Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Newcastle er á allra vörum á Bret-landseyjum, en liðið hefur komið
allra liða mest á óvart. Útisigrar á móti
Arsenal og Leeds og heimasigur gegn
Middlesbrough í síðustu þremur leikj-
um ber vitni um að hinn 68 ára gamli
Bobby Robson er að gera frábæra
hluti með Newcastle-liðið en þrátt fyr-
ir það blæs Robson á allt tal um að
hans menn eigi góða möguleika á að
landa titilinum eftir langa bið.
„Ég tel ekki raunhæft að spá okkur
titilinum þrátt fyrir að toppsætið sé
okkar í dag því það er mikið eftir af
mótinu. Ég tel samt enn að liðin fyrir
aftan okkur séu betri en ég get þó við-
urkennt að ég hef merkt miklar fram-
farir á leik minna manna. Við eigum
eftir að spila marga erfiða leiki, til
dæmis mætum við Chelsea og Man-
chester United í næstu leikjum,“ segir
Robson.
Campbell öflugur
Arsenal átti góðu gengi að fagna í
jólaleikjunum. Fyrst sigur á móti Liv-
erpool í leik sem Arsenal lék manni
færri í klukkustund og á eftir fylgdi
sigur á móti Chelsea, 2:1, þar sem
Sylvain Wiltord skoraði sigurmarkið
20 mínútum fyrir leikslok.
„Ef við hefðum ekki unnið Chelsea
hefði sigurinn á móti Liverpool verið
fljótur að gleymast. Þetta voru góðir
sigrar til að efla sjálfstraustið í liðinu
og sérstaklega var ánægjulegt að ná að
vinna heima. Þegar deildin er svona
jöfn er mjög mikilvægt fyrir hvert lið
að vinna heimaleikina. Við höfum tap-
að of mikið af stigum á Highbury en
vonandi höfum við nú náð að snúa
þeirri þróun við. Ég hef sagt og segi
enn að við höfum mannskap til fara alla
leið og nú er það bara undir okkur
sjálfum komið,“ sagði Patrick Vieira,
miðjumaðurinn snjalli hjá Arsenal, eft-
ir leikinn. Það hefur breytt miklu í leik
Arsenal að undanförnu að Sol Camp-
bell fellur æ betur inn í leik liðsins og
er að nálgast sitt fyrra form. Micheal
Owen, framherji Liverpool, komst
ekkert áleiðis á móti Campbell og
sömu sögu er að segja af framherja-
parinu skæða hjá Chelsea, Eiði Smára
og Jimmy Floyd Hasselbaink. Hvor-
ugur þeirra náði sér á strik á móti
sterkri vörn Arsenal en báðir voru þeir
á skotskónum í leiknum við Bolton á
sunnudag þegar Chelsea sigraði, 5:1.
Eiður skoraði fyrsta mark Chelsea og
lagði upp annað fyrir Hasselbaink.
Skin og skúrir hjá Liverpool
Liverpool, sem á leik til góða á New-
castle, sótti þrjú dýrmæt stig á Villa
Park og sigraði Aston Villa, 2:1. Jari
Litmanen og Vladimir Smicer skoruðu
mörk Liverpool og Litmanen brenndi
auk þess af vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
„Eftir tapleikina á móti Chelsea og
Arsenal var mjög þýðingarmikið að ná
þremur stigum. Mér fannst við stjórna
leiknum og þrátt fyrir nokkra pressu
Aston Villa á lokakaflanum fannst mér
sigurinn sanngjarn,“ sagði Phil
Thompson og bætti því við að endur-
koma Dietmars Hamans í liðið hefði
breytt miklu en þýski miðjumaðurinn
var að afplána þriggja leikja bann.
Frakkinn Nicolas Anelka lék sinn
fyrsta leik fyrir Liverpool – kom inná
sem varamaður í treyju númer 9 og
spilaði síðustu 20 mínúturnar án þess
að ná að setja mark sitt á leikinn.
Fowler í banastuði
Á meðan leikmönnum Liverpool hef-
ur gengið frekar illa að skora mörk
upp á síðkastið er fyrrum liðsmaður
„Rauða hersins“, Robbie Fowler, iðinn
við kolann þessa dagana. Fowler stal
heldur betur senunni á Reebock-leik-
vanginum í Bolton þar sem Leeds sigr-
aði heimamenn, 3:0. Fowler gerði sér
lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörkin og
átti möguleika á að bæta fjórða mark-
inu við, en vítaspyrna hans fór í súginn.
