Morgunblaðið - 29.01.2002, Side 1

Morgunblaðið - 29.01.2002, Side 1
2002  ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A VIÐTAL VIÐ GUÐMUND Þ. GUÐMUNDSSON / B2, B3 ÞÓREY Edda Elísdóttir stang- arstökkvari og Vernharð Þorleifs- son júdómaður eru komin í A-flokk íslenskra afreksmanna, en fyrir í honum voru Vala Flosadóttir stang- arstökkvari og Örn Arnarson sund- maður. Þau fjögur fengu hæstu styrki einstaklinga í gær þegar Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands tilkynnti úthlutun 30 milljóna króna úr afrekssjóði sínum og frá svonefndri ólympíufjölskyldu. Fjórmenningarnir fá samtals 1.440 þúsund krónur hvert á árinu 2002. Að auki fær Vernharð 400 þúsund krónur og andvirði 249 þús- und króna í farmiðum frá ólympíu- fjölskyldunni og er því alls styrktur um tæplega 2,1 milljón á árinu. Alls var í gær tilkynnt úthlutun á um 30 milljónum króna, 20,3 millj- ónum úr afrekssjóði og 2,9 frá ól- ympíufjölskyldu. Handknattleiks- samband Íslands fékk hæstan styrk sérsambanda, alls 4 milljónir króna vegna A-landsliðs karla. Reyndar fær Frjálsíþróttasambandið sam- tals um 6,4 milljónir en af því eru um 1,9 milljónir vegna landsliðs- verkefna og annað er vegna ein- staklinga. Þá fær Sundsambandið alls um 4,2 milljónir, þar af rúm- lega 1,7 milljónir vegna A-landsliðs. Björn Bjarnason mennta- málaráðherra sagði við þetta tæki- færi að til athugunar væru hug- myndir um að efla starfsemi afrekssjóðsins þannig að hann yrði í stakk búinn til að styðja mynd- arlega við bakið á íþróttaflokkum sem ná langt á stórmótum, eins og handknattleikslandsliðið. Til viðbótar hefur ÍSÍ stofnað styrktarsjóð fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk. Nýi sjóðurinn nýtur 10 milljóna króna framlags úr rík- issjóði en sambandið leggur af aflafé sínu 5 milljónir til viðbótar. Þórey Edda og Vernharð í A-flokk ÍSÍ Ólafur í aðgerð vegna axlarmeiðsla? ÓLAFUR Gottskálksson, markvörður enska 2. deildarliðsins Brent- ford, er meiddur í öxl og gæti þurft að fara í aðgerð. Ólafur missti af leik Brentford við Brighton í síðustu viku en hann hafði leikið alla leiki liðsins á tímabilinu og spilaði 45 deildaleiki af 46 í fyrra. „Ég hef verið slæmur í hægri öxl að undanförnu og var sendur í sneiðmyndatöku á föstudaginn. Þá kom í ljós að festa í axlarvöðva er rifin. Ég mun hitta sérfræðing síðar í vikunni og hann ákveður hvað gera skal,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær. Íslenska liðið hefur leikið þannig tilþessa í mótinu að það getur með góðum leik staðið í þeim andstæð- ingum sem það mæt- ir á næstu dögum. Leikmenn eru fullir sjálfstrausts, en gera sér um leið grein fyr- ir að það verður við ramman reip að draga,“ sagði Einar. Íslenska liðið mætti því franska í vináttulandsleik í Danmörku á dögunum. Sá leikur endaði með jafntefli, 22:22. Einar sagði að leikmenn jafnt sem þjálf- arar byggju að ákveðinni reynslu eft- ir þann leik sem nýtt yrði nú. „Hann var nokkuð góður, Frakkar léku á fullri ferð og tóku enga áhættu eftir að hafa legið fyrir Dönum daginn áð- ur. Þar af leiðandi gefur þessi leikur ákveðna mynd sem við getum aukið við,“ sagði Einar. Guðmundur fékk í gær upptökur af leikjum Frakka á mótinu til þessa. Farið var yfir þá leiki í gærkvöldi og verður haldið áfram við það í dag. Einar sagði að Frakkar léku fram- liggjandi 3/2/1 vörn og það vel. Ís- lensku sóknarmennirnir yrðu að hafa vara á sér. Leikur Sigurður með? Sigurður Bjarnason tók þátt í æf- ingu íslenska liðsins í Västerås í gær og virðist vera klár í slaginn ef Guð- mundur kallar eftir honum, en Sig- urður hefur ekkert leikið í keppninni til þessa. Gústaf Bjarnason á hins vegar lengra í land og óvíst er hve- nær hann verður klár í slaginn á ný. Þá er Rúnar Sigtryggsson með sær- indi í hnésbótarsin, en í samtali við Morgunblaðið í gær hafði hann ekki miklar áhyggjur enn sem komið er. Morgunblaðið/Janne Andersson Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson fagna síðasta markinu gegn Sviss – „sirkusmarki“ Guðjóns Vals. Komnir í dauðafæri „VIÐ gerum okkur fyllilega grein fyrir því að við erum komnir í dauðafæri á mótinu,“ sagði Einar Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari ís- lenska landsliðsins í handknattleik, eftir æfingu í íshokkíhöllinni í Västerås síðdegis í gær. Þar mæta Íslendingar heimsmeisturum Frakka kl. 15 í dag í fyrstu umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins. Ívar Benediktsson skrifar frá Västerås

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.