Morgunblaðið - 29.01.2002, Page 9
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2002 B 9
www.syn.is
í síma 515 6100 eða í Skífunni
29. janúar - 3. febrúar
mán-
fim
Heklusport
kl. 22.30
mið Chelsea - Leeds
Enski boltinn kl. 19.55
Bolton - Man. Utd.
Enski boltinn kl. 19.50
þri
sun Leeds - Liverpool
Enski boltinn kl. 11.30
Ítalski boltinn
kl. 13.55
Middlesbrough - Charlton
Enski boltinn kl. 15.55
New York - Miami Heat
NBA kl. 18.00
Superbowl
Ameríski fótboltinn kl. 22.00
lau Roy Jones Jr. - Glen Kelly
Hnefaleikar kl. 01.45
GUNNAR Einarsson var um
helgina kjörinn nýr formaður Fim-
leikasambands Íslands á ársþingi
sambandsins um helgina. Aðrir sem
eru í stjórn eru: Birna Björnsdóttir,
Helgi G. Garðarsson, Skúli J.
Björnsson og Örn Sigurðsson.
GUNNAR er forstöðumaður
fræðslu- og menningsviðs í Garðabæ.
Hann var á árum þekktur handknatt-
leiksmaður, bæði með FH og ís-
lenska landsliðinu og lék um tíma
sem atvinnumaður í Þýskalandi.
Gunnar tekur við starfi Árna Þórs
Árnasonar.
NORÐMENN tryggðu sér þátt-
tökurétt í undankeppni HM í hand-
knattleik þegar þeir burstuðu Slóv-
akíu, 32:18, í leik sem fram fór í
Drammen að viðstöddum 3.700
áhorfendum.
RÚSSNESKA stúlkan Svetlana
Feofanova bætti Evrópumet sitt í
stangarstökki innanhúss um 1 sentí-
metra þegar hún stökk 4,66 metra á
móti í Dortmund.
EMMA Furuvik úr Ármanni
varð í 34. sæti á alþjóðlegu stórsvigs-
móti sem fram fór í Maria Alm í Aust-
urríki sunnudaginn. Emma keppti
einnig í stórsvigi á sama stað á laug-
ardag en féll úr keppni í fyrri ferð.
MIKIL sorg er í herbúðum
Middlesbrough eftir andlát tveggja
ára gamals sonar Colins Coopers,
varnarmanns Middlesbrough. Sonur
Coopers kafnaði þegar hluti af leik-
fangi festist í öndunarvegi hans og
gerðist atburðurinn nokkrum
klukkustundum eftir sigurleik Middl-
esbrough gegn Manchester United í
ensku bikarkeppninni á laugardag-
inn. Cooper, sem er 34 ára gamall, og
Julia eiginkona hans eiga þrjár eldri
dætur.
ANDRI Sigþórsson skoraði
mark Molde sem gerði 1:1 jafntefli
við Lilleström í æfingaleik á Spáni
um helgina. Andri og Bjarni Þor-
steinsson boru báðir í byrjunarliði
Molde og Indriði Sigðurðsson var í
byrjunarliði Lilleström.
FÓLK
Gestirnir úr Vesturbænum áttuekki í miklum vandræðum með
heimamenn þegar þær heimsóttu
Grindvíkinga í 1.
deild kvenna í körfu-
knattleik. KR-ingar
unnu sannfærandi
sigur með 91 stigi
gegn 59 heimastúlkna. Fyrsti leik-
hluti var hnífjafn og svo virtist sem
heimastúlkur ætluðu að selja sig
dýrt. Eftir jafnan fyrsta leikhluta
sigu gestirnir hægt og örugglega
fram úr og í hálfleik var staðan orðin
26:53. Til að bæta gráu ofan á svart
var Unndóri Sigurðssyni, þjálfara
heimastúlkna vikið út úr húsi fyrir
annað tæknivíti á bekkinn þegar
tæpar 3 mínútur voru eftir af hálf-
leiknum, reyndar voru þau tvö í röð.