David O’Leary, stjóri Leeds, var dauf-
ur í dálkinn eftir ósigurinn á heimavelli
gegn Newcastle á laugardaginn en í
fyrradag gat hann tekið gleði sína á ný
og sérstaklega var stjórinn ánægður
fyrir hönd Robbie Fowlers.
„Ég held að Fowler hafi sýnt hversu
mikils virði hann er og hversu góð
kaup voru hjá okkur í honum. Hann er
frábær leikmaður og magnaður
markaskorari sem á eftir að skora
mörg mörk fyrir félagið á komandi ár-
um,“ sagði O’Leary.
Fowler skoraði tvö fyrstu mörk sín í
fyrri hálfleik og fullkomnaði þrennuna
á lokamínútu leiksins og sitt fimmta
mark fyrir Leeds frá því hann gekk í
raðir þess í byrjun mánaðarins. Jon-
athan Woodgate lék sinn fyrsta leik
fyrir Leeds á leiktíðinni, en þessi
sterki varnarmaður, sem hefur verið
mikið í fréttum að undanförnu vegna
dómsmáls, hefur verið frá vegna
meiðsla í langan tíma.
Bolton saknar Guðna
Það hefur komið í ljós í síðustu leikj-
um Bolton að Guðni Bergsson, fyrirliði
liðsins, hefur skilið eftir sig skarð sem
nýliðarnir hafa ekki náð að fylla í.
Guðni hefur verið fjarri góðu gamni í
síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla,
og 5:1 tap á móti Chelsea og 3:0 ósigur
fyrir Leeds segir alla söguna um hve
mikilvægur Guðni er í liði Bolton. Eftir
frábæra byrjun hefur Bolton aðeins
unnið einn af síðustu níu leikjum sínum
og fyrir vikið hefur liðið sogast niður í
fallbaráttuna.
United komið á skrið
Fjórir sigurleikir í röð og markatal-
an 14:1 er vísbending um að Manchest-
er United ætlar ekki að láta titilinn af
hendi baráttulaust og „Rauðu djölfarn-
ir“ virðast vera komnir á gott skrið.
United skellti Southampton 5:1 á laug-
ardag þar sem Ruud van Nistelrooy
skoraði þrennu og í fyrradag sóttu
meistararnir þrjú stig á Goodison Park
þegar þeir lögðu Everton, 2:0 með
mörkum frá Ryan Giggs og Nistel-
rooy. Sir Alex Ferguson, stjóri United,
ÞEGAR keppnin í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er hálfnuð trónir
Newcastle óvænt í efsta sæti og skákar „stóru“ liðunum. Strákarnir
hans Bobby Robsons hafa farið mikinn að undanförnu – hafa unnið
fimm leiki í röð og eru með þriggja stiga forskot á Arsenal og Liverpool.
Á hæla þeirra kemur Leeds og meistarar Manchester United, sem hafa
unnið fjóra leiki í röð, eru þar skammt á eftir. Sparkspekingar á Eng-
landi muna varla eftir jafn spennandi móti frá stofnun úrvalsdeild-
arinnar og segja að ómögulegt sé að spá í hvaða lið komi til með að
standa uppi sem sigurvegari í vor.
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeildin
Leikið annan í jólum:
Arsenal – Chelsea.....................................2:1
Sol Campbell 49., Sylvain Wiltord 71. –
Frank Lampard 31. – 38.079.
Bolton – Leeds ..........................................0:3
– Robbie Fowler 2., 16., 89. – 27.060.
Fulham – Charlton ...................................0:0
17.900.
West Ham – Derby ...................................4:0
Sebastian Schemmel 5., Paolo Di Canio 73.,
Trevor Sinclair 86., Jermain Defoe 90. –
31.397. Rautt spjald: Benito Carbone
(Derby) 53.
Southampton – Tottenham .....................1:0
James Beattie 56. – 31.719.
Aston Villa – Liverpool............................1:2
Lee Hendrie 21. – Jari Litmanen 9., Vlad-
imir Smicer 73. – 42.602.
Blackburn – Sunderland .........................0:3
– Niall Quinn 17., 32., Kevin Kilbane 90. –
39.948. Rautt spjald: Craig Short (Black-
burn) 69.
