Vísir - 25.08.1979, Side 12
12
VfSIR
Laueardaeur 25. áeúst 1979.
Kristján Róbert Kristjánsson skrifar
Andi Bitlanna lifir enn i dag.
NYBÍTLAROKK
er diskóið á undanhaídi?
Undanfarin ár hefur diskótónlistin verið alls-
ráðandi um heim allan. Milljónir hljómplatna
hafa selst af þessari tónlist og diskótekin
blómstra.
Þessi tónlist hefur einnig komist i kvikmynd-
irnar og er Saturday Night Fever hápunkturinn.
Nú virðist svo vera, að þeim lögum, sem ekki
eru i anda diskó-stefnunnar fari fjölgandi i efstu
sætum vinsældalista i Bandarikjunum og Bret-
landi.
Siðustu 2-3 ár hefur verið mikið umrót i tón-
listarlifi i þessum löndum og rokk-tónlist undir
nafninu nýbylgju- eða punk-rokk hefur sett
mikinn svip á þetta timabil.
The Jam hafa oft verih kallahir hinir nýju Who.
Allt frá þvi aö Bitlarnir, Roll-
ing Stones, Kinks og Who geröu
allt vitlaust á sinum tima, hafa
áhrif þeirra alltaf skinið i gegn-
um hið létta rokk og viröist þaö
heldur færast i aukana.
Þegar timabil nýbylgjunnar
hélt innreið sina, spruttu hljóm-
sveitir upp eins og gorkúlur.
Fæstar þeirra náðu nokkrum
vinsældum, en þær sem á annað
borö sköruðu fram úr, gerðu það
gott, þótt gæðin væru ekki alls
staðar i fyrirrúmi.
Einnig urðu margir lista-
menn, sem voru lengi búnir aö
reyna að hljóta viðurkenningu,
vinsælir— eins og Nick Lowe,
Brinsley Schwarz, Motors, Dr.
Feelgood o.fl.
Af nýjum nöfnum, sem komið
hafa fram á þessum tima, eru
Jam, Boomtown Rats, Blondie,
Tom Robinson Band og Gruppo
Sportivo frá Evrópu.
Frá Bandarikjunum eru hins-
vegar The Knack, Patti Smith,
Romones og Television, auk
annarra.
Þaö má nefna ótalmarga i
viðbót, en þessir listamenn eiga
það sameiginlegt að á einn eða
annan hátt eru þeir undir tölu-
verðum áhrifum frá ákveðnum
tónlistarmönnum, sem voru
hvað frægastir á siðasta áratug.
Sumar þessar hljómsveitir
hafa tekiölög sem Kinks, Stones
og Bitlarnir hafa gert áður og
leita jafnvel enn lengra aftur og
gera lög Buddy Holly og Chuck
Berry en þeir áttu mikinn þátt I
aö skapa grundvöllinn fyrir tón-
list siöasta áratugs.
Tvær fyrrnefndar hljóm-
sveitir, The Jam og The Knack,
hafa nokkra sérstööu. The
Knack hefur sömu hljóðfæra-
skipan og Bitlarnir, kemur fram
á svipaðan hátt og flest lögin eru
mjög i anda Bitlanna á þeirra
fyrra skeiði.
The Jam hefur hinsvegar oft
verið kölluð hin nýja Who. Þessi
þriggja manna hljómsveit hefur
og sömu hljóðfæraskipan og
Who, og mörg laga hljómsveit-
arinnar eru mjög lik lögum Pete
Townshend frá þvi 1964—1966.
Báðar þessar hljómsveitir
hafa tekið gömul lög. The Knack
frá Buddy Holly og hin frá
Kinks. Enda sagði Paul Weller,
leiötogi Jam, eitt sinn I viötali,
að Ray Davies væri fyrir sér
mesti lagasmiður poppsins og
að The Who væri einnig i mjög
miklu uppáhaldi.
Tom Robinson er einnig mikill
aðdáandi Ray Davies og er hann
var i hljómsveitinni Sad Cafe,
eaf hann út plötu hjá Konk
Records, sem er i eigu Davies.
Hann hefur einnig orðið fyrir
miklum áhrifum af textagerð
Davies og það hafa fleiri eins og
t.d. Boomtown Rats.
Þeir siðastnefndu og Patti
Smith hafa greinilega tekið
Mick Jagger sem fyrirmynd
hvað varðar sviðsframkomu.
