Morgunblaðið - 22.01.2002, Side 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 B 3
TEITUR Þórðarson þjálfari
norska knattspyrnuliðsins Brann
var ekki ánægður með þjálf-
arateymi Lilleström eftir við-
ureign liðanna í fjögurra liða móti
um helgina í Osló. Logi Ólafsson
og Arne Erlandsen þjálfarar Lille-
ström stilltu upp unglingaliði gegn
Brann þar sem leikið var um
þriðja sætið á mótinu. Brann átti
ekki í miklum vandræðum með
óreynt lið Lilleström og sigraði
8:1. Vålerenga og sænska liðið
GIF-Sundsvall léku um gullið.
„Ég þekkti aðeins einn leikmann
Lilleström en ég tel mig þekkja vel
til allra helstu leikmanna liðsins.
Þetta útspil þjálfara liðsins ber
vott um virðingarleysi. Við erum
að reyna skapa vettvang fyrir al-
vöru keppni á milli úrvalsdeil-
arliða yfir vetrartímann þar sem
áhangendur liðanna geta horft á
spennandi leiki. Ég á ekki von á
því að okkar stuðningsmenn greiði
aðgangseyri að leikjum sem þess-
um í framtíðinni,“ segir Teitur við
Bergens Tidende.
Arne Erlandsen sagði hinsvegar
að álagið væri of mikið á leikmenn
Lilleström en liðið hélt í æf-
ingabúðir á La Manga á Spáni í
gær. „Allir aðilar mótsins vissu að
við myndum ekki stilla upp okkar
sterkasta liði á sunnudeginum,“
sagði Erlandsen.
NORSKA KNATTSPYRNAN
VALDIMAR Kristófersson hefur
verið ráðinn þjálfari meist-
araflokks karla í knattspyrnu hjá
Stjörnunni í Garðabæ, en Arnór
Guðjohnsen hætti með liðið fyrir
fyrir sl. helgi.
Valdimar er öllum hnútum kunn-
ugur hjá Stjörnunni, hefur leikið
112 leiki í efstu deild, en hefur átt
við þrálát meiðsli að stríða og lék
ekkert í fyrra.
Garðbæingar hafa einnig ráðið
mann honum til aðstoðar og er það
einnig Stjörnumaður, Rúnar Páll
Sigmundsson, fyrirliði liðsins.
Garðbæingar segja að nú séu
heimamenn komnir við stjórnvölinn
hjá Stjörnunni.
NÝR ÞJÁLFARI Í GARÐABÆ
unni, Keflavík, ÍS, KR og Grindavík.
Það var allt útlit fyrir að framundan
væri spennandi lokasprettur, en um
leið og KR tók ákvörðun um að fá sér
útlending breyttist allt. Það voru allir
að vinna alla en núna eftir að KR-
ingar fengu til sín bandaríska leik-
manninn þá eiga þeir ekki að eiga í
neinum vandræðum með að klára
mótið. Það er ekkert nýtt að lið fái
sér erlendan leikmann á lokasprett-
inum og við höfum oft fengið okkur
erlendan leikmann á lokasprettinum,
sérstaklega ef sú staða hefur komið
upp að keppinautar okkar um titilinn
hafa gert það eða öfugt. En mitt mat
er það að KR hafi ekki þurft á erlend-
um leikmanni að halda núna þegar
liðið er búið að fá Guðbjörgu Norð-
fjörð og Lindu Stefánsdóttur til baka.
Með þessu er KR í raun að gera
sjálfu sér erfitt fyrir í framtíðinni.
Þeir ungu leikmenn sem sáu fram á
að fá loksins tækifæri með meistara-
flokknum geta nú sett þann draum í
salt og KR er í raun bara að fresta
ákveðnu vandamáli sem liðið mun
standa frammi fyrir eftir einhvern
tíma. Það munu verða kynslóðaskipti
í liðinu og þá getur það orðið vanda-
mál að ungu leikmennirnir hafa ekki
þá reynslu sem þarf. Reyndar held
ég að KR hafi ekki staðið nógu vel að
uppbyggingu og unglingastarfi í
körfunni, þá á ég við í kvennabolt-
anum. Liðið er ekki með lið í öllum
kvennaflokkum og er það miður fyrir
stórt og metnaðarfullt félag eins og
KR.“
Vonbrigði ef KFÍ fellur
úr deildinni
En ef við snúum okkur úr vestur-
bænum og vestur á firði. KFÍ hefur
gengið í gegnum talsverðar svipting-
ar í vetur, liðinu tókst ekki að fylgja
eftir góðu tímabili frá í fyrra, þjálf-
arinn var rekinn, leikmenn hættu og
liðið tapaði stórt í síðustu leikjum.
Miklir möguleikar á Ísafirði
„Já, ég veit ekki vel hvað er að ger-
ast fyrir vestan. En það má ekki
gleyma því að liðið kemur úr öllum
áttum og hefur tekið talsverðum
breytingum frá því síðasta vetur.
