Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 5
FÓLK
GÚSTAF Björnsson þjálfari fékk
óvæntan stuðning þegar hann stýrði
Haukastúlkum gegn ÍBV á laugar-
daginn. Keflavíkurliðið í knatt-
spyrnu var mætt á pallana og hvatti
fyrrverandi þjálfara sinn til dáða.
„NÚ MEIKAR ÞÚ það Gústi“
glumdi í hátalarakerfinu eftir leik-
inn því Keflvíkingar fengu þul leiks-
ins til að spila lagið eftir leikinn.
HAUKAR höfðu greinilega ekki
nógu mikla trú á stuðningi frá áhorf-
endapöllunum því þeir þurftu sér til
fulltingis marga trommuleikara til
að skapa hávaða. Margir töldu það
afturför því flest íþróttahús stefna
að því að losna við slíkan hávaða.
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 B 5
RAGNAR Óskarsson og fé-
lagar hans í Dunkerque
töpuðu fyrir frönsku meist-
urunum í Chambéry í úr-
slitaleik frönsku deildabik-
arkeppninnar í hand-
knattleik um helgina en
átta lið kepptu til úrslita
um titilinn. Chambéry sigr-
aði, 25:19, eftir að hafa
leitt í hálfleik, 11:9. Ragnar
skoraði 3 mörk fyrir Dunk-
erque í sjö skottilraunum.
Í leik um fimmta sætið í
keppninni tapaði Paris SG,
lið Gunnars Berg Viktors-
sonar fyrir Istres, 32:29.
Gunnar Berg skoraði 4
mörk fyrir Paris SG í sjö
skottilraunum.
Dunkerq-
ue missti
af bikar
Hraðinn var mikill til að byrjameð og tíu mörk skoruð áður
en tíu mínútur voru liðnar. Þá kom
bakslag í leik
Haukastúlkna þeg-
ar þeim tókst ekki
að skora úr 8 sókn-
um í röð á 7 mín-
útum. Þjálfari þeirra tók þá leikhlé
og eftir það færðu stúlkurnar sig
framar í vörninni til að stöðva
skyttur gestanna. Fljótlega fór
sóknarleikur Eyjastúlkna að riðlast
en þeim tókst þó að hafa 12:10 for-
ystu í leikhléi.
Gestirnir úr Eyjum skoruðu á
fyrstu mínútu síðari hálfleiks en
síðan liðu tæpar 12 mínútur að
næsta marki á meðan Hafnfirð-
ingar skoruðu sex. Sóknarleikur
ÍBV var hruninn í algeru ráðaleysi
og um leið sjálfstraustið en Hauka-
stúlkur héldu sínu striki og í stöð-
unni 24:18 slökuðu þær alveg á
klónni.
Haukastúlkur voru vel að sigr-
inum komnar með yfirvegaðri sókn
sem skilaði auknu sjálfstrausti sem
aftur hafði áhrif á sóknarleikinn.
„Við sköpuðum okkur færi í fyrri
hálfleik en tókst ekki að nýta þau,“
sagði Inga Fríða Tryggvadóttir,
sem var markahæst Hauka. „Vörn-
in var svo sem ágæt en það eru
góðar skyttur í ÍBV og ef það er
ekki stigið út á móti þeim skora
þær. Við breyttum því vörninni í
síðari hálfleik og fórum lengra út í
þær og það gekk einfaldlega upp í
dag. Fyrri hálfleikur spilaðist alveg
eins og í bikarundanúrslitaleiknum
og verið getum að þær hafi talið að
sigur væri í höfn. Við ætluðum
okkur að sanna að svo væri. Það er
alltaf fúlt að tapa í bikarkeppni en
við spiluðum hörmulega í Eyjum
þó að við værum alltaf inni í þeim
leik en vildum sýna betri leik núna
og vinna,“ bætti Inga Fríða við en
hún var atkvæðamikil á línunni.
