Morgunblaðið - 16.04.2002, Síða 7
VIÐ héldum alltaf áfram og vorum til
að prófa hvað sem er til að komast
n í leikinn og það gekk upp,“ sagði
eith Vassell þjálfari KR-stúlkna eftir
ikinn. „Munurinn á liðum er helstur
ð við spilum betri vörn og hleypum
eim aldrei of langt frá okkur en bæði
ð berjast vel.“
Þetta er frumraun Vassell í þjálfun
örfuknattleikskvenna og getur hann
el við unað með tvo bikara eftir vet-
rinn. „Þetta er mjög gaman og að
nna bikarana tvo er mín besta upp-
fun. Þessar stelpur leggja mjög mikið
sig, æfa mjög mikið og leggja sig
ikið fram á öllum æfingum og upp-
kera fyrir það. Annars eru þessir
grar minnst mér að þakka, Henning
enningsson, sem þjálfaði liðið áður
ar búinn að byggja það vel upp og svo
anda þessar stelpur sig,“ sagði Vass-
l.
Munurinn lá
í baráttu-
viljanum
„Við höfðum alltaf trú á að við gæt-
m jafnað leikinn þó að stundum hafi
kki verið á hreinu hvað við vorum að
era inni á vellinum,“ sagði Hildur
igurðardóttir, sem átti góðan leik í
ði KR.
„Munurinn á liðunum lá í baráttuvilj-
num til að taka þennan bikar enda
om ekki annað til greina. Það var frá-
ært að komast aftur inn í leikinn. Við
orum alveg harðákveðnar í að stöðva
eirra helstu leikmenn og það gekk.
Uppskeran í vetur er mjög góð og
ðustu tvö ár hafa verið alveg frá-
ær.“
Náum okkur
alltaf á strik
„Við vorum búnar að tapa tveimur
ikjum og því komnar upp við vegg
vo að við tókum til hjá okkur og fór-
m að spila vörn,“ sagði Guðbjörg
orðfjörð Elíasdóttir, sem átti mjög
óðan leik. Hún skoraði úr 8 af 5 skot-
m inni í teig, báðum þriggja stiga
kotum sínum og öllum fjórum víta-
kotunum sem hún fékk auk þess að
efa fjórar stoðsendingar. „Við höfum
yrjað mjög illa í þessum leikjum og
rum mikið undir í byrjun í þessum
ik en okkur er alveg orðið ljóst að
ð náum okkur alltaf á strik og kom-
mst inn í leikinn á ný svo að ég hafði
ngar áhyggjur. Við höfum líka reynsl-
na fram yfir þær og líka breiðari hóp,
ö af okkur hafa mikla reynslu en þær
ærri og það hlýtur að vera erfitt að
pila svona harðar rimmur. Margar af
kkur hafa tekið þátt í svona úrslita-
ikjum og landað bikurum. Munurinn
því í þessu en líka í grimmdinni,“
agði Guðbjörg Norðfjörð.
Jafnvel hrædd-
ar við að tapa
„Við byrjuðum vel en gáfum svolítið
ftir í baráttunni auk þess að hittnin
ar ekki nógu góð hjá okkur,“ sagði
afdís Helgadóttir, fyrirliði ÍS, eftir
ikinn. „Ég er ekki viss um að það
afi verið slæmt að fara í þennan
ddaleik með tvö töp en reynsla skipti
iklu máli. Við vorum jafnvel hræddar
ð að tapa leiknum og það tók sinn
ll því það þarf líka að kunna að
gra. Það vantaði einhvern neista í
kkur til ná yfirhöndinni en þetta var í
yrsta sinn sem við förum í svona úr-
italeik og erum vonandi reynslunni
kari.“
Héldum
alltaf
áfram
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 B 7
Í byrjun lék KR góða vörn, sem skil-aði naumu forskoti en þegar ÍS-
stúlkur náðu sér á strik voru þær ekki
lengi að snúa taflinu
við og náðu mest níu
stiga forskoti á með-
an gestirnir sváfu á
verðinum. En KR-
stúlkur hafa marga fjöruna sopið og
síðan staðið uppi sem sigurvegarar.
Þeim tókst að halda í við Stúdínur og
fljótlega fór seiglan að skila sér þegar
þær snarbættu varnarleikinn og
skoruðu síðan 15 stig án þess að ÍS
tækist að svara fyrir sig og höfðu
36:33 forystu í hálfleik.
