Vísir - 18.09.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 18.09.1979, Blaðsíða 8
8 VÍSIR ÞriOjudagur 18. september 1979 Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davffi GuAmundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson, Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Anna Heiður Oddsdóttir, Axel Ammendrup, Friðrik Indriðason, Gunnar E. Kvaran, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson, Þorir Guðmundsson. Otlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 3.500 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 180 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f Fæst sannleikurinn fyrir ársaimælið? Nokkuö er liöiö á ellefta mánuö frá þvi aö utanrikisráöherra óskaöi eftir rannsókn á fullyröingum Vfsis um misferli i Frfhöfninni á Keflavfkurflugvelii. Enginn botn hefur enn fengist i máliö. Oft hefur verið til þess tekið, hve lengi ýmis meint misferlis- mál eru til meðferðar í kerfinu svonefnda. Sláandi dæmi hafa verið dregin fram í dagsljósið til dæmis varðandi Pundsmálið, sem var orðið f yrnt áður en rann- sókn þess lauk eða varðandi Jörgensensmálið, sem komið var á fermingaraldur, þegar niður- staða fékkst loks í því í sumar. Fríhafnarmálið svonefnda, sem Benedikt Gröndal, utan- . ríkisráðherra, óskaði eftir rann- sókn á í fyrrahaust í kjölfar skrifa Vísis um meint misferli hjá Fríhöfninni á Keflavíkur- f lugvelli hef ur farið á hægagangi í gegnum kerfið undanfarna mánuði. Eftir frumrannsókn á vegum lögreglustjóraembættis- insá Keflavíkurf lugvelli var það sent ríkissaksóknara til umf jöll- unar og eftir það óskaði hann eftir framhaldsrannsókn, sem sama embætti hef ur unnið að f rá því í fyrravetur. Fulltrúi lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli sagði síðast er Vísir ræddi við hann, að hann ynni enn að yfirheyrslum yfir starfsmönnum Fríhafnarinnar vegna þessa máls og hefur talið erfitt að segja hvenær fram- haldsrannsókninni lyki. Það var 1. nóvember 1978 sem utanríkisráðherra gaf lögreglu- stjóranum á Keflavíkurflugvelli fyrirmæli um að láta fara fram lögreglurannsókn vegna upplýs- inga, sem fram komu í Vísi þess efnis, að rýrnun á vörubirgðum í Fríhöfninni hefði að einhverju leyti verið falin með hærra út- söluverði á einstökum vöru- tegundum en verðskrá sagði til um. Þarna var meðal annars um að ræða ákveðna áfengistegund og ýmsar sælgætistegundir. Opinberlega hafa hvorki lög- reglustjóraembættið á Keflavík- urflugvelli né ríkissaksóknari viljað tjá sig um það, sem fram hefur komið í rannsókninni, en eftir að gögn málsins voru send rikissaksóknara í febrúarmánuði á þessu ári, skýrði Vísir frá því samkvæmt áreiðanlegum heimildum, að margir Frí- hafnarstarfsmanna hefðu játað, að aukagjald hefði verið lagt á vodka og sælgæti í Frihöfninni. Þá kom einnig f ram, að misferlið hefði verið skjalfest, þar sem of hátt söluverð hefði fundist skráð í bókhaldsgögnum fyrirtækisins. Síðan þetta varð Ijóst er liðið nokkuð á áttunda mánuð, og enn er verið að þæfa málið. Ekki virðist utanríkisráðherra hafa hvatt til að rannsókninni yrði hraðað, þótt hann hefði lagt á það áherslu í nóvember í fyrra, að sannleikans yrði leitað í mál- inu. Ekki hafa starfsmenn Frí- hafnarinnar ýtt á eftir því að reynt yrði að komast sem fyrst að niðurstöðu, enda hæpið að vonir þær, sem þeir birtu í bréfi