Morgunblaðið - 29.01.2002, Page 4
HANDKNATTLEIKUR
4 B ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞANNIG varði Guðmundur gegn
Slóveníu: 15 langskot, þar af 8 til
mótherja, eftir gegnumbrot 4, þar af
2 til mótherja, úr horni 4, þar af 2 til
mótherja, 1 eftir hraðaupphlaup, af
línu 3, þar af 3 til mótherja og eitt
vítakast. Alls 28 skot, þar af 15 sem
fóru aftur til mótherja.
Þannig varði
Guðmundur
var fín, það er ekki annað hægt en
vera ánægður með að skora þrjátíu
og eitt mark gegn Slóvenum.“
Sjálfur átti hann erfitt uppdráttar í
sókninni gegn Spánverjum, skoraði
aðeins tvö mörk úr tíu skottilraun-
um. Á móti Slóvenum var allt ann-
að upp á teningnum, Patrekur
skoraði níu mörk, þar af átta í síð-
ari hálfleik. Hann segir engu
skipta hver skori mörk liðsins, svo
lengi sem þau eru gerð. „En auð-
vitað er gaman þegar maður nær
sér á strik,“ sagði Patrekur og
bætir við: „Ég hef orðið það mikla
reynslu að ég er alveg hættur að
fara á taugum þótt ekki gangi allt
upp, ég veit að getan er fyrir hendi.
Það var talsverð spenna í mér fyrir
Spánarleikinn, það var viðureign
sem maður hafði lengi spáð í. Fyrir
vikið voru sum skotin ótímabær og
ekki nógu vel ígrunduð. Með það
var ég óánægður og var staðráðinn
í að gera betur, það tókst; ég lét
leikinn koma til mín, var ekki að
stressa mig of mikið þótt byrjunin
væri róleg. Ég vissi að hlutirnir
myndu koma þegar á leikinn liði.
Aðalmálið er það að liðið í heild
nær vel saman, það fleytir okkur
áfram í þessari keppni frekar en
einstaklingarnir,“ sagði Patrekur.
Gólfið flutt frá
Skövde til Globen
STRAX og keppni lauk í Skövde á sunnudagskvöldið kom
hópur manna til þess að taka saman gólfið sem leikið var á í
íþróttahöllinni. Gólfefnið, úr 60 cm ferhyrndum plötum, sér-
staklega hannað til handknattleiksiðkunar, var lagt ofan
gúmmídúk sem fyrir var á gólfinu, líkt því sem er í mörgum
íþróttahúsum á Íslandi. Tveimur tímum eftir að leik Spán-
verja og Slóvena lauk var búið að taka gólfið saman og það
tilbúið á brettum til ferðar til Stokkhólms. Þar verður það
lagt á gólf Globen-hallarinnar sem hýsir leiki í undanúrslitum
og úrslitum Evrópukeppninnar um næstu helgi. Gólfefnið er
sænsk uppfinning.
Frá fyrstu mínútu til hinnar síð-ustu var ljóst að íslenska liðið
ætlaði ekki að láta Slóvena slá sig
út af laginu. Staðan
í hálfleik var 15:11,
Íslandi í vil, sem
hafði forystu allan
leikinn að því und-
anskildu að Slóvenar skoruðu
fyrsta markið.
Eins og fyrri daginn léku Íslend-
ingar 6/0-vörn og greinilegt var að
Slóvenar áttu í mesta basli með að
brjóta hana á bak aftur strax frá
upphafi. Sigfús Sigurðsson og Rún-
ar Sigtryggsson fóru mikinn að
vanda í vörninni og síðan var það
Guðmundur markvörður. Hann fór
hamförum í markinu, varði alls 18
skot í fyrri hálfleik og hefur ekki í
annan tíma sýnt eins stórbrotna
frammistöðu með landsliðinu. Alls
varði hann 28 skot í leiknum, mörg
þeirra úr opnum færum. Um miðj-
an fyrri hálfleikinn tókst Slóvenum
að minnka muninn í eitt mark, 7:6
og 8:7, en Guðmundur kom í veg
fyrir að Slóvenum tækist að jafna.
Þar með var ákveðinni hindrun rutt
úr vegi. Greinilegt var að töglin og
hagldirnar voru í höndum Íslend-
inga, þeir sigu fram úr á ný og voru
fjórum mörkum yfir í hálfleik. Ekki
hefði verið ósanngjarnt að mun-
urinn væri meiri þar sem Íslend-
ingar fóru illa að ráði sínu í nokkr-
um upplögðum marktækifærum.
