Morgunblaðið - 26.02.2002, Side 9
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 B 9
ESSEN skaust upp í annað sæti í
þýsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik á sunnudag. Essen sótti
heim Post Schwerin og vann fjög-
urra marka sigur, 25:21. Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði 1 mark
fyrir Essen en Patrekur Jóhann-
esson lék ekki með liðinu vegna
meiðsla. Rúmenski landsliðsmað-
urinn Licu var langmarkahæstur
allra á vellinum en hann skoraði
15 mörk.
Gústaf Bjarnason skoraði 3
mörk fyrir Minden en þau dugðu
skammt því Minden lá á útivelli
fyrir Nordhorn, 35:30. Norski
landsliðsmaðurinn Frode Hagen
var í miklu stuði í liði Norhorn og
skoraði 11 mörk.
Sigurður Bjarnason lék ekki
með Wetzlar vegna meiðsla sem
sigraði Solingen á útivelli, 32:28.
Lemgo, sem ekki lék í deildinni
þar sem liðið mætti Kiel í EHF-
keppninni, er í efsta sæti með 35
stig, Essen er í öðru sæti með 32
stig og Kiel í þriðja með 30 en lið-
ið á tvo leiki til góða.
Essen í annað sætið
Langt fram í fyrri hálfleik í Garða-bænum voru sóknarlotur langar
því liðin fóru afar varlega og sýndu
mikla þolinmæði.
Helst voru það
Harpa Melsteð í
Haukum og Anna B.
Blöndal í Stjörnunni,
sem tóku af skarið. Fyrri hluta hálf-
leiksins náði hvort lið aðeins 8 sókn-
um en í þeim síðari 12, sem er samt
ekki mikið en í síðari hlutanum gekk
flest upp hjá Hafnfirðingum, sem
skoruðu sjö mörk á móti þremur
Garðbæinga svo að staðan í leikhléi
var 8:12.
Síðari hálfleikur var öllu líflegri en
Haukar misstu tvívegis leikmann út-
af á fyrstu átta mínútunum og brá
nokkuð við enda nýtti Stjarnan það
til að minnka muninn niður í 1 mark.
En í stað þess að láta kné fylgja kviði
fataðist Garðbæingum flugið, Hauk-
ar náðu aftur fjögurra marka forystu
en tókst heldur ekki að fylgja því eft-
ir og þegar tæpar 7 mínútur voru til
leiksloka var staðan 18:18 þrátt fyrir
glæsileg mörk Haukastúlkunnar
Nínu K. Björnsdóttur sem lék í
fyrsta sinn gegn sínum fyrri fé-
lögum. Spennan var mikil og Haukar
skora tvö mörk úr næstu fjórum
sóknum en hjá Stjörnunni fór allt í
handaskolum, ýmist varði Jenný Ás-
mundsdóttir eða skotið var í slá eða
stöng. Ekki bætti úr skák að Herdís
Sigurbergsdóttur úr Stjörnunni var
vikið af leikvelli en þeim tókst engu
að síður að minnka muninn í eitt
mark tæpri mínútu fyrir leikslok.
Haukar fóru í sókn og sluppu tvíveg-
is við að fá dæmdan á sig ruðning en
tókst að halda út þessa mínútu og
fögnuðu ærlega.
„Við áttum á brattann að sækja,
byrjuðum betur en svo kom ljótur
kafli sem kom Haukum í forystu og
við vorum að elta þetta forskot allan
leikinn, það tók mikla orku að ná því
aftur og síðan fórum við illa með góð
færi í lokin,“ sagði Ragnheiður
Stephensen, stórskytta úr Stjörn-
unni, eftir leikinn. „Ég er ekki vön að
setja út á dómara en held að það hafi
hallað meira á okkur, sérstaklega í
lokin en það breytir ekki öllu með
leikinn.“ Hún telur þó ekki alla von
úti enn með að sigra í deildinni. „Með
allri virðingu fyrir liðunum sem
Haukar eiga eftir að spila við var
þetta úrslitaleikur fyrir Hauka og ef
úrslit verða „eftir bókinni“ verða
þeir deildarmeistarar. Við eigum eft-
ir að leika við ÍBV, sem skiptir okkur
mestu máli en Haukastelpur verða
að tapa þremur stigum til að við eig-
um möguleika á deildarmeistaratitli
því þær eru með mun betri marka-
hlutfall,“ sagði Ragnheiður. Jelena
Jovanovic varði 21 skot, þar af fjögur
víti, og var langbest en Anna var
einnig góð. Ragnheiður, Halla María
Helgadóttir og Margrét Vilhjálms-
dóttir áttu góða en stutta spretti.