Hanna G. Stefánsdóttir og Thelma
Björk Árnadóttir voru einnig góðar
í hornunum enda kom ekki eitt
mark frá Haukum með skotum ut-
an af velli. Jenný Ásmundsdóttir
stóð einnig fyrir sínu í markinu.
Hættum að leika saman
„Við spiluðum fyrri hálfleik svo
sem ágætlega en ég veit ekki hvað
gerðist hjá okkur í hálfleik því það
var öll barátta úr okkur,“ sagði
Vigdís Sigurðardóttir, fyrirliði og
markvörður ÍBV, eftir leikinn.„Lið-
ið hætti að spila saman og ein-
staklingar hættu að þora að skjóta
auk þess að það var enginn kraftur
í vörninni. Það var sárt að sjá þetta
hjá mannskap sem getur miklu
meira,“ bætti Vigdís við og sagði
bikarúrslitaleikinn við Gróttu/KR
um næstu helgi ekki hafa truflað
neitt. „Við erum ekkert farnar að
spá í úrslitaleikinn, stjórnin sér um
alla vinnuna en á morgun byrjum
við að hugsa um hann.“
Fram upp fyrir Víking
Fram skaust upp fyrir Víking
með 22:21 sigri í Safamýrinni á
laugardaginn og er nú komið í 6.
sæti deildarinnar. Framstúlkur
voru með forystuna lengst af og
13:10 í leikhlé en þegar Björk
Tómasdóttir var sett í stranga
gæslu eftir hlé riðlaðist leikur
þeirra og Víkingar náðu tveggja
marka forskoti, 18:16. Þá sýndu
hinar ungu Safamýrarstúlkur góða
baráttu með því að leggja ekki árar
í bát, komust aftur yfir og sigruðu.
„Ég er mjög ánægður með liðið,
sérstaklega með vörnina í fyrri
hálfleik því við ætluðum okkur að
stöðva sendingar inná línuna og
það gekk,“ sagði Þór Björnsson,
þjálfari Framstúlkna, eftir leikinn.
„Þó að leikur okkar hafi riðlast eft-
ir hlé náðu leikmenn sér á strik og
héldu haus, sem sýnir stíganda í
liðinu og að það er að ná tökum á
því að leika í efstu deild.“
Morgunblaðið/Ásdís
Harpa Melsted sækir að marki Eyjastúlkna og skorar eitt af þremur mörkum sínum fyrir Hauka.
Varnarveggur Hauka-
stúlkna ókleifur ÍBV
ÖFLUGUR varnarleikur Haukastúlkna gerði sóknartilburði Eyja-
stúlkna máttlausa þegar liðin mættust í deildarkeppninni á Ásvöll-
um á laugardaginn og með 24:20 sigri tókst Hafnfirðingum að hefna
fyrir tap í undanúrslitum bikarkeppninnar þegar ÍBV vann í Eyjum.
Fyrir vikið sitja Haukastúlkur sem fastast á toppi deildarinnar en
Eyjastúlkur eftir sem áður í því þriðja.
Stefán
Stefánsson
skrifar
SIGURÐUR Bjarnason skoraði 5
mörk og var markahæstur í liði
Wetzlar sem tapaði fyrir Flensburg,
26:21, á útivelli í þýsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik um helgina.
Guðjón Valur Sigurðsson var ekki
á meðal markaskorara í liði Essen
sem vann stórsigur á botnliði Haml-
en, 35:23. Patrekur Jóhannesson lék
ekki með Essen vegna meiðsla.
Kiel sótti Solingen heim og sigraði
30:25. Sænski landsliðsmaðurinn Jo-
hann Petterson var markahæstur í
liði Kiel með 8 mörk en félagar hans í
Evrópumeistaraliði Svía, Staffan
Olsson, Stevan Lövgren og Magnus
Wislander, höfðu hægt um sig. Ols-
son skoraði 2 mörk, Wislander 1 en
Lövgren komst ekki á blað.
Lemgo vann öruggan sigur á
Grosswallstadt, 28:21, og heldur
þriggja stiga forskoti á Kiel.
Sigurður
skoraði fimm