Vísir - 30.10.1979, Blaðsíða 16

Vísir - 30.10.1979, Blaðsíða 16
01 margir lausir endar Hvað sögðu englarnir? eftir Ninu Björk Árna- dóttur Leikmynd: Þórunn Sigriður Þorgrimsdótt- ir Leikstjóri: Stefán Baldursson leiklist Bryndk Schram skrifar LjóöskáldiB Nina Björk hefur alltaf veriö i miklu dálæti hjá mér. öll hennar persóna lýsir af ljóörænum næmleik og barns- legri einlægni. Og ljóö hennar eru aöeins endurómur persónu- leikans. Henni lætur vel aö tjá hughrif sin i ljóöforminu. „Hvaö sögöu englarnir?” eru hins vegar fyrsta leikrit Ninu, sem éghef séö á sviöi og viröist mér viö fyrstu sýn, aö þetta tjáningarform sé henni siöur viöráöanlegt en hiö fyrmefnda. Hvaö sögöu englarnir? segir frá ungum manni .Steini, sem stelur Ur banka og er settur á betrunarhæli. Skýringarinnar er ef til vill aö leita i æsku. Móð- ir hans vann fyrir honum meö hreingerningum og endaöi siöan á geðveikrahæli. Engu að siöur þykir Steini mjög vænt um móöur si'na. A milli þeirra rikir fallegt og náið samband. Þau eru olnbogabörn velferöarþjóðfélagsins, en eiga þó innri hamingju. Andstæöa þeirra er fjölskylda Brynju, kærustu Steins. Nýrikt fólk, sem reynir árangursiaust aö kæfa óhamingju sina i vi'mu- gjöfum og verðlausum pening- um. Ríkt fólk á veraldarvisu en fátækt i andanum. Brynja afneitar þessum inn- antóma lffsstil og varpar sér 1 fangiö á Steina afbrotamannin- um. Hón reynir aö bjarga hon- um undan „réttvisinni”, en veröur aö sjá á bak honum inn á „hæliö”. Er hann sekur? Þaö skiptir kannski ekki öllu máli, heldur hitt, aö hann elskar Brynju, og Brynja elskar hann. Hiö Helga Bachmann og Tinna Gunniaugsdóttir f hlutverkum sinum i „Hvað sögöu englarnir?”. morkna, siöspillta umhverfi vill ekki þyrma þeim, getur ekki unnt þeim aö elskast. Þaö þolir illa hreinar, heitar tilfinningar. Birtan er of mikil, andstæðurn- ar of ljósar. En er Steinn afbrotamaöur? Hver er ekki afbrotamaöur i okkar sjúka þjóöfélagi? Stór- glæpamennirnir sleppa meö skrekkinn og ekki einu sinni þaö en smáþjófarnir, utangarös- mennirnir, þeir, sem eiga sér enga málsvara, hafa aldrei þekkt annað en fátækt og órétt- læti, þeir eru settir inn og eiga sér ekki viöreisnarvon. Steinn er enginn glæpamaöur, heldur aðeins ólánsamur ung- lingur.FaöirBrynju hins vegar, stórgróöamaöurinn, brýtur lög- in þvers og kruss, og enginn spyr hann neins. Þannig er nú réttlætið. Þó aö saga Steins sé dapurleg, þá eru endanleg áhrif leikritsins ekki samúðin meö Steini heldur óbeitin á sam- félaginu, hinu sjúklega um- hverfi og siðspilltu, ráövilltu fólki. Persóna Steins er lika óljósari en hinna og mér fannst hálfpartinn eins og Sigurður botnaöi dckert i Steini, fyndi ekki til meö honum. Allir aðrir eru dregnir ákveðnari dráttum, og er þaö ekki sizt aö þakka góö- um gervum. Égvarlengiaöátta mig á þvi, hvaö höfundur væri aö fara, það var eiginlega ekki fyrr en undir lokin.sem linurnar skiröust. Ég fékk aldrei áhuga á þessu fóiki, sem um var að ræöa, heldur beindist áhugi minn aö þvi formi, sem leiknum var valiö, þeim litum, sem voru rikjandi og góöum leik. Stefán og Þórunn Sigriöur eru afbragöslistamenn sem hver höfundur telst hólpinn að fá til liös viö sig. Leikarar áttu þarna lika mjög góöa spretti, t.d. fór Helga Bach- mann næmum höndum um hina taugaveikluöu móöur Brynju. Helga Jónsdóttir var frábær tildurrófa, og Þórhallur dró upp skoplega mynd af streðarn- um. Briet stóö höfundi næst og túlkaði móöur Steins af skilningi og innileik en eins og áöur sagöi fannst mér Siguröur hálfutan- gátta I hlutverki Steins. Tinna Gunnlaugsdóttir var falleg Brynja og komst mjög vel frá þessu fyrsta hlutverki sinu i Þjóðleikhúsinu. En hvers vegna tókst þá sýn- ingin ekki? Hvaö var þaö sem brást? Við þykjumst vita, hvaö Nina er aö fara, og viö höfum samúð meö sjónarmiöum henn- ar. Samt tókst henni ekki aö koma þvi til skila i