Morgunblaðið - 28.12.2001, Page 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 C 3
HERMANN Hreiðarsson átti góða
leiki með Ipswich í jólaleikjunum
sem vann báða leiki sína og komst í
fyrsta sinn í langan tíma úr botnsæt-
inu. Ipswich lagði Tottenham á
White Hart Lane þar sem Teddy
Sheringham fékk að líta rauða
spjaldið og í fyrradag hafði Ipswich
betur á móti Leicester.
LÁRUS Orri Sigurðsson lék allan
leikinn með WBA sem gerði marka-
laust jafntefli á útivelli við Manchest-
er City í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar á öðrum degi jóla. Hann lék
einnig allan leikinn þegar lið hans
gerði jafntefli, 1:1, við Sheff. Wed. á
heimavelli á laugardaginn.
HEIÐAR Helguson lék síðustu 13
mínúturnar með Watford sem gerði
jafntefli við Wolves, 1:1, í 1. deild á
heimavelli á laugardaginn. Watford
átti að leika við Wimbledon á útivelli
á annan í jólum en leiknum var frest-
að þar sem völlur var frosinn.
JÓHANNES Karl Guðjónsson lék
síðasta hálftímann með Real Betis
sem tapaði fyrir Deportivo La Cor-
una, 2:0, í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu um helgina. Real Betis
er í fjórða sæti, tveimur stigum á eft-
ir toppliði Deportivo.
JÓHANNES Harðarson fékk ekki
að spreyta sig með Groningen sem
steinlá, 8:0, fyrir PSV í hollensku 1.
deildinni um helgina. Forráðamenn
Groningen brugðust illa við úrslit-
unum og ákváðu að sekta leikmenn
og þjálfara til að standa straum af
kostnaði stuðningsmanna liðsins
sem fylgdu sínum mönnum til
Eindhoven.
MICHAEL Ballack, 25 ára, mið-
vallarleikmaður Bayer Leverkusen
og þýska landsliðsins, hefur ákveðið
að ganga til liðs við Bayern München
eftir þetta keppnistímabil, en Bæj-
arar borga 1,3 milljarða ísl. kr. fyrir
Ballack, sem skrifaði undir fjögurra
ára samning. Hann valdi frekar að
fara til Bayern, en til liðs á Spáni,
þar sem nokkur lið höfðu sýnt hon-
um áhuga.
FÓLK
Guðmundur Guðmundsson lands-liðsþjálfari valdi sautján af
þeim 22 leikmönnum sem hafa að
undanförnu verið við æfingar til far-
arinnar, tveir þeirra sem valdir voru
nýliðar _ Einar Hólmgeirsson og
Gylfi Gylfason. Rétt áður en lands-
liðpið hélt til Póllands komu þær
fréttir frá Þýskalandi, að Gylfi, sem
leikur með Düsseldorf, hafi meiðst í
leik um jólin og gæti ekki tekið þátt í
ferðinni. Þar sem búið var að hnýta
alla enda saman í sambandi við ferð-
ina, sá Guðmundur þjálfari ekki
ástæðu til að kalla á leikmann í stað
Gylfa.
Hópurinn sem fór til Póllands er
þannig skipaður:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Pall-
amano Conversano, Birkir Ívar Guð-
mundsson, Stjörnunni, Bjarni
Frostason, Haukum.
Aðrir leikmenn:
Guðjón Valur Sigurðsson, Essen,
Einar Örn Jónsson, Haukum, Sigfús
Sigurðsson, Val, Róbert Gunnarsson,
Fram, Róbert Sighvatsson, Düssel-
dorf, Dagur Sigurðsson, Wakunaga,
Gunnar Berg Viktorsson, Paris Saint
Germain, Rúnar Sigtryggsson,
Haukum, Snorri Guðjónsson, Val,
Aron Kristjánsson, Haukum, Ragnar
Óskarsson, US Dunkerque, Halldór
Ingólfsson, Haukum, Einar Hólm-
geirsson, ÍR.
Fimm leikmenn úr 22 manna hópn-
um sem valinn var um miðjan mán-
uðinn voru ekki valdir til fararinar,
þeir eru; Jón Karl Björnsson, Hauk-
um, Hreiðar Guðmundsson, ÍR, Páll
Þórólfsson, Aftureldingu, Bjarki Sig-
urðsson, Val, og Markús Máni Mich-
aelsson, Val.
Eins og áður segir er fyrsti leikur
Íslands og Póllands í kvöld í Kat-
ovice. Síðan eigast þjóðirnar við að
nýju á morgun í Plock og loks í Varsjá
í hádeginu á sunnudaginn. Strax að
leik loknum heldur íslenska landsliðið
heim og heldur áfram undirbúningi
fyrir EM strax í upphafi nýs árs.
Gylfi komst
ekki til
Póllands
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik hélt til Póllands í gær-
morgun, en þar leikur það þrjá
leiki nú á milli jóla og nýárs við
heimamenn, sem einnig eru að
búa sig undir Evrópukeppnina
sem fram fer í Svíþjóð í lok
næsta mánaðar. Fyrsti leikur
þjóðanna er í Katovice í kvöld.
RÍKHARÐUR Daðason kom Stoke
City til bjargar á annan í jólum
þegar hann jafnaði metin úr víta-
spyrnu, 2:2, á lokamínútunni gegn
Tranmere. Þar með stendur
Stoke áfram best að vígi ásamt
Brighton. Liðin eru í öðru og
þriðja sæti með 45 stig, jafnmörg
og Brentford sem er með betri
markatölu en hefur leikið einum
leik meira.