til utanríkisráðherra 9. nóvember 1978 rætist við lok rannsóknarinnar, en í bréfinu sögðu þeir, að þeir væntu þess, að rannsóknin hreinsaði þá af þess- um áburði. Þannig standa málin í dag, tíu og hálfum mánuði eftir að utan- ríkisráðherra bað um rannsókn á Fríhafnarmálinu. Engin opinber niðurstaða liggur enn fyrir. Þegar níu mánuðir voru liðnir hefði mátt vænta fæðingar, en Ijóst er að meðgöngutími rann- sóknarkerfisins er ívið lengri. Enguaðsfðurættu nú þeir aðilar, sem fullyrtu á sfnum tíma, að Vísir færi með f leipur eitt í þessu máli að sjá til þess að sannleikur- inn liti dagsins Ijós, áður en hægt er að halda upp á ársafmæli rannsóknarinnar. „Slysatfðni meðal ðarna eykst ðegar skólar byrja” - um ijðgur púsund nýir vegfarendur ,,Það er hræðileg staðreynd að slysatiðni meðal barna i umferðinni eykst til muna þegar skólar hefjast, það hefur sýnt sig undanfarin ár”, sagði Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs i samtali við Visi. kvæmt þvi. Litil börn eru óútreiknanleg I umferöinni. Þrátt fyrir nokkuö góöa kunnáttu 1 umferöarregl- um, þá eru þau fljót aö gleyma þegar eitthvaö glepur hugann hinum megin götunnar. stæöur væru mjög misjafnar eftir hverfum þá væri brýnt aö foreldrar og kennarar kenndu börnunum aö þekkja og foröast hætturnar. Smáfólkið hefur slæma yfirsýn yfir götuna. Þessa dagana eykst umferö gangandi vegfarenda til muna. Milli fjögur og fimm þúsund börn hefja skólagöngu I yngstu bekkjardeildum skólanna. Sex og sjö ára börn hafa oft á tiöum Ef hættur eru á leiöinni i skól- ann þarf aö útskýra þær fyrir barninu. enga reynslu sem sjálfstæöir vegfarendur og eru þvi i meiri ‘ slysahættu en fullorönir. Þaö er þvi nauösynlegt aö ökumenn hafi þessar breyttu aöstæöur i huga og hagi akstri sinum sam- ' Ef barniö fer I strætisvagni i skóiann þarf aö útskýra ná- kvæmlega fyrir þvi þær hættur . sem fylgja stórum bilum. Fyrstu skóladagarnir Mikilvægt er aö foreldrar og forráöamenn yngstu barnanna fylgi þeim i skólann fyrstu dag- ana. Þannig veröa þau öruggari og kynnast þeim hættum sem kunna aö leynast á leiöinni i skólann. Stysta leiöin þarf ekki aö vera sú besta, þaö gæti veriö til önnur öruggari. ,,Ég vil mælast til þess viö kennara aö þeir tali viö börnin um umferöina fyrstu skóladag- ana. Nú fer myrkur og slæmt skyggni í hönd og þaö minnir á endurskinsmerkin”, sagöi Ölaf- ur. Ekki þarf aö taka þaö fram aö fullorönir sýni gott fordæmi I umferöinni, þvi þaö vill oft ?leymast t.d. aö fara yfir götu á gangbrautum. Ólafur sagöi aö þar sem aö- Sjón barna er vart fullþroskuö fyrr en um þaö bil þegar þau ljúka barnaskólanámi. Vegna þessarar ástæöu og vegna smæöar sinnar hafa þau slæma yfirsýn yfir götuna. Einnig eiga Börn gleyma fljótt og margt glepur hugann. Gott er aö fara yfir umferöar- reglurnar meö börnunum. börn erfitt aö greina hvaöan hljóö koma og meta hraöa og fjarlægö ökutækis rétt. Börn yngri en tiu ára ættu ekki aö fara á hjóli I skólann. Aöstæöur fyrir hjólreiöar eru slæmar viöast hvar og yngri börn hafa ekkert aö gera út I umferöina á hjóli. Meö góöri samvinnu foreldra og kennara má reyna aö koma I veg fyrir aö smáfólkiö lendi i umferöarslysum eins og þeim sem hafa veriö staöreynd undanfarin ár. -KP. , Gæta veröur þess aö barniö hafi nægilegan tima til aö komast I skólann.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.