Morgunblaðið - 16.04.2002, Side 3

Morgunblaðið - 16.04.2002, Side 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 B 3 OPINN FUNDUR UM ÍÞRÓTTAMÁL Í REYKJAVÍK haldinn í Félagsheimili Þróttar í Laugardal í dag, þriðjudaginn 16. apríl, kl. 17:30 Framsögumenn: Reynir Ragnarsson, formaður ÍBR, Theodór Sigurbergsson, foreldri barns í íþróttum, Rúnar Geirmundsson, formaður Íþróttafélagsins Fylkis, Ólafur F. Magnússon, Frjálslyndum og óháðum, Björn Bjarnason, Sjálfstæðisflokki, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Reykjavíkurlista. Pallborðsumræður að lokinni framsögu. Íþróttabandalag Reykjavíkur Frábær varnarleikur Stjörnunnar ísíðari hálfleik var grunnurinn að sigrinum á sunnudag. Jelena Jovano- vic, sem hafði aðeins varið 6 skot í fyrri hálfleiknum og varn- arlínan öll hreinlega skellti í lás í seinni hálfleik. Leikmenn Gróttu/KR voru hreinlega ráðalausir gegn þessari sterku vörn og náðu aðeins að setja fimm mörk allan hálfleikinn sem er frammistaða sem ekki er hægt að leyfa sér í undanúrslitum um Íslands- meistaratitilinn. Margrét Vilhjálmsdóttir átti fanta- fínan leik í liði Stjörnunnar, hún stóð vaktina eins og herforingi í vörninni í seinni hálfleiknum auk þess að skora þá fjögur mörk. Hún var undrandi þegar henni var bent á að Grótta/KR hafði aðeins skorað 5 mörk í seinni hálfleiknum. „Ég tók hreinlega ekki eftir þessu,“ sagði Margrét í samtali við Morgunblaðið. „Við ætluðum að byrja vörnina framarlega og sjá hvernig þær myndu bregðast við þessu, svo bara ákváðum við að fara niður og berja á þeim. Sóknin í fyrri hálfleik var hrika- lega slök, við vorum að skjóta úr hálf- færum og fengum hraðaupphlaup í bakið.“ Margrét vildi ekkert segja um leik- ina framundan við Hauka, „það er ágætt að vera búinn með þetta í dag, svo verðum við bara að sjá hvert framhaldið verður,“ sagði Margrét Vilhjálmsdóttir sem var besti leik- maður Stjörnunnar í þessum leik. Grótta/KR átti virkilega góðan leik í fyrri hálfleiknum. Liðið lék þá ag- aðan sóknarleik og var sóknarnýting þeirra 63%, sem er mjög vel viðun- andi en í seinni hálfleiknum var eins og gefur að skilja allt annað upp á ten- ingnum en þá skoruðu þær aðeins úr 5 sóknum af 22. Alla Gorkorian var að leika þokkalega en hún var tekin úr umferð í seinni hálfleiknum og þá var eins og fátt væri til ráða hjá Seltirn- ingum. Það lagaði þó leik þeirra nokk- uð að Ágústa Edda Björnsdóttir lék aftur með liðnu eftir nokkra fjarveru vegna meiðsla. Þó má segja að helsti veikleiki Gróttu/KR hafi verið mark- varslan en hvorugur markvarða liðs- ins náði sér á strik að þessu sinni. Leikglaðar Haukastúlkur öruggar áfram Haukastúlkur létu engan bilbug ásér finna þegar þær sóttu Vík- ingsstúkur heim í Víkina á sunnudag. Þær unnu öruggan átta marka sigur 31:23 á stöllum sínum úr Fossvoginum og leika því til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörn- unni. Leikurinn byrjaði af krafti og var ljóst að bæði lið voru komin til að sigra. Leikgleðin skein úr andliti leik- manna og skilaði sér beint til áhorf- enda svo úr varð fínasta skemmtun. Haukastúlkur skoruðu fyrstu þrjú mörkin áður en Gerður Beta Jó- hannsdóttir skoraði fyrsta mark Vík- inga. Þrátt fyrir óstöðvandi baráttu Víkingsstúlkna voru það Haukarnir sem héldu forystunni framan af - munurinn varð þó aldrei meiri en þrjú mörk. Undir lok hálfleiksins náðu Víkingar þó að jafna og var það að þakka fínni frammistöðu Gerðar og góðri markvörslu Helgu Torfadóttur. Þegar flautað var til leikhlés var stað- an 12:12. Í byrjun síðari hálfleiks var fljót- lega ljóst í hvoru búningsherberginu hafði gengið meira á, því eftir fimm mínútna leik settu Haukastúlkur í gír og völtuðu yfir Víkingana. Þær tóku Gerði, sem gerði níu mörk í fyrri hálf- leik, úr umferð og hófu stórsókn. Bar þar mest á Nínu Björnsdóttur sem skoraði mörk í öllum regnbogans lit- um auk þess að eiga eitraðar send- ingar á fyrirliða Hauka, Hörpu Mel- sted. Samleikur þeirra skilaði mörgum glæsilegum mörkum sem gerðu út