Everton – Man. United.............................0:2
– Ryan Giggs 78., Ruud van Nistelrooy 85.
– 39.948.
Ipswich – Leicester ..................................2:0
Marcus Bent 48., Sixto Peralta 55. – 24.403.
Newcastle – Middlesbrough ...................3:0
Alan Shearer 29., Gary Speed 58., Oliver
Bernard 83. – 52.127.
Leikið á Þorláksmessu:
Chelsea – Bolton .......................................5:1
Eiður Smári Guðjohnsen 41., Jimmy Floyd
Hasselbaink 45., Boudewijn Zenden 56.,
Colin Hendry 76. (sjálfsmark), Frank
Lampard 87. – Kevin Nolan 3. – 34.063.
Liverpool – Arsenal .................................1:2
Jari Litmanen 55. – Thierry Henry 45.
(víti), Fredrik Ljungberg 53. – 44.297.
Rautt spjald: Giovanni van Bronckhorst 36.
Leikið 22. desember:
Derby – Aston Villa..................................3:1
Fabrizio Ravanelli 45., Benito Carbone 67.,
Malcolm Christie 87. – Juan Pablo Angel
45. – 28.001.
Charlton – Blackburn ..............................0:2
– Damien Duff 57., David Dunn 90. –
25.857.
Leeds – Newcastle....................................3:4
Lee Bowyer 38., Mark Viduka 50., Ian
Harte 56. – Craig Bellamy 38., Robbie Ell-
iott 59., Alan Shearer 71. (víti), Nolberto
Solano 90. – 40.287.
Leicester – West Ham..............................1:1
Muzzy Izzet 43. – Paolo Di Canio 74. (víti) –
20.131. Rautt spjald: Matt Elliott (Leicest-
er) 72.
Man. United – Southampton ...................6:1
Ruud van Nistelrooy 1., 34., 54., Ole Gunn-
ar Solskjær 41., Roy Keane 72., Phil Nev-
ille 78. – Marian Pahars 55. – 67.638.
Middlesbrough – Fulham.................frestað
Sunderland – Everton..............................1:0
Claudio Reyna 77. – 48.013.
Tottenham – Ipswich ...............................1:2
Simon Davies 12. – Finidi George 40., Alun
Armstrong 88. – 36.040. Rautt spjald:
Teddy Sheringham (Tottenham) 54.
Newcastle 19 12 3 4 37 :23 39
Arsenal 19 10 6 3 39 :23 36
Liverpool 18 11 3 4 28 :18 36
Leeds 19 9 8 2 29 :17 35
Manch. Utd 19 10 3 6 45 :28 33
Chelsea 19 7 9 3 29 :15 30
Tottenham 19 8 3 8 30 :26 27
Aston Villa 19 7 6 6 25:24 27
Sunderland 19 7 5 7 17:17 26
Fulham 18 5 9 4 17:17 24
West Ham 19 6 6 7 24:30 24
Charlton 19 5 8 6 21:22 23
Everton 19 6 5 8 23:25 23
Blackburn 19 5 7 7 25:24 22
Bolton 19 5 6 8 21:29 21
Middlesbrough 18 5 4 9 17:26 19
Southampton 18 6 1 11 19:30 19
Derby 19 4 4 11 14:35 16
Ipswich 19 3 6 10 19:28 15
Leicester 19 3 6 10 12:34 15
Markahæstu menn
Thierry Henry ............................................16
Jimmy Floyd Hasselbaink ........................13
Ruud Van Nistelrooy .................................11
Michael Ricketts.........................................10
Michael Owen ...............................................9
Marian Pahars..............................................9
Alan Shearer.................................................8
Robbie Fowler ..............................................8
Fabrizio Ravanelli ........................................8
Juan Pable Angel .........................................7
Harry Kewell ................................................7
Kevin Phillips ...............................................7
6 mörk: Ole Gunnar Solskær, James Beatt-
ie, Barry Hayles, Craig Bellamy og Les
Fardinand.
