Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 12
FORRÁÐAMENN þýska
liðsins Kaiserslautern stað-
festu í gær að menn frá
enska liðinu Bolton hefðu
fengið leyfi til að hefja við-
ræður við franska lands-
liðsmanninn Youri Djork-
aeff, sem hefur misst sæti
sitt í byrjunarliði Kaisers-
lautern.
Djorkaeff hefur fengið
staðfestingu á því hjá Andr-
eas Brehme, þjálfara Kais-
erslautern, að hann sé ekki
inni í framtíðarplani hans.
Það eru því miklar líkur á
að Djorkaeff taki tilboði frá
Bolton á næstu dögum.
Djorkaeff
á leið til
Bolton
FORMAÐUR framkvæmdastjórn-
ar vetrarólympíuleikanna í Salt Lake
City, Mitt Romney, tók að sér að
stýra umferðinni við keppnisstað
brunkeppni karla á sunnudaginn.
Romney var sjálfur að fara til keppn-
isstaðarins á bíl en komst ekkert
áfram en greip þá til þess ráðs að
stýra umferðinni inná hliðargötur
sem greiddu úr flækjunni.
ROMMEY segir að áhorfendur taki
ekki mark á skiltum sem sett hafi ver-
ið til leiðbeiningar og það orsaki mikl-
ar umferðartafir við keppnistaðina.
ÞÝSKI innanríkisráðherrann, Otto
Schily, hrósar öryggisgæslunni á ÓL
í Salt Lake í hástert og segir jafn-
framt að þeir sem sinni gæslunni séu
samt sem áður vinsamlegir í viðmóti.
MARKVÖRÐUR ísknattleiksliðs
Slóvakíu, Jan Lasak, kom bandarísk-
um áhorfendum á óvart þar sem hann
hitaði upp fyrir leik gegn Lettum.
LASAK grýtti öllum pökkunum
sem notaðir voru við upphitun liðsins
uppí áhorfendasvæðin en því eiga
áhorfendur ekki að venjast.
SKÍÐAGÖNGUMAÐUR frá Kosta-
ríku, Arturo Kinch, fékk keppnisleyfi
á elleftu stundu þar sem hann gat
sannfært keppnisstjórnina um að
ágreiningur innan stjórnar keppnis-
liðs Kostaríku hefði gert honum erfitt
fyrir og ekki tilkynnt um þátttöku
hans.
GAIA Bussani Antivari frá Gran-
ada fékk hinsvegar ekki leyfi til að
keppa í svigkeppni kvenna þar sem
Ólympíunefnd Granada hafði ekki
ráðgert að senda keppendur á vetr-
arleikana en Antivari óskaði eftir því
að fá að taka þátt á síðustu stundu en
var neitað.
SAMPPA Lajunen, sem vann gullið
í norrænni tvíkeppni, var með hár sitt
litað í finnsku fánalitunum. Í heima-
landinu er Lajunen einnig þekktur
sem gítarleikari í hljómsveit sem
nefnist „Gestastjörnurnar“. Lajunen
var ekki hrifin af spurningum
finnskra blaðamanna um hljómsveit-
ina. „Gleymiði bandinu – ég vann gull
á ÓL,“ sagði Lajunen.
FRITZ Strobl gullverðlaunahafi í
bruni karla var með skýringarnar á
hreinu eftir keppnina. „Ég er í her-
bergi númer 1-1-1 og varð fyrstur. Í
Nagano var ég með herbergi númer
11 og varð ellefti í mark. Þetta getur
ekki verið tilviljun,“ sagði Strobl, sem
er lögreglumaður í heimalandi sínu,
Austurríki.
BRESKI fáninn var dreginn í hálfa
stöng á keppnistöðum ÓL í Salt Lake
City í minningu Margrétar prinsessu
sem lést í London á laugardag.
FÓLK
Það var mikil spenna í keppniþeirra Belmondo og Lazutina
og margir héldu að spilið væri búið
hjá þeirri ítölsku þegar hún braut
skíðastaf í miðri keppni. „Ég öskraði
á mína menn sem áttu að vera með
stafi tilbúna við brautina en ég sá
ekki neinn. Það var erfitt að ganga
um 500 metra með aðeins einn staf,“
sagði Belmondo.
Lazutina var ekki ánægð með ör-
yggisgæsluna á leikunum. „Þetta er
of mikið af því góða. Þeir þefuðu af
vatninu sem ég ætlaði að nota í
keppninni og grömsuðu sig í gegnum
allt sem við vorum með. Ég kom
hingað til að keppa í skíðagöngu en
ekki til þess að gera eitthvað af
mér,“ sagði sú rússneska allt annað
en ánægð með öryggismálin.
