Morgunblaðið - 26.02.2002, Side 1
2002 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞRÍR FÉLLU Á LYFJAPRÓFI Á ÓL Í SALT LAKE / B5
ARON Kristjánsson, landsliðs-
maður í handknattleik og leik-
stjórnandi Íslands- og bikarmeist-
ara Hauka, er með tilboð upp á
vasann frá spænska 1. deildarlið-
inu Valencia. Aron lék sem kunn-
ugt er mjög vel með íslenska
landsliðinu á Evrópumótinu í
Svíþjóð fyrir skömmu og þar
kviknaði áhugi forráðamanna
Valencia að reyna að krækja í Ar-
on en þeir fylgdust grannt með
mótinu eins og fleiri forráðamenn
félaga frá Þýskalandi og Spáni.
Aron, sem kom heim síðastliðið
sumar eftir nokkurra ára dvöl í
Danmörku þar sem hann lék með
Skjern, er samningsbundinn
Haukunum en samningur hans
við Hafnarfjarðarliðið rennur út
eftir næsta tímabil.
„Það er auðvitað gaman að fá
svona tilboð og það er mjög freist-
andi að stökkva á það. Ég þarf
hins vegar að ræða við Haukana
áður en ég tek ákvörðun. Ég er
samningsbundinn þeim svo ef það
kemur til að ég fari til Spánar
verður Valencia að semja við
Hauka,“ sagði Aron í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Aron segir að forráðamönnum
Valencia sé kunnugt um að hann
sé samningsbundinn Haukum og
hann segir að það ætti að skýrast
fljótlega hver niðurstaðan verður.
Valencia er í áttunda sæti af 18
liðum í spænsku 1. deildinni með
18 stig í jafnmörgum leikjum.
Aron Kristjánsson er
með tilboð frá ValenciaSVANA Jóhannsdóttir, GFD, sésthért glíma við Ingu Gerðu Péturs-
dóttur, HSÞ, í þriðja mótinu í
Landsglímunni. Inga Gerður varð
sigurvegari í síðasta mótinu, fékk
átta vinninga af níu mögulegum, en
Svana varð í öðru sæti eftir auka-
glímu við Hildigunni Káradóttur,
HSÞ. Svana varð aftur á móti sig-
urvegari í Landsglímunni, fékk 17
stig úr mótunum þremur. Inga
Gerða var í öðru sæti með 15 stig.
Lárus Kjartansson, HSK, varð
sigurvegari í Landsglímunni í
karlaflokki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svana og
Lárus sigur-
vegarar
■ Úrslit/B11