leikforminu. Of margir lausir endar. En á meðan maöur veit, aö Nina gæti oröaö þessar sömu hugsanir, sagt sögu Steins, I hinu knappa formi ljóðsins, þá fyrirgefst henni allt. Hljómplötuútgáfan iöln vlð kolann: Nýjar piötur Dæöl frá og Hljómplötuútgáfan hefur i mörg horn að lita þessa haustmánuði og lætur margnefnda kreppu i islenskri hljómplötuútgáfu litið á sig fá. Fjórar plöt- ur hafa komið frá fyrirtækinu á árinu i breiðskifu- stærðinni, HLH-platan ,,1 góðu lagi”, „Útkall” Brunaliðsins, sólóplata Bjarka Tryggvasonar ,,Einn á ferð”, og „Glámur og Skrámur i sjöunda himni” sem ennþá er að heita má volg, enda aðeins nokkrir dagar frá útkomu hennar. Spllverkinu Brimklö Auk þessara platna hefur Hljómplötuútgáfan gefið út tvær smáskifur, „reykingaplötuna” svonefndu I samvinnu viö Sam- starfsnefnd um reykingavarnir og plötu meö akureyrsku hljóm- sveitinni Hver. Sökum ágalla á nær öllu fyrsta upplagi plötunn- ar hefur þessi smáskifa frá Hver verið endurútgefin og fæst gallalaus fyrir sanngjarna þóknun hjá plötusölum landsins. Bráðabirgðabúgi Spil- verksins Næsta plata Hljómplötuútgáf- unnar er nýjasta verk Spilverks þjóðanna, sem þau kalla „Bráöabirgðabúgi”. Þeir sem hafa heyrt plötuna segja Spil- verkið sýna á sér nýja og ferska hliö, en þetta mun vera sjötta plata Spilverksins. Með Spil- verkinu leika bandariski trymbillinn David Logeman (trymbill Jakobs Magnússon- ar), Þorsteinn Magnússon (Steini I Eik eöa Eini i steik) á rafgitar og Haraldur Þorsteins- son á bassa. Spilverkið skipa sömu liðsmenn og á siöustu plötu, Island, þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Valgeir Guö- jónsson og Sigurður Bjóla. Sannar dægurvisur Brimklóar Um næstu mánaðamót er áætlaö að hefja dreifingu á nýrri plötu Brimklóar, þeirri fyrstu fyrir Hljómplötuútgáfuna, en Brimkló viröist hafa það aö leiðarljósi aö leika aldrei inná fleiri en eina plötu fyrir hverja hljómplötuútgáfu. Hermt er aö liðsmenn Brimklóar slái á nokk- uð aðra strengi en áður og sviki engan. Það verður sannreynt siðar, — en meirihluti laganna er eftir liðsmenn hljómsveitar- innar. Magnús & Jóhann Þeir Magnús Þór Sigmunds- son og Jóhann Helgason sem I eina tiö voru eins og samvaxnir tviburar á tónlistarsviðinu, en fóru svo i sinn hvora áttina, — hafa aftur sest hlið við hliö og samiö lög og texta. Hljómplötu- útgáfan hyggur á útgáfu hljóm- leikaplötu með strákunum, dá- litiö sérkennilegri framleiöslu, nefnilega eilitiö hrárri og ógerilsneyddri, að sögn Jóns Ólafssonar forstjóra Hljómplötuútgáfunnar. Þessi plata verður aöeins gefin út i nokkur hundruö eintökum. Brunaliðskvikmynd Forráðamenn Hljómplötuút- gáfunnar eru býsna nýjunga- gjarnir og hafa nýlega fjár- magnað niu minútna langa kvikmynd með ségultón þar sem Brunaliöið leikur lögin „Stend meö þér” og „Eina nótt”. Aður hefur Hljómplötuút- gáfan látið kvikmynda HLH- flokkinn og var sá filmubútur sýndur i kvikmyndahúsum um land allt — og svo mun einnig um þann nýja. GIsli Gestsson tók kvikmyndina. Ráðningarskrifstofa Fyrirtæki nefnist Ráðningar- skrifstofa Hljómplötuútgáfunn- ar. Þaö mun annast ráðningar listamanna Hljómplötuútgáf- unnar einvöröungu, þ.ám. Brunaliösins, Brimklóar og Magnúsar & Jóhanns. —Gsal Þorkell Valdemarsson og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir meö kjarvalsmál- verk það/sem Þorkell færöi Reykjavlkurborg. Gjðl tll ReykjavikurDorgar Þorkell Valdemarsson hefur fært Reykjavikurborg aö gjöf oliumálverk eftir Jóhannes Kjarval. Myndin er af Dyrfjöll- um. Þá hefur verið ákveöið að festa kaup á 26 ljósmyndum eft- ir Rafn Hafnfjörö sem teknar voru á vinnustofu Jóhannesar Kjarval. Sænsk listakona, Ulla Arvinge, hefur opnaö sýningu i Galleri Kirkju- munir, Kirkjustræti 10. A sýningunni eru 35 ollumálverk. Hún stendur til nóvemberloka. VIsismyndJA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.