Morgunblaðið - 22.01.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.01.2002, Blaðsíða 6
Fyrstu mínúturnar fóru í að losaspennuna og hvort lið náði einu marki úr 5 fyrstu sóknum sínum. Bæði lið spiluðu vörnina aftarlega en í þetta sinnið voru hávöxn- ustu Gróttu/KR-stúlkurnar settar fremst svo að skyttum gestanna gekk illa að finna markið. Stjörnustúlkum gekk ekki eins vel í sínum varnarleik þegar Alla Gorkorian fór fyrir liði Gróttu/KR og Garðbæingar geta þakkað Jelenu, markverði sínum, að ekki seig á ógæfuhliðina því hún varði á tíu mínútum 7 skot, þar af 3 víta- skot. Jafnt var í leikhléi, 7:7, en strax á fyrstu mínútum síðari hálfleiks fór spennan að magnast. Herdís Sigur- bergsdóttir gaf stöllum sínum sjálfs- traustið á ný með tveimur fyrstu mörkunum og síðan tók stórskyttan Ragnheiður Stephensen við. Því mið- ur fyrir þær var Alla líka búin að finna fjölina sína og greip til leik- reynslunnar þegar hún braut ísinn fyrir sitt lið. Eftir að Halla María Helgadóttir skoraði þrjú mörk í röð fyrir Stjörnuna og rúmar fimm mín- útur voru til leiksloka var leikurinn í járnum í stöðunni 15:15. Í stöðunni 16:15, Gróttu/KR í vil, átti Alla síðan skot í stöng en var fyrst til að ná bolt- anum þegar hann hrökk til baka og skoraði örugglega. Þetta sló Garðbæ- inga út af laginu um stund og sem fyrr segir náði Grótta/KR 18:15 for- ystu þegar tæp mínúta var til leiks- loka. Þótt Ragnheiður minnkaði muninn dugði það ekki til. „Ég er klökk enn þá því þetta er besta tilfinning í heimi,“ sagði Ágústa Edda Björnsdóttir, fyrirliði Gróttu/ KR, eftir leikinn. „Þegar tvö sterk lið mætast má búast við jöfnum leik eins og raunin varð á en mér fannst við meira með yfirhöndina, höfðum oftar forystu þó að Stjarnan kæmist stund- um yfir. Ég hafði á tilfinningunni að sigur yrði okkar megin og þegar Alla kom okkur í tveggja marka forskot í lokin var ég viss. Hún er ekki látin taka af skarið heldur gerir hún það sjálf en það var ekki bara hún. Hún hefur kjarkinn og spilaði vel svo að sjálfstraustið var í lagi enda átti hún stjörnuleik,“ bætti Ágústa Edda við og taldi einnig taktískar breytingar í vörn hafa skilað sér. „Við breyttum vörninni sem við höfum spilað í allan vetur og lögðum áherslu á stöðva Ragnheiði, sem skoraði mikið hjá okkur í síðasta leik og það gekk upp. En þegar við lögðum alla þessa áherslu á hana losnar um til dæmis Höllu Maríu en við náðum líka að loka fyrir hana í lokin.“ Auk Öllu áttu Ágústa Edda, Eva Björk Hlöðvers- dóttir og Fanney Rúnarsdóttir mark- vörður ágætan leik. Stjörnustúlkur, sem flestar hafa mikla leikreynslu, náðu sér ekki á strik í leiknum og var eins vantaði neistann, sem oft skiptir sköpum í bikarleikjum. Það var aðeins Jelena markvörður, sem stóð fyrir sínu þó að Ragnheiður, Herdís, Halla María og Margrét Vilhjálmsdóttir ættu góða spretti. „Mér fannst við hökta allan leikinn og lykilmanneskjur gerðu ekki út um sín færi,“ sagði Sig- geir Magnússon, þjálfari Störnunn- ar, eftir leikinn. „Það er engin leið að segja til um hvort það sé út af spennu, hver verður að svara fyrir sig, en við vorum með lélega nýtingu á færum í fyrri hálfleik og létum þær slá okkur út af laginu. Svo vorum við of bráð í sókninni, spiluðum oft lang- ar sóknir en tókum skot úr lélegum færum í stað þess að spila upp á betri færi,“ bætti þjálfarinn við og taldi einbeitingu en ekki heppni hafa gefið sigur. „Ég held að það sé ekki til heppni, frekar að þurfi einbeitingu. Við gerum ákveðin mistök og gjöld- um fyrir þau. Nú getum við ýtt þessu frá okkur og einbeitt okkur að deild- inni og reynt að fá sem mest þar.“ Stúlkurnar úr Gróttu/KR mæta bikarmeisturum frá Eyjum í úrslitaleik bi Alla Gorkorian og Edda Hrönn Kristinsdóttir féllust í faðma þegar ljóst var að sigur Gróttu/KR var í höfn ÞRJÚ mörk Öllu Gorkorian í röð, þegar spennan hélt leikmönnum í skrúfstykki á síðustu mínútunum í undanúrslitaleik Gróttu/KR á Seltjarnarnesi á laugardaginn, slógu Stjörnustúlkur algerlega út af laginu og komu Gróttu/KR í úrslit bikarkeppninnar með 19:16 sigri eftir að liðin höfðu skipst á um að hafa forystu allan leikinn. Garðbæingum dugði ekki að Jelena Jovanovic, markvörður þeirra, verði 21 skot, þar af þrjú víti. Stefán Stefánsson skrifar Alla sendi Stjörnuna út í kuldann HANDKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ  ÞULUR á undanúrslitaleik Gróttu/KR og Stjörnunnar á Sel- tjarnarnesi á laugardaginn virtist hafa litla trú á stuðningsfólki Gróttu/KR því hann hvatti sitt lið áfram í hátalarakerfi hússins.  