Morgunblaðið - 05.03.2002, Side 6
HANDKNATTLEIKUR
6 B ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar tæpar fimm mínútur voruliðnar af síðari hálfleiknum
höfðu Framarar enn 6 marka for-
stkot 20:14. Þá
misstu Framarar tvo
leikmenn útaf í tvær
mínútur og á þeim
tíma og næstu fimm
mínútur skoruðu þeir ekki mark en
Eyjamenn settu boltann fimm sinn-
um í netið. Allt í einu var mikil spenna
hlaupin í leikinn en Framarar komu
sterkir til baka, skoruðu þrjú mörk í
röð og virtust vera að ná tökum á
leiknum á ný. En Eyjamenn voru
ekki á því að játa sig sigraða, skoruðu
næstu fjögur mörk og jöfnuðu leikinn
í 23:23 þegar rúmar 8 mínútur voru
eftir af leiknum sem var æsispenn-
andi allt til loka. En Framarar höfðu
ávallt yfirhöndina og Hjálmar Vil-
hjálmsson tryggði þeim sigurinn þeg-
ar tæp hálf mínúta var til leiksloka.
Eyjamenn gerðu hvað þeir gátu til að
jafna en allt kom fyrir ekki og Fram-
arar fögnuðu vel.
Guðjón Finnur Drengsson var að
vonum kátur í leikslok. „Þetta var
góður sigur og ég er mjög ánægður
með niðurstöðuna, loksins datt þetta
okkar megin. En þetta er búið að vera
svolítið gloppótt hjá okkur í vetur og
við þurfum að fara að stoppa upp í
þetta,“ sagði Guðjón.
Róbert Gunnarson var besti leik-
maður Fram í þessum leik, en liðið
allt á hrós skilið fyrir geysilega mikla
baráttu og vilja til góðra verka. Þá
var athyglisvert að fylgjast með vara-
markverðinum, Magnúsi Erlends-
syni sem lék nær allan síðari hálfleik-
inn og stóð sig virkilega vel.
Markaleikur á Akureyri
Þór sigraði Stjörnuna örugglega ímiklum markaleik á Akureyri
sl. sunnudag. Lokatölur urðu 39:32
eftir að heimamenn
höfðu haft örugga
forystu í leikhléi,
22:14. Stjarnan fer
því öðru sinni á
skömmum tíma með slæmar minn-
ingar frá Akureyri en liðið fékk líka
39 mörk á sig gegn KA á dögunum.
Stjörnumenn skoruðu þó 10 mörkum
meira á móti Þór en sennilega er orð-
ið ljóst að liðið mun trauðla tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni. Þórsarar
standa nú í mikilli baráttu um sæti í
þeirri keppni og í hönd fara spenn-
andi vikur.
Tölurnar úr fyrri hálfleik tala sínu
máli. Þórsarar keyrðu á hröðum
sóknum; voru fljótir að taka miðju og
iðulega búnir að skora eða fiska víti
áður en Stjarnan gat stillt upp í vörn.
Gestirnir hafa eflaust orðið hvíldinni
fegnir í leikhléi en þá var staðan 22:14
og Þórsarar með unninn leik í hönd-
unum.
Eftir 36 marka fyrri hálfleik bjugg-
ust flestir við meiri ró og festu í seinni
hálfleik. Því fór fjarri. Mörkin urðu 35
og nú var það Stjarnan sem hafði bet-
ur, skoraði 18 mörk en Þór 17. Stjarn-
an eygði jafnvel möguleika í stöðunni
35:30 því enn voru rúmar 5 mín. eftir
en þá tók Hafþór Einarsson til sinna
ráða í marki Þórs og varði m.a. 2 víta-
skot.