af við Víkingsstúlkur. Á tíu mínútna kafla breyttu þær stöllur, með hjálp frá Jenný Ásmundsdóttur í markinu, stöðunni úr 14:17 í 17:27. Víkingar reyndu hvað þær gátu en áttu fá svör við feikna sterkri vörn Hauka. Einnig stóð Jenný vaktina vel í marki Hauka og varði átján skot í leiknum. „Við sáum það í leikhléi að við lék- um langt undir getu og spýttum því í lófana, lokuðum vörninni og sigurinn er ekki síst því að þakka ásamt frá- bærri markvörslu,“ sagði Harpa Mel- sted fyrirliði Hauka eftir leikinn. Morgunblaðið/Golli Ragnheiður Stephensen, Stjörnunni, sækir að Evu Björk Hlöðversdóttur og Selmu Grétarsdóttur, varnarmönnum Gróttu/KR, í leik liðanna á sunnudaginn. Ragnheiður og samherjar höfðu betur og eru komnir í úrslitaeinvígið við Hauka. Það hefst á laugardaginn. Umskipti á Seltjarnarnesi ALGJÖR umskipti á varnarleik Stjörnunnar í leik gegn Gróttu/KR á sunnudag færði Garðbæingum réttinn til þess að leika um Íslands- meistaratitilinn í handknattleik kvenna, þar sem liðið mætir Hauk- um úr Hafnarfirði. Stjarnan sigraði Gróttu/KR með fjögurra marka mun 22:26 eftir að hafa verið undir í leikhléi 17:13. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Andri Karl skrifar KA tryggði sér sæti í úrslitakeppnideildabikars karla í knatt- spyrnu á laugardaginn með því að sigra Keflvíkinga, 1:0, í næstsíðustu umferðinni á Ásvöllum í Hafnarfirði. Hreinn Hringsson skoraði sigur- markið í síðari hálfleik eftir að Þor- valdur Makan Sigbjörnsson hafði átt skot í þverslá. KA og Keflavík eru efst í B-riðli og eru einu liðin sem eru komin í átta liða úrslit þó aðeins sé ólokið fjórum leikj- um í hvorum riðli efri deildar. Fram, Valur, Þróttur R., Grindavík og ÍBV berjast um hin tvö sætin í B-riðlinum. Framarar styrktu stöðu sína með því að bursta Dalvíkinga 9:1 á laugardag- inn og ÍBV á enn von eftir 2:1 sigur gegn Þrótti R. Þar léku Eyjamenn manni færri frá 30. mínútu þegar Bjarnólfi Lárussyni var sýnt rauða spjaldið en þeir tryggðu sér sigur með mörkum Gunnars Heiðars Þor- valdssonar og Péturs Runólfssonar. Ekkert lið er komið áfram úr A- riðli en þar skilja aðeins þrjú stig sex efstu liðin að. Skagamenn sigruðu Stjörnuna, 3:1, á sunnudaginn, þar sem Hjörtur Hjartarson skoraði tví- vegis fyrir Íslandsmeistarana og Garðar Gunnlaugsson einu sinni. Skagamenn hafa lokið leikjum sínum og verða að bíða annarra úrslita en ef KR og Breiðablik vinna sína leiki sitja þeir eftir þrátt fyrir að vera komnir með 12 stig. Aðeins KA og Keflavík komin áfram STOKE City tryggði sér sæti í úr- slitakeppninni um sæti í 1. deild ensku knattspyrnunnar þriðja ár- ið í röð með því að sigra Wrex- ham, 1:0, í næstsíðustu umferð 2. deildar á laugardaginn. Þetta var sjötti heimasigur Stoke í röð og skoraði Andy Cooke sigurmarkið á 30. mínútu. Bjarni Guðjónsson lék allan leikinn með Stoke, einn Íslendinga, en Stefán Þ. Þórð- arson var á varamannabekknum og kom ekki við sögu. Það ræðst í lokaumferðinni hvort Stoke hafnar í fjórða, fimmta eða sjötta sæti og hverjir mótherjarnir verða í úr- slitakeppninni en þangað fara einnig Cardiff og Huddersfield og annaðhvort Reading eða Brent- ford, sem berjast um annað sætið í síðustu umferðinni. Reyndar á Stoke tölfræðilega möguleika á þriðja sætinu, ef Brentford tapar illa fyrir Reading og Stoke vinnur Bristol City stórt á útivelli. Stoke hafnaði í sjötta sæti 1999- 2000, á fyrsta tímabili Íslending- anna við stjórnvölinn þar, og í fimmta sæti í fyrra. Talsvert er í húfi að ná fjórða sætinu því þá fengi liðið síðari undanúrslitaleik- inn á heimavelli, en tvö und- anfarin ár hefur liðið átt síðari leikinn á útivelli og tapað í bæði skiptin. „Þegar við leikum af fullri getu sigrum við hvaða lið sem er í þess- ari deild. Ég hef því ekki miklar áhyggjur af því hverjum við mæt- um héðan í frá,“ sagði Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Stoke, á heimasíðu félagsins eftir leikinn við Wrexham. Guðjón hefur ekki áhyggjur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.