Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 C FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Newcastle er á allra vörum á Bret-landseyjum, en liðið hefur komið allra liða mest á óvart. Útisigrar á móti Arsenal og Leeds og heimasigur gegn Middlesbrough í síðustu þremur leikj- um ber vitni um að hinn 68 ára gamli Bobby Robson er að gera frábæra hluti með Newcastle-liðið en þrátt fyr- ir það blæs Robson á allt tal um að hans menn eigi góða möguleika á að landa titilinum eftir langa bið. „Ég tel ekki raunhæft að spá okkur titilinum þrátt fyrir að toppsætið sé okkar í dag því það er mikið eftir af mótinu. Ég tel samt enn að liðin fyrir aftan okkur séu betri en ég get þó við- urkennt að ég hef merkt miklar fram- farir á leik minna manna. Við eigum eftir að spila marga erfiða leiki, til dæmis mætum við Chelsea og Man- chester United í næstu leikjum,“ segir Robson. Campbell öflugur Arsenal átti góðu gengi að fagna í jólaleikjunum. Fyrst sigur á móti Liv- erpool í leik sem Arsenal lék manni færri í klukkustund og á eftir fylgdi sigur á móti Chelsea, 2:1, þar sem Sylvain Wiltord skoraði sigurmarkið 20 mínútum fyrir leikslok. „Ef við hefðum ekki unnið Chelsea hefði sigurinn á móti Liverpool verið fljótur að gleymast. Þetta voru góðir sigrar til að efla sjálfstraustið í liðinu og sérstaklega var ánægjulegt að ná að vinna heima. Þegar deildin er svona jöfn er mjög mikilvægt fyrir hvert lið að vinna heimaleikina. Við höfum tap- að of mikið af stigum á Highbury en vonandi höfum við nú náð að snúa þeirri þróun við. Ég hef sagt og segi enn að við höfum mannskap til fara alla leið og nú er það bara undir okkur sjálfum komið,“ sagði Patrick Vieira, miðjumaðurinn snjalli hjá Arsenal, eft- ir leikinn. Það hefur breytt miklu í leik Arsenal að undanförnu að Sol Camp- bell fellur æ betur inn í leik liðsins og er að nálgast sitt fyrra form. Micheal Owen, framherji Liverpool, komst ekkert áleiðis á móti Campbell og sömu sögu er að segja af framherja- parinu skæða hjá Chelsea, Eiði Smára og Jimmy Floyd Hasselbaink. Hvor- ugur þeirra náði sér á strik á móti sterkri vörn Arsenal en báðir voru þeir á skotskónum í leiknum við Bolton á sunnudag þegar Chelsea sigraði, 5:1. Eiður skoraði fyrsta mark Chelsea og lagði upp annað fyrir Hasselbaink. Skin og skúrir hjá Liverpool Liverpool, sem á leik til góða á New- castle, sótti þrjú dýrmæt stig á Villa Park og sigraði Aston Villa, 2:1. Jari Litmanen og Vladimir Smicer skoruðu mörk Liverpool og Litmanen brenndi auk þess af vítaspyrnu í fyrri hálfleik. „Eftir tapleikina á móti Chelsea og Arsenal var mjög þýðingarmikið að ná þremur stigum. Mér fannst við stjórna leiknum og þrátt fyrir nokkra pressu Aston Villa á lokakaflanum fannst mér sigurinn sanngjarn,“ sagði Phil Thompson og bætti því við að endur- koma Dietmars Hamans í liðið hefði breytt miklu en þýski miðjumaðurinn var að afplána þriggja leikja bann. Frakkinn Nicolas Anelka lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool – kom inná sem varamaður í treyju númer 9 og spilaði síðustu 20 mínúturnar án þess að ná að setja mark sitt á leikinn. Fowler í banastuði Á meðan leikmönnum Liverpool hef- ur gengið frekar illa að skora mörk upp á síðkastið er fyrrum liðsmaður „Rauða hersins“, Robbie Fowler, iðinn við kolann þessa dagana. Fowler stal heldur betur senunni á Reebock-leik- vanginum í Bolton þar sem Leeds sigr- aði heimamenn, 3:0. Fowler gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörkin og átti möguleika á að bæta fjórða mark- inu við, en vítaspyrna hans fór í súginn. David O’Leary, stjóri Leeds, var dauf- ur í dálkinn eftir ósigurinn á heimavelli gegn Newcastle á laugardaginn en í fyrradag gat hann tekið gleði sína á ný og sérstaklega var stjórinn ánægður fyrir hönd Robbie Fowlers. „Ég held að Fowler hafi sýnt hversu mikils virði hann er og hversu góð kaup voru hjá okkur í honum. Hann er frábær leikmaður og magnaður markaskorari sem á eftir að skora mörg mörk fyrir félagið á komandi ár- um,“ sagði O’Leary. Fowler skoraði tvö fyrstu mörk sín í fyrri hálfleik og fullkomnaði þrennuna á lokamínútu leiksins og sitt fimmta mark fyrir Leeds frá því hann gekk í raðir þess í byrjun mánaðarins. Jon- athan Woodgate lék sinn fyrsta leik fyrir Leeds á leiktíðinni, en þessi sterki varnarmaður, sem hefur verið mikið í fréttum að undanförnu vegna dómsmáls, hefur verið frá vegna meiðsla í langan tíma. Bolton saknar Guðna Það hefur komið í ljós í síðustu leikj- um Bolton að Guðni Bergsson, fyrirliði liðsins, hefur skilið eftir sig skarð sem nýliðarnir hafa ekki náð að fylla í. Guðni hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla, og 5:1 tap á móti Chelsea og 3:0 ósigur fyrir Leeds segir alla söguna um hve mikilvægur Guðni er í liði Bolton. Eftir frábæra byrjun hefur Bolton aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum sínum og fyrir vikið hefur liðið sogast niður í fallbaráttuna. United komið á skrið Fjórir sigurleikir í röð og markatal- an 14:1 er vísbending um að Manchest- er United ætlar ekki að láta titilinn af hendi baráttulaust og „Rauðu djölfarn- ir“ virðast vera komnir á gott skrið. United skellti Southampton 5:1 á laug- ardag þar sem Ruud van Nistelrooy skoraði þrennu og í fyrradag sóttu meistararnir þrjú stig á Goodison Park þegar þeir lögðu Everton, 2:0 með mörkum frá Ryan Giggs og Nistel- rooy. Sir Alex Ferguson, stjóri United, ÞEGAR keppnin í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er hálfnuð trónir Newcastle óvænt í efsta sæti og skákar „stóru“ liðunum. Strákarnir hans Bobby Robsons hafa farið mikinn að undanförnu – hafa unnið fimm leiki í röð og eru með þriggja stiga forskot á Arsenal og Liverpool. Á hæla þeirra kemur Leeds og meistarar Manchester United, sem hafa unnið fjóra leiki í röð, eru þar skammt á eftir. Sparkspekingar á Eng- landi muna varla eftir jafn spennandi móti frá stofnun úrvalsdeild- arinnar og segja að ómögulegt sé að spá í hvaða lið komi til með að standa uppi sem sigurvegari í vor. KNATTSPYRNA England Úrvalsdeildin Leikið annan í jólum: Arsenal – Chelsea.....................................2:1 Sol Campbell 49., Sylvain Wiltord 71. – Frank Lampard 31. – 38.079. Bolton – Leeds ..........................................0:3 – Robbie Fowler 2., 16., 89. – 27.060. Fulham – Charlton ...................................0:0 17.900. West Ham – Derby ...................................4:0 Sebastian Schemmel 5., Paolo Di Canio 73., Trevor Sinclair 86., Jermain Defoe 90. – 31.397. Rautt spjald: Benito Carbone (Derby) 53. Southampton – Tottenham .....................1:0 James Beattie 56. – 31.719. Aston Villa – Liverpool............................1:2 Lee Hendrie 21. – Jari Litmanen 9., Vlad- imir Smicer 73. – 42.602. Blackburn – Sunderland .........................0:3 – Niall Quinn 17., 32., Kevin Kilbane 90. – 39.948. Rautt spjald: Craig Short (Black- burn) 69. Everton – Man. United.............................0:2 – Ryan Giggs 78., Ruud van Nistelrooy 85. – 39.948. Ipswich – Leicester ..................................2:0 Marcus Bent 48., Sixto Peralta 55. – 24.403. Newcastle – Middlesbrough ...................3:0 Alan Shearer 29., Gary Speed 58., Oliver Bernard 83. – 52.127. Leikið á Þorláksmessu: Chelsea – Bolton .......................................5:1 Eiður Smári Guðjohnsen 41., Jimmy Floyd Hasselbaink 45., Boudewijn Zenden 56., Colin Hendry 76. (sjálfsmark), Frank Lampard 87. – Kevin Nolan 3. – 34.063. Liverpool – Arsenal .................................1:2 Jari Litmanen 55. – Thierry Henry 45. (víti), Fredrik Ljungberg 53. – 44.297. Rautt spjald: Giovanni van Bronckhorst 36. Leikið 22. desember: Derby – Aston Villa..................................3:1 Fabrizio Ravanelli 45., Benito Carbone 67., Malcolm Christie 87. – Juan Pablo Angel 45. – 28.001. Charlton – Blackburn ..............................0:2 – Damien Duff 57., David Dunn 90. – 25.857. Leeds – Newcastle....................................3:4 Lee Bowyer 38., Mark Viduka 50., Ian Harte 56. – Craig Bellamy 38., Robbie Ell- iott 59., Alan Shearer 71. (víti), Nolberto Solano 90. – 40.287. Leicester – West Ham..............................1:1 Muzzy Izzet 43. – Paolo Di Canio 74. (víti) – 20.131. Rautt spjald: Matt Elliott (Leicest- er) 72. Man. United – Southampton ...................6:1 Ruud van Nistelrooy 1., 34., 54., Ole Gunn- ar Solskjær 41., Roy Keane 72., Phil Nev- ille 78. – Marian Pahars 55. – 67.638. Middlesbrough – Fulham.................frestað Sunderland – Everton..............................1:0 Claudio Reyna 77. – 48.013. Tottenham – Ipswich ...............................1:2 Simon Davies 12. – Finidi George 40., Alun Armstrong 88. – 36.040. Rautt spjald: Teddy Sheringham (Tottenham) 54. Newcastle 19 12 3 4 37 :23 39 Arsenal 19 10 6 3 39 :23 36 Liverpool 18 11 3 4 28 :18 36 Leeds 19 9 8 2 29 :17 35 Manch. Utd 19 10 3 6 45 :28 33 Chelsea 19 7 9 3 29 :15 30 Tottenham 19 8 3 8 30 :26 27 Aston Villa 19 7 6 6 25:24 27 Sunderland 19 7 5 7 17:17 26 Fulham 18 5 9 4 17:17 24 West Ham 19 6 6 7 24:30 24 Charlton 19 5 8 6 21:22 23 Everton 19 6 5 8 23:25 23 Blackburn 19 5 7 7 25:24 22 Bolton 19 5 6 8 21:29 21 Middlesbrough 18 5 4 9 17:26 19 Southampton 18 6 1 11 19:30 19 Derby 19 4 4 11 14:35 16 Ipswich 19 3 6 10 19:28 15 Leicester 19 3 6 10 12:34 15 Markahæstu menn Thierry Henry ............................................16 Jimmy Floyd Hasselbaink ........................13 Ruud Van Nistelrooy .................................11 Michael Ricketts.........................................10 Michael Owen ...............................................9 Marian Pahars..............................................9 Alan Shearer.................................................8 Robbie Fowler ..............................................8 Fabrizio Ravanelli ........................................8 Juan Pable Angel .........................................7 Harry Kewell ................................................7 Kevin Phillips ...............................................7 6 mörk: Ole Gunnar Solskær, James Beatt- ie, Barry Hayles, Craig Bellamy og Les Fardinand. 