Patti heillaðist af Rolling Stones
og Jimi Hendrix og hefur ekki
farið leynt með það. Hún hefur
gefið út „Hey Joe” i eigin út-
setningu og á EP-plötu hennar
„Set Free” er minningarljóð um
Brian Jones.
Einnig er sagt að hún reyni að
likjast Keith Richard sem mest.
Ahrif þessarar „eldri” tón-
listar minnkuðu i byrjun þessa
áratugs, en lifðu með mönnum
eins og Nick Lowe og Brinsley
Schwarz, en það er stutt siðan
þeir fengu viðurkenningu fyrir.
Hljómsveitin Ducks DeLuxe
starfaði i nokkur ár án veru-
legra vinsælda, en prógramm
hennar var mjög i anda Bitl-
anna. Tveir meðlimir Ducks
DeLuxe stofnuðu siðar Motors
með árangri, sem flestum er
kunnur.
Siðan 1971 hafa Dr. Feelgood
spilaö rokk i svipuðum dúr og er
Rolling Stones var aö byrja.
Hljómsveitin hlaut þó ekki
verulega viðurkenningu fyrr en
nýbylgjan fór að hafa áhrif. Hún
hefur m.a. tekið sömu lög og
Stones var með i fyrstu.
Þær eru fleiri en þessar fjór-
ar áöurnefndu hljómsveitir,
sem hafa veriö miklir áhrifa-
valdar og má þá nefna löngu
dauðar hljómsveitir eins og The
Animals, The Yardbirds, Pretty
Things og Velvet Underground.
Allar þessar hafa lagt ýmis-
legt af mörkum til þeirrar tón-
listar, sem er að verða vinsæl-
ust um þessar mundir.
En af hverju er þessi tónlist
að verða svona vinsæl? Það
mun sennilega ekki vera til nein
endanleg skýring eða svar við
þessari spurningu, en ef litið er
til baka, má sjá ýmislegt at-
hygiisvert.
Tónlist má skipta eftir tima-
bilum, þ.e. á hverju timabili er
ein ráðandi stefna og áhrifa-
minni stefnur fléttast einnig inn
i myndina.
Um nokkurt skeið hefur diskó-
tónlistin ráðið ferðinni, þar áöur
hiö svokallaða Glitter-timabil,
svo var Flower Power, þá hiö
eina og sanna Bitla-timabil um
og eftir að sitt hár komst i tisku.
Svona er áfram hægt að telja
upp hin ýmsu skeið.
Þaö er eins og með tiskufyrir-
bærin, að fólk þarfnast
ákveöinna breytinga- og nýjar
stefnur taka viö.
Þessi tónlist og þeir er flytja
hana, hafa oft verið gagnrýnd
fyrir eftiröpun, en þaö er nú
einu sinni svo að hver stefna á
sina fyrirmynd. Og nú er sú
fyrirmynd tónlist, sem var alls-
ráðandi siðasta áratug.
Hvað veldur er ekki gott að
segja. Kannski er fólk að verða
þreytt á hinum keimliku diskó-
hljómsveitum og söngvurum
eða áðurnefnd breytingaþörf.
Hvers vegna verða þessar
hljómsveitir slikir áhrifavaldar
sem þær eru?
Þessar hljómsveitir sköruöu
fram úr á sinum tima vegna
þess að efni þeirra var vandað
og gott. Þær gáfu út merkilegar
plötur, sem hafa skilið mikiö
eftir sig. Tónlistin kraftmikil og
mögnuð — eöa sérlega ljúf og
falleg.
Þrjár þeirra eru enn starfandi
i dag og hafa alltaf spilaö sina
eigin tónlist i gegnum árin og nú
er svo komið, að þær eru aftur
komnar eða að komast á topp-
inn.
Rolling Stones sló i gegn I
fyrra, The Who hefur verið mik-
ið i sviðsljósinu vegna útgáfu
heimildarkvikmyndar um
hljómsveitina og tónlist henriar
og eftir næstum tiu ára lægð
þýtur Kinks á þremur fyrstu
vikunum með nýja plötu upp i
átjánda sæti bandariska vin-
sældalistans.
Það er greinilegt að það er
mikið að gerast i rokkinu um
þessar mundir.
KRK.
Ray Davies- áhrifamikill tónlistarmaður á leið á toppinn á ný.