„Við fengum fimm víti, vorum
tvisvar fjórum mörkum yfir og sigr-
um svo með einu marki en svona er
lífið; gerir auðvelda hluti erfiða,“
sagði Brynja Steinsen úr Haukum
eftir leikinn. „Það er erfiðara að spila
við leikmenn, sem maður þekkir vel
og veit hvað þeir ætla sér að gera,
því ef það gengur upp hjá þeim verð-
ur maður eins og kjáni. Þetta á við
bæði lið, Stjörnustelpur vissu að ég
myndi gefa á Ingu Fríðu á línunni en
samt gekk það upp. Mér fannst held-
ur halla á okkur dómgæslan um tíma
en leikmenn beggja liða eiga að
skammast sín fyrir allt tuðið því það
gerði leikinn aðeins leiðinlegri,“
bætti Brynja við, ánægð með að liðið
þyrfti ekki að treysta á aðra til að
sigra í deildinni. „Við lögðum upp
með að þessi leikur skipti höfuðmáli,
það kæmu aðrir á eftir en við hefðum
þá styrkt stöðu okkar með þriggja
stiga forskoti á Stjörnuna og fimm á
ÍBV. Við höfum komið okkur vel fyr-
ir í efsta sæti og þurfum ekki að
treysta á mistök annarra, heldur
bara á okkur sjálfar.“ Ásamt Brynju
voru Jenný markvörður, Harpa og
Inga Fríða Tryggvadóttir góðar en
Nína og Thelma Bj. Árnadóttir
gerðu ágæta hluti.
Helga gerði
gæfumuninn í Víkinni
Í Víkinni náðu heimasæturnar
strax yfirhöndinni á móti FH en
tókst þó ekki að ná góðum tökum á
leiknum fyrr en í síðari hálfleik þeg-
ar Helga Torfadóttir, sem varið
hafði 5 skot fyrir hlé eins og mark-
vörður FH, tók til sinna ráða og
varði fjórtán. „Ég held að bæði lið
hafi komið tilbúin í þennan leik en
það gekk frekar upp það sem við ætl-
uðum og þetta var mikilvægur sig-
ur,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari
Víkinga, eftir leikinn, sáttur við
25:24 sigur.
Á Seltjarnarnesi byrjaði Grótta/
KR af meiri krafti og náði 7 marka
forystu eftir tuttugu mínútur. „Þær
gripu okkur í bólinu en við náðum
aðeins að klóra í bakkann. Það var
samt ekki fyrr en eftir hlé að það
varð hugarfarsbreyting hjá okkur að
við komumst inn í leikinn,“ sagði
Elvar Erlingsson, þjálfari Vals, eftir
leikinn. Staðan í hálfleik var 14:9 fyr-
ir Gróttu/KR en um miðjan síðari
hálfleik jöfnuðu Valsstúlkur og tókst
að sigra 25:23 á síðustu tíu mínútun-
um. „Við erum nú traustar í fjórða
sæti og höldum áfram að tína inn
stig,“ hélt þjálfarinn áfram. „Það er
vænlegt að fá heimaleik í úrslita-
keppninni en það eru fjórir leikir eft-
ir og ekkert má útaf bera. Hinsvegar
er þetta þriðji sigur okkar í röð og
ekki sá síðasti.“
Létt hjá Eyjakonum
Nýkrýndir bikarmeistarar ÍBVhöfðu yfirhöndina allan leikinn
gegn Fram og áttu gestirnir aldrei
möguleika, 33:20.
Eyjastúlkur komu
mjög ákveðnar til
leiks í byrjun og
skoruðu átta fyrstu
mörk leiksins. Fram-
stúlkur náðu þá loks að komast á
blað eftir tíu mínútna leik. Eftir það
misstu ÍBV stelpur einbeitinguna og
fóru að hætta að vinna saman sem lið
heldur ætlaði hver og ein að gera
hlutina upp á eigin spýtur. Það hefur
aldrei boðað gott enda náðu Fram-
arar að minnka muninn í fjögur
mörk í stöðunni, 11:7. En nær kom-
ust Framarar ekki í leiknum því
Eyjakonur vöknuðu af værum
blundi og sigur þeirra var öruggur.
Besti maður vallarins var Andrea
Atladóttir sem skoraði alls sjö mörk í
öllum regnbogans litum auk þess
sem hún mataði samherja sína og
sendi fjöldann allan af stoðsending-
um. Annar leikmaður sem stóð sig
mjög vel var Þórsteina Sigurbjörns-
dóttir, 17 ára Eyjamær, sem hefur
ekki fengið mikið að spreyta sig í
vetur. Hún nýtti svo sannarlega
tækifærið sem hún fékk því hún
skoraði sex mörk úr sex tilraunum.
