Morgunblaðið - 05.03.2002, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2002 B 7
Nokkur taugatitringur var í leik-mönnum í byrjun leiks og kom
fyrsta markið ekki fyrr en eftir rúm-
lega þriggja mínútna
leik. Eftir það var
jafnt á öllum tölum
og skiptust liðin á að
taka forystuna. Í
stöðunni 9:10 tók Erlingur þjálfari
ÍBV leikhlé en eitthvað virtist það
hafa farið illa í leikmenn hans því
Víkingar skoruðu næstu fjögur mörk
og voru 14:9 yfir í leikhléi og lögðu
þar með grunninn að sigrinum.
Víkingsstelpur voru yfir, tveimur
til þremur mörkum nánast allan
seinni hálfleikinn en Vestmannaey-
ingar náðu þó að jafna í stöðunni
20:20 í fyrsta sinn í langan tíma. Í
þessari stöðu varð vendipunktur
leiksins en Eyjastelpur hefðu getað
komist yfir en Andrea Atladóttir
misnotaði hraðaupphlaup og í stað-
inn geystust Víkingsstúlkur fram og
komust aftur yfir. Þær gáfu það ekki
eftir og sigruðu að lokum 22:23.
Besti maður vallarins var Helga
Torfadóttir markvörður Víkinga en
hún varði 17 skot. Guðmunda Krist-
jánsdóttir átti einnig góðan leik og
var markahæst í liði Víkings með sjö
mörk. Besti maður ÍBV í leiknum
var Ana Perés sem skoraði 13 mörk
og er á góðum degi einn besti leik-
maður deildarinnar. Fyrir utan Önu
átti allt Eyjaliðið vægast sagt slakan
dag og verður að bretta upp erm-
arnar fyrir komandi átök.
Víkingar spiluðu ekkert sérstak-
lega vel og geta þakkað Helgu mark-
verði sínum sigurinn, því markvarsl-
an var það sem skildi liðin að í
þessum leik. „Liðið var einfaldlega
ekki tilbúið, ekki nógu mikil einbeit-
ing í mannskapnum. Fyrri hálfleik-
urinn var okkur dýrkeyptur þar sem
spiluðum mjög illa. Við vorum því
alltaf að elta í seinni hálfleik og
klikkuðum tvisvar þegar við hefðum
getað komist yfir og því fór sem fór.
Við erum alveg á jörðinni, það var
bara einhver doði yfir okkur, eitt-
hvað sem ég get ekki skýrt. Það var
einfaldlega enginn vilji til að vinna,“
sagði Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði
ÍBV niðurlút eftir leikinn.
„Þetta var erfið fæðing en hún
byrjaði vel, við byrjuðum leikinn
mjög vel en að halda barninu lifandi
gekk aðeins verr en gekk þó að lok-
um. Helga spilaði þennan leik mjög
vel og hún var að verja mjög vel á
meðan markverðir þeirra náðu sér
ekki á strik og það var það sem gerði
útslagið í þessum leik. Ég er gífur-
lega sáttur við þetta. Það er alltaf
erfitt að koma hingað, Eyjastúlkur
með gríðarlega sterkt lið og það er
frábært að ná í tvö stig hérna,“ sagði
Stefán Arnarsson þjálfari Víkinga
hæstánægður með sigurinn.
Aftur sigur hjá KA/Þór
Stúlkurnar í KA/Þór unnu sinnannan leik í röð þegar þær
lögðu Valsstúlkur á heimavelli og
skyndilega eru þær
komnar með 4 stig
og áttunda sætið
ekki eins langt í
burtu og áður. Úrslit
leiksins urðu 27:25 eftir spennandi
lokamínútur.
Heimastúlkur byrjuðu illa. Staðan
var 3:7 eftir 17 mín. en þá skoruðu
þær 5 mörk í röð og höfðu yfir í leik-
hléi, 13:10. Sigurbjörg Hjartardóttir,
markvörður KA/Þórs, varði 14 skot í
hálfleiknum. KA/Þór hélt frum-
kvæðinu allt þar til staðan var 18:18.
