Morgunblaðið - 29.01.2002, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRN Arnarson varð í fimmta sæti í
200 metra baksundi á heimsbik-
armóti sem fram fór í Berlín um
helgina. Örn synti á 1:56,24 mín-
útum eða á sama tíma og hann synti
á í undanrásum.
Í 50 metra baksundinu hafnaði
Örn í sjöunda sæti á tímanum 25,15
sekúndum en Íslandsmet hans í
greininni er 24,79 sekúndur.
Á laugardaginn keppti Örn í 100
m baksundi. Hann varð í 10. sæti og
komst ekki úrslit en hann synti á
54,39 sekúndum.
Sex heimsmet féllu á mótinu í
Berlín. Ástralinn Geoff Hugell synti
50 metra flugsund á 22,74 sek. Oleg
Lisogor, Úkraínu, synti 50 m
bringusund á 26,20 sek. Martina
Moravciva, Slóvakíu, bætti heims-
metið í 100 m flugsundi þegar hún
kom í mark á 56,55 sek. Banda-
ríkjamaðurinn Ed Moses synti 200
m bringusund á 2:03,17 mín, Bret-
inn Zoe Baker sló heimsmetið í 50
m bringusundi með því að synda á
30,31 sek. og Thomas Rupprath
synti 100 m flugsund á 50,10 sek.
200 M BAKSUND
Örn fimmti
í Berlín
Örn Arnarson
ROGER Gustafsson, þjálfari
sænska knattspyrnuliðsins IFK
Gautaborg, hitti forráðamenn Kefl-
víkinga um helgina til að ræða um
hugsanleg kaup Gautaborg á
Hjálmari Jónssyni.
Rúnar Arnarson, formaður
knattspyrnudeildar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að fundurinn
hefði verið gagnlegur með Gust-
afsson og það mundi skýrast innan
tíðar hvert framhaldið yrði í mál-
inu.
,,Við höfum ekki fengið tilboð frá
Gautaborg enn sem komið er en ég
reikna með að heyra frá félaginu
innan tíðar. Við finnum fyrir áhuga
Svíanna að fá Hjálmar og þó svo að
Gustafsson hafi ekki náð að sjá
Hjálmar í leik með okkur um
helgina veit hann hvað býr í leik-
manninum,“ sagði Rúnar.
Missti af tengiflugi
Gustafsson hugðist sjá Hjálmar í
leik með Keflvíkingum á móti Fylki
í Reykjaneshöllinni á föstudag en
vegna veðurs í Svíþjóð missti hann
af tengifluginu til Íslands og kom
því ekki til landsins fyrr en á laug-
ardag.
Hann náði því ekki að fylgjast
með Hjálmari í leik því hann hélt af
landi brott áður en Keflvíkingar
mættu KR-ingum í úrslitaleik á
fjögurra liða mótinu í Reykjanes-
höllinni þar sem Keflvíkingar fögn-
uðu sigri.
MISSTI AF LEIKNUM
Gustafsson ræddi
við Keflvíkinga
RÍKHARÐUR Daðason bjargaði
Stoke frá ósigri á móti Wigan í
ensku 2. deildinni í knattspyrnu
um helgina þegar hann jafnaði
metin úr vítaspyrnu 25 mínútum
fyrir leikslok. Stoke, sem lék á
heimavelli, lenti tvívegis undir en
Marc Goodfellow, fyrrverandi
Eyjapeyi, og Ríkharður jöfnuðu
metin hvor í sínum hálfleik. Brot-
ið var á Ríkharði í vítateignum og
skoraði hann sjálfur úr vítaspyrn-
unni af öryggi.
Stoke-liðinu hefur gengið illa
upp á síðkastið en þetta var fjórði
leikurinn í röð sem því tekst ekki
að sigra.
„Ég varð fyrir vonbrigðum að
ná ekki nema stigi út úr leiknum
þó svo að við lentum tvívegis und-
ir. Við sóttum mjög stíft til sigurs
á lokakaflanum. Við breyttum
leikkerfinu, fórum í 4:3:3 og feng-
um færin til að gera út um leikinn
en því miður var lukkan ekki með
okkur. Það er alltaf slæmt að
tapa stigum heima en eftir tvo
tapleiki í röð getum við verið
ánægðir með síðari hálfleikinn í
þessum leik og vonandi að liðið
haldi áfram á þeirri braut í leikn-
um á móti Peterborough á þriðju-
daginn,“ sagði Guðjón Þórðarson,
knattspyrnustjóri Stoke, eftir
leikinn.
