Vísir - 18.09.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 18.09.1979, Blaðsíða 9
9 VÍSIR r... Þriöjudagur 18. september 1979 Ljóst er, að veöurfarið á Noröur- og Austurlandi hefur valdiö verulegum erfiöleikum I landbúnaði á þessum landsvæö- um, og er taliö, aö viö blasi mill- jaröa tekjuskeröing hjá bænd- um af þessum sökum, aö þvl er segir I frétt frá Upplýsingaþjón- ustu landbúnaöarins. 1 fréttabréfi frá upplýsinga- þjónustunni segir, aö leitaö hafi veriö upplýsinga um horfur i búskapnum á þessu hausti eftir þá verstu heyákapartið, sem komiö hefur i þessum landshlut- um um árabil, og fara þær upp- lýsingar hér á eftir. Strandasýsla Heyfengur mun vera um 25- 30% minni en undanfarin ar. Mikill munur er milli jaröa, inn til dala er heyfengur mun minni en á sjávarjörðum. Þar hefur verið þó nokkurt kal i túnum og spretta lélegri þótt tún væru ó- kalin. A siðastliðnu ári hirtu bændur i Strandasýslu um 74% af heyjum i vothey, en i ár mun það vera rúmlega 80% af hey- fengnum sem settur hefur verið i vothey. Að mati Brynjólfs Sæ- mundssonar héraðsráðunautar Strandamanna, hefur þessi Heyskapur i Strandasýsiu. Þeir Jón H. Eliasson (t.v.) og Ingimundur Loftsson frá Drangsnesi setja hey upp á vagn. Visismvnd: EJ íl * lllás 13. september; voru þau til jafn- aðar 20% léttari en á sama tima i fyrra en það gerir um 3 kg. af kjöti sem hver dilkur leggur sig minna. Þessi minni meðalvigt gerir um einni milljón króna minni tekjur hjá bónda sem leggur inn 200 dilka i haust, mið- aö við meðalvigt dilka I fyrra. Gera má ráð fyrir nokkurri fækkun bústofns i S-Þingeyjar- sýslu. N-Þingeyjarsýsla Hvergi er ástandið eins alvar- legtoghjá bændum i N-Þingeyj- arsýslu. Þar hafa ekki náðst inn meira en 40% af þvi grasi sem sprottið hefur á túnum i sýsl- unni i sumar, auk þess var spretta mjög léleg. Verst er ástandið á Langanesi og Þistilfirði en skást i Keldu- hverfi. Að sögn Grims B. Jóns- sonar héraðsráðunautar hafa aðeins komið 4 samfelldir þurrkdagar eftir að sláttur hófst i héraðinu, annars hefur verið stanslaus ótið. Flest allir bænd- ur hafa slegið tún sin, en biða með heyið flatt og treysta að upp stytti. Hey hefur verið keypt inn i sýsluna úr Horna- firði, en ekki er gert ráö fyrir NHkil tekluskeroing hja bændun vegna harðindanna mikla votheysverkun bjargað bændum i Strandasýslu frá al- I gjöru hallæri i ár. Þvi nær ó- . gjörningur hefur verið að | þurrka hey eftir að sláttur hófst I fyrir alvöru I sýslunni. Nokkrir | bændur eiga enn hey úti og er I það marghrakið og lélegt fóður. I Dilkar verða með lélegasta móti ■ ihaust, þó er munur mjög mikill ■ á vænleika þeirra, en óvanalega I mikið um mjög litla dilka. I Austur- I Húnavatnssýsla Aætlað hefur verið að hey- skapur i sýslunni sé um 20-25% minni en undanfarin ár. Viöa er . hey úti enn og nokkrir bændur I eru eftir að slá. Minnst hefur . sprottið á Skaga og i Bólstaðar- | hliðarhreppi hefur spretta einn- I ig verið mjög léleg. Grænfóður hefur sprottiö ■ þokkalega þar sem fyrst var. ■ Úthagi er með afbrigðum léleg- ur og sáralitil beit er á túnum. I Jón Sigurðsson héraðsráðu- nautur sagði að slátrað hefðu verið dilkum úr beitartilraun, L-....... en i fyrra fór fram slátrun á dilkum úr sömu tilraun á svip- uðum tima. Nú hefði meðalvigt- in verið 1 1/2 kg. minni en þá. Það benti til þess aö meðalvigt- in i héraðinu gæti verið á bilinu 10-12% minni en i fyrra. Stjórn Búnaðarsambands A- Húnvetninga hefur samþykkt að beita sér fyrir heykaupum inn I héraðið. Ástandið i