Til að undirstrika hraðann í leikn-
um og skotgleðina þá má geta þess að
þótt mörkin í leiknum hafi orðið 71 þá
vörðu markverðir liðanna samtals 36
skot og fjölmörg skot fóru forgörðum
á annan hátt. Þórsarinn Aigars Lazd-
ins var illviðráðanlegur og skoraði 15
mörk, þar af 10 í fyrri hálfleik. Sig-
urður Sigurðsson, ungur hornamað-
ur, og línumaðurinn Þorvaldur Þor-
valdsson skoruðu 5 mörk hvor en allir
á leikskýrslu, að þjálfaranum undan-
skildum, fengu að spreyta sig og
komust allir á blað. Davíð Kekelia var
bestur Stjörnumanna og skoraði 8
mörk en Vilhjálmur Halldórsson og
Þórólfur Nielsen áttu góða spretti.
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson þjálf-
ari Þórs sagði lið sitt vera á uppleið á
ný eftir nokkra dýfu. Þórsarar byrj-
uðu mjög vel í mótinu og voru lengi í
toppbaráttunni en nú er liðið ekki
lengur í hópi 8 efstu liða. Að sögn Sig-
urpáls var alltaf hætta á bakslagi og
meiðsl lykilmanna settu verulegt
strik í reikninginn.
Loks hélt Afturelding út
Þetta var tvímælalaust besti heilileikur okkar í vetur, nú héldum
við út en fram til þessa höfum við átta
ágæta spretti en síð-
an gefið eftir. Það
átti sér ekki stað
núna enda var góð
einbeiting í hópnum,“
sagði glaðbeittur Bjarki Sigurðsson,
þjálfari og leikmaður Aftureldingar,
eftir að hans menn höfðu unnið
öruggan sigur á „spútnik-liði“ deild-
arinnar, ÍR, að Varmá, 27:22. Bjarki
og hans menn gátu svo sannarlega
brosað breitt eftir leikinn því þeir
léku virkilega vel og höfðu töglin og
hagldirnar nær allan leikinn. Staðan í
hálfleik var 13:12, Mosfellingum í vil.
Þar með tryggði Afturelding stöðu
sína í fjórða sæti deildarinnar, tveim-
ur stigum á eftir ÍR sem er í þriðja
sæti og ekki síst, þremur stigum á
undan ÍBV sem er í fimmta sæti en
Mosfellinga sækja Eyjamenn heim á
morgun. „Við vorum að vissu leyti
komnir upp að vegg, það er ef við ætl-
uðum að vera í hópi fjögurra efstu þá
var nauðsynlegt að bíta frá sér og
vinna þennan leik,“ sagði Bjarki þjálf-
ari og bar lof á frammistöðu sinna
manna í leiknum.
ÍR-ingar hafa komið liða mest á
óvart í vetur með baráttugleði sinni
og einurð. Framan af leik tókst þeim
að halda sínu striki, en þegar á leið
urðu þeir að gefa eftir. Þeir fundu fá
svör gegn sterkri vörn Aftureldingar,
þar sem hver maður á fætur öðrum
fór á kostum. „Við unnum leikinn
fyrst og fremst á góðri vörn, okkur
tókst að neyða sóknarmenn ÍR til
þess að skjóta úr erfiðum færum og
fyrir vikið fékk ég mörg auðveld skot
á mig sem ekki var mikill vandi að
verja,“ sagði Reynir Þór Reynisson,
markvörður Aftureldingar sem stóð
svo sannarlega fyrir sínu að þessu
sinni og varði 19 skot.
Leikurinn í Mosfellsbænum á
sunnudaginn var góð skemmtun,
hraðinn var lengst af mikill og tals-
vert var um opin færi. Fast var tekist
á en umfram allt á heiðarlegan hátt
þannig að enginn varð sár af þeim
sökum af leikvelli.
Leikmenn Aftureldingar komust
snemma í góða forystu en ÍR-ingar
gáfu lítt eftir og jöfnuðu fljótlega,
einkum fyrir þær sakir að þeim tókst
að koma skipulagi á sóknarleik sinn
sem var býsna brottgengur í upphafi.
Eftir jafnan leik um tíma tókst ÍR að
komast í tvígang yfir, 9:7 og 10:8 og
svo virtist sem sem Breiðhyltingar
ætluðu að taka leikinn í sínar hendur.