Guðjón segir að stutt sé í að
Pétur Hafliði Marteinsson og
Stefán Þór Þórðarson geti farið
að spila en þeir eru báðir byrjaðir
að æfa eftir að hafa verið frá
vegna meiðsla. Lengra er hins
vegar í að Brynjar Björn Gunn-
arsson verði klár í slaginn en
hann fótbrotnaði í síðasta mán-
uði.
Ríkharður Daðason og Bjarni
Guðjónsson léku báðir allan leik-
inn og hrósaði Guðjón Ríkharði
fyrir góðan leik.
Morgunblaðið/Golli
Ríkharður Daðason
Ríkharður
bjargaði
Stoke
„ÍSLENSKA liðið er mjög sterkt,
miklu betra en það hefur verið
um langan tíma,“ sagði Arno
Ehret, landsliðsþjálfari Sviss, eft-
ir tapið fyrir Íslendingum. Þá var
ekki ljóst hvort hann héldi áfram
í keppninni með sitt lið eður ei.
Það réðst síðar um daginn þegar
Spánverjar unnu Slóvena með
fimm mörkum og Sviss féll úr leik
á lakari markatölu. Ekki náðist í
Ehret þegar sú staðreynd lá fyrir
en ljóst var að hann bjó sig undir
að svo gæti farið.
„Þrátt fyrir allt tel ég þennan
mun sem var á liðunum í dag ekki
gefa rétta mynd af bilinu milli
þeirra. Ísland náði góðum leik og
við fengum að súpa seyðið af því.
Vörn íslenska liðsins var sterk,
okkur gekk illa að ráða við hana.
Ein afleiðing varnarleiksins var
sú að íslenska liðið fékk mörg
hraðaupphlaup og byggði upp
gott forskot. Ég hef ekki mætt
eins sterku íslensku landsliði
lengi og hvað þá að Íslendingar
fái svona mörg hraðaupphlaup,“
sagði Ehret og bætti því við að
hann hrifist af íslenska landslið-
inu eins og það leikur nú, það
væri til alls líklegt í milliriðl-
unum.
Staða Sviss í keppninni væri
vonbrigði að vissu leyti. Þótt liðið
hefði fyrirfram verið talið það
lakasta í riðlinum hefðu mögu-
leikar þess á að komast í milli-
riðla verið raunverulega fyrir
hendi þegar á hólminn var komið.
Framhaldið verður erfitt, andstæð-ingarnir verða engin lömb að
leika við. Okkur hefur hins vegar tek-
ist að sýna fram á það
að takist okkur að
leika vel þá getum við
staðið í hverjum sem
er. Ég og leikmenn-
irnir gerum okkur skýra grein fyrir
því að þótt möguleikarnir séu fyrir
hendi þá erum við ekki endilega sig-
urstranglegra liðið í þeim viðureign-
um sem bíða okkar í Västerås, það
þýðir hins vegar ekki að við förum í
leikina í þeim einum tilgangi að vera
með.“
Í leiknum gegn Sviss hélt liðið
áfram að leika 6-0 vörn en samt sem
áður leyfðu menn sér að fara fram og
stöðva andstæðinginn. Er þetta það
sem koma skal?
„Það er mikill misskilningur að
halda að 6-0 vörn sé eingöngu hægt
að leika aftur á línu. Við spilum hana
ekki þannig, heldur sækjum grimmt á
skyttur andstæðinganna fram á völl-
inn, það er allt með ráðum gert og
hefur gengið vel upp til þessa í keppn-
inni. Starfið við uppbyggingu varnar-
innar heldur hins vegar áfram og ég
tel að ennþá sé eitthvað óunnið í þeim
efnum.“
Þessi varnaraðferð reynir mjög á
leikmenn, ekki satt?