1. deild:
Leikið annan í jólum:
Bradford – Sheffield United ....................1:2
Gillingham – Portsmouth .........................2:0
Grimsby – Coventry..................................0:1
Manchester City – WBA ..........................0:0
Millwall – Crystal Palace..........................3:0
Nottingham Forest – Norwich ................2:0
Rotherham – Burnley........................frestað
Sheffield Wed. – Birmingham..................0:1
Stockport – Barnsley ................................1:3
Walsall – Crewe.........................................2:1
Wimbledon – Watford .......................frestað
Wolves – Preston.......................................2:3
Leikið á Þorláksmessu:
Coventry – Bradford.................................4:0
Leikið 22. desember:
Barnsley – Gillingham ..............................4:1
Birmingham – Walsall ..............................1:0
Burnley – Milwall ......................................0:0
Norwich – Wimbledon ..............................2:1
Portsmouth – Stockport ...........................2:0
Preston – Grimsby ....................................0:0
Sheffield United – Rotherham.................2:2
Watford – Wolves......................................1:1
WBA – Sheffield Wednesday...................1:1
Burnley 25 15 5 5 48 :33 50
Man. City 25 14 4 7 55 :34 46
Wolves 26 13 7 6 39 :23 46
Norwich 26 14 3 9 35:35 45
WBA 26 13 5 8 28:21 44
Coventry 26 13 4 9 32:24 43
Millwall 25 12 6 7 42:28 42
Birmingham 26 12 6 8 40:31 42
Preston 26 10 10 6 42:33 40
Crystal Palace 26 12 2 12 46:39 38
Watford 24 10 6 8 37:27 36
Gillingham 26 10 6 10 39:37 36
Portsmouth 26 10 6 10 38:38 36
Sheffield Utd 26 8 11 7 30:31 35
Nottingham F. 26 8 10 8 29:25 34
Wimbledon 25 8 8 9 40:39 32
Bradford 26 9 5 12 45:50 32
Rotherham 25 7 8 10 32:39 29
Crewe 25 7 8 10 26:39 29
Barnsley 26 7 7 12 38:51 28
Walsall 26 7 5 14 30:42 26
Sheffield Wed. 26 5 9 12 27:40 24
Grimsby 26 5 7 14 22:47 22
Stockport 26 2 6 18 25:59 12
2. deild:
Leikið annan í jólum:
Blackpool – Oldham ..................................0:2
Cambridge – Brentford ............................2:1
Cardiff – Reading .....................................2:2
Chesterfield – Wycombe ...................frestað
Huddersfield – Peterborough..................3:1
Northampton – Colchester ......................2:3
Port Vale – Bristol City ............................1:0
QPR – Brighton.........................................0:0
Swindon – Bournemouth ..........................0:0
Tranmere – Stoke .....................................2:2
Wigan – Bury.............................................1:1
Wrexham – Notts County ........................2:1
Leikið 22. desember:
Bournemouth – QPR ................................1:2
Bristol City – Wrexham............................1:0
Bury – Blackpool.......................................1:1
Colchester – Huddersfield .......................3:3
Reading – Wigan .......................................1:1
Wycombe – Cambridge ............................2:0
Brentford 24 13 6 5 47 :27 45
Stoke 23 13 6 4 37 :21 45
Brighton 23 12 9 2 32 :17 45
Bristol City 25 13 5 7 38:24 44
Reading 23 12 4 7 33:24 40
Cardiff 24 9 11 4 37:27 38
Wycombe 23 10 8 5 35:28 38
Huddersfield 23 10 7 6 37:27 37
QPR 24 10 7 7 34:27 37
Oldham 24 9 9 6 40:29 36
Tranmere 23 10 6 7 44:34 36
Colchester 24 10 5 9 41:39 35
Blackpool 24 7 9 8 30:37 30
Wigan 24 7 8 9 34:31 29
Swindon 23 7 7 9 23:31 28
Peterborough 22 8 3 11 31:32 27
Port Vale 24 7 6 11 27:33 27
Bournemouth 24 7 6 11 26:34 27
Bury 24 7 5 12 25:39 26
Chesterfield 23 6 7 10 28:32 25
Notts County 24 5 8 11 31:41 23
Wrexham 25 6 4 15 29:55 22
Cambridge 24 4 6 14 23:48 18
Northampton 24 5 2 17 23:48 17
3. deild:
Leikið annan í jólum:
