Morgunblaðið - 29.01.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 29.01.2002, Síða 8
KNATTSPYRNA 8 B ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ  PAUL Gascoigne var í aðalhlut- verkinu í leik Everton og Leyton Orient í 4. umferð ensku bikar- keppninnar þar sem Everton vann auðveldan sigur, 4:1. „Gassi“ sýndi frábæra takta og átti þátt í þremur af fjórum mörkum sinna. Kevin Campbell skoraði tvö marka Ever- ton, Duncan Ferguson eitt og fjórða markið var sjálfsmark.  AÐEINS 17.600 áhorfendur mættu á Riverside-leikvanginn í Middlesbrough þegar heimamenn öttu kappi við Manchester United í bikarkeppninni um helgina. Hátt miðaverð, hádegisleikur og að leik- urinn var í beinni útsendingu hjá Sky-sport sjónvarpsstöðinni var ástæða þess hve fáir mættu.  STEVE McClaren, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, verður lík- lega að hætta við kaupin á Dwight Yorke frá Manchester United. Tvær ástæður liggja þar að baki. Sú fyrri er að leikmaðurinn fer fram á mjög há laun og sú síðari er að eftir að Yorke kom inn á sem varamaður í liði United á Riverside má hann ekki taka þátt í bikarleikjum með öðrum liðum á þessari leiktíð.  BRESKA blaðið Sunday Times hefur heimildir fyrir því að New- castle hafi boðið Mick McCarthy, landsliðsþjálfara Íra, um að taka við stjórn Newcastle fyrir keppn- istímabilið 2003.  SHUNSUKE Nakamura, jap- anskur landsliðsmaður, mun ganga í raðir spænska stórliðsins Real Madrid eftir heimsmeistarakeppn- ina í Japan og S-Kóreu í sumar. Nakamura er 23 ára gamall og leik- ur með Yokohama F. Marinos í Japan og var fyrir tveimur árum valinn besti leikmaður japönsku at- vinnumannadeildarinnar.  OLIVER Kahn, markvörður Bay- ern München, var um helgina skip- aður fyrirliði þýska landsliðsins í stað Oliver Bierhoffs. Bierhoff fór fram á að láta fyrirliðastöðuna af hendi og óskaði hann eftir því við Rudi Völler landsliðsþjálfara að Kahn tæki við fyrirliðabandinu sem Völler varð við.  SVÍINN Joachim Björklund gekk í gær til liðs við enska úrvals- deildarliði Sunderland. Björklund kemur til Sunderland frá ítalska liðinu Venezia. Hann er 30 ára gamall varnarmaður og greiddi Sunderland 1,5 milljónir punda fyr- ir leikmanninn.  MÁL Jamie Carragher, varnar- manns Liverpool, sem gerði sig sekan um að henda smápeningi til baka upp í áhorfendapalla í leik Arsenal og Liverpool á sunnudag- inn er komið á borð lögreglunnar. Talsmaður Scotland Yard segir að lögreglan muni rannsaka málið til hlítar og hann útilokar ekki að Carragher verði ákærður.  GUÐNI Bergsson og félagar hans í Bolton voru mættir til leiks á White Hard Lane gegn Tottenham í fjórðu umferð bikarkeppninnar en rúmri klukkstund áður en leikurinn átti að hefjast ákvað Steve Dunn, dómari, að fresta leiknum enda völlurinn þá nánast á floti eftir mik- ið úrhelli. Leikurinn hefur verið settur á að nýju þriðjudaginn 5. febrúar.  GUÐNI verður hins vegar í eld- línunni á Reebok-leikvanginum í Bolton í kvöld en þá fá nýliðarnir ensku meistarana í Manchester United í heimsókn.  HELGI V. Daníelsson var ekki í leikmannahópi Peterborough í bik- arleiknum á móti Newcastle. 2. deildar liðið, sem var að spila sinn 4. leik á átta dögum, lenti 2:0 en tókst að jafna metin í 2:2. New- castle tryggði sér svo sigurinn með tveimur mörkum á síðustu 6 mín- útunum.  