Morgunblaðið - 05.03.2002, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í
vetur hefur Brentford
blandað sér af krafti í topp-
baráttu 2. deildarinnar og Ív-
ar er einn af hornsteinum
liðsins en hann er sá eini sem
hefur leikið alla leiki þess á tíma-
bilinu; meira að segja hverja ein-
ustu mínútu í þeim öllum, og fengið
mjög góða dóma fyrir frammistöðu
sína. Ívar hefur lengst af sínum
ferli leikið sem miðjumaður en nú
er hann kominn í vörnina þar sem
hann kann best við sig.
„Já, það er engin spurning að
þetta er mitt besta tímabil hjá fé-
laginu. Ég þakka það ekki síst því
að ég er búinn að spila sömu stöðu
allt tímabilið. Þegar Steve Coppell
tók við liðinu í fyrrasumar lét hann
mig strax á undirbúningstímabilinu
spila alla leiki sem miðvörður og
þar hef ég verið í öllum leikjum
vetrarins til þessa. Fram að því
hafði ég spilað hér og þar á vell-
inum, allar stöðurnar í þriggja og
fjögurra manna miðju og allar stöð-
ur í bæði þriggja manna og fjög-
urra manna vörn, og var meira að
segja í framlínunni um tíma. Ég var
orðinn þreyttur á þessum til-
færslum og það er allt annað að
geta einbeitt sér að einni stöðu.“
Tek hiklaust þátt
í sóknarleiknum
Þrátt fyrir að Ívar sé kominn aft-
ar á völlinn hefur hann skorað fleiri
mörk en áður og er fjórði marka-
hæsti leikmaður Brentford í vetur
með 5 mörk.
„Ég er þegar kominn með einu
marki meira en allt tímabilið í fyrra
og held vonandi áfram að lauma inn
einu og einu. Ég fer fram í öllum
föstum leikatriðum en ég hef samt
skorað fjögur af þessum mörkum
með því að taka lengur þátt í um-
ræddum sóknum og þá með skotum
frá vítateig. Ég hef ákveðið frelsi að
þessu leyti, Coppell hefur aldrei
skammað mig fyrir að taka þátt í
sóknarleiknum og ég geri það hik-
laust þegar færi gefst. En aðalhlut-
verk mitt er þó varnarleikurinn og
ég einbeiti mér að honum.“
Coppell hefur
gjörbreytt liðinu
Brentford er það lið sem mest
hefur komið á óvart í 2. deild í vetur
en fæstir áttu von á að það ynni
stór afrek í vetur.
„Gengi okkar er allt annað og
betra en á síðasta tímabili. Við vor-
um efstir um tíma og höfum frá
byrjun verið í hópi sex efstu liða.
Coppell hefur gjörbreytt liðinu þótt
leikmannahópurinn sé svipaður og í
fyrra, og reyndar aðeins minni.
Skipulagið er annað og betra og
festan í öllu kringum liðið miklu
meiri en áður. Coppell er mjög
reyndur sem leikmaður og knatt-
spyrnustjóri og veit nákvæmlega
hvað hann vill. Árangurinn er sá að
þetta lið sem endaði í neðri hluta
deildarinnar í fyrra er nú að berjast
um að komast upp í 1. deild.“
Brentford hefur ekki sömu fjár-
hagslegu burði og flest hinna topp-
liðanna í 2. deild en Ívar telur að
liðið eigi samt ágæta möguleika á
að fara upp.
„Við erum búnir með rúmlega 30
leiki og erum enn í baráttunni þeg-
ar lokaspretturinn er framundan,
þrátt fyrir að við ættum erfitt upp-
dráttar í kringum áramótin og töp-
uðum þá fimm leikjum í röð. Ef við
lendum ekki í vandræðum með leik-
bönn og meiðsli erum við með nægi-
legan styrk til að fara alla leið. Það
er mikil spenna í kringum félagið
vegna þess hve vel okkur hefur
gengið, stuðningsmennirnir áttu
ekki von á þessu því okkur var yf-
irleitt spáð sæti í kringum miðja
deild. Frammistaðan hefur því ver-
ið framar öllum vonum en ég hef
fulla trú á að við getum haldið þetta
út og unnið okkur sæti í 1. deild.“
Samdráttur hjá Brentford
eins og fleiri félögum
Brentford er oftar í fréttunum
vegna ýmissa mála utan vallar en
vegna frammistöðunnar innan vall-
ar. Ron Noades, eigandi Brentford
og fyrrum knattspyrnustjóri félags-
ins, er í stöðugu stríði við borgaryf-
irvöld. Hann vill fá að byggja nýjan
leikvang og hefur meðal annars
hótað að flytja félagið út fyrir
London eða taka upp samstarf við
annað félag um heimavöll, en hvor-
ug hugmyndin á upp á pallborðið
hjá stuðningsmönnum Brentford.
