Morgunblaðið - 26.02.2002, Blaðsíða 5
ÓL Í SALT LAKE CITY
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 B 5
Knattspyrnuskóli
Bobby Charlton
ÍT ferðir hefur fengið umboð fyrir hinn virta og
vinsæla knattspyrnuskóla Bobby Charlton
í Englandi.
Skólinn hentar einkum fyrir 13-16 ára, stráka og stelpur.
Ferðir fyrir einstaklinga, lið og litla hópa í júlí og ágúst, t.d. 1.-8. ágúst,
3.-12. ágúst o.fl. Tilvalin fermingargjöf fyrir fótboltastelpur og -stráka!
Alltaf íslenskur fararstjóri með í för!
Gerið verðsamanburð!
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Ferðaskrifstofa íþróttamannsins!,
sími 588 9900, fax 588 9901,
netfang: itferdir@itferdir.is
ERYTHROPOIETIN, EPO, er
hormón sem finnst í öllum mann-
eskjum enda framleitt í líkam-
anum. Darbopetin eða NESP er
endurbætt útgáfa af EPO sem gert
er á rannsóknarstofum og er talið
vera mun áhrifaríkara en EPO.
Hormónin er einnig hægt að fá í
sprautuformi en þau stýra og hafa
áhrif á framleiðslu rauðra blóð-
korna (hemoglobín). Fjölgun
rauðra blóðkorna hefur áhrif á af-
kastagetu blóðrásarkerfisins til
þess að flytja súrefni sem leiðir af
sér, að viðkomandi íþróttamaður
getur aukið úthald sitt og þrek.
Í skíðagöngu hefur verið sett
efri mörk á hlufall hemoglóbíns
fyrir keppni en karlar mega vera
með allt að 17,5 grömm í hverjum
dl og konur 16,5. Sem dæmi má
nefna að íþróttamaður sem eykur
hlutfall hemoglóbíns úr 14,8 og í
15,8 getur búist við að úthaldið
aukist um allt að 5% og því er eftir
miklu að slægjast í keppni þeirra
bestu.
Hvað er EPO og NESP?
KANADAMENN brutu loks ís-
inn í ísknattleikskeppni karla-
liða á vetrarólympíuleikunum í
Salt Lake City, ís sem ekki hafði
haggast í hálfa öld. „Það verður
þjóðhátíð norðan við landamær-
in,“ sagði varnarmaðurinn
Adam Foote eftir 5:2 sigur á
Bandaríkjamönnum í úrslita-
leiknum. Heimamenn höfðu ekki
tapað í 24 leikjum í röð á vetr-
arleikum sem haldnir hafa verið
í Bandaríkjunum. „Fáir bjugg-
ust við þessu, sérstaklega eftir
að við töpuðum opnunarleiknum
gegn Svíum, 5:2.“
Forráðamenn Kanada sögðu
að herbragð Dan Craigs, sem
lék áður í landsliði Kanada,
hefði heppnast en Craig skildi
eftir lukkutröll liðsins í keppn-
isísnum áður en leikarnir hófust
og var „dúkkan“ frosin í ísnum
alla keppnisdagana.
Joe Sakic skoraði tvö marka
Kanada, Jarome Iginla bætti við
tveimur og Paul Kariya skoraði
eitt.
Sakic skoraði fjögur mörk og
gaf þrjár stoðsendingar á leik-
unum og var valinn besti maður
keppninnar.
Martin Brodeur, markvörður
Kanada, átti einnig stórkostleg-
an leik en hann varði 31 af alls
33 skotum Bandaríkjamanna.
Faðir hans var í bronsliði Kan-
ada á vetrarleikunum árið 1956.
Wayne Gretzky, skærasta
stjarna Kanadamann fyrr og
síðar fagnaði sigrinum gríð-
arlega en hann var í hlutverki
framkvæmdastjóra liðsins og
liðsmenn Kanada sögðu að
Gretzky hefði haft mikil áhrif á
liðið. Gretzky valdi ma. liðið
ásamt þjálfurum þess en aðstoð-
arþjálfari liðsins, Ken Hitch-
cock, sagði að goðsögnin hefði
dregið liðið áfram á erfiðum
stundum í keppninni og engu
máli hefði skipt hvort um var að
ræða lykilmenn liðsins eða vara-
menn sem lítið fengu að spila.
Gretzky fór ekki út á ísinn til
þess að taka við verðlaunum
liðsins og sagði að leikmennirnir
ættu að eiga þá stund fyrir sig.