Stoke komst yfir með marki frá
Andy Cooke en Tranmere svaraði
tvisvar og var nálægt því að bæta
við mörkum. Undir lokin skaut
Marc Goodfellow í hönd varn-
armanns Tranmere og Ríkharður,
sem kom inn á sem varamaður á
74. mínútu, skoraði af öryggi úr
vítaspyrnunni. Bjarni Guðjónsson
og Brynjar Björn Gunnarsson
léku báðir allan leikinn með
Stoke.
Guðjón Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, hrósaði Rík-
harði mjög fyrir taugastyrk á ör-
lagastundu en leikmenn
Tranmere reyndu allt sem þeir
gátu að trufla hann með ýmsu
ótrúlegum uppákomum við víta-
punktinn áður en hann tók víta-
spyrnuna. Tvær mínútur liðu áður
en hægt var að framkvæma hana
og Bjarni Guðjónsson, sem upp-
haflega átti að spyrna, hætti við.
Brentford tapaði, 2:1, fyrir
Cambridge og aðeins markvarsla
Ólafs Gottskálkssonar kom í veg
fyrir stærri ósigur. Ívar Ingimars-
son lék einnig allan leikinn með
Brentford.
Helgi Valur Daníelsson lék ekki
með Peterborough vegna veik-
inda þegar lið hans tapaði, 3:1,
fyrir Huddersfield.
Ríkharður
lét ekki
taka sig á
taugum
hældi Giggs í hástert eftir leikinn
en útherjinn knái var í byrjunar-
liði meistaranna í fyrsta sinn í
sex vikur. David Beckham byrj-
aði hins vegar á bekknum, fjórða
leikinn í röð, en þegar Ferguson
skipti honum inná breyttist leik-
ur United til batnaðar. Beckham
lagði upp markið fyrir Giggs
stundarfjórðungi fyrir leikslok
og Giggs átti svo heiðurinn af síð-
ara markinu sem Nistelrooy
skoraði en Hollendingurinn hef-
ur verið skæður upp við mark
andstæðinganna í síðustu leikj-
um og hefur skorað 17 mörk á
tímabilinu.
„Við verðum að halda áfram á
sömu braut enda bíður staðan
ekki upp á neitt annað. Við spil-
uðum ekki okkar besta leik en á
meðan úrslitin eru hagstæð er
ekki hægt að kvarta,“ sagði Ryan
Giggs.
Alex Ferguson hefur eins og
kollegi sinn hjá Newcastle nán-
ast afskrifað möguleika síns liðs
að vinna titilinn en margir
merkja þó að Ferguson sé farinn
að eygja möguleika, bæði þar
sem hans menn hafa komist á
skrið og eins vegna hagstæðra
úrslita í öðrum leikjum.
„Staðan breyttist ekki mikið
þar sem Arsenal, Liverpool,
Leeds og Newcastle unnu öll og
við gerum okkur alveg grein fyr-
ir því að leiðin að titlinum verður
sífellt torveldari. Við höfum náð
að vinna okkur út úr erfiðleikum
en hvort við höfum misst af lest-
inni verður bara að koma í ljós,“
sagði Ferguson.
Knattspyrnumennirnir á Eng-
landi fá litla hvíld. Um helgina er
ein umferð á dagskrá og önnur
umferð hefst strax á nýársdag og
lýkur 2. janúar.
AP
Jimmy Floyd Hasselbaink, Mario Melchiot, Sam Dalla Bona og Eiður
Smári Guðjohnsen fagna einu af mörkum Chelsea gegn Bolton, 5:1.
Leikmenn Chelsea máttu síðan þola tap fyrir Arsenal á Highbury, 2:1.
Erfitt
að koma
lands-
liðinu
úr landi
ERFIÐLEGA gengur að koma
knattspyrnulandsliðinu í Arabíu-
ferðina eftir áramótin. Landsliðið á
að leika við Kúveit í Oman 8. janúar
og við Sádi-Araba í Riyadh tveimur
dögum síðar. Stefnt er að því að
landsliðið fari utan 5. janúar en það
er háannatími í flugi frá landinu og
því hefur enn ekki tekist að tryggja
landsliðinu flugfar, hvorki út né
heim aftur.
„Þessi ferð kom upp með stuttum
fyrirvara og á þeim tíma sem við
förum eru margir á leið frá landinu
eftir jólafríið. Ferðatilhögun liggur
því ekki fyrir ennþá, en það er engin
hætta á að við verðum að aflýsa
ferðinni, þetta á eftir að smella þó
það taki tíma,“ sagði Geir Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri KSÍ,
við Morgunblaðið í gær.
Ferðin til Arabíuskagans tekur
um sólarhring og í heildina verður
um 6–7 daga ferðalag hjá landslið-
inu að ræða.
e
n
www.syn.is
30. des. - 6. jan.
mán-
fim
Heklusport
kl. 22.30
í síma 515 6100 eða í Skífunni
Fulham - Man. Utd.
Enski boltinn kl. 13.40
Sacramento - Boston
NBA kl. 02.00
mið Man. Utd. - Newcastle
Enski boltinn kl. 19.50
sun
Leicester - Arsenal
Enski boltinn kl. 17.20
Leeds - West Ham
Enski boltinn kl. 19.50
þri
Spænski boltinn
kl. 19.50
lau
sun Ítalski boltinn
kl. 13.45
Cardiff - Leeds
Enski boltinn kl. 15.50
Aston Villa - Man. Utd.
Enski boltinn kl. 18.50
M. Grizzlies - S. SuperSonics
NBA kl. 21.00
Gleðilegt nýtt ár