Morgunblaðið - 28.12.2001, Blaðsíða 4
Stórleikur
Ólafs
nægði
ekki
STÓRLEIKUR Ólafs Stef-
ánssonar dugði Magdeburg
skammt þegar liðið heim-
sótti Wallau Massenheim að
kvöldi annars dags jóla.
Ólafur skoraði 12 mörk í
leiknum sem Magdeburg
tapaði, 33:29. Þar með
minnkuðu vonir Magdeburg
verulega á að verja þýska
meistaratitilinn í hand-
knattleik.
Ólafur var allt í öllu hjá
Magdeburg, skoraði 12
mörk, þar af voru 6 úr víta-
kasti. Þar með fylgdi hann
eftir góðum leik sínum frá
því tveimur dögum fyrir jól
þegar hann gerði 11 mörk
gegn Solingen og reið
frammistaða Ólafs þá svo
sannarlega baggamuninn
fyrir meistarana. Fyrir
frammistöðu sína gegn
Wallau á öðrum degi jóla
var Ólafur valinn í úrvalslið
17. umferðar.
Lemgo hefur náð þriggja,
hefur 29 stig. Kiel 26, Essen
24, Nordhorn og Flensburg
23 og Magdeburg er með 21.
FÓLK
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, hefur gert eina
breytingu á landsliðshópnum sem
fer til Mið-Austurlanda í byrjun jan-
úar og leikur tvo vináttulandsleiki –
gegn Kúveit og Saudi-Arabíu. Birk-
ir Kristinsson, ÍBV, er meiddur og í
hans stað hefur Atli Knútsson,
markvörður Breiðabliks, verið val-
inn. Atli er þriðji nýliðinn í hópnum.
PATREKUR Jóhannesson var
með fjögur mörk fyrir Essen sem
tapaði dýrmætum stigum í heimsókn
sinni til D/M Wetzlar á Þorláks-
messu og Guðjón Valur Sigurðsson
var með 1 mark fyrir Essen í leiknum
sem Essen tapaði, 32:26.
SIGURÐUR Bjarnason var hins
vegar með 5 mörk fyrir Wetzlar í
leiknum sem er nú í 11. sæti þýsku 1.
deildarinnar í handknattleik með 15
stig.
ESSEN er á hinn bóginn í þriðja
sæti, hefur 24 stig að loknum 17
leikjum, er fimm stigum á eftir
Lemgo sem tekið hefur afgerandi
forystu í deildinni.
GÚSTAF Bjarnason átti góðan
leik fyrir GWD Minden, en það dugði
skammt því liðið tapaði, 27:20, fyrir
Lemgo í Minden þar sem uppselt var
á leikinn, alls greiddu 4.300 áhorf-
endur aðgangseyri að leiknum.
GYLFI Gylfason og Róbert Sig-
hvatsson skoruðu tvö mörk hvor fyr-
ir HSG Düsseldorf þegar liðið gerði
jafntefli, 24:24, við HSG Römerwall í
suðurhluta þýsku 2. deildarinnar í
handknattleik á Þorláksmessudag.
Düsseldorf er í 7. sæti deildarinnar
með 20 stig eftir 17 leiki, 9 stigum á
eftir Friesenheim sem er í efsta sæti.
HARALDUR Þorvarðarson var
ekki á meðal markaskorara Stral-
sunder HV þegar liðið vann HSG
Tarp/Wanderup 28:22 á útivell í
norðurhluta þýsku 2.deildarinnar í
handknattleik. Stralsunder í 4. sæti
deildarinnar með 22 stig eftir 17
leiki, en TuS N-Lübbecke er sem
fyrr efst, hefur 31 stig að loknum 16
leikjum.
Örn var útnefndur íþróttamaðurársins 2001 í hófi á Grand Hót-
eli í gærkvöldi og sagði Adolf Ingi
Erlingsson, formaður Samtaka
íþróttafréttamanna: „Í upphafi nýrr-
ar aldar kjósum við íþróttafrétta-
menn íþróttamann ársins í fertug-
asta og sjötta sinn. Þegar lesin eru
nöfnin á fæti styttunnar góðu sem
fámenn Samtök íþróttafréttamanna
keyptu af stórhug fyrir tæplega
hálfri öld, rennur íþróttasaga þjóð-
arinnar fyrir augu.“
Adolf Ingi sagði að eins og eðlilegt
væri hefði oft verið deilt um kjörið,
sem segði að sem betur færi hefðum
við átt svo margt frábært íþróttafólk
að fjöldi nafna kæmi upp í hugann –
sem myndi sóma sér fullkomlega á
meðal þeirra sem fyrir væru. „Að
sjálfsögðu eiga allir að hafa skoðun á
því hver stendur fremstur hverju
sinni – við íþróttafréttamenn höfum
ekki einkarétt á því.“
Adolf Ingi sagði – að eins og und-
anfarin ár væru helstu bakhjarlar
kjörs íþróttamanns ársins, Flugleið-
ir og bókaútgáfan Edda – miðlun og
útgáfa hf.
Flugleiðir styrkja Samtök íþrótta-
fréttamanna með því að gefa þremur
efstu í kjörinu flugmiða til útlanda.