„Þessi órói í kringum félagið hef-
ur verið viðvarandi síðan ég kom
hingað í nóvember 1999. Þá vorum
við í námunda við toppinn en eftir
að umræða um að Noades væri að
kaupa Crystal Palace fór í gang,
dalaði liðið og menn voru að velta
sér upp úr alls kyns hlutum. Noad-
es er peningamaður, hann tapar á
félaginu eins og staðan er í dag og
ætlar ekki að halda því áfram.
Hann vill að félagið reki sig sjálft.
Þegar ég kom voru 36 leikmenn á
samningi, nú eru þeir aðeins 24 og
það hefur verið dregið saman á
mörgum sviðum. Þetta er reyndar
að gerast víða um England um
þessar mundir, peningarnir eru í
úrvalsdeildinni og að hluta í 1. deild
en flest félögin í 2. deild tapa pen-
ingum. Það sem bjargar mörgum
þeirra eru oft á tíðum ríkir eigend-
ur sem taka tapið á sig með von um
að liðin komist upp um deild og skili
þá hagnaði.“
Hlakka til að sjá hvað
bíður mín í vor
Samningur Ívars við Brentford
rennur út í vor og hann hefur því
haft leyfi til að ræða við erlend fé-
lög frá áramótum. Hann hefur hins
vegar lítið hugsað um þau mál.
„Það hefur ekkert verið rætt um
samning við mig hjá Brentford og
við erum einir tíu sem erum samn-
ingslausir í vor. Noades hefur
reyndar sagt að hann semji við mig
og þrjá aðra ef við vinnum okkur
upp í 1. deild. Ég tel að það sé sterk
staða fyrir mig að vera samnings-
Ívar Ingimarsson hefur vakið athygli hjá B
„Kominn tími
til að stíga
næsta skref“
Ívar Ingimarsson hefur ekki verið í hópi
umtöluðustu atvinnuknattspyrnumanna Ís-
lands til þessa. Hann hefur leikið með
Brentford í ensku 2. deildinni frá því í nóv-
ember 1999 og verið þar í byrjunarliði nán-
ast frá fyrsta degi. Nú er frammistaða hans
með félaginu farin að vekja athygli og sjálf-
ur stefnir Ívar að því að leika deild ofar á
næsta tímabili. Víðir Sigurðsson fylgdist
með Ívari í leik með Brentford á dögunum
og ræddi við hann um gengi sitt og félagsins
og framtíðarhorfurnar.
ARNÓR Guðjohnsen, fyrrverandi
atvinnu- og landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, hefur ákveðið að gerast al-
þjóðlegur umboðsmaður fyrir
knattspyrnumenn. Hann gengst
undir tilskilið próf síðar í þessum
mánuði til að fá löggildingu frá Al-
þjóða knattspyrnusambandinu og
Knattspyrnusambandi Íslands.
Arnór hefur lagt skóna á hilluna
eftir langan feril. Hann var þjálfari
og leikmaður Stjörnunnar á síðasta
tímabili en ákvað að hætta störfum
hjá Garðabæjarliðinu í byrjun þessa
árs.
„Mig langar til að starfa áfram í
kringum fótboltann eftir að hafa
verið í því umhverfi alla tíð. Ég
vonast eftir því að geta nýtt mér
reynslu mína sem atvinnumaður til
að liðsinna efnilegum íslenskum
leikmönnum sem vilja reyna fyrir
sér erlendis,“ sagði Arnór í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann lék
sem atvinnumaður frá 1978 til
1998, eða í tuttugu ár, með Lokeren
og Anderlecht í Belgíu, Bordeaux í
Frakklandi og Häcken og Örebro í
Svíþjóð.