En Mosfellingar voru á öðru máli,
þeir gyrtu sig í brók í vörninni og
efldu þor sitt í sókninni, skoruðu fjög-
ur mörk í röð og breyttu stöðunni úr
8:10 í 12:10. Eftir það komust leik-
menn ÍR aldrei yfir, frumkvæðið var
heimamanna.
Kári Guðmundsson jafnaði reynd-
ar metin fyrir ÍR í upphafi síðari hálf-
leiks, 13:13, en þá skildi leiðir er leik-
mönnum Aftureldingar tókst að
skora fjögur mörk í röð. Það bil tókst
ÍR-ingum aldrei fyllilega að brúa,
náðu einu sinni að minnka muninn í
eitt mark, 19:18, en síðan ekki söguna
meir. Feikisterk vörn Aftureldingar
lét hið bráðskemmtilega lið ÍR aldrei
komast upp með neinn moðreyk það
sem eftir lifði leiks. Sóknarleikurinn
gekk sem smurð vél og sex marka
sigur varð staðreynd, e.t.v. eitthvað
sem fáir reiknuðu með.
Víst er að leikmenn Aftureldingar
höfðu svo sannarlega lært heima fyrir
þennan leik, það sást öðru fremur á
varnarleiknum, þar sem heimamenn
virtust þekkja hverja hreyfingu sókn-
armanna ÍR. Fyrir vikið komust
skyttur ÍR-ingar lítt áleiðis og nær
því alveg tókst að loka fyrir sending-
ar inn á línuna. Sóknarleikur Aftur-
eldingar gekk einnig lengst af vel.
Hann hikstaði um tíma eftir að Daði
Hafþórsson meiddist eftir um stund-
arfjórðungs leik, en hikstinn rjátlað-
ist af mönnum fljótlega og á tíðum í
síðari hálfleik var vörn ÍR leikin
sundur og saman, nokkuð sem oft
hefur ekki átt sér stað í vetur. Ef ekki
hefði komið til stórleikur Hreiðars
Guðmundssonar, markvarðar ÍR,
hefði sigur Aftureldingar orðið mun
stærri. Hreiðar varði 19 skot, mörg
úr opnum færum.
„Hjá okkur brást mjög margt í
þessum leik, það er óhætt að segja að
við lékum illa, einkum þá í sókninni,“
sagði Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR í
leikslok. „Fyrirfram þá vissum við að
um erfiðan leik yrði að ræða og fátt
kom á óvart í leik Aftureldingar. Eigi
að síður tókst okkur ekki að gera það
sem gera þurfti,“ sagði Júlíus.
Sanngjörn skipting stiga
á Seltjarnarnesi
Sitthvort stigið til handa Gróttu/KR og KA í 25:25 jafnteflin þeg-
ar liðin mættust á Seltjarnarnesi á
laugardaginn verður
að teljast sanngjarnt
því hvort lið átti skil-
ið eitthvað fyrir
mikla baráttu.
Heimamenn geta helst þakkað stigið
Hlyni Morthens markverði sínum,
sem varði oft glæsilega á ögurstund.
Með sigrinum náði KA Gróttu/KR að
stigum en skaust upp í 6. sæti deild-
arinnar á betri markahlutfalli.
Strax í upphafi var ljóst að hvergi
yrði gefið eftir. Varnarmenn beggja
liða voru ekki í neinum silkihönskum
og mörkin létu á sér standa til að
byrja með því en þar áttu báðir mark-
verðir hlut að máli. Gestirnir frá Ak-
ureyri tóku Aleksandr Petersons úr
umferð en hann reif sig þó stundum
lausan og skoraði þá oftast. Liðin
skiptust á hafa yfirhöndina en mun-
urinn varð aldrei meiri en tvö mörk
fyrr en strax eftir hlé þegar KA náði
þriggja marka forskoti. Þá tók Hlyn-
ur til sinna ráða. Hann varði hvað eft-
ir annað erfið skot uns félagar hans
náðu sér aftur á strik og forystu. Síð-
ustu mínúturnar voru æsispennandi.
