Morgunblaðið - 28.09.2001, Síða 1
2001 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÁRANGUR AKUREYRARLIÐANNA Í KNATTSPYRNU FRÁ 1975 / C3
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknattleik
kvenna eru meistarar meistaranna eftir sigur á
bikarmeisturum ÍBV á Ásvöllum í gærkvöldi,
24:19. Eyjastúlkur byrjuðu þó betur og komust
í 3:7 en þá snéru Haukastúlkur við blaðinu og
voru yfir í hálfleik, 13:10. Sigur Íslandsmeist-
aranna var síðan aldrei í hættu. Mikill haust-
bragur var á leik liðanna, sem var oft á tíðum
ekki á háu plani. Markahæstar Haukastúlkna
voru þær Brynja Steinsen með 7 mörk og
Harpa Melsted með 6 mörk. Hjá Eyjastúlkum
var Ana Perez og Andrea Atladóttir marka-
hæstar með fimm mörk hvor. „Það er ágætt að
byrja tímabilið með sigri, leikurinn í kvöld var
ekki mikið fyrir augað en ég á von á skemmti-
legu tímabili í vetur,“ sagði Ragnar Her-
mannsson, þjálfari Hauka.
Haukastúlkur
eru bestar
EKKERT verður úr því að báðir
leikir Hauka og pólska liðsins Kol-
porter Kielce í 2. umferð EHF-
keppninnar í handknattleik fari
fram hér á landi eins og for-
ráðamenn Hauka héldu sig vera
búna að semja um. Leikirnir fara því
fram eins og drátturinn sagði til um
– fyrri leikurinn verður í Póllandi
sunnudaginn 7. október og síðari
leikurinn á Ásvöllum laugardaginn
13. október.
„Það kom einhver misskilningur
upp varðandi dollaratölur en sam-
skiptin við Pólverjanna hafa verið
mjög erfið. Við fengum Pólverja
sem er búsettur hér á landi til að
hringja út og hann fékk tölur frá
forráðamönnum Kolporter sem við
sættumst á. Síðan kom fax frá liðinu
í dag (í gær) og þá kom í ljós allt
önnur tala. Það munaði einhverjum
15.000 dollurum og þegar við ósk-
uðum eftir svari frá þeim varðandi
fyrra tilboðið söguðust þeir ætla að
spila heimaleik sinn í Póllandi. Við
verðum bara að taka þessu. Það var
plús að mæta þeim í báðum leikj-
unum hér heima en það er jákvætt í
þessu öllu saman að við eigum fyrri
leikinn úti og þá verða menn bara að
standa sig,“ sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, við Morgunblaðið.
Haukar
þurfa að
fara til
Póllands
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði glæsilegt mark fyrir Chelsea í gærkvöld gegn Levski Sofia í Búlgaríu, 2:0, í UEFA-bikarnum í knatt-
spyrnu. Eiður skoraði tvö mörk í fyrri leik liðanna sem Chelsea vann 3:0. Hér fagna Eiður og Gianfranco Zola markinu. Sjá nánar / C4
Það er ótrúlegt að hafa í hönd-unum pappíra um að allt sé í
lagi en síðan kemur eitthvað annað
upp úr dúrnum núna þegar námið
er hafið,“ sagði Sigríður Jakobs-
dóttir, móðir Jakobs Jóhanns, í
samtali við Morgunblaðið í gær, en
hún beið eftir því að fá það skriflega
á hreint hvaða forsendur væru að
baki ákvörðun NCAA. Svo virðist
vera sem þeir verði að hafa lokið
stúdentsprófi til þess að hljóta við-
urkenningu NCAA.
Jakob og Örn fóru utan í lok
ágúst en forsaga þess að þeir fengu
boðið frá skólanum, University of
Southern California, USC, er sú að
yfirþjálfari sundliðs skólans, Mark
Schubert, hafði samband við þá sl.
vetur og kannaði áhuga þeirra á að
koma. Schubert er einn fremsti
sundþjálfari Bandaríkjanna og hef-
ur m.a. verið þjálfari ólympíuliðs
landsins. Schubert kom m.a. hingað
til lands og ræddi við Jakob og Örn
og fjölskyldur þeirra. Í framhaldinu
voru allar upplýsingar um náms-
framvindu þeirra hér á landi sendar
utan ásamt einkunnum. Þar kom
skýrt fram að hvorugur þeirra hafði
lokið stúdentsprófi eða sambæri-
legri menntun í framhaldsskóla.
Skólayfirvöld ytra töldu stúdents-
próf ekki nauðsynlegt. Báðir hefðu
þeir lokið a.m.k. 60 einingum í
framhaldsskóla og var það talið full-
nægjandi til inngöngu og þeir nytu
sömu réttinda og hver annar nem-
andi. Í framhaldinu fóru þeir Jakob
og Örn í svokallað SAT-próf, sem er
stöðu- og inntökupróf fyrir banda-
ríska háskóla. Báðir stóðust þeir
prófið með sóma og fengu í fram-
haldinu staðfestingu á inngöngu frá
USC og einnig bréf upp á að þeir
fengju fullan skólastyrk þar sem
þeir yrðu keppendur fyrir sundlið
skólans.
Í síðustu viku barst þeim hins
vegar bréf frá NCAA þar sem þeim
var greint frá því að þeir yrðu ekki
löglegir í keppnisliði USC þar sem
þeir fullnægðu ekki kröfum NCAA
um menntun. Nánari upplýsingar
um hvaða kröfur væru gerðar til
nemenda voru ekki tíundaðar en
þeirra er beðið. Þar með eru
brostnar forsendur fyrir skóla-
styrknum.
Sem fyrr segir fóru þeir utan í
síðari hluta ágúst og settust þá
fljótlega á skólabekk auk þess sem
þeir hafa æft með sundliði skólans
undir stjórn Schubert. Allt hefur
gengið eins og í sögu þar til bak-
slagið kom í síðustu viku. Rúmensk
sundkona sem einnig er við nám í
skólanum á styrk eins og Jakob og
Örn er í sömu sporum.
Jakob og Örn á heimleið
FLEST bendir til þess að sundmennirnir Jakob Jóhann Sveinsson
og Örn Arnarson séu á heimleið frá Bandaríkjunum og koma þeir
jafnvel heim eftir næstu helgi en þeir ætluðu sér að stunda nám
og keppni við háskóla í Los Angeles í vetur. Íþróttasamtök banda-
rískra háskóla (NCAA) segja þá ekki hafa næga menntun til þess
að fá leyfi til að keppa á mótum á vegum þess fyrir skóla sinn. Þar
með eru brostnar forsendur fyrir skólastyrknum sem þeir fengu.