vestur-sýsl- unni mun vera aðeins betra en i austur-sýslunni. Skagafjörður Egill Bjarnason ráðunautur sagði að sumarið hefði gleymt að koma við hjá þeim i Skaga- firði að þessu sinni. Þrátt fyrir það væri heyfengur sæmilegur I miðhéraðinu, en afleitur til dala og úti i Fljótum og Fellshreppi. Margir bændur i Skagafirði eiga enn mikið af heyjum úti, þau eru mikið hrakin og verða aldrei gott fóður þótt einhvern tima rofi til. Grænfóður hefur sprott- ið mjög illa I sumar og á það er litið treystandi,engin eða litil beit á túnum og úthagi hefur ekki i manna minnum verið svo snöggur og I sumar. Gera má ráð fyrir að meðalvigt dilka verði um 2-3 kg. lægri en i fyrra. Bændur gera sér ekki vonir um að geta keypt hey og þvi er fyrirsjáanleg veruleg fækkun á bústofni Skagfirðinga i haust. Eyjafjörður Ævarr Hjartarson ráðunautur Eyfirðinga taldi að ekki væru um neyðarástand að ræða i sýsl- unni. Þó nokkurt kal var i tún- um i Svarfaðardal og Olafsfirði en annars staðar I sýslunni bar litið á kali. Að mati Ævars hafa bændur nú náð inn um 70-80% af meðal heyfeng, þó nokkuð af heyjum eru úti enn og óvist hve- nær tekst að koma þeim I hlöðu. Bændur með mikla votheys- verkun og góða súgþurrkun hafa flestir náð sæmilegum hey- feng. Nokkuð af heyi hefur þeg- ar verið selt út úr héraðinu, en nú siðustu daga hafa bændur verið að tryggja sér hey þar sem það er falt. Grænfóður hefur sprottið sáralitið og léleg beit verður á túnum I haust. Dilkar eru með rýrasta móti og ekki er reiknað með að kartöflu- uppskera verði meiri en að nægi fyrir útsæði næsta vor. S-Þingeyjarsýsla Verst mun ástandiö vera hjá bændum i Bárðardal, Tjörnesi og Köldukinn, að sögn Teits Björnssonar bónda á Brún i Reykjadal. Þar spratt seint og illa og siáttur hófst seinna i þessum sveitum en annars stað- ar i sýslunni. Það hefur ekki verið almennilegur þurrkur sið- an um 20. ágúst. Margir bændur eiga þvi töluvert slegið sem ekki hefur tekist aö hirða enn. Það snjóar nær á hverri nóttu I Reykjadal um þessar mundir. Það má gera ráð fyrir að hey- skapur muni verða um 20% minni yfir sýsluna alla en undanfarin ár. Grænfóður hefur sprottið sáralitið i sumar og verður þvi litið handa knúnum nú I haust, litil beit er á túnum en úthagi er sæmilegur. Teitur vigtaði hluta af lömbum sinum miklum heykaupum, svo fyrir- sjáanleg er töluverð fækkun á bústofni. Dilkar eru mjög slakir nú, enda var mikill krankleiki I lömbum I vor. Austurland A Austurlandi er ástandið verst á Bakkafirði, Borgarfirði og úthéraði. 1 þessum sveitum liggur mikið af heyjum úti og hrekjast. Sprettan i sumar virð- ist vera einna minnst i Borgar- firði. Uppi á Héraði og suður á fjörðum var sprettan sæmileg og þar gat sláttur hafist fyrr en annars staðar á Austurlandi. Ekki var teljandi kal I túnum á Austurlandi. Um siðustu mán- aðamót áætlaði Jón Atli Gunn- laugsson héraðsráðunautur aö bændur hefðu hirt um 2/3 af meðal-heyfeng siðustu ára, sáralitið hefur bæst i hlöður frá þeim tima sökum stööugra ó- þurrka. Alitið er að fallþungi dilka verði mun minni en I fyrra, sérstaklega er það áber- andi nú hvað dilkar eru misjafn- ir. SOVESKUR EFWUUeUR I VRNDA Efnahagskerfi Sovétríkjanna hefur á síðari árum sýnt merki stöðnunar og hafa sovéskir sérfræðingar unnið að því að reyna að kippa i liðinn því sem miður hefur farið. Árangur vinnu þeirra er nú að koma i Ijós og eru aðalatriði áætlunan sem samin hefur verið,í stuttu máli þau að auka skuli mikilvægi 5 ára-áætlan- anna og að gæði framleiðslunnar, ekki siður en magn, verði