Morgunblaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 6
„V í a in Ke lei að þe lið kö ve ur vin lif á s m sk sig He va sta ell M um ek ge Si lið an ko bæ vo þe síð bæ N a lei sv um No gó um sk sk ge by fó lei við um en un sjö fæ sp ok lei lá sa J ef va Ha lei ha od m við to sig ok fy sli rík KÖRFUKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK Í fyrsta leik liðanna var það DamonJohnson, Bandaríkjamaðurinn í liði Keflvíkinga, sem dró vagninn, en það var greinilegt að aðrir leikmenn liðs- ins ætluðu sér stærra hlutverk að þessu sinni. Gunnar Ein- arsson skoraði tíu stig í röð í fyrsta leikhluta, Guðjón Skúlason tók við hlutverki Gunnars í öðrum leikhluta og þeir Gunnar Stefánsson og Davíð Jónsson létu mikið að sér kveða í leiknum. Á meðan fjórir til fimm leikmenn Keflavíkur voru að raða niður stigum í gríð og erg var leikstjórnandi Njarð- víkinga, Peter Philo, með boltann í lúkunum megnið af öllum sóknum liðsins. Philo var því afar áberandi í leik liðsins og skoraði 19 stig í fyrri hálfleik og 30 alls en á meðan voru aðrir leikmenn liðsins í hópi fjöl- margra áhorfenda á leiknum og fengu úr litlu að moða. „Ég veit að Peter er mikið fyrir að skreyta aðeins hlutina og er stundum of lengi að koma boltanum frá sér en ég get ekki annað en verið ánægður með framlag hans, 30 stig og 9 stoðsendingar í sig- urleik. Ég bið ekki um meira,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð- víkinga, er hann var inntur eftir því hvort Philo væri dragbítur á sóknar- leik liðsins. Keflvíkingar léku gríðarlega vel allt þar til um miðbik fjórða leikhluta, en þá féllu leikmenn liðsins í þá gryfju að ætla Damon Johnsons það hlut- verk að ljúka öllum sóknum liðsins. Damon var í afar strangri gæslu Brentons Birminghams frá upphafi til enda. Aðrir leikmenn Keflavíkur fengu því tækifæri til þess að finna glufur á vörn Njarðvíkur og það nýttu þeir sér megnið af leiknum með góð- um árangri, en þegar mest á reyndi var sem trúin á eigin getu væri ekki lengur til staðar. Njarðvíkingar aftur á móti fundu nýjar leiðir að körfu Keflvíkinga og hertu á varnarleikn- um. Páll Kristinsson var afar mikil- vægur á þeim kafla þar sem Njarð- víkingar náðu yfirhöndinni og það sama má segja um Teit Örlygsson sem annars hafði sig lítið í frammi. Það vakti athygli að Sigurður Ingi- mundarson lét Sverri Sverrisson vera í leikstjórnandahlutverkinu á loka- kaflanum en hann er ekki besta skytta Keflvíkinga og varnarmenn Njarðvíkur lögðu þeim mun meiri áherslu á að koma í veg fyrir að Dam- on Johnson fengi boltann. „Ég tel að það hafi ekki verið mis- tök að hafa Sverri inni á í lok leiksins hann er liðinu gríðarlega mikilvægur og veit sín takmörk,“ sagði Sigurður Ingimundason. Þrátt fyrir tapið er greinilegt að sigurviljann skortir ekki hjá Keflvíkingum og leikur liðsins var margfalt betri en það sem þeir sýndu í fyrstu viðureign liðanna. Gunnar Einarsson og nafni hans Stefánsson voru áberandi í fyrri hálfleik en gerðu sig seka um klaufalegar villur sem varð til þess að þeir léku minna en ella. Davíð Jónsson kom gríðarlega á óvart og skor- aði tólf stig á aðeins ellefu mínútum. Damon Johnson var ekki eins áberandi í sókninni að þessu sinni en var mun atkvæða meiri á öðrum sviðum og það sama má segja um Guðjón Skúla- sons sem var bestur í liði Keflavíkur. Það sem er einkennir Njarðvíkinga er að hlut- verkaskipting þeirra er á hreinu. Logi Gunnarsson er ekki eins áberandi í leik liðs- ins, Philo virðist með sjálfs- traustið í lagi og Brenton Birmingham skilar varnar- hlutverkinu með sóma. Mið- herjarnir Páll Kristinsson og Friðrik Stefánsson verja skot og taka fráköstin og þrátt fyrir að Friðrik eigi erfitt uppdráttar í stigaskor- uninni er framlag hans til liðsins oft á tíðum vanmetið. Það sama má segja um ref- inn Teit Örlygsson sem skoraði þegar mest á reyndi en hann verður fjarri góðu gamni í næsta leik þar sem hann verður í leikbanni. Morgunblaðið/Sverrir Beðið eftir boltanum. Njarðvíkingar og Keflvíkingar mættust í Njarðvík á laugardaginn og þriðji leikurinn verður í kvöld í Keflavík. Njarðvík með afar vænlega stöðu ÞAÐ var fátt sem benti til annars en að Keflvíkingar myndu jafna metin í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla gegn Njarðvík á laugardaginn á heimavelli þeirra síðastnefndu. Gestirnir fóru hamförum í vörn og sókn allt þar til í fjórða leikhluta en þá hrundi leikur liðsins líkt og spilaborg. Njarðvíkingar gengu á lagið og náðu yfirhöndinni sem skilaði þeim 96:88 sigri og eru Ís- landsmeistararnir í afar vænlegri stöðu fyrir þriðja leik liðanna sem fram fer á þriðjudaginn í Keflavík en þar geta Njarðvíkingar tryggt sér titilinn, annað árið í röð. Morgunblaðið/Sverrir Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð- víkinga, þurfti að messa yfir sínum mönnum.                                                      Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar „VIÐ erum með betra lið en Njarð- vík og eigum að vinna þá á eðlilegum degi,“ sagði Sigurður Ingimundar- son þjálfari Keflvíkinga á laugardag eftir að hann hafði mátt horfa uppá lið sitt tapa öðru sinni gegn granna- liðinu frá Njarðvík í úrslitum um Ís- landsmeistaratitilinn í körfuknatt- leik karla. Það var greinilegt að Sigurður var ekki ánægður með dómgæsluna í leiknum en hann vildi ekki kenna þeim um úrslit leiksins. „Það er samt sem áður ótrúlegur munur á liðunum hvað villurnar varðar, hve oft fórum við á vítalínuna í þessum leik? Ég trúi varla að það sé svo mikill munur á liðunum á þessum vettvangi.“ Þess má geta að Keflavík tók tíu vítaskot í leiknum án þess að geiga á einu þeirra en á sama tíma fengu heimamenn úr Njarðvík fjörutíu og eitt vítaskot. Sigurður bætti því við að hann hygðist mæta með lið sitt á ný í Njarðvík í þessari rimmu en til þess þarf liðið að sigra í næstu við- ureign liðana sem fram fer þriðju- dag. „Við klúðruðum þessu sjálfir með ótrúlegum klaufaskap í lok leiksins en við því er ekkert að gera úr þessu. Ég lofa því að við sigrum á heima- velli í næsta leik og við eigum aðeins eftir að eflast við mótlætið,“ sagði Sigurður. Klárum einvígið í næsta leik „Við skorum alltaf um og yfir 90 stig í leikjum okkar og því var ég sallarólegur þrátt fyrir að við værum undir megnið af leiknum. Það vant- aði aðeins að herða á vörninni og þá var ég viss um að þetta myndi ganga upp hjá okkur, sem varð raunin,“ sagði Friðrik Ragnarsson þjálfari Njarðvíkinga. „Vörnin í fyrri hálfleik var skelfi- leg þar sem við leyfðum Keflvíking- um að skjóta fyrir utan og þeir þökk- uðu fyrir sig með því að skora tíu þriggja stiga körfur úr nítján til- raunum.“ Friðrik sagði að liðið hefði verið saman frá því snemma morguns á laugardag þar sem leiktíminn var óvenjulegur. „Það er mikill hugur í mönnum og það er langt síðan ég hef fundið meira hungur í titil í okkar liði. Við vitum hvað við þurfum að gera og það er langur vegur frá því að við séum mettir. Við klárum þetta einvígi á þriðjudaginn í Keflavík,“ sagði Friðrik. Eflumst við mótlæti  FORRÁÐAMENN Njarðvíkur boðuðu til stórviðburðar í leikhléi á laugardaginn í leik Njarðvíkur og Keflavíkur og áttu áhorfendur von á mikilli sýningu. Vélhjólamaður átti að leika listir sínar á íþróttagólfinu íklæddur Njarðvíkurbúningi. Þegar til kom fór hjólið ekki í gang en það tókst þó að lokum rétt áður en leik- menn beggja liða voru tilbúnir að hefja upphitun á ný. Vélhjólinu var síðan ekið um gólfið en skildi lítið eftir nema loft- og hávaðmengun. En starfsmenn íþróttahússins þurftu að þrífa upp gúmmí og olíubletti eftir „atriðið“ sem var til lítils gagns.  NJARÐVÍK og Keflvík léku til úr- slita árið 1991 um Íslandsmeistara- titilinn og þar höfðu þeir græn- klæddu betur, 3:2. Falur Harðarson, Guðjón Skúlason og Sigurður Ingi- mundarson, þjálfari Keflavíkur, léku þá allir með Keflavíkurliðinu. Teitur Örlygsson og Friðrik Ragn- arsson, þjálfari Njarðvíkur, voru þá í herbúðum Njarðvíkinga.  ÁRIÐ 1999 léku liðin að nýju gegn hvort öðru í úrslitum um Íslands- meistaratitilinn og þá sneru Kefl- víkingar taflinu við og sigruðu 3:2. Halldór Karlsson, leikmaður Njarð- víkurliðsins í dag, var þá í liði Kefla- víkur. Sigurður Ingimundarson var sem fyrr þjálfari liðsins og þeir Fal- ur Harðarson, Guðjón Skúlason, Gunnar Einarsson og Damon John- son léku með liðinu. Í Njarðvíkurlið- inu voru þeir Páll Kristinsson, Brenton Birmingham, Teitur Ör- lygsson, Friðrik Stefánsson, Sævar Garðarsson og Friðrik Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.