Á síðustu mínútunni var staðan 26:25
og Valsstúlkur í sókn en þær misstu
boltann og heimastúlkur innsigluðu
sigurinn.
Sigurbjörg varði 20 skot í leiknum
og Elsa Birgisdóttir fór á kostum og
skoraði 11 mörk. Hjá Val var Hrafn-
hildur Skúladóttir langbest og skor-
aði 10 mörk.
Köttur og mús í Safamýri
Leikur Fram og Stjörnunnar í 1.deild kvenna í handknattleik,
sem fram fór í íþróttahúsi Fram í
Safamýri á laugar-
dag, var leikur katt-
arins að músinni.
Stjarnan, sem var í
hlutverki kattarins,
lék sér að Frömurum og sigraði
örugglega með 13 marka mun 22:35.
Það var aðeins á fyrstu mínútum
leiksins að Framarar höfðu einhvert
erindi í leikmenn Stjörnunnar. Hin
leikreynda Svanhildur Þengilsdóttir
dró vagninn í liði Fram en það var
einfaldlega ekki nóg. Ragnheiður
Stephensen fór hamförum í liði
Stjörnunnar, skoraði mörk í öllum
regnbogans litum og átti fjöldann
allan af stoðsendingum, frábær leik-
ur hjá þessum snjalla leikmanni. Þá
átti Jelena Jovanovic góðan leik í liði
Stjörnunnar en hún varði m.a. þrjú
vítaköst í leiknum.
Það varð síðan ekki til að draga úr
gleði Stjörnunnar á laugardag að fá
þær fréttir úr Vestmannaeyjum að
Víkingur vann ÍBV og er Stjarnan
nú komin í þægilega stöðu í 2. sæti
deildarinnar, með þrjú stig á Eyja-
stúlkur en þessi tvö lið mætast ein-
mitt í næstu umferð deildarkeppn-
innar.
Óvæntur
sigur Vík-
ings í Eyjum
EYJAKONUR tóku á móti Víkingum á laugardaginn, fullar sjálfs-
trausts eftir gott gengi undanfarið en Víkingsstelpur hafa verið
brokkgengar. Víkingsstelpur komu því öllum á óvart með því að
leggja ÍBV að velli. Víkingar leiddu í hálfleik með fimm mörkum,
9:14 og sigruðu að lokum 22:23.
Einar Hlöðver
Sigurðsson
skrifar
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
HANDKNATTLEIKUR
Áhorfendur, sem voru yfir tvöþúsund, voru strax virkir og
stukku á fætur í hvert sinn, sem
flautað var á þeirra
menn eða glæsileg
tilþrif sáust. Strax á
fyrstu mínútu sást
að FH-ingar ætluðu
að selja sig dýrt, spiluðu vörnina aft-
arlega og biðu þess albúnir að
Haukamenn hættu sér of nálægt.
Þetta skilaði forystu, mestri 10:6,
því hinum megin gekk þeim betur
að finna glufur í Haukavörninni.
Þegar Haukar sáu að hlutirnir voru
að þróast á verri veg kom til kasta
Halldórs Ingólfssonar, sem tók af
skarið auk þess að taka við leik-
stjórninni. Það dugði til að koma fé-
lögum hans í gang og þeim tókst að
halda í við FH-inga, sérstaklega eft-
ir að þeim tókst að lesa út sókn-
arleik þeirra og stöðva Sigurgeir
Árna Ægisson, sem átti hvert
þrumuskotið á fætur öðru í byrjun.
Með því að skora tvö fyrstu mörk-
in eftir hlé komust Haukar í fyrsta
sinn yfir og tókst að halda naumu
forskoti. Ekki síst vegna þess að
FH-ingar glutruðu boltanum of oft
og þegar Jónas Stefánsson varði
glæsilega í marki FH voru það
Haukamenn, sem voru fyrri til að
hirða boltann þegar hann hrökk út í
teig. Munurinn varð mestur 18:21
fyrir Hauka en þá tók FH leikhlé.