1. deild: Leikið annan í jólum: Bradford – Sheffield United ....................1:2 Gillingham – Portsmouth .........................2:0 Grimsby – Coventry..................................0:1 Manchester City – WBA ..........................0:0 Millwall – Crystal Palace..........................3:0 Nottingham Forest – Norwich ................2:0 Rotherham – Burnley........................frestað Sheffield Wed. – Birmingham..................0:1 Stockport – Barnsley ................................1:3 Walsall – Crewe.........................................2:1 Wimbledon – Watford .......................frestað Wolves – Preston.......................................2:3 Leikið á Þorláksmessu: Coventry – Bradford.................................4:0 Leikið 22. desember: Barnsley – Gillingham ..............................4:1 Birmingham – Walsall ..............................1:0 Burnley – Milwall ......................................0:0 Norwich – Wimbledon ..............................2:1 Portsmouth – Stockport ...........................2:0 Preston – Grimsby ....................................0:0 Sheffield United – Rotherham.................2:2 Watford – Wolves......................................1:1 WBA – Sheffield Wednesday...................1:1 Burnley 25 15 5 5 48 :33 50 Man. City 25 14 4 7 55 :34 46 Wolves 26 13 7 6 39 :23 46 Norwich 26 14 3 9 35:35 45 WBA 26 13 5 8 28:21 44 Coventry 26 13 4 9 32:24 43 Millwall 25 12 6 7 42:28 42 Birmingham 26 12 6 8 40:31 42 Preston 26 10 10 6 42:33 40 Crystal Palace 26 12 2 12 46:39 38 Watford 24 10 6 8 37:27 36 Gillingham 26 10 6 10 39:37 36 Portsmouth 26 10 6 10 38:38 36 Sheffield Utd 26 8 11 7 30:31 35 Nottingham F. 26 8 10 8 29:25 34 Wimbledon 25 8 8 9 40:39 32 Bradford 26 9 5 12 45:50 32 Rotherham 25 7 8 10 32:39 29 Crewe 25 7 8 10 26:39 29 Barnsley 26 7 7 12 38:51 28 Walsall 26 7 5 14 30:42 26 Sheffield Wed. 26 5 9 12 27:40 24 Grimsby 26 5 7 14 22:47 22 Stockport 26 2 6 18 25:59 12 2. deild: Leikið annan í jólum: Blackpool – Oldham ..................................0:2 Cambridge – Brentford ............................2:1 Cardiff – Reading .....................................2:2 Chesterfield – Wycombe ...................frestað Huddersfield – Peterborough..................3:1 Northampton – Colchester ......................2:3 Port Vale – Bristol City ............................1:0 QPR – Brighton.........................................0:0 Swindon – Bournemouth ..........................0:0 Tranmere – Stoke .....................................2:2 Wigan – Bury.............................................1:1 Wrexham – Notts County ........................2:1 Leikið 22. desember: Bournemouth – QPR ................................1:2 Bristol City – Wrexham............................1:0 Bury – Blackpool.......................................1:1 Colchester – Huddersfield .......................3:3 Reading – Wigan .......................................1:1 Wycombe – Cambridge ............................2:0 Brentford 24 13 6 5 47 :27 45 Stoke 23 13 6 4 37 :21 45 Brighton 23 12 9 2 32 :17 45 Bristol City 25 13 5 7 38:24 44 Reading 23 12 4 7 33:24 40 Cardiff 24 9 11 4 37:27 38 Wycombe 23 10 8 5 35:28 38 Huddersfield 23 10 7 6 37:27 37 QPR 24 10 7 7 34:27 37 Oldham 24 9 9 6 40:29 36 Tranmere 23 10 6 7 44:34 36 Colchester 24 10 5 9 41:39 35 Blackpool 24 7 9 8 30:37 30 Wigan 24 7 8 9 34:31 29 Swindon 23 7 7 9 23:31 28 Peterborough 22 8 3 11 31:32 27 Port Vale 24 7 6 11 27:33 27 Bournemouth 24 7 6 11 26:34 27 Bury 24 7 5 12 25:39 26 Chesterfield 23 6 7 10 28:32 25 Notts County 24 5 8 11 31:41 23 Wrexham 