Morgunblaðið - 07.02.2002, Qupperneq 1
2002 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
PATREKUR JÓHANNESSON FRÁ Í ÞRJÁR TIL SEX VIKUR / C4
NJARÐVÍKINGAR hafa ákveðið að styrkja
kvennalið sitt fyrir bikarúrslitaleikinn sem
fram fer á laugardaginn í Laugardalshöllinni.
Bandaríska stúlkan Ebony Dickinson var sér-
staklega fengin fyrir bikarúrslitaleikinn en
hún lék á sínum tíma með liði KFÍ á Ísafirði.
Dickinson kom til landsins sl. laugardag og
lék samdægurs gegn Grindavík þar sem hún
skoraði 27 stig og tók 11 fráköst. Dickinson
mun ekki leika fleiri leiki með Njarðvíkingum.
Karlalið félagsins hefur óskað eftir leik-
heimild fyrir Bandaríkjamanninn Pete Philo
sem dvelur hér á landi þessa dagana og hefur
æft með liðinu. Philo íhugar tilboð sem hann
er með í höndunum frá liði í Íran en verði ekki
af Íransför Philo er líklegt að hann geri samn-
ing við Njarðvíkinga og verði með á laugar-
daginn.
Leikur einn leik
með Njarðvík
Stórsigur
hjá Stoke
BJARNI Guðjónsson og Stef-
án Þór Þórðarson skoruðu
báðir fyrir Stoke í gærkvöldi
sem burstaði Cambridge, 5:0,
í ensku 2. deildinni í knatt-
spyrnu. Bjarni skoraði annað
markið á 28. mínútu og Stef-
án það þriðja á 63. mínútu en
hann var þá nýkominn inná
sem varamaður. Pétur Mar-
teinsson lék síðustu 18 mín-
útur leiksins en Bjarna var
skipt útaf þegar 10 mínútur
voru eftir. Ríkharður Daða-
son gat ekki leikið vegna
veikinda og Brynjar Björn
Gunnarsson er enn frá vegna
meiðsla.
Með sigrinum komst Stoke
upp í þriðja sæti með 57 stig,
Brighton er stigi á undan í
öðru sæti en Reading er í
toppsætinu með 62 stig.
ALLT bendir til þess að varn-
armaðurinn sterki, Ólafur
Adolfsson, leiki með knatt-
spyrnuliði Víkings í 1. deildinni
í sumar en Ólafur hefur til-
kynnt um félagaskipti úr FH
og í Víking sem er undir stjórn
fyrrum félaga hans úr ÍA, Lúk-
as Kostic. Ólafur er 34 ára gam-
all og lék á sínum tíma 99 leiki
með ÍA og skoraði 13 mörk.
Sumarið 2000 lék Ólafur með
FH í 1. deild þegar liðið tryggði
sér sæti í efstu deild á ný en
Ólafur tók sér hvíld frá knatt-
spyrnu á sl. ári. Auk Ólafs hef-
ur varnarmaðurinn Vilhjálmur
Vilhjálmsson tilkynnt um fé-
lagaskipti úr Þrótti R. í Víking
en Vilhjálmur lék á sínum tíma
með liði Fram.
Ólafur
Adolfsson
í Víking
RÚSSNESKA stúlkan Svetlana Fe-
ofanova stal senunni á fyrsta stiga-
móti Alþjóða frjálsíþróttasambands-
ins, sem fór fram í Globen-höllinni í
Stokkhólmi í gærkvöldi, er hún setti
nýtt heimsmet í stangarstökki
kvenna, stökk 4.72 m. Vala Flosadótt-
ir tók þátt í mótinu, náði sér ekki á
strik og stökk 4.15 m.
Feofanova bætti eigið heimsmet
um einn sentímetra frá því á móti á
sunnudag og hafði mikla yfirburði. Í
öðru sæti var bandaríski ólympíu-
meistarinn Stacy Dragila sem stökk
4,47 metra og í þriðja sæti hafnaði
Jelena Belyakova frá Rússlandi en
hún stökk 4,37 metra eins og Gao
Shuying frá Kína, Yvonne Busch-
baum frá Þýskalandi og Monika Pyr-
ek frá Póllandi.
Feofanova varð rúmum 4 milljón-
um krónum ríkari en þá upphæð fékk
hún í verðlaun frá styrktaraðilum
mótins fyrir að setja heimsmetið.
Vala varð í áttunda og neðsta sæti
með stökk upp á 4,15 metra, 11 sentí-
metrum lægra en Kirsten Belin frá
Svíþjóð stökk en hún varð í sjöunda
sæti.
AP
Svetlana Feofanova frá Rússlandi er hér að stökkva 4,72 metra í stangarstökki og setja nýtt heimsmet á stigamóti í Globen-höllinni
í Stokkhólmi í gærkvöldi. Vala Flosadóttir rak lestina á mótinu í Globen en hún stökk aðeins 4,15 metra.
Feofanova
með nýtt
heimsmet
í Globen
Claudio Ranieri, knattspyrnu-stjóri Chelsea, var himinlif-
andi með frammistöðu sinna
manna gegn West Ham á útivelli í
4. umferð ensku bikarkeppninnar í
gærkvöld, þar sem gestirnir lentu í
tvígang undir í leiknum en náðu að
tryggja sér 3:2 sigur með marki á
elleftu stundu. Þetta var síðari
leikur liðanna þar sem liðin skildu
jöfn, 1:1, í fyrri leiknum en í gær-
kvöld átti að leika til þrautar.
Víðir Sigurðsson, blaðamaður
Morgunblaðsins, var á leiknum og
á blaðamannafundi sem haldinn
var í kjölfarið. Að sögn Víðis var
ítalski knattspyrnustjórinn afar
ánægður með að lið hans skyldi af-
reka það, að skora þrjú mörk gegn
West Ham sem aðeins hafði fengið
á sig sjö mörk á heimavelli í vetur.
Eiður Smári Guðjohnsen var í
byrjunarliði Chelsea en náði ekki
að komast í eða skapa sér afger-
andi marktækifæri. Eiður var tek-
inn af leikvelli á 60. mínútu.
Defoe kom West Ham í tvígang
yfir í leiknum en í fyrra markinu
hafnaði knötturinn í John Terry og
markið var skráð sem sjálfsmark.
Jimmy Floyd Hasselbaink jafnaði
metin á 42. mín. með marki beint
úr aukaspyrnu. Varamaðurinn
Mikael Forssell sem kom inná í
stað Eiðs Smára jafnaði að nýju,
2:2, áður en John Terry skoraði
sigurmarkið þegar þrjár mínútur
voru komnar fram yfir venjulegan
leiktíma. Ranieri sagði jafnframt
að markmið Chelsea væri að fara
alla leið í ensku bikarkeppninni, en
áður en að menn færu að láta sig
dreyma um bikara og titla þyrfti
að leysa fjölmörg verkefni og það
næsta væri gegn Aston Villa nk.
laugardag.
Chelsea mætir 1. deildarliðinu
Preston North End í 5. umferð
bikarkeppninnar á heimavelli sín-
um Stamford Bridge en þar gæti
orðið um Íslendingaslag að ræða
verði búið að greiða úr félagskipta-
málum Þórðs Guðjónssonar frá
Las Palmas á Spáni til Preston.
Claudio Ranieri
var himinlifandi