslesenda fylgjast meö teiknimyndasögunum. Sumir eru „alætur” á teikni- myndasögur: lesa þær allar. Aörir hafa sinar uppáhaldssög- ur, sem þeir hafa kannski fylgst meö árum eöa áratugum sam- an. Tarsan elstur í Vísi Sú teiknimyndasaga, sem á sér lengstan feril i VIsi, er gamla kempan „Tarsan”. Sú teiknimyndasaga hóf göngu sina áriö 1929, en birtist fyrst hér á landi I sunnudagsblaði Visis tiu árum slöar, eöa 1939. Ævintýri Tarsans styttu lesend- um blaösins stundir á sunnu- dögum um nokkurn tima, en féll siöan niöur. 1 mai áriö 1942 hóf Tarsan hins vegar göngu sina aö nýju i Vísi, og þá i blaöinu virka daga. Visir var þá aöeins fjórar siöur, og birtist myndasagan á öftustu siöu blaösins. Tarsan hefur siðan haldiö sinu striki og á sér trausta áhang- endur. Þaö veröa Visismenn áþreifanlega varir viö, ef svo illa vill til, aö sendingu af myndasögunni seinkar i pósti. 1 slikum tilvikum hefur þurft aö birta sömu myndaröðina oftar en einu sinni, og hafa Tarsan- vinir þá óspart látiö til sin heyra. Hins vegar er Tarsan ekki fyrsta teiknimyndasagan, sem Visir birti. T.d. var teikni- myndasaga um „Hróa hött og félaga hans” birt i blaðinu all- lengi nokkrum árum áöur. Hrollur i hópi vinsælustu sagnanna Meöal teiknimyndasagnanna, sem birtast i VIsi, eru sumar þær sögur, sem hvaö vinsælast- ar eru i heiminum. „Andrés Ond” og „Mikki mús” eiga t.d. óteljandi aðdá- endur jafnt hér á landi sem er- lendis, og má I þvi sambandi minna á, að Andrés Andar-blöð- in dönsku munu vera mest selda danska timaritiö hér á landi. Freddi steinaldarmaður hefur einnig notiö mikilla vinsælda, en þessar myndasögur birtast reglulega i VIsi. 1 Bandarikjunum eru vin- sældir teiknimy ndasagna gjarnan metnar eftir þvi, hversu mörg blöö birta þær. Samkvæmt bandariska stór- blaöinu New York Times — sem reyndar er eitt af fáum dagblöö- um þar vestra, sem ekki birta teiknimyndasögur — eru fjórar myndasögur þar I sérflokki. i þeirra hópi er ein yngsta teikni- myndasagan — sem sé „Hroll- ur” sá, sem daglega prýöir siöur Visis og er auk þess prent- aður I fjórum litum á miöviku- dögum. Hrollur, sem á frum- málinu heitir reyndar „Hagar the Horrible”, er aöeins sex ára gamall, en kominn i fremstu röö. Þaö er mjög óvenjulegt, þvi yfirleitt er afar erfitt aö koma nýjum myndasögum á framfæri hjá þeim fyrirtækjum, sem ráöa markaöinum á þessu sviöi. Sem dæmi má nefna, aö King Features, sem áöur er nefnt, fær árlega meira en 2000 tillögur um nýjar teiknimyndasögur, en hefur einungis hafiö framleiöslu á fimm þeirra siðustu þrjú árin. En Hrollur er sem sagt einn af fjórum vinsælustu teikni- myndasögunum i Bandarikjun- um. Tvær aörar I þeim hópi birtast hér á landi: „Blondie”, sem hér ber nafniö „Ljóska” og veröur fimmtug á næsta ári og „Peanuts”, sem hérlendis nefn- ast „Smáfólk”. Þessar tvær myndasögur birtast reglulega i Morgunblaöinu. Fyrst og fremst bandarísk framleiðsla Eins og áöur sagöi eru þaö nokkur stór fyrirtæki, sem selja vinsælustu teiknimyndasögurn- ar: fyrirtæki eins og King Features og United Features. Þetta eru bandarisk fyrirtæki, og reyndin er sú, að t.d. lang- flestar teiknimyndasögurnar, sem islensku dagblööin flytja, eru bandariskar. 