Arnór verður þriðji íslenski um-
boðsmaðurinn en fyrir eru með
FIFA-leyfi þeir Ólafur Garðarsson
og Eyjólfur Bergþórsson. Bjarni
Sigurðsson, fyrrverandi landsliðs-
markvörður, var með FIFA-leyfi
um tíma en er hættur störfum.
Ætlar að nýta
sér reynsluna
ARNÓR VERÐUR UMBOÐSMAÐUR
SKAGAMAÐURINN Teitur Þórð-
arson hefur hafnað tilboði frá
norska úrvalsdeildarliðinu Lyn um
að taka við sem þjálfari þess. Teitur
þjálfar sem kunnugt er lið Brann í
sömu deild.
Norska dagblaðið Bergens Tid-
ende skýrir frá því að Lyn hafi viljað
kaupa upp samning Teits við Brann.
Stuart Baxter, sem kom Lyn upp í
úrvalsdeild fyrir tveimur árum og
hélt liðinu þar í fyrra, hætti störfum
eftir síðasta tímabil og aðstoð-
arþjálfarinn Sture Fladmark tók við.
Hann hefur ekki byrjað vel og í síð-
ustu viku tilkynntu leikmenn liðsins
að þeir hefðu ekki trú á honum. Með
Lyn leika þeir Helgi Sigurðsson og
Jóhann B. Guðmundsson, og mark-
vörðurinn Ólafur Gottskálksson
dvelur þessa stundina í herbúðum
félagsins á La Manga á Spáni.
„Þetta var dautt mál af minni
hálfu strax frá byrjun. Ég er sáttur
hjá Brann, hef skrifað undir nýjan
samning þar og vil einbeita mér að
því,“ sagði Teitur við Bergens Tid-
ende í gær.
Teitur þjálfaði Lyn árin 1991 og
1992 og Ólafur bróðir hans, núver-
andi þjálfari ÍA, lék þar undir hans
stjórn.
Teitur hafnaði
tilboði Lyn
NORSKA KNATTSPYRNAN
JÓN Arnar Magnússon hafnaði í
fjórða sæti í sjöþraut Evrópu-
mótsins innanhúss í Vín um
helgina. Jón hlaut 5.996 stig og
var 284 stigum á eftir Tékkanum
Roman Sebrle sem varð Evrópu-
meistari, en hann varð einnig
heimsmeistari í greininni í fyrra
í Lissabon. Í öðru sæti hafnaði
landi Sebrle og Evrópumeistari
fyrir tveimur árum, Tomás
Dvorák, með 6.165 stig. Dvorák
er jafnframt Evrópumethafi,
met hans er 6.424 stig. Erki Nool
frá Eistlandi hlaut bronsverð-
launin með 6.084 stig. Fimmta
sætið kom síðan í hlut Ungverj-
ans Atila Zsivoczky, hann öngl-
aði saman 5.957 stigum.
Jón Arnar hljóp 60 m grinda-
hlaup á 8,24 sekúndum en það
var fyrsta keppnisgrein síðari
keppnisdags. Þar með hafði
hann sætaskipti við Nool sem
var í fjórða sæti eftir fyrri
keppnisdaginn, en Jón var þá
þriðji. Jóni tókst vel til í stang-
arstökki, fór yfir 5 metra. Það
nægði ekki því Nool lyfti sér yfir
5,20. Þegar kom að síðustu
keppnisgreininni var ljóst að Jón
þyrfti að vera fjórum sekúndum
á undan Nool í 1.000 metra
hlaupinu til þess að eiga mögu-
leika á bronsverðlaunum. Það
tókst Jóni ekki. Noll hljóp á
2.45,60 mín., en Jón Arnar kom í
mark á 2.50,91 og sá þar með
endanlega á eftir bronsverðlaun-
unum.
Af fimmtán keppendum sem
hófu þrautina þá tókst þrettán
þeirra að komast í gegnum
þrautina áfallalaust.
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Arnar Magnússon
Jón
Arnar í
fjórða
sæti