Hernaðaráætlunin gekk upp því
þeir breyttu stöðunni á 7 mínútum í
25:23 sér í hag en tvö af mörkunum
komu eftir hraðaupphlaup þegar
þeir voru einum færri. Þá tóku
Haukar leikhlé og tæpar sex mín-
útur til leiksloka. Í stöðunni 26:26
fóru FH-ingar í sókn en Magnús
Sigmundsson varði skot þegar tæp
mínúta var eftir. Ásgeir Hallgríms-
son braust í gegn og fékk vítakast
þegar 34 sekúndur voru eftir og
Rúnar kom Haukum í 27:26. Enn
lögðu FH af stað í sókn en tuttugu
sekúndum fyrir leikslok var dæmd á
þá lína og Haukar áttu ekki vand-
ræðum með að halda boltanum þar
til leikurinn var flautaður af.
Hjá FH var Jónas Stefánsson
bestur og átti mjög góðan leik á milli
stanganna. Valur Arnarson lét mik-
ið til sín taka og Sigurgeir Árni Æg-
isson til að byrja með. Björgvin
Rúnarsson var einnig sprækur. Lið-
ið byrjaði mjög vel en tókst ekki að
halda sínu striki.
Halldór Ingólfsson bar uppi leik
Hauka, var sá eini sem virtist geta
tekið til hendinni þegar hvorki gekk
né rak. Rúnar Sigtryggsson, Vignir
Svavarsson og Ásgeir Hallgrímsson
voru ágætir.
„Höktum í byrjun“
„Við vorum að hökta í byrjun og
sóknarleikurinn gekk ekki upp svo
að við breyttum til og fundum réttu
leiðina,“ sagði Haukamaðurinn
Halldór Ingólfsson eftir leikinn.
„Við höfðum hinsvegar fulla trú á að
við ynnum þennan leik, það valt
bara á því hvenær við tækjum þá.
Mér fannst við vera komnir með þá
um miðjan seinni hálfleik en vorum
klaufar að missa boltann tvisvar
sinnum og þeir að fá hraðaupp-
hlaup, sem gáfu mörk því þá áttum
við gera út um leikinn,“ bætti Hall-
dór við sáttur bæði við leikinn og
sigurinn. „Svona eiga þessir leikir
að vera, spenna, barátta og slagsmál
og úrslit að ráðast á lokasekúndum.
Í svona grannaslag er allt lagt undir
og menn leggja 110% á sig. Þetta
var samt eins og hver annar leikur,
sem við förum í til að vinna en samt
miklu skemmtilegri. Það er alltaf
mikið talað um þessa leiki dagana á
undan og mikil spenna í Firðinum.
Menn eiga eftir að segja að þessi
leikur hafi verið mjög spennandi og
við heppnir en betra liðið vann.“
Morgunblaðið/Jim Smart
ann fiskaði vítakastið, sem Rúnar Sigtryggsson skoraði sigurmark Hauka úr – í Hafnarfjarðarrimmunni.
Grannaslag-
ur með öllu
NÁGRANNASLAGUR FH og Hauka í Kaplakrika á sunnudaginn bauð
upp á allt sem þarf í góðan grannaslag – mikla baráttu með tilheyr-
andi mistökum, sviptingar, vafasama dóma, marga áhorfendur sem
lifðu sig inn í leikinn og sigurmark á síðustu mínútu. Það urðu síðan
Haukar sem höfðu heppnina með sér í lokin í 27:26 sigri en óneit-
anlega virtust dómar þeim hentugir á síðasta sprettinum og sárt
fyrir FH að fá ekkert fyrir góða frammistöðu.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Morgunblaðið/Jim Smart
Hér á myndunum til hliðar og fyrir ofan má sjá stuðningsmenn
Hauka og FH í fullum herklæðum í Kaplakrika.
g
u
ði
ir
ð
t-
á
í
ð
ér
í
n
o
ur
a-
a
g
“
ti
rs
í
ir
u
n.
g
n
tt
s-
ð
u
m
m
ir
ð
g
ð
ir
n
ér
u
-