Spánverji sigraði í göngu
Spánverjar eru ekki vanir að
fagna sigri í skíðagöngu karla og
hinn þýskættaði Johann Mühlegg sá
til þess að fyrstu gullverðlaun Spán-
verja í þrjátíu ár voru þeirra. Muehl-
egg sigraði í 30 km göngu með
frjálsri aðferð en Mühlegg keppti áð-
ur undir merkjum Þýskalands áður
en hann fékk spænskt ríkisfang.
Laganna vörður
kom á óvart í bruninu
Það kom fáum á óvart að baráttan
um gullið í bruni karla á ÓL í Salt
Lake yrði innbyrðisbarátta gríðar-
sterks liðs Austurríkismanna en það
sem kom mest á óvart var að það var
lögreglumaðurinn Fritz Strobl sem
stóð á pallinum með gullið um háls-
inn. Strobl sinnir starfi sínu sam-
hliða skíðamennskunni en var ekki í
vandræðum með að koma fyrstur í
mark í 3.000 metra langri brunbraut-
inni í Utah. „Ég hugsaði ekki um að
sigra heldur aðeins að komast niður
brautina. Að ég skyldi sigra er hreint
út sagt ótrúlegt,“ sagði Strobl en
hann er sjötti Austurríkismaðurinn
sem sigrar í bruni á ÓL í þau 15
skipti sem keppt hefur verið í grein-
inni. Norðmaðurinn Lasse Kjus varð
annar í röðinni og Stephan Eber-
harter sem var talinn sigurstrang-
legastur varð þriðji.
Það vakti athygli að allir skíða-
mennirnir sem tóku þátt í brun-
keppninni luku allir keppni en það
hefur ekki gerst fyrr á ÓL.
Belmondo vann
slaginn við Lazutinu
STEFANIA Belmondo frá Ítalíu vann til fyrstu gullverðlaunanna á
vetrarólympíuleikunum sem hófust í Salt Lake City um helgina. Hin
33 ára gamla Belmondo kom fyrst í mark í 15 km göngu kvenna með
frjálsri aðferð en þetta er í áttunda sinn sem hún nær í verðlaun á
ÓL en þau fyrstu komu í Albertville árið 1992. Larissa Lazutina frá
Rússlandi varð önnur, aðeins 1,8 sekúndum á eftir Belmondo, en
Lazutina hefur einnig náð í átta verðlaun á ÓL.
■ Úrslit/B11
ÞAÐ vissu fáir hver Svisslending-
urinn Simon Ammann var áður
en hann hóf keppni í skíðastökki
af 90 metra palli á ÓL á sunnu-
daginn. Allir áttu von á því að
Þjóðverjinn Sven Hannawald og
hinn pólski Adam Malysz myndu
fljúga lengst allra en hinn smá-
vaxni og léttbyggði Ammann
skaut þeim aftur fyrir sig í
keppninni. Hannawald varð ann-
ar og Malysz þriðji. Þetta er í
fyrsta sinn sem Svisslendingur
sigrar í skíðastökki og sigurinn
var því enn sætari fyrir Ammann.
„Ég titra enn,“ sagði Ammann
þremur tímum eftir að honum
varð ljóst að hann hafði sigrað.
„Yfirleitt titra ég rétt áður en ég
renni mér af stað en núna titra
ég af geðshræringu,“ bætti Am-
mann við en hann missti af tveim-
ur keppnum í vetur vegna
meiðsla sem hann hlaut í keppni
en nafn hans var aldrei nefnt á
nafn þegar spekingar vestanhafs
veltu fyrir sér möguleikum kepp-
enda í skíðastökkinu.
Alan Alborn frá Bandaríkj-
unum, sem var talinn geta bland-
að sér í baráttuna og náð í fyrstu
verðlaun Bandaríkjamanna í
greininni í 78 ár, endaði 11. sæti.
AP
Simon Ammann frá Sviss stökk lengst og tryggði sér gull.
Ammann
var aldrei
nefndur
á nafn
ÞRÁTT fyrir sex aðgerðir á hné
og nú síðast í desember á sl. ári
tókst Emese Hunyady frá Aust-
urríki að gera það sem hana hef-
ur alltaf dreymt um en það er að
sigra í 3000 metra skautahlaupi
á Ólympíuleikum. Hunyady,
sem er 35 ára og er að taka þátt í
sjöttu vetrarleikum sínum,
gerði gott betur því hún setti
heimsmet í greininni í Salt Lake
City en það var í eigu Gunda
Niemann-Stirnemann sem setti
það í Nagano fyrir fjórum árum.
„Ég er ótrúlega hamingju-
söm þar sem ég var ekki viss um
að verða valin í liðið vegna hné-
meiðslanna en þessi gullpening-
ur er mér mikils virði,“ sagði
Hunyady en hún vann til gull-
verðlauna á ÓL 1994 í 1.500 m
skautahlaupi og segist Hunyady
ætla að ná í þann titil aftur.
Í 5.000 metra skautahlaupi
karla var Hollendingurinn
Jochem Uytdehaage fljótastur
– setti nýtt heimsmet.
Hunyady
upplifði
drauminn