Bristol Rovers – Leyton Orient ...............5:3
Carlisle – Darlington .........................frestað
Cheltenham – Shrewsbury.......................1:0
Exeter – Swansea......................................0:3
Hartlepool – Scunthorpe ...................frestað
Kidderminster – Rochdale .......................4:1
Lincoln – Mansfield ...........................frestað
Macclesfield – Halifax...............................1:1
Oxford – Luton ..........................................1:2
Plymouth – Torquay .................................2:2
Southend – Rushden & Diamonds...........4:2
York – Hull .........................................frestað
Leikið 22. desember:
Leyton – Lincoln .......................................5:0
Luton – Hartlepool ...................................2:2
Rushden & Diamonds – Carlisle..............3:1
Scunthorpe – Plymouth............................2:1
Torquay – Oxford......................................3:3
Plymouth 24 14 7 3 35 :15 49
Luton 24 14 4 6 47 :31 46
Hull 23 11 8 4 37 :22 41
Mansfield 23 12 5 6 37:26 41
Rochdale 23 11 6 6 33:26 39
Scunthorpe 23 10 8 5 40:25 38
Shrewsbury 24 11 5 8 34:27 38
Cheltenham 23 9 8 6 34:31 35
Rushden & D. 24 8 9 7 28:26 33
Exeter 24 9 6 9 26:38 33
Kidderminster 22 9 5 8 24:21 32
Southend 24 9 4 11 28:28 31
Leyton Orient 24 8 6 10 37:38 30
Swansea 24 8 6 10 31:35 30
Hartlepool 23 8 5 10 28:22 29
Darlington 22 8 5 9 27:31 29
Macclesfield 24 6 9 9 23:31 27
Oxford 24 6 8 10 27:32 26
Lincoln 23 5 10 8 22:28 25
Bristol Rovers 23 6 6 11 21:30 24
Torquay 24 6 6 12 21:36 24
York 22 6 4 12 26:40 22
Carlisle 23 4 8 11 19:30 20
Halifax 23 4 8 11 17:33 20
Skotland
Úrvalsdeild:
Leikið annan í jólum:
Aberdeen – Dundee ...........................frestað
Celtic – Livingston ....................................3:2
Dundee United – Hearts ..........................0:2
Hibernian – Rangers ................................0:3
Kilmarnock – Dunfermline ......................0:0
Motherwell – St. Johnstone .....................1:2
Leikið 22. desember:
Dundee – Kilmarnock...............................1:2
Hearts – Motherwell.................................3:1
Livingston – Dunfermline ........................0:0
Rangers – Dundee Utd.............................3:2
St Johnstone – Hibernian.........................0:0
Aberdeen – Celtic......................................2:0
Celtic 20 18 1 1 47 :11 55
Rangers 21 13 6 2 48 :17 45
Livingston 20 10 7 3 30 :16 37
Aberdeen 20 10 3 7 31 :28 33
Kilmarnock 21 8 4 9 22 :24 28
Hearts 21 8 3 10 28 :27 27
Dundee 20 6 5 9 20 :30 23
Dunfermline 21 6 4 11 23 :37 22
Dundee United 21 5 7 9 22 :37 22
Hibernian 21 5 6 10 26 :33 21
Motherwell 21 4 6 11 25 :41 18
St Johnstone 21 3 4 14 15 :36 13
Ítalía
Leikið á Þorláksmessu:
AC Milan – Verona ...................................2:1
Massimo Ambrosini 59., Cosmin Marius
Contra 90. – Paolo Cannavaro 69. – 51.000.
Brescia – Juventus ...................................0:4
– David Trezequet 29., Alessandro Del
Piero 44., Ciro Ferrara 55., Edgar Davids
68. – 18.000.
Parma – Fiorentina..................................2:0
Emiliano Bonazzoli 71., Marco Di Vaio 81. –
22.000. Rautt spjald: Domenico Morfeo
(Fiorentina) 72.
Perugia – Atalanta...................................2:0
Fabio Bazzani 47., 90. – 15.000.
Piacenza – Inter Mílanó...........................2:3
Carmine Gautieri 57., 76. – Christian Vieri
45. (víti), 85., Mohamed Kallon 71. – 22.000.
Rautt spjald: Matteo Guardalben (Piac-
enza) 44., Alessandro Lucarelli (Piacenza
46., Ivan Ramiro Cordoba (Inter) 46.
Tórínó – Venezia ......................................1:2
Gianluca Comotto 65. – Filippo Maniero
15., 90. – 15.000.
Udinese – Lecce........................................0:1
Guillermo Gonzalo Suarez Fiacomazzi 1. –
13.000.