JÓHANNES Harðarson var ekki leikmannahópi Groningen sem tap- aði fyrir AZ Alkmaar í hollensku 1. deildinni í knattspyrnu. FÓLK HERMANN Hreiðarsson og fé- lagar hans í Ipswich geta nú ein- beitt sér að því að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni eftir skell á heimavelli á móti læriveinum Kevins Keegan í Manchester City í 4. umferð ensku bikarkeppn- innar í knattspyrnu. Topplið 1. deildarinnar fagnaði sigri á Port- man Road, 4:1, og fer Keegan á fornar slóðir með lið sitt í 5. um- ferðinni því Manchester City dróst á móti Newcastle, liðinu sem Keegan lék með og var fram- kvæmdastjóri hjá. Hermann var að vanda í byrjunarliði Ipswich en var skipt útaf á 80. mínútu leiksins. Lárus Orri Sigurðsson átti góð- an leik fyrir WBA sem tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum bik- arkeppninnar í fyrsta sinn í tólf ár þegar liðið bar sigurorð af botnliði ensku úrvalsdeildarinnar, Leicester. Eina mark leiksins kom 11 mínútum fyrir leikslok úr víta- spyrnu sem þótti mjög umdeild. Lárus Orri, sem var tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla í nára, var sterkur í vörn WBA eins og hann hefur verið mest alla leiktíðina. Eiður Smári Guðjohnsen var óvænt á varamannabekknum í liði Chelsea sem gerði 1:1 jafntefli við West Ham. Claudio Ranieri, stjóri Chelsea, ákvað að gefa Finnanum Mikael Forsell tækifæri í fremstu víglínu við hlið Jimmy Floyd Hasselbainks og það á kostnað Eiðs. Eiður Smári, sem á dögun- um skoraði tvö mörk gegn West Ham í deildinni, kom inná á 70. mínútu. „Eiður hefur átt við meiðsl að stríða og hefur lítið æft að und- anförnu. Ég vildi því hvíla hann en ákvað hins vegar að setja hann inná undir lokin og freista þess að ná fram sigri,“ sagði Claudio Ranieri eftir leikinn. Jimmy Floyd Hasselbaink skor- aði 20. mark sitt á leiktíðinni með glæsilegri vinstrifótarspyrnu en Frederic Kanoute jafnaði fyrir West Ham tíu mínútum fyrir leikslok. „Það voru vonbrigði að vinna ekki sigur. Við sköpuðum okkur fullt af færum en West Ham skoraði nánast úr eina færi sínu,“ sagði Ranieri. Lárus Orri sterkur í vörn WBA Mike Riley, dómari, sá sami ogvísaði Lárusi Orra Sigurðs- syni af velli í landsleik Íslendinga og Búlgara í undankeppni HM í fyrra, var í aðalhlutverki í síðari hálfleiknum á Highbury. Hann byrjaði á því að vísa Martin Keown, varnarmanni Arsenal, útaf fyrir brot á Michael Owen á 66. mínútu. Fimm mínútum síðar fór Dennis Bergkamp sömu leið fyrir ljótt brot á Jamie Carragher en þar með var þætti Rileys ekki lokið. Þegar Carragher hugðist framkvæma aukaspyrnuna eftir brot Berg- kamps var smápeningi kastað í átt- ina að honum, Carragher svaraði í sömu mynt og það mislíkaði Riley sem umsvifalaust tók upp rauða spjaldið. „Ég vil ekki gefa mitt álit á brottrekstrunum heldur vil ég frek- ar hrósa leikmönnum mínum fyrir góða frammistöðu. Þetta var ekta bikarleikur en mér fannst hann alls ekki grófur. Auðvitað voru menn að takast á en ég held að leikurinn hafi verið heiðarlegur þó svo að þrír leikmenn hafi verið sendir af velli. Ég var ánægður með spila- mennsku minna manna og fannst sigur okkar fyllilega sanngjarn,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal sem mátti horfa upp á 10. rauða spjaldið fara á loft hjá liðsmönnum sínum á þessari leiktíð. Phil Thompson aðstoðarstjóri Liverpool sagði eftir leikinn að Jamie Carragher hefði brugðist rangt við þegar hann kastaði smá- peningnum til baka upp í áhorf- endapalla en bætti því að aðeins væri tímaspursmál hvenær leik- maðurinn yrði fyrir meiðslum af völdum áhorfenda. Ferguson reiður Sir Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, húð- skammaði sína menn eftir ósigur- inn á móti Middlesbrough í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. United réð ferðinni lengst af leiks- ins en náði lítið að skapa sér af færum. Fyrir það var þeim refsað. Misskilningur á milli frönsku vin- anna Laurent Blanc og Fabien Barthez varð til þess að Noel Whel- an kom „Boro“ yfir á 85. mínútu og á lokamínútunni rak varamaðurinn Andy Campbell naglann í líkkustu ensku meistaranna þegar hann skallaði í netið eftir góða sókn heimamanna. „Ég er mjög vonsvikinn. Liðs- menn mínir spiluðu kæruleysislega. Leikur liðsins var í hálfgerðum molum og til að bæta gráu ofan á svart færðum við Middlesbrough mörkin silfurfati. Ég átti aldrei von á að Middlesbrough færi með sigur af hólmi. Við áttum að vinna leik- inn, það vitum við og ég held að all- ir aðrir hafi vitað það. En við vor- um kærulausir og var refsað illilega fyrir það. Við fengum vissulega færin í leiknum en kæruleysið var einkennandi þegar menn áttu að ljúka verkinu,“ sagði Ferguson. Ryan Giggs og Ruud van Nistel- rooy komu inná sem varamenn í síðari hálfleik en David Beckham og Sebastian Veron voru hvíldir sökum meiðsla. Colin Lee, stjóri Walsall, gat ekki óskað sér betri byrjun í starf- inu en hann tók við liði Walsall fyr- ir helgina. Lee fór með sína menn á Valley Park og óvænt úrslit litu þar dagsins ljós því 2. deildarliðið gerði sér lítið fyrir og lagði úrvalsdeild- arlið Charlton, 2:1. James Walker, markvörður, Walsall, var hetja sinna manna. Hann varði hvað eftir annað meistaralega vel og kórónaði frammistöðu sína með því að verja vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. Cole enn á skotskónum Nokkrum klukkustundum eftir að Manchester United féll úr bik- arkeppninni gat fyrrverandi liðs- maður United, Andy Cole, fagnað sigri en þessi mikli markaskorari, sem ensku meistarararnir gátu ekki notað, skoraði Cole sigurmark Blackburn á móti Milwall fjórum mínútum fyrir leikslok. Þetta var fjórða mark Cole fyrir Blackburn frá því hann kom til liðsins frá United. Reuters Dennis Bergkamp fagnar sigurmarki sínu á Liverpool með því að stökkva upp á bak félaga síns, Thierry Henry. Sæt hefnd Arsenal á Highbury ARSENAL er sigurstranglegasta liðið sem eftir er í ensku bikar- keppninni í knattspyrnu eftir að hafa rutt úr vegi bikarmeisturum Liverpool í 4. umferð keppninnar á Highbury á sunnudaginn þar sem þrjú rauð spjöld litu dagsins ljós. Dennis Bergkamp skoraði eina mark leiksins – skallaði í netið á 27. mínútu eftir vel útfærða sókn heimamanna og það reyndist sigurmarkið. Arsenal náði þar með að hefna ófaranna frá því í vor en þá tapaði liðið fyrir Liverpool í úrslitaleik bikarkeppninnar á þúsaldarvellinum í Cardiff.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.