,,Þetta var frekar létt í dag,
kannski hálfgerð prófraun eftir bik-
arúrslitaleikinn. Samt komu kaflar í
þessum leik, svona upp og niður, sem
við vorum alls ekki sáttar við en við
náðum að halda haus og spila okkar
bolta og þá kom bara getumunurinn
í ljós. Um miðjan fyrri hálfleikinn
slökuðum við á og þá kom bara
kæruleysi í mannskapinn og allir
vildu ná boltanum og allir vildu
skora. Þá tókum við leikhlé og töl-
uðum um að spila okkar bolta og
gera þetta almennilega sem er
kannski stærsta prófið í svona leikj-
um. Að reyna að spila alltaf eins vel
og þú getur alveg sama hver and-
stæðingurinn er og við náðum því í
seinni hálfleik og kláruðum þetta svo
með stæl. Það gengur mjög vel að
koma stelpunum niður á jörðina eftir
bikarúrslitaleikinn og eins og ég
segi; þessi leikur var kannski próf-
raunin. Ungu stelpurnar komu
sterkar inn og ég er mjög ánægður
með það. Þær fengu tækifæri og
nýttu sér það,“ sagði Erlingur
Richardsson, þjálfari Vestmanney-
inga.
Haukastúlkur eru
í góðum málum
HELDUR rættist úr viðureign
Stjörnunnar og Hauka þegar lið-
in mættust í Garðabænum á
laugardaginn. Efsta sæti deild-
arinnar var í húfi og setti það
svip sinn á leikinn, sem byrjaði
heldur varfærnislega en lauk
með æsispennandi lokamín-
útum þegar Haukastúlkur höfðu
20:19 sigur. Þær hafa því komið
sér makindalega fyrir á toppi
deildarinnar með gott forskot á
næstu lið, Stjörnuna og ÍBV,
sem þær hafa þegar leikið við,
og deildarsigur veltur algerlega
á því hvort þær standa sig í
stykkinu – ekki á óförum ann-
arra. Valsstúlkur eru áfram í 4.
sæti deildarinnar eftir 25:23
sigur á Gróttu/KR og Víkingum
tókst að taka 6. sætið af FH með
25:24 sigri í Víkinni.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðríður Margrét Vilhjálmsdóttir, Stjörnunni, nær ekki að stöðva Hörpu G. Melsted, Haukum.
Einar
Hlöðver
Sigurðsson
skrifar
RÓBERT Sighvatsson skoraði 5
mörk fyrir Düsseldorf og Gylfi
Gylfason 4 þegar liðið gerði jafntefli,
27:27, á móti Gensungen í norður-
riðli þýsku 2. deildarinnar í hand-
knattleik um helgina. Düsseldorf er í
fjórða sæti.
HARALDUR Þorvarðarson skor-
aði 3 mörk fyrir Stralsrunder sem
sigraði TV Grambke, 31:19, í suð-
urriðli 2. deildarinnar. Stralsrunder
er í 7. sæti deildarinnar.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson og
félagar hans í Conversano sigruðu
Ascoli, 25:20, í ítölsku 1. deildinni í
handknattleik um helgina. Convers-
ano er í fjórða sæti deildarinnar með
40 stig. Bologna er efst með 46,
Prato 44 og Trieste 42.
MODENA, lið Hilmars Þórlinds-
sonar, tapaði á útivelli fyrir Ancona,
33:30. Modena er í 9. sætinu með 19
stig.
FÓLK
RAGNAR Óskarsson skoraði 9
mörk fyrir Dunkerque sem sigraði
Paris SG, 27:25, á útvelli í frönsku
1. deildinni í handknattleik um
helgina. Ragnar var mjög atkvæða-
mikill í sóknarleik sinna manna.
Hann stjórnaði leik liðsins eins og
herforingi og skoraði grimmt.
„Ég fann mig mjög vel í leiknum
og þetta er örugglega einn af mín-
um betri leikjum með Dunkerque,“
sagði Ragnar í samtali við Morg-
unblaðið.
Ragnar sagði að Gunnar Berg
Viktorsson, félagi sinn í íslenska
landsliðinu, hefði ekki getað leikið
með Parísarliðinu vegna meiðsla í
öxl og hefði munað um minna fyrir
heimaliðið.
„Við erum mjög ánægðir með
gengi okkar í vetur og við höfum
sett stefnuna á að ná öðru sætinu.
Mér sýnist á öllu að Montpellier
verði meistari en baráttan um ann-
að sætið og jafnfram Evrópusæti
kemur til með að standa á milli okk-
ar og Creteil.“
Ragnar er markahæsti leik-
maður Dunkerque á leiktíðinni en
hann hefur skorað 81 mark og er í
sjötta sæti yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar. Samningur
Ragnars við franska liðið rennur út
í vor og sagði Ragnar að ekkert
væri byrjað að ræða framhaldið.
„Það er vel inni í myndinni að
vera hér áfram en ég hef samt ekk-
ert verið að velta mér upp úr því.
Það skýrist þegar líður á vorið
hvort ég verði hér áfram eða fari
eitthvað annað,“ sagði Ragnar.
Montpellier er efst í deildinni
með 46 stig, Creteil og Dunkerque
koma næst með 39 stig og í fjórða
sætinu er Istres með 35 stig. Paris
SG er í sjötta sæti með 34 stig.
Ragnar
með 9
mörk í sigri
Dunkerque
Ragnar Óskarsson