Vissulega hefur liðið misst leikmenn
en það hafa komið nýir í staðinn og
það verður að gefa þjálfurum mögu-
leika á að slípa nýtt lið saman. Á stað
eins og Ísafirði eru svo miklir mögu-
leika að byggja upp góða stemmn-
ingu í bænum fyrir liðinu, eins og
gerðist í fyrra, þegar áhorfendur
voru sjötti maðurinn í hverjum leik.
Það yrði mjög slæmt fyrir KFÍ og
Ísafjarðarbæ ef kvennaliðið myndi
falla um deild líkt og karlaliðið.“
Jessica Gaspar bar lið KFÍ uppi í
fyrra, nú er hún komin til liðs við
Grindavík og virðist vera að draga
vagninn þar líka.
„Já, það er mikill gangur þar. Jess-
ica Gaspar er mikill og sterkur per-
sónuleiki og hún virðist ná að drífa
alla leikmenn með sér þar sem hún
er. Grindvíkingar hafa undanfarin ár
staðið vel að yngri flokka starfi hjá
sér og það er mikill fengur fyrir þær
að fá leikmann eins og Gaspar með
þessum ungu og þrælgóðu stelpum
sem eru í liðinu. Þær verða bara betri
og betri með hverjum leik.
Gaspar virðist vera að gera sömu
hluti og Penny Peppas gerði hjá
Breiðabliki og Grindavík á sínum
tíma en bæði lið urðu Íslandsmeist-
arar. Þær báðar, Gaspar og Peppas,
og reyndar margir aðrir erlendir
leikmenn sem hafa verið hér, hafa
þann hæfileika að vera ekki aðeins
frábærir leikmenn heldur geta þær
drifið alla aðra, leikmenn og áhorf-
endur, með sér. Það er mikilvægt fyr-
ir lið eins og Grindavík og reyndar öll
þau lið sem fá sér erlenda leikmenn
að ná sem mestu út úr erlendum leik-
mönnum. Það vita það allir að það er
skammtímalausn að fá erlendan leik-
mann en ef þeir eru rétt nýttir geta
þeir skilið mikið eftir sig, bæði í formi
reynslu og þekkingar hjá þeim leik-
mönnum sem þeir léku með.“
Nú ert þú með leikreyndustu leik-
mönnum deildarinnar, hverja telur
þú vera stöðu kvennakörfunnar í
dag?
„Ég held að staða kvennakörfu-
boltans sé mun betri núna en hún var
fyrir tíu til fimmán árum. Það sést
bæði í deildarkeppninni og í þeim
leikjum sem landsliðið hefur verið að
leika, árangurinn er mikið betri en
hann var fyrir nokkrum árum.“
Stelpur horfa ekki á NBA
„Landsliðið þarf að fá tækifæri á
stærri og sterkari mótum en það hef-
ur verið að taka þátt í undanfarin ár
sem eru Smáþjóðaleikarnir og
Promotion Cup. Fyrr á árum lékum
við á Norðurlandamóti og við töpuð-
um með 80 til 100 stigum, en þrátt
fyrir þau úrslit þá fengum við mikla
reynslu út úr þeim leikjum. Þegar
landsliðið tók aftur þátt í Norður-
landamóti fyrir nokkru þá voru úr-
slitin mun hagstæðari, enda er lands-
liðið betra núna en það var þá.
Kvennalandsliðsnefndin, sem er
starfandi núna, er mjög áhugasöm og
þeir sem eiga þar sæti hafa mikinn
metnað til að gera betur en gert hef-
ur verið undanfarin ár. KKÍ réð Sig-
urð Ingimundarson aftur sem þjálf-
ara landsliðsins og ég held að það hafi
verið framfaraskref. Margir þeirra
leikmanna sem eru í landsliðinu núna
búa yfir meiri tækni og þekkingu á
leiknum heldur en var hér fyrir
nokkrum árum. Þessir leikmenn hafa
fengið betra uppeldi og byrjað fyrr í
körfunni heldur en við gerðum og
eiga alla möguleika á að skila góðum
árangri.“
Heldur þú að aðgangur að bestu
körfuknattleiksdeild heims, NBA, í
sjónvarpi hafi haft þar eitthvað að
segja?
„Nei, það held ég ekki. Ég held að
stelpur horfi ekki svo mikið á NBA,
að minnsta kosti geri ég það ekki,“
sagði Anna María Sveinsdóttir.
dregið fram körfuknattleiksskóna á nýjan leik eftir nokkurt hlé
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Anna María Sveinsdóttir, yfirveguð – með vökul augu á veikleikum andstæðinganna.
’ Það voru fjögur liðí toppbaráttunni,
Keflavík, ÍS, KR og
Grindavík. Það var
allt útlit fyrir að
framundan væri
spennandi loka-
sprettur, en um leið
og KR tók ákvörðun
um að fá sér útlend-
ing breyttist allt. ‘
Valdimar Kristófers-
son með Stjörnuna
Morgunblaðið/Golli
Valdimar Kristófersson
Teitur er ósáttur
við Loga og Arne
MEISTARA-
SLAGUR