Heimir Örn Árnason jafnaði 25:25
fyrir KA þegar rúmar tvær mínútur
voru til leiksloka, heimamenn skutu
framhjá hinum megin og eftir langa
og stranga sókn misstu KA-menn
boltann fjórum sekúndum fyrir leiks-
lok. Grótta/KR lagði af stað í sókn en
KA-menn mundu vel eftir því þegar
Grótta/KR vann Aftureldingu með
ævintýralegu marki á síðustu sek-
úndu og náðu aðstöðva sóknina.
„Vörnin heldur vel í fjörutíu sek-
úndur en síðan dettum við niður enda
skorar KA fjögur mörk þannig,“
sagði Ólafur Lárusson þjálfari
Gróttu/KR eftir leikinn. „Það voru
sveiflur í síðari hálfleik þegar liðin
skiptust á að vera yfir svo að þegar
upp er staðið þá var jafntefli nokkuð
sanngjarnt þó að ætluðum okkur auð-
vitað sigur. Þeir fá öll vafaatriði og oft
loðir við þá að fá heimadómgæslu
með sér á útileiki,“ bætti Ólafur við.
Hann átti alveg eins von á að Pet-
ersons yrði tekinn úr umferð.
„Þetta var hörkuleikur en ég er sár
yfir að vinna ekki því mér fannst við
hafa frumkvæðið í leiknum og þeir
alltaf að elta,“ sagði Jónatan Þór
Magnússon úr KA. Ásamt Jónatani
áttu Hans Hreinsson markvörður,
Andrius Stelmokas og Heimir Örn
Árnason ágætan leik.
Sveiflur og spenna
FRAMARAR unnu mikilvægan sigur, 27:26, á ÍBV í 1. deild karla í
handknattleik, þegar þessi lið mættust í Safamýri á laugardag. Í
hálfleik hafði Fram sex marka forskot, 17:11.
Framarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og eftir að jafnt hafði ver-
ið með liðunum 4:4 settu Framarar í gírinn og náðu sex marka for-
ystu þegar 10 mínútur voru eftir af hálfleiknum. Þeirri forystu héldu
þeir til loka fyrri hálfleiks en seinni hálfleikur var heldur betur
sveiflukenndur.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Ívar
Benediktsson
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson eftir að ha
„ÉG er mjög ósáttur við lokin á leiknum og
maður skilur kannski núna þegar menn eru
að væla um dómgæslu í lok leikja,“ sagð
Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, efti
leikinn. „Í svona hörkuleik getur verið a
Héðinn hefði átt skilið að fá þessa brott
vísun í lokin en að bæta við víti úti
miðjum velli þegar enn á eftir að fara
gegnum tvo menn – það snýr leiknum vi
finnst mér. Það eru dómar í lokin sem mé
finnst augljóslega falla Haukamegin og
svona jöfnum leik skiptir þetta máli en
fram að því var dómgæslan ágæt. Sv
fannst mér mjög slakt þegar fimm mínútu
eru eftir að gefa bara gult spjald á vara
mannabekk Hauka – er þá ætlunin að vís
út af í næsta leik? Og ég er viss um að ég
hefði fengið tveggja mínútna brottvísun,
bætti Guðmundur við en var að öðru leyt
ánægður með sína menn. „Ég var annar
mjög ánægður með mitt lið og baráttuna
því. Við komum hingað til að fá stig fyri
baráttuna um að komast á meðal átta efstu
svo að ég er frekar sár yfir þessu í lokin
Það gekk upp, sem ég lagði upp með og
markvarslan var góð en það vantar enn
leikmenn. Héðinn er ekki kominn í sit
besta form og ég er ekki búinn að fá rúss
ann á línuna. Það vantar því í liðið til a
spila í 60 mínútur af sama krafti og fyrstu
25 mínúturnar en við sýndum að við getum
þetta.“
Þjálfarinn sagði leikinn á allra vörum
síðustu dagana og Haukar nokkuð vissi
um sig. „Stemmningin í bænum hefur veri
gríðarlega mikil en það er enginn launung
að menn skynjuðu að Haukarnir áttu a
koma hingað til að snýta okkur því þei
voru svo miklu betri en ég held að menn
hafi séð að þeir þurftu hjálp til að vinna hé
í dag,“ sagði Guðmundur.
