Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 1

Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 . F E B R Ú A R 2 0 0 2 B L A Ð B L i s t h ú s i n u L a u g a r d a l , s í m i 5 8 1 2 2 3 3 • D a l s b r a u t 1 , A k u r e y r i , s í m i 4 6 1 1 1 5 0 • w w w. s v e f n o g h e i l s a . i s Verið velko min öllum húsgögnum og ýmsum fylgihlutum T i lboðsdagar 1/3 af Fyrstir koma fyrstir fá Takmarkað magn Gildir í jan og feb. Gildir ekki af öðrum tilboðum né heilsudýnum og heilsukoddum Ath Tilboðshorn verður í Svefn og heilsu þar sem 35-70% afsl. verður af ýmsum eldri eða lítið útlitsgölluðum heilsudýnum, húsgögnum og ýmsum fylgihlutum. Ný pakkaútboð verða sett upp í hverri viku, pakki gæti samanstaðið af; höfuðgafli, náttborði, heilsudýnu, teppasetti og fleiru. Þú býður í pakkann og besta tilboðið vinnur.  SÁLIN BLÓMSTRAR VIÐ LISTRÆNA IÐKUN/2  AÐ GÍNA VIÐ HNÝTTRI FLUGU/4  SÁRSAUKI OFT EKKI UMFLÚINN/5  DAGUR HJÁ DAGMÖMMU – ENGAR KAFFIPÁSUR Í VINNUNNI/6  AUÐLESIÐ EFNI/8 loknu settist hún að í Kaupmannahöfn og hefur m.a. séð um myndskreytingar í fastan dálk í vikublaðinu Kopenhagen Post. Blaðið er gefið út á ensku og sér- staklega ætlað útlendingum í dönsku viðskiptalífi og ferðamönnum. „Ég hef séð um að teikna skopmynd í vikulegan dálk um málefni líðandi stundar í blaðinu frá árinu 1998. Núna er ég að setja saman möppu til að koma verkum mínum á framfæri við aðra fjöl- miðla. Tíminn verður að leiða í ljós hvernig gengur,“ segir Fanney. „Draumurinn er að komast að hjá Politiken.“ En Fanney er ekki við eina fjölina felld í listinni þótt áherslan hafi færst yfir á teikningar undanfarin ár. Hún málar vatnslitamyndir, hannar innstillingar og meira að segja fatnað svo eitthvað sé nefnt. „Ég rak verslun með latex-fatnað ásamt fimm öðrum í Kaupmannahöfn í eitt og hálft ár. Síðan hef ég verið að fá pantanir og selja eina og eina flík. Núna stend- ur til að fara að fjöldaframleiða jakka eftir mig í Pól- landi. Ef allt gengur upp verður jakkinn kominn í verslanir í Kaupmannahöfn í haust,“ segir hún og hlær þegar hún er spurð að því hvað hún geti ekki gert. „Ég hef verið að snúast í ýmsu og satt best að segja tek ég ekki alltaf allt fram þegar ég er að sækja um eitthvað. Það getur virkað alltof ruglings- legt á fólk.“ „ÉG BÝST við að ég hafi frekar gamaldags stíl. Núna er dálítið í tísku að vera með fullt af smáat- riðum í sömu teikningunni. Mínar teikningar byggj- ast upp á færri línum. Einfalt og fyndið hentar mér best,“ segir Fanney Antonsdóttir, myndlistarmaður í Kaupmannahöfn, og dregur upp nýja teiknimynda- sögu eftir sig úr skærrauðri möppu. Teikni- myndasagan er í léttum tón og segir frá því hvað gerist í hugarheimi ungrar einhleyprar konu. Blaðamaður getur ekki stillt sig um að spyrja hvort Fanney sé að fjalla um sjálfa sig. „Ég held að flestir höfundar byggi að einhverju leyti á eigin reynslu. Sjáðu myndaröðina um kóngulóna! Þessi kónguló hékk fyrir ofan rúmið mitt í þrjá mánuði. Einhvern veginn hafði ég ekki brjóst í mér til að hrekja hana í burtu. Annars hef ég auðvitað bæði augu og eyru opin og fylgist vel með því hvað drífur á daga vina og vandamanna. Stundum dettur maður niður á eitt- hvað skemmtilegt.“ Politiken draumurinn Fanney er alin upp í Hrísey, útskrifaðist úr ker- amikdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1996 og var gestanemi við Danmarks Designskole í Kaupmannahöfn veturinn 1996 til 1997. Að námi „Þessi kónguló hékk fyrir ofan rúmið mitt í þrjá mánuði,“ segir Fanney. Morgunblaðið/Sverrir Fanney í jakkanum sem á að fara að fjöldaframleiða í Póllandi. Þessi teikning eftir Fanneyju birtist með pistli í Kopenhagen Post um að stjórnmálamenn væru að verða kyntákn í hugum fólks. Einfalt og fyndið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.