Þetta seinna tæknivíti var frekar
hæpið að gefa og ljóst af þessari
dómgæslu Kristins Óskarssonar að
hann var ekki í góðu jafnvægi þenn-
an daginn. Stúlkurnar í KR voru þó
búnar að tryggja sér gott forskot
þegar þetta gerðist en ljóst var að
þessi dómgæsla bætti ekki stöðu
heimaliðsins. Það er því skemmst frá
því að segja að gestirnir héldu áfram
að bæta við en heimastúlkur gáfust
alls ekki upp og áttu margar þeirra
ágætan leik en áttu einfaldlega við
ofurefli að stríða. Gestirnir unnu því
örugglega með 91 stigi gegn 59
heimastúlkna. Bestar í liði heima-
stúlkna voru þær Petrúnella Skúla-
dóttir og Ólöf H. Pálsdóttir en hjá
gestunum áttu þær Helga Þorvalds-
dóttir og Guðbjörg Norðfjörð fínan
leik. Maður leiksins var þó án efa
dómarinn Kristinn Óskarsson. „Ég
vona bara að dómarar eins og leik-
menn og þjálfarar skoði sig eftir lé-
legan leik eins og við gerum. Það var
margt jákvætt í leiknum hjá okkur,
gekk vel í byrjun en greinilegt á leik
okkar að okkur vantar reynslu sem
við höfðum í gegnum Jessicu Gasp-
ar. Hún er hætt hjá okkur vegna
meiðsla. Það er mikill missir fyrir
okkur að missa svona frábæran leik-
mann og karakter sem hún er. Von-
andi fyrir hana að hún komist fljótt á
ról aftur. Eins og staðan er í dag er-
um við með þetta lið og þurfum að
laga okkar hugarfar og það er engin
spurning um að við ætlum að veita
þeim samkeppni,“ sagði Unndór Sig-
urðsson, þjálfari Grindvíkinga.
Alda Leif með 41 stig
Alda Leif Jónsdóttir fór á kostum
í liði ÍS þegar liðið vann stórsigur á
KFÍ, 85:48, í 1. deild kvenna í körfu-
knattleik á laugardaginn.
Alda Leif skoraði tæplega helm-
ing stiga Stúdína. Hún skoraði 41
stig, tók 7 fráköst, átti 7 stoðsend-
ingar og náði 9 boltum af andstæð-
ingum sínum. Stúdínur höfðu mikla
yfirburði eins og lokatölurnar gefa
til kynna. Ísfirðingar unnu að vísu
fyrsta leikhlutann, 14:13, en eftir það
tók ÍS leikinn gjörsamlega í sínar
hendur.
Dómari í aðalhlutverki
Garðar Páll
Vignisson
skrifar
Um helgina var keppt í þremurflokkum á Íslandsmeistara-
mótinu, Novice-, Junior- og Senior-
flokki. Það er greini-
legt á öllu að list-
hlaup á skautum er í
mikilli sókn um
þessar mundir og
framfarir meðal keppenda umtals-
verðar. Í samtölum blaðamanns við
mótshaldara og fyrrverandi og nú-
verandi þjálfara kom fram að yfir-
bygging skautasvellsins í Laugardal
fyrir nokkrum árum hefur orðið
mikil lyftistöng fyrir íþróttina. Þátt-
takendum fjölgar jafnt og þétt og
metnaður allra sem að íþróttinni
standa er mikill.
Íris Kara Heiðarsdóttir, Skauta-
félagi Reykjavíkur, sigraði í Novice-
flokknum, en þar kepptu 15 stúlkur
á aldrinum 12 til 14 ára. Hún háði
harða keppni við þær Kristínu
Helgu Hafþórsdóttur og Jónínu
Björk Ingadóttur, sem eru báðar frá
Skautafélagi Akureyrar.