Edda – miðlun og útgáfa hf. gefur
hverjum hinna tíu íþróttamanna
glæsilega bókagjöf. Að þessu sinni
er það stórvirkið Íslenskar eldstöðv-
ar eftir Ara Trausta Guðmundsson.
Munurinn ekki mikill
Baráttan í kjörinu stóð á milli
Arnars og Ólafs Stefánssonar, hand-
knattleiksmannsins snjalla sem leik-
ur með Magdeburg í Þýskalandi.
Þegar Adolf Ingi kynnti þá til sög-
unnar, sagði hann:
„Ólafur Stefánsson, handknatt-
leiksmaður með Magdeburg í
Þýskalandi.
Ólafur átti hreint stórkostlegt ár
með liði sínu, Magdeburg. Með því
varð hann Þýskalandsmeistari og
Evrópumeistari og var síðan kjörinn
leikmaður ársins í Þýskalandi. Ólaf-
ur er því miður fjarverandi.“
Ólafur átti stórleik með Magde-
burg í fyrrakvöld, en hann leikur að
nýju með liði sínu í kvöld í Þýska-
landi. Eftir áramót kemur Ólafur
heim og tekur þátt í lokaundirbún-
ingi landsliðsins fyrir Evrópukeppn-
ina í Svíþjóð 25. janúar.
„Örn Arnarson, sundmaður úr
Sundfélagi Hafnarfjarðar. Örn hef-
ur, þrátt fyrir ungan aldur, þegar
verið kjörinn íþróttamaður ársins
tvívegis. Þó ótrúlegt megi virðast
bætti hann sig enn á árinu þegar
hann vann tvenn verðlaun á heims-
meistaramótinu í Japan, fyrstur Ís-
lendinga, en hann vann silfurverð-
laun í 100 metra baksundi og
bronsverðlaun í 200 metra baksundi.
Að auki setti hann að sjálfsögðu
fjölda Íslandsmeta á árinu.“
Örn á bekk með
Hreini og Einari
ÖRN Arnarson, sundkappi frá Hafnarfirði, er ungur að árum. Þrátt
fyrir það er hann kominn í hóp þeirra manna sem hafa hampað hinni
glæsilegu styttu Samtaka íþróttafréttamanna og nafnbótinni
íþróttamaður ársins; hvað oftast, eða þrisvar sinnum – á síðustu
þremur árum. Hann er kominn í hóp með frjálsíþróttamönnunum
Einari Vilhjálmssyni og Hreini Halldórssyni, sem einnig hafa verið
kjörnir þrisvar sinnum. Aðeins einn íþróttamaður hefur hlotið
þessa nafnbót oftar en Einar, Hreinn og Örn. Það Vilhjálmur Ein-
arsson, þrístökkvari og faðir Einars, sem varð fyrstur til að vera út-
nefndur íþróttamaður ársins – 1956, síðan aftur 1957, 1958, 1960
og 1961.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Birgir Leifur, Árni Gautur, Örn, Þórey Edda, Jakob Jóhann og Kristín Rós voru í hópi tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2001 hjá
Samtökum íþróttafréttamanna á Grand Hóteli í Reykjavík í gærkvöld.
Þau fengu atkvæði
1. Örn Arnarson, sund .....................................................................................359
2. Ólafur Stefánsson, handknattleikur...........................................................350
3. Þórey Edda Elísdóttir, frjálsíþróttir..........................................................140
4. Guðni Bergsson, knattspyrna .....................................................................121
5. Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna......................................................113
6. Birgir Leifur Hafþórsson, golf......................................................................93
7. Kristín Rós Hákonardóttir, sund..................................................................73
8. Árni Gautur Arason, knattspyrna ................................................................72
9.–10. Jakob Jóhann Sveinsson, sund ..............................................................69
9.–10. Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttir.....................................................69
11. Olga Færseth, knattspyrna...........................................................................29
12. Hermann Hreiðarsson, knattspyrna............................................................18
13. Eyjólfur Sverrisson, knattspyrna ................................................................15
14. Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur.................................................10
15. Rúnar Jóns/Jón Ragnarsson, Rall..................................................................9
16.–17. Patrekur Jóhannesson, handknattleikur................................................7
16.–17. Ragnar Óskarsson, handknattleikur.......................................................7
18.–23. Björn Þorleifsson, tækvondó....................................................................6
18.–23. Kristján Helgason, snóker .......................................................................6
18.–23. Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur.................................................6
18.–23. Logi Gunnarsson, körfuknattleikur ........................................................6
18.–23. Margrét Ólafsdóttir, knattspyrna ...........................................................6
18.–23. Vernharð Þorleifsson, júdó ......................................................................6
24. Vignir Jónasson, hestamennska .....................................................................4
25. Vigdís Sigurðardóttir, handknattleikur.........................................................3
26.–28. Einar Karl Hjartarson, frjálsíþróttir ......................................................2
26.–28. Gunnlaugur Jónsson, knattspyrna ..........................................................2
26.–28. Halldór Jóhannsson, þolfimi ....................................................................2
29.–31. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar...............................................................1
29.–31. Bjarki Birgisson, sund ..............................................................................1
29.–31. Ingibergur Sigurðsson, glíma ..................................................................1