„Svo sannarlega, ekki síst þar sem
við leikum á miklum hraða og nýtum
hvert einasta tækifæri sem gefst til
hraðaupphlaupa. Þess ofan er hrað-
inn mikill í sókninni hjá okkur. Allt
kostar þetta mikla orku sem þýðir að
nauðsynlegt er að nota alla fjórtán
leikmennina sem eru á leikskýrslu
hverju sinni. Ég er mjög ánægður
með hversu vel leikmenn eru að
standa sig. Til þess að svo sé er nauð-
synlegt að hver og einn leikmaður
þekki sitt hlutverk til hlítar og þess
vegna hafa æfingarleikirnir síðustu
vikur verið afar mikilvægir, það er að
sanna sig enn betur en áður um þess-
ar mundir. Sem dæmi nefni ég ferðina
til Póllands á milli jóla og nýás. Þar
gafst mönnum eins og Halldóri Ing-
ólfssyni, Ragnari Óskarssyni, Gunn-
ari Berg Viktorssyni og Aroni Krist-
jánssyni og fleirum tækifæri á að
leika þrjá leiki á þremur dögum, kom-
ast inn í öll atriði. Þetta vegur þungt í
dag og hefur að mínu mati gert það að
verkum að hægt er að leika vörnina
og sóknina með þeim hætti sem gert
hefur verið til þessa á EM.
Það er á hreinu að þegar allir hafa
allt sitt á hreinu þá ganga hlutirnir
upp, það er nú ekki flóknara.“
Það getur vart talist slæm staða
sem landsliðið er í þegar hægt er að
leyfa sér þann munað að láta einn
fremsta handknattleiksmann heims,
Ólaf Stefánsson, sitja á varamanna-
bekknum, ekki rétt?
„Það er rétt, slíkt er ekki slæm
staða, ekki síst þegar sá sem leysir
Ólaf af, Halldór Ingólfsson, er allt
önnur „útgáfa“ af handknattleiks-
manni, það er leikið á allt annan hátt
og um leið kemur önnur vídd í sókn-
ina. Halldór hefur marga mjög góða
kosti sem hann nýtir sér vel. Það er
hið besta mál fyrir liðið í heild, Ólafi
eins og öðrum veitir ekkert af að fá
tækifæri á að kasta mæðinni öðru
hverju.“
Að baki uppbyggingu landsliðsins
leggja margir hönd á plóginn, árang-
urinn nú er ákveðinn sigur fyrir heild-
ina, ekki satt?
„Það er rétt, margir koma að lands-
liðinu og þótt keppninni sé langt í frá
lokið þá er rétt að þakka öllum þeim.
Að þessu kemur stjórn HSÍ, aðstoð-
armaður minn, Einar Þorvarðarson,
Jóhann Ingi Gunnarsson, formaður
landsliðsnefndar og nefndin í heild,
læknir, sjúkraþjálfari, sjúkranuddari,
liðsstjóri og margir fleiri sem búa til
lið. Slíkt er nauðsynlegt og er einn
þáttur þess að hægt sé gera hlutina
eins vel og kostur er á. Í aðdraganda
þessarar keppni hefur verið reynt að
„ÞAÐ er gríðarlegur léttir í mínum huga nú þegar fyrsta markmiðinu
hefur verið náð,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðs-
þjálfari eftir leikinn við Sviss á sunnudag og sæti í milliriðlum EM
var innsiglað með stórsigri. „Og það sem meira er við höfum náð því
á mjög viðunandi hátt og rúmlega það, förum með þrjú stig inn í
milliriðla af fjórum mögulegum. Sú staða er mjög sterk þar sem við
stöndum jafnfætis Frökkum, Þjóðverjum og Spánverjum. Fram-
haldið verður á svipuðum nótum og til þessa á mótinu, tökum einn
leik fyrir í einu, reynum að einbeita okkur að hverjum leik eins og
kostur er, ekki spá of mikið lengra fram í tímann. Eigi að síður kem-
ur allur hópurinn saman núna og setur sér í sameiningu annað
markmið vegna þeirra leikja sem framundan eru í milliriðlum. Þeg-
ar því er lokið kemur í ljós hvernig okkur tekst upp gegn þeim stór-
þjóðum úr handknattleiksheiminum sem við þurfum að glíma við,“
sagði Guðmundur og greinilegt að þungu fargi var af honum létt.
Ívar
Benediktsson
skrifar
frá Skövde
Ehret hrífst af
Íslendingum
Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að það
Erum ekki saddir
þótt vel hafi
borið í veiði