Slóvenar léku lengst af 3/2/1-
vörn eins og þeir hófu leikinn gegn
Sviss kvöldið áður. Það skilaði ekki
tilætluðum árangri og var því skipt
yfir í 5/1-vörn þegar leið á síðari
hálfleik. Sú breyting hafði ekki
merkjanleg áhrif, íslenska liðið hélt
sínu striki. Í raun má segja að
ánægjulegt hafi verið að sjá að Ís-
lendingar áttu svar við hverju því
sem Slóvenar brydduðu upp á og
að engu virtist skipa þótt Guð-
mundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari leyfði flestum leikmönnum
að spreyta sig. Maður kom í manns
stað. Greinilegt var að íslenski hóp-
urinn var mjög einbeittur og sam-
stiga.
Í síðari hálfleik var aldrei veru-
leg hætta á því að Íslendingar
misstu forskotið. Slóvenar minnk-
uðu muninn í 24:21 þegar átta og
hálf mínúta var eftir. Þá komu þrjú
íslensk mörk í röð og úrslitin voru
ráðin og Ísland komið áleiðis í milli-
riðla keppninnar.
Áður er getið frammistöðu Guð-
mundar í markinu. Hann var tví-
mælalaust besti maður íslenska
liðsins og virkilega ánægjulegt að
sjá leikreyndasta mann liðsins
beinlínis ausa úr skálum reynsl-
unnar á örlagastundu í mótinu þeg-
ar virkileg þörf var á. Sigfús og
Rúnar voru öðrum fremri í vörn-
inni og enn einu sinni sannaðist það
hversu mikill hvalreki endurkoma
Sigfúsar er fyrir íslenska landsliðið.
Patrekur átti stórleik í sókninni í
síðari hálfleik, skoraði átta mörk
eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara
í þeim fyrri. Að vanda var hann
fastur fyrir í vörninni. Guðjón Val-
ur átti prýðisleik og sýndi og sann-
aði hversu öflugan persónuleika
hann hefur að bera, að rífa sig upp
úr gríðarlegum vonbrigðum sem
síðustu sekúndur Spánarleiksins
voru fyrir þennan unga mann. Því
má gefa íslenska liðinu mikið hrós
fyrir stóran sigur í tvöfaldri merk-
ingu þess orðs.
Morgunblaðið/Janne Andersson
Patrekur Jóhannesson
skorar eitt af níu mörkum
sínum gegn Slóvenum.
Guðmund-
ur fór ham-
förum í
markinu
FRÁBÆR varnarleikur og ekki
síst stórbrotin markvarsla Guð-
mundar Hrafnkelssonar mark-
varðar lögðu öðru fremur
grunninn að öruggum sex
marka sigri Íslendinga á Slóven-
um, 31:25, í leik sem margir
höfðu kviðið fyrir í ljósi von-
brigða með úrslitin gegn Spán-
verjum kvöldið áður. Um leið
vann íslenska liðið sér keppn-
isrétt í milliriðlum Evrópu-
keppninnar. Þótt vörnin hafi
verið góð, og ekki síst Guð-
mundur í markinu, er rétt að
hrósa öllum leikmönnum ís-
lenska liðsins, þeim tókst svo
sannarlega að snúa sér að verk-
efninu, létu fortíðina ekki plaga
sig þegar á hólminn var komið.
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Skövde
!
"#
$ % &'
() +,
'
-.
+) / 0
)
'
1
%1
'
2
2 ,+ %
3
4
)'%
5+ ' 60&5
+04+77
%+/
20+ 8+9+:& ;+ <
+:&
= /+
/, !+>0, 4/+20 3&
+ ' 34+ ? 0&+ + /4+ +2
+ %&+@& /
!"#
Patrekur eftir leikinn gegn Slóveníu
Sýnir hvað
hópurinn
er sterkur
„EFTIR viðureignina við Spánverja var ég svolítið hræddur við
þennan leik. Vonbrigðin voru það mikil með niðurstöðu mála eftir
leikinn á föstudaginn. En þessi sigur sýnir hvað hópurinn er sterkur
þegar á reynir,“ sagði Patrekur Jóhannesson eftir sigurinn á Slóv-
enum, 31:25, í Skövde.
Við stóðum virkilega vel saman.Vörnin var frábær og Guð-
mundur fór hamförum í markinu.
Nú er að halda áfram og vinna úr
því sem fyrir hendi er og gert hef-
ur verið.“ Patrekur segir að stjórn
leiksins hafi allan tímann verið í
höndum íslenska liðsins. „Sóknin