Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 9
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 B 9
Matthias Sammer, þjálfari Bo-russia Dortmund, gaf til
kynna eftir ósigur gegn Kaiserslaut-
ern á sunnudaginn, 1:0, að baráttan
við Bayer Leverkusen um þýska
meistaratitilinn í knattspyrnu væri
töpuð. Leverkusen, sem gerði jafn-
tefli, 1:1, við Hamburger SV á laug-
ardag, er komið með 5 stiga forystu
þegar þremur umferðum er ólokið.
Leikmenn Leverkusen virtust
mjög þreyttir í leiknum í Hamborg,
eftir slaginn gegn Liverpool í síð-
ustu viku. Þeir fengu á sig mark
strax á 5. mínútu þegar Sergei
Barbarez skoraði en Oliver Neuville
var fljótur að jafna, 1:1.
Hertha Berlín heldur sínu striki
og gæti nú jafnvel náð öðru sætinu á
lokasprettinum. Alex Alves skoraði
sigurmarkið gegn Hansa Rostock,
1:0, strax á 2. mínútu. Eyjólfur
Sverrisson var á ný í leikmannahópi
Herthu eftir nokkra fjarveru vegna
meiðsla og kom inn á undir lok leiks-
ins. Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bay-
ern, var ánægður með sína menn
sem unnu sigur í Nürnberg, 2:1.
„Þetta var mikilvægur vinnusigur í
kjölfarið á hinum miklu vonbrigðum
í Madríd,“ sagði Hitzfeld en lið hans
er á skömmum tíma búið að missa af
lestinni í öllum stórmótum vetrar-
ins. Stjórn Bayern sendi frá sér
skýr skilaboð fyrir leikinn í Nürn-
berg að það kæmi einfaldlega ekki
til greina að liðið klúðraði því að
komast í meistaradeild Evrópu
næsta vetur.
Reuters
Oliver Neuville, til hægri, skoraði mark Leverkusen í Hamborg, og hér á hann í höggi við Ingo
Hertzsch, leikmann heimaliðsins. Með sigrinum náði Leverkusen 5 stiga forskoti á toppnum.
Sammer
telur barátt-
una tapaða
Með leik-
menn frá fjór-
tán löndum
HOLLENSKA liðið Ajax
tryggði sér rétt til að leika
til úrslita í hollensku bik-
arkeppninni með því að
leggja PSV Eindhoven að
velli, 3:0. Ajax mætir Utrecht
12. maí. Það má með sanni
segja að lið Ajax sé fjöl-
þjóðlegt, því að í herbúðum
liðsins eru leikmenn frá fjór-
tán löndum. Byrjunarliðið
gegn PSV var þannig skipað:
Fred Grim (Hollandi), Hatem
Trabelsi (Túnis), Andre
Bergdølmo (Noregi), Cristi-
an Chivu (Rúmeníu), John
O’Brien (Bandaríkjunum),
Tomas Galasek (Tékklandi),
Jan van Halst (Hollandi), Ste-
ven Pienaar (Suður-Afríku),
Maxwell (Brasilíu), Nikos
Machlas (Grikklandi) og
Mido (Egyptalandi).
Til var voru Yakubu
(Ghana), Joey Didulica (Ástr-
alíu), Tim de Cler (Hollandi),
Pius Ikedia (Nígería), Zlatan
(Svíþjóð), Richard Knopper
(Hollandi), Petri Pasanen
(Finnland), Daniel Cruz (Kól-
umbíu).
Mark Owens var glæsilegt enhann lyfti boltanum yfir
Tommy Sörensen, markvörð Sun-
derland, eftir frábæra sendingu frá
Steven Gerrard.
Liverpool á nú aðeins einn úti-
leik eftir, gegn Tottenham, en þrjá
heimaleiki, gegn Derby, Ipswich
og Blackburn. „Þetta eru erfiðir
leikir, það er aldrei auðvelt að
sækja Tottenham heim og við verð-
um að vinna alla heimaleikina til að
eiga einhverja möguleika. Við
verðum að einbeita okkur að því
sem við þurfum að gera og vona að
leikmenn Arsenal misstígi sig – en
þeir eru á mikilli siglingu,“ sagði
Houllier eftir leikinn í Sunderland.
Liverpool náði að rífa sig upp
eftir ósigurinn beiska gegn Lev-
erkusen fjórum dögum áður. „Gott
lið tapar ekki tvisvar í röð og leik-
mennirnir eiga heiður skilinn. Þeir
sýndu mikið hugrekki, það er erfitt
að spila í Sunderland en við sýnd-
um styrk og einbeitingu með því að
fá ekki á okkur mark og nýta tæki-
færið. Arsenal stendur áfram best
að vígi en nú erum við öruggir með
eitt af fjórum efstu sætunum og
þar með má segja að Evrópu-
keppnin sé byrjuð hjá okkur,“
sagði franski knattspyrnustjórinn.
Arsenal, Manchester United og
Chelsea áttu öll frí vegna undan-
úrslitanna í bikarkeppninni. New-
castle komst í fjórða sætið, þremur
stigum upp fyrir Chelsea með því
að sigra Derby, 3:2, á útivelli eftir
að hafa lent 2:0 undir í síðari hálf-
leiknum. Tresor Lua-Lua skoraði
sigurmark Newcastle á síðustu
mínútunni og þar með er Derby
nánast fallið úr úrvalsdeildinni.
Ipswich og Blackburn léku ekki um
helgina og staðan í fallbaráttunni
breyttist því ekki að öðru leyti.
Mark Viduka tryggði Leeds 1:0
sigur gegn Aston Villa á útivelli og
lið hans er nú aðeins stigi á eftir
Chelsea í sjötta sætinu.
„Verðum að vona að
Arsenal misstígi sig“
MICHAEL Owen hefur ekki sýnt sínar bestu hliðar undanfarnar vik-
ur og mánuði. En á laugardaginn reyndist sóknarmaðurinn eldfljóti
félagi sínu, Liverpool, afar dýrmætur þegar hann skoraði sig-
urmarkið, 1:0, í erfiðum útileik gegn Sunderland í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu. Þessi þrjú stig gefa Liverpool aukna mögu-
leika á að fylgja Arsenal alla leið í baráttunni um meistaratitilinn;
strákarnir hans Gerards Houlliers eru nú stigi á eftir Arsenal, sem á
leik til góða, og stigi á undan Manchester United.
Reuters
Michael Owen, framherji Liverpool, fagnar hinu dýrmæta sig-
urmarki sínu gegn Sunderland á laugardaginn.
Ronaldo að koma til
RONALDO reyndist Inter dýrmætur á sunnudaginn þegar
hann náði loks að leika heilan leik fyrir félagið í ítölsku knatt-
spyrnunni. Inter var lengi vel undir á heimavelli gegn Brescia
en Ronaldo skoraði tvívegis með fjögurra mínútna millibili
seint í leiknum. Inter vann, 2:1, og heldur tveggja stiga for-
ystu í deildinni. Ítalskir fjölmiðlar voru í gær hástemmdir í
lýsingum sínum á frammistöðu Ronaldos og sögðu að frá og
með þessum leik væri endanlega ljóst að snillingurinn væri
kominn aftur á sinn fyrri stall.