Þriðji leikhluti var í járnum þegar
liðin börðust um völdin og voru aðeins
skoruð samtals 6 stig fyrstu 5 mín-
úturnar. Þá tók KR-ingurinn Hildur
Sigurðardóttir við sér og leiddi stöllur
sínar til forystu en á sama tíma gekk
Stúdínum afar illa upp með skotin sín.
Þó að KR-stúlkur hefðu byr í seglin
tókst þeim ekki að stinga ÍS af, mun-
urinn fór niður í þrjú stig, 59:56. Aftur
héldu Vesturbæingar að björninn
væri unninn þegar þær höfðu tíu stiga
forskot 66:56 en ÍS tókst að saxa for-
skotið niður í 4 stig 66:62. Í lokin
freistuðu ÍS-stúlkur þess að brjóta á
KR-ingum í von um að vítaskotin
færu ekki rétta leið en KR-ingum
brást ekki bogalistin þar.
Mikið mæddi á Meadow Overstreet
og Öldu Leif Jónsdóttur, sem voru í
strangri gæslu en þá gerði Lovísa Að-
alheiður Guðmundsdóttir góða hluti
og Hafdís Helgadóttir einnig. Alda
Leif náðu þó að skora 13 stig, taka 8
fráköst og gefa 9 stoðsendingar en
Lovísa og Þórunn Bjarnadóttir tóku
sín 9 fráköstin hvor.
Hjá KR náðu margir leikmenn góð-
um leik. Guðbjörg Norðfjörð var
drjúg við stigaskorun auk þess að
taka 5 fráköst en Carrie Coffman tók
flest, alls 17. Helga Þorvaldsdóttir og
Hildur Sigurðarsdóttir voru einnig
góðar.
KR-stúlkur bættu
við bikarasafnið
Morgunblaðið/Golli
Kristín B. Jónsdóttir, fyrirliði KR, með sigurlaunin.
HITTNI skildi á milli feigs og ófeigs þegar ÍS og KR tókust á í hrein-
um úrslitaleik um sigur á Íslandsmóti kvenna körfuknattleik í
íþróttahúsi Kennaraháskólans á sunnudaginn. Stúdínum gekk erf-
iðlega að hitta ofan í körfuna en Vesturbæingum mun betur og það
hafði góð áhrif á baráttuandann sem skilaði 68:64 sigri.
Stefán
Stefánsson
skrifar
„Við lékum góða vörn en náðum aldr-
ei að minnka muninn og brjóta þær á
bak aftur,“ sagði Ívar Ásgrímsson,
þjálfari ÍS, eftir leikinn. „Það komu
oft nokkrar mínútur sem við skoruð-
um ekki neitt þó að við værum í góð-
um færum og það er dýrt í svona leik.
Þetta var eiginlega alveg eins leikur
og síðasti leikur liðanna, við náðum að
stöðva þær með góðri vörn en ekki að
skora mikilvægar körfur til að komast
yfir. Við skoruðum að vísu þegar þær
skoruðu en vantaði alveg að setja nið-
ur auðveld skot. Við byrjum yfirleitt
betur en KR-liðið en það nær alltaf að
komast inn í leikinn og það er vanda-
málið auk þess að vera líkamlega
sterkari og þær unnu á því núna.“
Þjálfarinn sagði erfitt að mæta í
fimmta leikinn eftir sigur í fyrstu
tveimur en tap í tveimur síðustu. „Það
var orðið þrúgandi andrúmsloftið og
stressandi að mæta eftir tvo tapleiki.
Stelpurnar voru orðnar ragar og það
getur verið ástæðan fyrir því að skot-
in okkar fóru ekki niður en við byrj-
uðum samt vel svo það vantaði ekki að
liðið væri tilbúið í leikinn. Það sem við
gerðum var alveg rétt en það vantaði
bara að ljúka sóknum vel,“ bætti Ívar
við og sagði hlutskipti sinna helstu
stigaskorara, Öldu Leifar Jónsdóttur
og Meadow Overstreet, erfitt. „Þær
eru okkar helstu til að skora á meðan
skorið dreifist meira hjá KR-liðinu og
KR-ingar ná að stöðva þær ágætlega
en þær voru ekki alveg nógu
ákveðnar við að keyra framhjá þeim
upp að körfunni til að nota það sem
þær eru bestar í, sem er hraðinn.“
Dýrt að nýta ekki góðu færin
Morgunblaðið/Golli
KR-stúlkur fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð er liðið lagði ÍS 3-2 eftir að hafa verið 2-0 undir í rimmunni.
KÖRFUKNATTLEIKUR