Gretzky
hafði mikil
áhrif á liðið
FRAKKAR fögnuðu tvöföldum sigri
í svigi karla á vetrarólympíuleik-
unum í Salt Lake City. Kristinn
Björnsson hafnaði í 22. sæti og Jó-
hann Friðrik Haraldsson varð í 29.
sæti en þeim Kristni Magnússyni og
Björgvini Björgvinssyni tókst ekki
að ljúka keppni. 78 keppendur voru
skráðir til leiks og tókst aðeins 34
þeirra að ljúka keppni.
Kristinn, sem tók þátt í sínum
fjórðu vetrarleikum, var talsvert
frá sínu besta en hann er sem kunn-
ugt nýbyrjaður að keppa á nýjan
leik eftir erfið meiðsli í hné. Frakk-
ar unnu tvöfaldan sigur – Jean-
Pierre Vidal varð hlutskarpastur á
1.41,06 mín. og Sebastian Amiez
varð annar á 1.41,82 mín. Bretinn
Alain Baxter vann óvænt brons-
verðlaunin en þetta er í fyrsta sinn
sem Breti kemst á pall í alpagrein-
um á vetrarólympíuleikunum. Hann
kom í mark á 1.42.32 mín.
Kristinn kom í mark níu sek. eftir
sigurvegaranum, á tímanum 1.49,81
mín. og Jóhann Friðrik var rúmlega
sextán sekúndum á eftir sigurveg-
aranum, á 1.57,17 mínútum.
Tvöfaldur
sigur hjá
Frökkum
AP
Kristinn Björnsson í svigkeppninni í Deer Valley.
Skíðagöngumaðurinn JohannMühlegg skráði sig á spjöld
sögunnar með því að sigra í 30 km
göngu en aldrei áður höfðu Spán-
verjar fagnað sigri í þeirri grein.
Mühlegg bætti um betur og sigr-
aði í 10 km eltigöngu og enn var
komið að Mühlegg þar sem hann
sigraði í 50 km göngu og fullkomn-
aði þrennuna, en enginn skíða-
göngumaður hefur áður náð að
landa þremur gullverðlaunum í
einstaklingskeppni á vetrarólymp-
íuleikum.
Betri útgáfa
af EPO
En hinn þýskættaði Mühlegg
fékk ekki að fagna gullinu í 50 km
göngunni lengi á sunnudaginn því í
blóðsýni sem tekið var af honum á
fimmtudag greindust ummerki um
blóðþynningarlyfið darbopetin, eða
NESP, sem er betri útgáfa af
blóðþynningarlyfinu EPO.
Rússnesku stúlkurnar Larissa
Lasutina og Olga Danilova reynd-
ust einnig hafa notað sama lyfið og
Mühlegg. Lasutina hafði sigraði í
30 km göngu og var þar með í
öðru sæti á lista þeirra sem flest
verðlaun hafa hlotið á vetrarleik-
um frá upphafi.
Lasutina náði um stundarsakir
tíundu verðlaunum sínum á ferl-
inum en áður hafði hún unnið sex
gull, þrjú silfur og eitt brons.
Norðmaðurinn Bjørn Dæhlie
hefur unnið flest verðlaun á vetr-
arleikum, átta gull og fjögur silfur.
Grunuðu Mühlegg
um græsku
Talsmenn WADA sögðu í gær
að Mühlegg hefði verið undir
smásjá þeirra allt frá því í desem-
ber þar sem hann þótti sýna óeðli-
legar framfarir á stuttum tíma.
Mühlegg fékk spænskt ríkisfang
árið 1999 en hann keppti áður fyr-
ir Þjóverja þar sem hann er fædd-
ur og uppalinn. Dagblaðið El
Mundo segir að fallið hafi verið
hátt hjá Mühlegg eftir að hann
hafði unnið mestu afrek í sögu
spænskra vetraríþrótta – og að nú
vilji Spánverjar ekkert vita af hon-
um – enda sé Mühlegg í raun
Þjóðverji.
Stærsta lyfjamál ólympíuleika síðan í Seoul árið 1988 þar sem Ben Johnson missti æruna
Þrír féllu á lyfja-
prófi í Salt Lake
FYRIR ári í heimsmeistarakeppni í Lahti í Finnlandi voru það finnsk-
ir skíðagöngumenn sem féllu í gildruna og voru staðnir að notkun
blóðþynningarlyfsins EPO. Nú ári síðar var Alþjóðalyfjaeftirlitið,
WADA, betur í stakk búið vegna EPO og að auki átti WADA tromp
uppí erminni sem íþróttamenn og -konur vissu ekki af. Norskir fjöl-
miðlar segja í dag að ekki hafi komið upp stærra lyfjamál á ólympíu-
leikum síðan kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson féll í Seoul
árið 1988.
Larisa Lasutina Reuters
Johann Muehlegg