25 6 4 15 29:55 22 Cambridge 24 4 6 14 23:48 18 Northampton 24 5 2 17 23:48 17 3. deild: Leikið annan í jólum: Bristol Rovers – Leyton Orient ...............5:3 Carlisle – Darlington .........................frestað Cheltenham – Shrewsbury.......................1:0 Exeter – Swansea......................................0:3 Hartlepool – Scunthorpe ...................frestað Kidderminster – Rochdale .......................4:1 Lincoln – Mansfield ...........................frestað Macclesfield – Halifax...............................1:1 Oxford – Luton ..........................................1:2 Plymouth – Torquay .................................2:2 Southend – Rushden & Diamonds...........4:2 York – Hull .........................................frestað Leikið 22. desember: Leyton – Lincoln .......................................5:0 Luton – Hartlepool ...................................2:2 Rushden & Diamonds – Carlisle..............3:1 Scunthorpe – Plymouth............................2:1 Torquay – Oxford......................................3:3 Plymouth 24 14 7 3 35 :15 49 Luton 24 14 4 6 47 :31 46 Hull 23 11 8 4 37 :22 41 Mansfield 23 12 5 6 37:26 41 Rochdale 23 11 6 6 33:26 39 Scunthorpe 23 10 8 5 40:25 38 Shrewsbury 24 11 5 8 34:27 38 Cheltenham 23 9 8 6 34:31 35 Rushden & D. 24 8 9 7 28:26 33 Exeter 24 9 6 9 26:38 33 Kidderminster 22 9 5 8 24:21 32 Southend 24 9 4 11 28:28 31 Leyton Orient 24 8 6 10 37:38 30 Swansea 24 8 6 10 31:35 30 Hartlepool 23 8 5 10 28:22 29 Darlington 22 8 5 9 27:31 29 Macclesfield 24 6 9 9 23:31 27 Oxford 24 6 8 10 27:32 26 Lincoln 23 5 10 8 22:28 25 Bristol Rovers 23 6 6 11 21:30 24 Torquay 24 6 6 12 21:36 24 York 22 6 4 12 26:40 22 Carlisle 23 4 8 11 19:30 20 Halifax 23 4 8 11 17:33 20 Skotland Úrvalsdeild: Leikið annan í jólum: Aberdeen – Dundee ...........................frestað Celtic – Livingston ....................................3:2 Dundee United – Hearts ..........................0:2 Hibernian – Rangers ................................0:3 Kilmarnock – Dunfermline ......................0:0 Motherwell – St. Johnstone .....................1:2 Leikið 22. desember: Dundee – Kilmarnock...............................1:2 Hearts – Motherwell.................................3:1 Livingston – Dunfermline ........................0:0 Rangers – Dundee Utd.............................3:2 St Johnstone – Hibernian.........................0:0 Aberdeen – Celtic......................................2:0 Celtic 20 18 1 1 47 :11 55 Rangers 21 13 6 2 48 :17 45 Livingston 20 10 7 3 30 :16 37 Aberdeen 20 10 3 7 31 :28 33 Kilmarnock 21 8 4 9 22 :24 28 Hearts 21 8 3 10 28 :27 27 Dundee 20 6 5 9 20 :30 23 Dunfermline 21 6 4 11 23 :37 22 Dundee United 21 5 7 9 22 :37 22 Hibernian 21 5 6 10 26 :33 21 Motherwell 21 4 6 11 25 :41 18 St Johnstone 21 3 4 14 15 :36 13 Ítalía Leikið á Þorláksmessu: AC Milan – Verona ...................................2:1 Massimo Ambrosini 59., Cosmin Marius Contra 90. – Paolo Cannavaro 69. – 51.000. Brescia – Juventus ...................................0:4 – David Trezequet 29., Alessandro Del Piero 44., Ciro Ferrara 55., Edgar Davids 68. – 18.000. Parma – Fiorentina..................................2:0 Emiliano Bonazzoli 71., Marco Di Vaio 81. – 22.000. Rautt spjald: Domenico Morfeo (Fiorentina) 72. Perugia – Atalanta...................................2:0 Fabio Bazzani 47., 90. – 15.000. Piacenza – Inter