Dómar féllu
Haukameg-
in í lokin
GUNNAR Berg Viktorsson skor-
aði 6 mörk fyrir París SG sem vann
Nimes á útivelli, 27:25, í frönsku 1.
deildinni í handknattleik á laugardag-
inn. Ragnar Óskarsson og félagar í
Dunkerque sátu hjá í umferðinni en
lið hans er í þriðja sæti og París SG í
því fimmta.
PATREKUR Jóhannesson gerði
5/2 mörk þegar Essen tapaði fyrir
Grosswallstadt um helgina. Guðjón
Valur Sigurðsson gerði 3 mörk fyrir
Essen, sem missti með tapinu annað
sætið í deildinni.
GYLFI Gylfason átti stórleik með
Düsseldorf þegar liðið vann CSG Er-
langen, 30:20 í suðurhluta þýsku 2.
deildarinnar í handknattleik á sunnu-
dag. Gylfi fær mikið lof frá þjálfara
sínum á heimasíðu félagsins, en hann
skoraði 7 mörk í leiknum, þar af eitt
úr vítakasti. Róbert Sighvatsson er
einnig sagður hafa leikið vel, jafnt í
vörn sem sókn, en hann skoraði 5
mörk. Sagt er á heimaíðu Düsseldorf
á Netinu að Gylfi komi til greina í ís-
lenska landsliðið í handknattleik sem
leikur þrjá leiki í æfingamóti í Dan-
mörku eftir tvær vikur og Guðmund-
ur Guðmundsson landsliðsþjálfari
hafi þegar falast eftir liðsstyrk Gylfa.
DÜSSELDORF er nú í 4. sæti
deildarinnar með 32 stig, sex stigum á
eftir Östringen og Friesenheim sem
deild efsta sætinu.
HARALDUR Þorvarðarson var
ekki á meðal markaskorara er Stral-
sunder HV vann TSV Altenholz,
30:23, í norðurhluta þýsku 2. deild-
arinnar í handknattleik um helgina.
Stralsunder HV er nú í 7. sæti deild-
arinnar með 26 stig.
HILMAR Þórlindsson var með sex
mörk fyrir Modena er liðið tapaði
26:23 á útivelli fyrir Prato í ítölsku 1.
deildinni í handknattleik um helgina.
Modena er í 10. sæti deildarinnar.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson lék
að vanda í marki Papillon Convers-
ano jafntefli, 27:27, við Torggler Gro-
up Merano í ítölsku 1. deildinni. Guð-
mundur og samherjar eru í fjórða
sæti deildarinnar með 41 stig, 8 stig-
um á eftir Bologna sem er í efsta sæti.
DAÐI Hafþórsson, leikmaður Aft-
ureldingar, tognaði illa á hægri ökkla
eftir rúmlega 14 mínútna leik gegn ÍR
á sunnudaginn. Kom hann ekkert
meira við sögu í leiknum og er alls
óvíst hvort hann geti leikið með gegn
ÍBV í Eyjum annað kvöld.
BJARKI Sigurðsson, þjálfari Aft-
ureldingar, kom til leiks þegar Daði
meiddist, en Bjarki var búinn að
liggja í flensu í heila viku þegar leik-
urinn fór fram. Hann ætlaði sér ekki
að leika en var samt á leikskýrslu ef
eitthvað færi úrskeiðis. Bjarki fór á
kostum í sókninni, skoraði fimm mörk
og átti fjölda stoðsendinga.
HRAFN Ingvarsson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir meistaraflokkslið
Aftureldingar á Íslandsmótinu er
hann gerði nítjánda mark Mosfellinga
úr hraðaupphlaupi á 39. mínútu.
Hrafn er aðeins 16 ára og var að leika
sinn þriðja leik með meistaraflokki á
Íslandsmótinu.
OLEG Kuleschov, leikstjórnandi
þýsku handknattleiksmeistaranna
Magdeburg hefur framlengt samning
sinn við félagið til eins árs, til loka
leiktíðarinnar vorið 2003.
FÓLK