Morgunblaðið - 29.01.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.01.2002, Qupperneq 6
HANDKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sigfús hefur náð einstaklega velsaman með Rúnari Sigtryggs- syni, Patreki Jóhannessyni og Ólafi Stefánssyni. Saman hafa þeir myndað á tíðum ógnvænlegan múr sem andstæðing- arnir hafa átt í vandræðum með að klífa. „Þetta er fyrst og fremst liðsvinna, við styðjum hver annan, ef ég geri einhverja vitleysu þá hlaupa þeir í skarðið og öfugt. Allir leggjast á eitt og þannig verður þessi vinna skemmtileg og skilar árangri. Og það er sama hvert er litið á vellinum. Allir leggja sig fram, leika sem ein heild. Þannig hefur grunnurinn verið lagður að góðum árangri til þessa. Fyrir hvern leik hefur verið farið gaumgæfilega yfir leikaðferðir andstæðinganna, reynt að lesa í leik þeirra. Til dæmis gegn Sviss sem hefur góðum skyttum á að skipa. Þá lékum við framar, reynd- um að stöðva skytturnar og það tókst. Svona ætlum við að haga leik okkar áfram, sníða varnarleikinn að því hvað andstæðingurinn býður upp á hverju sinni.“ Sigfús segir að á undanförnum vikum hafi verið unnið mjög skipu- lega að því að efla hópinn og stemninguna innan hans. Ferðirn- ar til Póllands og Noregs hafi verið einkar erfiðar, bæði andlega og lík- amlega, en þær hafi skilað tilsett- um árangri, fært menn saman og búið til samstæða liðsheild sem skili árangri þegar á hólminn er komið. Andinn innan hópsins sé eins og best gerist og síðan hafi ár- angurinn til þessa á EM gert gott betra. Þú varst ekki í liðinu fyrir ári, síðan hefur margt breyst og nú ert þú að leika lykilhlutverk í landslið- inu. Er með því draumur að ræt- ast? „Ég átti um tíma mjög erfitt í líf- inu, lenti í rugli og fór í áfeng- ismeðferð. Það tók sinn tíma að feta sig af stað á nýjan leik, því er ekki að leyna, en nú hef ég náð tök- um á lífinu aftur og það segir til sín á leikvellinum. Ég er Guðmundi Guðmundssyni landsliðsþjálfara þakklátur fyrir að gefa mér tæki- færi með landsliðinu þegar hann tók við því í vor. Um leið stend ég í þakkarskuld við þjálfara minn hjá Val, Geir Sveinssyni, fyrir að sýna mér mikla þolinmæði og taka mig inn í hópinn hvað eftir annað þann- ig að ég gæti hugsanlega fengið annað tækifæri til þess að leika sem atvinnumaður í Evrópu. Í sameiningu lögðum við upp með það að ég næði árangri smátt og smátt og nú uppsker ég af því. Þetta var ef til vill umdeilt á sínum tíma en ég legg mig fram við að standa mig, gera það sem ég kann best, það er að leika handknatt- leik.“ Hvernig sérðu næstu leiki á EM fyrir þér? „Hvort sem leikið er í forriðli eða milliriðli þá er hver leikur hreinn úrslitaleikur í keppni sem þessari. Þannig á að leggja upp. Hér eftir sem hingað til tökum við einn leik fyrir í einu og sjáum til hvaða árangri það skilar þegar upp verður staðið. Vissulega hefur ákveðinni pressu verið létt af okkur, það að vera komnir í milliriðlana og hefja þar keppni með þrjú stig. Það hefur verið stígandi í leik okkar á EM. Í fyrsta leiknum lék- um við vel um tíma en missum hann síðan niður í jafntefli. Við- ureignin við Slóvena var góð af okkar hálfu og síðan gegn Sviss tökum við strax frumkvæðið og keyrðum síðan fulla ferð allt til leiksloka, uppskeran er stórsigur. Ég vona að okkur takist að halda áfram að sýna stíganda í okkar leik, þá getur allt gerst,“ sagði Sig- fús Sigurðsson, varnarjaxl og línu- maður íslenska landsliðsins, en hann leikur með Magdeburg í Þýskalandi á næstu leiktíð. Sigfús Sigurðsson er Guðmundi Þ. þakklátur fyrir að hafa gefið sér tækifæri með landsliðinu Árangur- inn byggist á sterkri liðsheild Þrír sterkir varnarmenn – Sigurður Bjarnason, sem hefur veriðmeiddur, Sigfús Sigurðsson og Rúnar Sigtryggsson. „ÞESSI leikur var alveg rosalega skemmtilegur, þeir gerast vart betri, ekki síst í ljósi þess að við höfum alltaf átt í basli með Sviss undanfarin ár,“ sagði Sigfús Sigurðsson, sem farið hefur hamförum í vörn íslenska landsliðsins á EM auk þess að vera mikilvægur hlekkur í sóknarleiknum sem línumaður. „Nú spiluðum við með hjartanu, samstaðan algjör, krafturinn mikill og í sameiningu skilaði þetta góðum sigri,“ bætti Sigfús við en frammistaða hans hefur vakið mikla athygli á EM. Eftir Ívar Benediktsson Morgunblaðið/Janne Andersson Svissneskur varnarmaður stöðvar Halldór Ingólfsson.             = /    !<      B  & )+ + )'%          ! "# $ %&'""( )""(  #   * *  * * *   * + ," -('. # / 0 1"' #  , "(  ", "         %     #" 77 A7 "# " "A " #A " "" "  "# " #   " #   $ %&'""( +2  $ %&'""( )"(  # 32"  #  * * * * *  *  * + ," -('. # / 0    & '  & (! ) *+, - .!/ 0 - 12  . 1- 3!3"- (! 1+- 4* 12 - 5- 2!( &# ,! 0!- 0 6!!- '  3"#- 0 1- 12  0 - !                      % %%    % C + /++ /?+$  ,7 !/! 45 "(  !" #  "  ",'" Ólafur Stefánsson ......................................27 Júrí Kostetsky, Úkraínu............................26 Nedeljko Jovanovic, Júgóslavíu................23 Robert Kostadinovic, Sviss .......................22 Stefan Lövgren, Svíþjóð............................21 Renato Vugrinec, Slóveníu........................19 Patrekur Jóhannesson...............................18 Lars Christiansen, Danmörku..................18 Zoran Lubej, Slóveníu ...............................17 Zvonimír Bilic, Króatíu..............................16 Idian Maimon, Ísrael .................................16 Stefan Kretzschmar, Þýskalandi..............16 Jan Filip, Tékklandi...................................16 Florian Kehrmann, Þýskalandi ................15 Slavko Gouluza, Króatíu ............................15 Ólafur er marka- hæstur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.