ÁGÚSTA EDDA Björnsdóttir fyr- irliði Gróttu/KR er baráttumann- eskja og gefur hvergi eftir. Í snörp- um átökum í leiknum við Stjörnuna á laugardaginn missti hún af sér skó- inn en hélt áfram þar til dómarinn bað hana um að finna skóinn og skæðast á ný.  VÍTIN reyndust Gróttu/KR- stúlkum ekki sá happafengur, sem þær áttu von á. Alls fékk liðið sjö víti – þrjú fyrstu varði Jelena Jovanovic markvörður Stjörnunnar, næsta fór framhjá, þrjú mörk rötuðu í netið en það síðasta í stöng. FÓLK STÓRSKYTTAN Ragnheiður Stephensen úr Stjörnunni náði sér ekki nægilega á strik á Seltjarn- arnesi á laugardaginn þegar Grótta/KR og Stjarnan áttust við í undanúslitum bikarkeppninnar. Hún hefur skorað flest mörk í vet- ur, að jafnaði milli 8 og 9 mörk í leik, en náði nú „aðeins“ þremur. „Það koma svona leikir og boltinn gekk ekkert í sókninni – engu lík- ara en við værum frekar með sápu- stykki í höndunum – svo það komu upp færri færi. Bikarleikir eru allt- af sérstakir og allt getur gerst. Það er betra að mörkin hjá okkur komi yfirleitt – en þegar maður skorar sjálfur bara þrjú mörk er það of lít- ið,“ sagði Ragnheiður eftir þriggja marka tap. „Það var því sárt að tapa þessu, líka af því að það þarf fæsta leiki til að ná þessum bikar og nú var stutt í úrslitaleik í Höll- inni – það er reyndar nokkuð langt síðan við höfum verið þar, ein þrjú ár.“ Ragnheiður spilaði í Noregi á síðasta tímabili en sneri svo heim í Garðabæinn og segir að breytingar hafi orðið á í millitíðinni. „Liðin eru jafnari, sem er gott, en það vantar skyttur, sem er verra, og ástæðan virðist sú að leikmenn fara minnk- andi. Helsti munurinn hér og í Nor- egi liggur í hraðanum í leiknum, aðstöðu liðanna og einnig svolítið í viðhorfi leikmanna og þjálfara. Að- stæðurnar skipta máli því það er meiri tími til æfinga og fleiri að- stoða liðið. Auk þess hefur stemmn- ingin dottið nokkuð niður í kring- um handboltann, þó hefur hún jafnvel haldið sér í kvennabolt- anum en ekki í karlaboltanum,“ sagði stórskyttan sem dagsdaglega er kennari við Hofstaðaskóla í Garðabæ. „Krakkarnir eru 6 ára og nýfarnir að lesa en fylgjast vel með. Þau koma til mín og segja mér hvað ég skoraði mikið og hvernig gekk. Það er mjög gaman.“ Morgunblaðið/Sigurður Jökull Alla Gorkorian sést hér stöðva Ragnheiði Stephensen, lykilmann Stjörnunnar. Með sápustykki en ekki bolta Það er frábært að koma inn ísvona leik – undanúrslitaleik í bikar sem vinnst,“ sagði Fanney sátt við sigurinn en gat lítið sagt um hvort hún yrði áfram, enda átt í þrálátum meiðslum. „Ég hef aldrei lagt skóna á hilluna, heldur verið meidd. Ég er að bíða eftir aðgerð á öxl og hef ekki treyst mér til að fara í hana með barn á handleggnum. Ég átti pantaðan tíma þegar ég varð ólétt og gat auð- vitað ekki farið,“ sagði Fanney en hún ól drenginn Októ sem hún á með sambýlismanni sínum Hreini Karlssyni í janúar á síðasta ári. „Ég fer stundum með hann á leiki þegar hann er vakandi og honum finnst það mikið fjör.“ „Svo þegar ég hafði æft í tvær og hálfa viku síðastliðið haust fór allt í sama farið og ég gafst upp fyrir meiðslunum. En nú meiddist mark- vörður og ég var beðin um að stíga inn í einn leik en ég sé til með fram- haldið. Ég veit ekki hvað ég geri eftir hver meið ég v orðin með að v meid mark eins Fa af h „Það af hl en f inn f leiki ur, j hvar og hand hef bolta efnil er a hætt þær an í Fanney kom, á Seltjar „Hef a lagt s á hill SELTIRNINGURINN og markvörðurinn F mikið klapp frá áhorfendum er hún var k laugardaginn þegar Stjarnan úr Garðab innar. Það kom ekkert á óvart því Fanne með frábærri markvörslu og nú hafði hú standa á milli stanganna í erfiðum bikar liðsins meiddist. Eftir Stefán Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.