lögðtil grundvallar bónus-greiðslum. A fundi miðstjórnar kommún- istaflokksins i fyrra lýsti Leonid Brésnef miklum áhyggjum af stöðnun efnahagslifsins og siðan hafa Alexei Kosigyn, forsætis- ráðherra og Nikolai Bajbakov, yfirmaöur áætlunarbúskapar- ins, unnið að þessum málum. Bajbakov lýsti þvl yfir i grein i Prövdu nýlega, að ekki yrði um neitt frávik frá áætlunarbú- skapnum að ræða: þvert á móti væri nauðsynlegt að styrkja hann og e.t.v. færa hann á ný svið. Aætlunarbúskapur hefur nú verið við lýði I Sovétrikjunum I 50 ár. Aætlanir um æskilega þróun tækni og visinda ná til 20 ára, almennar áætlanir um efnahagsmál og slikt til 10 ára, siðan koma hinar nákvæmari 5 ára áætlanir og loks eins árs á- ætlanir. Bajbakov segir i grein sinni, að mikilvægi eins árs á- ætlananna hafi sifellt aukist á kostnaö 5 ára-áætlunarinnar. Stundum hafi jafnvel verið gerðar áætlanir til aðeins nokk- urra mánaöa. Vegna þess að sovéskir verkamenn fá engan bónus, ef kvótar þessara áætl- ana eru ekki uppfylltir, hafi af- leiöingin verið sú, að „stur- movsjina” — vinna á miklum hraða I lok timabils — hafi auk- ist, sem aftur leiði til minnkandi gæða framleiðslunnar, þó að Brésnef hefur sjáifur tekiö þátt I tilraunum til að koma sovéskum efnahag á réttan kjöl. tekist hafi aö fylla kvótana. Þetta á nú að koma I veg fyrir meö þvi að leggja vörugæði til grundvallar bónus. Ein afleið- ing þess mun verða að loks verður arðbært að framleiöa varahluti, en skortur á þeim er mjög tilfinnanlegur þar austur frá. Sovéskir neytendur hafa einnig mátt sætta sig við mjög lélegar vörur eða þá að þær vör- ur hafa hreinlega hrannast upp óseldar, engum til gagns. Kosigyn forsætisráðherra fjallaði um þetta atriði I tíma- ritinu Kommunist nýlega. Ætl- unin er að hér eftir verði ætiö gerðir samningar við verk- smiðjur um tiltekna framleiðslu til fimm ára og i þessum samn- ingum verði sérstakt tillit tekiö til gæða vörunnar, útlits og endurnýjunar. Langtimaáætl- unum er einnig stefnt gegn ó- þörfum milliliöum, sem oft á tiðum hafa valdið miklum töfum á þvi að varan komist á markaö. Bajbakov fjallar einnig um mikilvægi fjárfestingar i verk- smiðjum I greinsinni. Hingað til hafa fjölmargar verksmiðjur staöið ófullgeröar árum saman og tala þeirra eykst stöðugt. Hinar stærri fjárfestingar gefa af sér alltof lltinn arð. Sam- kvæmt hinni nýju áætlun veröur lagt fast aö byggingafyrirtækj- um aö taka ekki að sér ný verk- efni fyrr en þau hafa lokið öðr- um skuldbindingum sinum. Þá viðurkennir Bajbakov fús- lega, að allar likur séu á vinnu- aflsskorti I nánustu framtið. Samt sem áður er vinnuafl i Sovétrikjunum afskaplega illa nýtt. Ýmis nútimatækni og vél- ar, sem spara vinnuafl, eru teknar seint eða ekki I notkun og margar verksmiðjur hafa haft alltof mikið verkafólk til að geta notað það I hinum óhjákvæmi- legu „sturmovsjinum”. Verða hér eftir settar takmarkanir á fjölda verkafólks og sérfræð- inga við framleiðslufyrirtæki. Vestrænir sérfræðingar hafa reiknað út, að I Sovétrikjunum þarf tvöfalt meira hráefni, orku og vinnuafl en á Vesturlöndum til að framleiða sama magn til- tekinnar vöru. Bajbakov gerir sér þetta ljóst og segir i grein sinni, að „oft þarf töluvert meira til að framleiða vöruein- ingu hér en i hinum þróuðu kapitalisku rikjum”. Rikari áhersla á vörugæði er nauðsynleg eigi Sovétrikin ekki að dragast enn meira aftur úr. Hagvöxtur fer enn minnkandi siðari hluta þessa áratugs og er nú nálægt 3% á ári.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.