Leikið 22 desember:
Chievo – Roma ..........................................0:3
– Fereira da Rosa Emerson 26., Walter
Adrian Samuel 75., Damiano Tommasi 90. –
18.000. Rautt spjald: Da Concecao Silva
Eriberto (Chievo) 79., Francesco Antonioli
(Roma) 53.
Lazio – Bologna ........................................2:2
Claudio Lopez 19., 34. – Julio Ricardo Cruz
41., Cristian Accardo 76. – 30.000. Rautt
spjald: Dejan Stankovic (Lazio) 67.
Inter 16 10 4 2 31 :16 34
Roma 16 9 6 1 24:9 33
Chievo 15 9 2 4 28 :19 29
Juventus 16 7 7 2 27 :13 28
AC Milan 16 7 6 3 25 :18 27
Lazio 15 6 6 3 21 :12 24
Bologna 16 7 3 6 13 :15 24
Verona 16 6 4 6 22 :24 22
Udinese 16 6 3 7 24 :25 21
Atalanta 16 6 3 7 21 :27 21
Perugia 16 5 4 7 17 :20 19
Piacenza 16 5 3 8 23:24 18
Brescia 16 4 6 6 19:28 18
Torino 16 4 5 7 18:22 17
Lecce 16 4 5 7 18:24 17
Parma 16 3 5 8 17:24 14
Fiorentina 16 4 2 10 17:32 14
Venezia 16 2 4 10 12:25 10
Spánn
Leikið á Þorláksmessu:
Mallorca – Real Madrid ...........................1:1
Alberto Luque 69. – Gonzalez Blanco Raul
55. – 22.000
Vallecano – Alavés............................frestað
Zaragoza – Villarreal ..............................3:2
Carlos Chainho 22., Martin Vellisca 28.,
Roberto Acuna 80. (víti) – Manuel Victor
54., Montana Jorge Lopez 70. – 25.000.
Rautt spjald: Jesus Galvan 80.
Osasuna – Athletic Bilbao .......................0:1
– Joseba J. Etxeberria 73. – 15.500. Rautt
spjald: Pablo Conteras (Osasuna) 90.
Leikið 22. desember:
Deportivo La Coruna – Real Betis .........2:0
Roy Makaay 7., Gonzales Sergio 71. –
26.000.
Real Sociedad – Valladolid .....................6:0
Xavi Alonso 34., Dmitri Khokhlov 50., Osc-
ar De Paula 50., Korkut Tayfun 59., 86., Lu-
iz Alberto 84. – 20.000.
Sevilla – Celta Vigo ..................................0:1
– Henrique Ctanha 58. (víti) – 25.000. Rautt
spjald: Silvio Silvinho (Celta) 90.
Espanyol – Barcelona ..............................2:0
Raul Tamudo 57., 70. – 15.500.
Valencia – Malaga ....................................2:1
Mikel Roteta 24. (sjálfsmark), Miguel
Mista 29. – Debray Dario Silva 14. – 40.000.
Rautt spjald: Kizito Musampa (Malaga) 62.
Tenerife – Las Palmas.............................1:3
Tomas Olias 50. (sjálfsmark) – Luis Tev-
enet 11., Jose Moreno Josico 52., Ignaco
Carlos Nacho Gonzalez 74. (víti).
Deportivo 18 10 3 5 32 :22 33
Real Madrid 18 9 5 4 33 :21 32
Celta Vigo 18 8 7 3 34:20 31
Real Betis 18 9 4 5 19 :15 31
Bilbao 18 8 7 3 26 :23 31
Alavés 17 9 3 5 19 :10 30
Valencia 18 7 9 2 20 :15 30
Barcelona 18 7 6 5 25 :17 27
Sevilla 18 6 6 6 27 :22 24
Espanyol 18 7 3 8 24:29 24
Las Palmas 18 6 5 7 20:16 23
Zaragoza 18 7 2 9 18:25 23
Villarreal 18 6 4 8 19:20 22
Valladolid 18 6 4 8 18:32 22
Málaga 18 5 6 7 20:24 21
Mallorca 18 5 5 8 18:24 20
Osasuna 18 5 4 9 15:24 19
Real Sociedad 18 5 3 10 23:27 18
Tenerife 18 5 3 10 12:22 18
Vallecano 17 3 3 11 16:30 12
ÚRSLIT
Newcastle
kemur enn
á óvart á
Englandi