Mílanó...........................2:3 Carmine Gautieri 57., 76. – Christian Vieri 45. (víti), 85., Mohamed Kallon 71. – 22.000. Rautt spjald: Matteo Guardalben (Piac- enza) 44., Alessandro Lucarelli (Piacenza 46., Ivan Ramiro Cordoba (Inter) 46. Tórínó – Venezia ......................................1:2 Gianluca Comotto 65. – Filippo Maniero 15., 90. – 15.000. Udinese – Lecce........................................0:1 Guillermo Gonzalo Suarez Fiacomazzi 1. – 13.000. Leikið 22 desember: Chievo – Roma ..........................................0:3 – Fereira da Rosa Emerson 26., Walter Adrian Samuel 75., Damiano Tommasi 90. – 18.000. Rautt spjald: Da Concecao Silva Eriberto (Chievo) 79., Francesco Antonioli (Roma) 53. Lazio – Bologna ........................................2:2 Claudio Lopez 19., 34. – Julio Ricardo Cruz 41., Cristian Accardo 76. – 30.000. Rautt spjald: Dejan Stankovic (Lazio) 67. Inter 16 10 4 2 31 :16 34 Roma 16 9 6 1 24:9 33 Chievo 15 9 2 4 28 :19 29 Juventus 16 7 7 2 27 :13 28 AC Milan 16 7 6 3 25 :18 27 Lazio 15 6 6 3 21 :12 24 Bologna 16 7 3 6 13 :15 24 Verona 16 6 4 6 22 :24 22 Udinese 16 6 3 7 24 :25 21 Atalanta 16 6 3 7 21 :27 21 Perugia 16 5 4 7 17 :20 19 Piacenza 16 5 3 8 23:24 18 Brescia 16 4 6 6 19:28 18 Torino 16 4 5 7 18:22 17 Lecce 16 4 5 7 18:24 17 Parma 16 3 5 8 17:24 14 Fiorentina 16 4 2 10 17:32 14 Venezia 16 2 4 10 12:25 10 Spánn Leikið á Þorláksmessu: Mallorca – Real Madrid ...........................1:1 Alberto Luque 69. – Gonzalez Blanco Raul 55. – 22.000 Vallecano – Alavés............................frestað Zaragoza – Villarreal ..............................3:2 Carlos Chainho 22., Martin Vellisca 28., Roberto Acuna 80. (víti) – Manuel Victor 54., Montana Jorge Lopez 70. – 25.000. Rautt spjald: Jesus Galvan 80. Osasuna – Athletic Bilbao .......................0:1 – Joseba J. Etxeberria 73. – 15.500. Rautt spjald: Pablo Conteras (Osasuna) 90. Leikið 22. desember: Deportivo La Coruna – Real Betis .........2:0 Roy Makaay 7., Gonzales Sergio 71. – 26.000. Real Sociedad – Valladolid .....................6:0 Xavi Alonso 34., Dmitri Khokhlov 50., Osc- ar De Paula 50., Korkut Tayfun 59., 86., Lu- iz Alberto 84. – 20.000. Sevilla – Celta Vigo ..................................0:1 – Henrique Ctanha 58. (víti) – 25.000. Rautt spjald: Silvio Silvinho (Celta) 90. Espanyol – Barcelona ..............................2:0 Raul Tamudo 57., 70. – 15.500. Valencia – Malaga ....................................2:1 Mikel Roteta 24. (sjálfsmark), Miguel Mista 29. – Debray Dario Silva 14. – 40.000. Rautt spjald: Kizito Musampa (Malaga) 62. Tenerife – Las Palmas.............................1:3 Tomas Olias 50. (sjálfsmark) – Luis Tev- enet 11., Jose Moreno Josico 52., Ignaco Carlos Nacho Gonzalez 74. (víti). Deportivo 18 10 3 5 32 :22 33 Real Madrid 18 9 5 4 33 :21 32 Celta Vigo 18 8 7 3 34:20 31 Real Betis 18 9 4 5 19 :15 31 Bilbao 18 8 7 3 26 :23 31 Alavés 17 9 3 5 19 :10 30 Valencia 18 7 9 2 20 :15 30 Barcelona 18 7 6 5 25 :17 27 Sevilla 18 6 6 6 27 :22 24 Espanyol 18 7 3 8 24:29 24 Las Palmas 18 6 5 7 20:16 23 Zaragoza 18 7 2 9 18:25 23 Villarreal 18 6 4 8 19:20 22 Valladolid 18 6 4 8 18:32 22 Málaga 18 5 6 7 20:24 21 Mallorca 18 5 5 8 18:24 20 Osasuna 18 5 4 9 15:24 19 Real Sociedad 18 5 3 10 23:27 18 Tenerife 18 5 3 10 12:22 18 Vallecano 17 3 3 11 16:30 12 ÚRSLIT Newcastle kemur enn á óvart á Englandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.