Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 1
2002 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
NJARÐVÍK OG KR BIKARMEISTARAR / B6, B7, B9
KEPPNI í bruni kvenna á Ólympíu-
leikunum í Salt Lake City, sem vera
átti í gær, var frestað þar til í dag
vegna mikils vinds ofarlega í brekk-
unni. Dagný Linda Kristjánsdóttir
verður því að bíða aðeins áður en hún
hefur keppni fyrir Íslands hönd á
leikunum, en Emma Furuvik féll úr
leik er hnémeiðsl tóku sig upp á æf-
ingu í fyrir helgi og því ljóst að hún
keppir ekki í bruninu eins og til stóð.
Annars bar helst til tíðinda síðari
hluta dags í gær að Þjóðverjanum
Georg Hackl mistókst að verða
fyrstur manna til að sigra á fernum
vetrarólympíuleikum í röð. Hackl
keppir í einstaklingskeppni á bobb-
sleða og hafði sigrað á síðustu þrenn-
um leikum.
Í gær varð hann að játa sig sigr-
aðan því Ítalinn Armin Zöggeler var
fljótastur á sleðanum og kom í veg
fyrir met Hackl.
Sigur Ítalans kemur svo sem ekk-
ert á óvart því hann varð annar í
Nagano fyrir fjórum árum og að
þessu sinni munaði mestu að þriðja
ferð Hackl, af fjórum sem kapparnir
renna sér, mistókst og hann fékk
slakan tíma í henni.
Það geta ekki allir unnið
Það er alveg ljóst að á svo stóru
móti sem Ólympíuleikum að allir
geta ekki unnið. Flestir gera sér
grein fyrir því en sumir taka því
mjög illa ef ekki gengur nægilega
vel. Bretar höfðu gert sér vonir um
verðlaun og þar var Lesley
McKenna, sem keppir á snjóbretti.
Henni hlekktist hins vegar heldur
betur á og varð í 17. sæti af 23 kepp-
endum. „Ég er niðurbrotin því ég
veit að ég get svo miklu betur en ég
gerði,“ sagði breska stúlkan.
Glynn Pedersen, skíðastökkvari
Breta, stökk 78,5 metra og var ekki
alveg sáttur við það enda aðstæður
eins góðar og þær geta orðið.
AP
Stuðningsmenn austurríska landsliðsins á skíðum eru fjöl-
mennir í Salt Lake City og hér að ofan bíða þeir eftir bruni
kvenna, en þeir sneru heim þar sem því var frestað. Hér til hlið-
ar fagnar Ítalinn Armin Zöggeler sigri á bobbsleða.
Ekkert varð
af bruninu
Emma Furuvik meidd og keppir ekki
AP
Jóhann
hættur hjá
Gróttu/KR
JÓHANN Samúelsson, sem
leikið hefur með Gróttu/KR í
handknattleik, er hættur.
Hann segir ástæðuna vera
persónulegar milli sín og
Ólafs Lárussonar, þjálfara
liðsins. „Ég fer ekkert nánar
út í það, en þetta gat ekki
gengið lengur þannig að það
var ekki um neitt annað að
gera en hætta. Ég ákvað mig
endanlega nú um helgina“
sagði Jóhann í samtali við
Morgunblaðið.
Jóhann er 33 ára gamall og
„það er sjálfsagt farið að síga
á síðari hlutann hjá manni í
þessu. En þetta er nokkrum
mánuðum fyrr en ég hafði
hugsað mér því ég var eig-
inlega búinn að ákveða að
hætta eftir þennan vetur,“
sagði Jóhann. Hann sagðist
nú ætla að snúa sér að fjöl-
skyldunni og einnig að öðr-
um verkefnum sem hefðu set-
ið á hakanum.