1 sumum Evrópulöndum eru þó „heimatilbúnar” myndasög- ur vinsælar og hafa breiöst út til annarra landa i einstaka tilfell- um. Má þar nefna sem dæmi „Tinna” og „Ástrik”, sem báöir eru nú oröið þekktar söguper- sónur hérlendis. Þessar sögur eru upprunnar I Belgiu og Frakklandi. Hér á landi er einungis hægt aö segja, aö ein innlend teikni- myndasaga hafi náö umtals- veröum vinsældum meöal al- mennings. Þaö er aö sjálfsögöu „Sigga Vigga og tilveran” eftir Gisla Astþórsson. Teiknimyndasögur eiga sér ekki langa sögu i þeirri mynd, sem þær birtast blaöalesendum samtimans, en margar höfuö- persónur þeirra eru ótrúlega mörgum hugleiknar og hafa vakiö margt brosiö. Og þegar á allt er litiö, hvaö er mikilvæg- ara I amstri og erfiöleikum nú- timalifs en aö geta brosaö eöa hlegiö stöku sinnum? VlSiH SVXXU>X('Si<>ÍJá> Tarzan-tvíburarnir. duf M- tmr* <ft tttn tlUíKzmfi. uirki ij«« »>' í>»dvá!- JMÁi mcfi tttrvlu fynritlft' .)áf »l>i) t-iltri i þvt, k»n fr»«<U. uti ttuvAwr i>kkor «ktti> itafit < ttríft itnt«i.l»r v>8 kvfa «tkt« «ö fora iíf Afrtktt. IH-r rnr r«ííí» vi)i»Iýr t«ti rtttfttt trfioiýri. )>(V rr «•(«♦ r«Ujj( j liiyun 'Ui.(*!>,éittttl»“. .,{>!»<* jxxi fii ttð tt ójtt ntfK ;»# Tat- '■>'1 vtUsf >-klt« ,:t!i?tv;»ö ;>»»)>. Iffiítr f..«m ti-iur a nitúl xkkur .» j;<n>Lr.t<tUr»l>.*«t,i", y&iífi Sónui tttr.*. nkitfn. Jt.f itttttn MÍ* jvti* «U.». »k«'ll«r t.ii *kublí»t j»>r'\ W*í )>:<«(. JUm v* r»U i *li vit< }<;s <•?, < kki míjj, Og }xs& 4vU»r vv) vvrttf ;t<S »»»» »»■ xngtit fiii iffif\ff »)«>«,«;•)>»» t»Ó v;i<«: etttpuu <t v« »>t líi-rfii i-'ii ■; MMiiímí 'VvU.tt íyrir i. tt.f i<rr »:v<! > •<»>» *ví»»3Á )<v»í rf(»r <'!tlk«:(>»t(n')í«ttt ii)j<»íí- 4 áöi<»v k«t« ft'<j:<t*r >!< » tj>«x <)i ttr tn»««*> >»»«». ÍKiii vortt iiinie •>r k-rs'tiíís vk<'>u»>rttu», «rn> iidttiöítt » »rtt*m. jtvi r« «íui» vildi l»ar»»> »»)»• Tturjttt BvorptiUt Httv»>> f»r:t>týa j.*:>rr» «>> )«('»<(! lKtitttttt ;i» ):<fat<<ft- tut !rx''inrnn«, xtict krattp í*'i- ttiHt<»tt», „Vittititttftitttt skvrír tnir Irá jni'Wi i/víiifik\i>ri«kkili htfí <<tfti-.t ,t K<»< ::»»»»< > jx »)XÍ <v! «>•»>( f>»U)tt bíiiuttt, f>»»r, M*f»» )>rjttltt fntfi T;« j>ttrf:» J»feí» aÁ kytttt- »*! jár»il»»i<'fi» Ivtm". kV*«.trí fiukkttrjtttt (<•»»)? iutttttm f.VÍ««j M«c> tlgVf J*'ir i<<ufst (tf S(;tö Vftííi't I »»<< »»» «;•*• 1) ttvi»t>. „fcjj vcrft «f> )»af<t itntfkttt ■». j>v> <‘tt jxi. f «ið «;»)»;» ;»■ »«<;(» j><-tr«»«» »»»»*i»i«»>«tii( :» jómbi-Hutinylvtlíiiíti t’vti j.*:kk ;. » tfcfíi );;»:í»;,r fr«inv)t«>»'a Af(<>»», K>lö« *<trfíö :,».;,(([ «> : »* (frrl, v ttt »»»»! var lii jxa»* vfffet öcttuttt sýn, vnr rkkí nii t/f» («■?■• Tttfwo var óiltt va»»»»r «>K >»»» itvnö Itanr. s< rR>. -4 jx<(« f)-kkur:»u ItrfÖi vbRíR cftie l*kj uttt l»i j*** djifé >{»>r *in. *rfek itwttt lcir» Ivklittn. iykiitu >.\»i:,ii<)kkttt,ni wim- irgur un grrio ík'ttBr, ny 4lf *,R<:vtt, ♦lóS T;tr/;t<t «4 i>ð itoru. iitan »»8 }K.rj> «*»„).» <>. vm v« ttttnit'jjn »JÍ»*. -OjiniR lilióíu". i-i/ iAj liiinn. jrífratt 'vrvl'vf >»»!»<< xtjju*'. |»utns;{ l»:r-li» ir.ía. xbIu jjf<»oní <: ■ Kilií . It'trOfa jx.toíí, ’ M .......... ««»*1 ii<>|tttr. ^ H.f* rr Afrtkar ■ni:- J:n xjicV «<«*» iwt<„ ; ‘ *k“fíí:j»skn L*#!*- Kí xkltt.: l'*k« Tarsan hóf göngu slna I VIsi áriö 1939 og þá I sunnudagsblaöinu. Myndin sýnir fyrstu Tarsansiöuna I VIsi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.