Miklar framfarir
í Novice-flokki
„Keppnin í Novice-flokknum er
harðari núna heldur en hún hefur
nokkru sinni verið og ber framför-
unum sem hér hafa orðið gott vitni,
sagði Helga Olsen, þjálfari í Skauta-
félagi Reykjavíkur, í samtali við
Morgunblaðið. Keppni í skylduæf-
ingum fór fram á laugardag, en ein-
kunnir úr þeim æfingum gilda 1⁄3 á
móti frjálsu æfingunum sem fóru
fram á sunnudag. „Skautasamband-
ið hefur staðið fyrir æfingaferðum
fyrir stelpurnar og fóru sex stelpur
af þeim sem eru að keppa hér í dag í
slíka æfingaferð á síðasta ári. Þá
hafa erlendir þjálfarar komið hingað
til lands og þeir bera með sér mikla
þekkingu sem verður hér eftir og á
eftir að nýtast þessum stelpum vel í
framtíðinni,“ sagði Helga Olsen.
Er spennt og kvíðin
Aðeins þrír keppendur voru
skráðir til leiks í næsta flokki, svo-
kölluðum Junior-flokki, og voru þær
allar frá Skautafélagi Akureyrar.
Sigurvegari varð Audrey Freyja
Clarke, Vanessa Jóhannesdóttir
varð í öðru sæti en í þriðja sæti varð
Helga Margrét Clarke. Samkvæmt
upplýsingum blaðamanns þá eru
ekki fleiri keppendur í þessum
flokki vegna þess hlés sem gert var
á æfingum í Reykjavík þegar byggt
var yfir skautasvellið í Laugardal.
Miðað við framfarirnar og æfing-
arnar í Novice-flokknum er þess þó
ekki langt að bíða að þessi flokkur
verði fjölmennari. Eins og áður er
getið þá var Sigurlaug Árnadóttir
eini keppandinn í Senior-flokknum,
en hún hefur orðið Íslandsmeistari í
þessum flokki nokkur undanfarin
ár.
„Það er vissulega leiðinlegt að
hafa ekki samkeppni, en það er samt
miklu meiri pressa á manni heldur
en margir halda. Það er lítill ljómi
yfir því að hafa staðið sig illa í æfing-
um og taka samt við gullpeningi, að-
eins vegna þess að maður er einn.
Þessi keppni hér í dag er góð æfing
fyrir Norðurlandamótið eftir tvær
vikur. Fyrir mér var þetta eins og
lokaæfing fyrir Norðurlandamótið
en þetta er í fyrsta sinn sem ég
skauta báðar æfingarnar í keppni.
Þetta er í annað sinn sem ég fer á
Norðurlandamótið, en mér gekk
framar vonum í fyrra.“
Ég er spennt og
kvíðin, allt í senn
Sigurlaug, sem er 17 ára gömul,
sem sammála blaðamanni um það að
hún eigi nokkur ár eftir í íþróttinni.
„Já, já. Við vorum að tala um það um
daginn að Maria Butruskaia er 29
ára og hún vann á stóru móti um
daginn. Keppendur á stórmótum
eru að verða eldri og það virðist vera
liðin tíð að skautadansarar hætti um
tvítugt. Ég held því að ég geti verið í
þessu 10 ár í viðbót og þá er nú von
til þess að ég fái meiri keppni en
undanfarin ár,“ sagði Sigurlaug og
brosti út að eyrum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsmeistarinn Sigurlaug Árnadóttir með verðlaun sín.
„ÁSKORUNIN að vera ein í sínum styrkleikaflokki er ekki minni
heldur en hún er þegar maður hefur fleiri til að keppa við,“ sagði
Sigurlaug Árnadóttir, Skautafélagi Reykjavíkur, sem sigraði í elsta
flokki á Íslandsmeistaramótinu í listhlaupi á skautum, sem fór fram
í Skautahöllinni í Reykjavík um helgina. „Mér finnst alltaf jafn fynd-
ið að stíga upp á pallinn núna síðustu tvö ár eftir að eldri stelpurnar
hættu að keppa, en þær yngri hafa ekki enn náð upp í minn flokk í
getu, sagði Sigurlaug,“ sem var ein í Senior-flokki, en hún sýndi
ágætt öryggi í æfingu sinni á sunnudag. Hún sagði í samtali við
Morgunblaðið að þátttakan á Íslandsmeistaramótinu væri kærkom-
in æfing fyrir Norðurlandamótið í Finnlandi sem hún tekur þátt í eft-
ir tvær vikur.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Ein á
palli