Morgunblaðið - 17.04.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.2002, Blaðsíða 2
LAXNESSÞING, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2 B MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í VERKUM sínum tekst Halldór á við íslenska sveitamennsku og flest- ar hliðar íslensks sveitalífs. Þetta réð miklu um viðtökur stóru skáldsagn- anna hans á þriðja áratugnum og annarra skrifa hans. Úlfar Bragason nefnir fyrirlestur sinn Sveitaómenninguna í skugga skáldsins frá Laxnesi. Þar leggur hann upp með fyrirlestur Guðmund- ar Friðjónssonar um Sjálfstætt fólk og Ljós Heimsins sem Guðmundur hélt 1937. Síðar kom fyrirlestur Guð- mundar út í sérprenti. Guðmundur var afar gagnrýninn á þessi verk eins og reyndar tveir aðrir sem um hana höfðu fjallað en annar þeirra var Jónas frá Hriflu. Halldór gerði síðar mikið úr andstöðu almennings við Sjálfstætt fólk en staðreyndin er sú að flestir ritdómanna voru lofsam- legir, eða tíu af þrettán. Úlfar fer í saumana á gagnrýni Guðmundar í fyrirlestri sínum og ástæðum henn- ar. Guðmundur var alinn upp í raunsæishefð og honum gramdist sú árás á einyrkja sem hann fann fyrir í bókum Halldórs. Hann fagnaði hins- vegar málfrelsi og vildi notfæra sér það. Úlfar telur að Guðmundur hafi viljað skapa umræður um þessi verk en ekki ætlað sér að berja bókina niður. Jón Karl Helgason veltir fyrir sér annarri hlið á Laxness-viðtökum í fyrirlestri sínum og fjallar um menn- inguna sem varning. Menningin er táknræn eða áþreifanleg söluvara sem hægt er nota sér til framdáttar í margvíslegum skilningi. Í fyrirlestri sem hann nefnir Hver á Halldór Laxness? veltir Jón Karl því fyrir sér hvernig eignarhaldi á Laxness og verkum hans hafi verið háttað, fjallar um höfundar- og útgáfurétt og tengir þetta vangaveltum um menningarlegt auðmagn. Jón Karl fjallar líka um samtímaumræðuna um Laxness sem snýst á vissan hátt um að gera hann að þjóð- areign. En þetta skapar vandamál – til að hægt sé að gera höfundinn að eign þjóðarinnar og tákni henn- ar þarf að sníða sögu hans og per- sónu að þessu hlutverki. Það er jafnvel nauðsynlegt að gera ein- hvers konar dýrlingsmynd úr hon- um. Þegar Halldór er annars veg- ar er þetta ekki auðvelt, saga hans er ekki einföld og margir aðilar telja sig hugsanlega geta gert til- kall til ólíkra þátta hans. Það má segja að menningarlegt auðmagn, notkun og misnotkun þess, tengist einnig umfjöllunar- efni Péturs Más Ólafssonar í fyr- irlestri um einn af þekktustu kar- akterum Laxness, alheimssaungv- arann. Pétur nefnir fyrirlesturinn Platsaungvara hólfélagsins – Garðar Hólm verður til. Þar rekur hann hvernig Halldór víkur að persónu sem hann nefnir „al- heimssaungvarann“ í minniskomp- um sínum frá því að hann vann að Sjálfstæðu fólki. Tveimur áratug- um síðar lifnaði sá ágæti maður við á síðum Brekkukotsannáls undir nafninu Garðar Hólm. Í nót- issubókum Halldórs frá sjötta ára- tugnum er sama persóna nefnd „platsaungvarinn“. Pétur Már fjallar um líf stórsöngvarans og hvernig hann lendir í klónum á „hólfélaginu“ sem Halldór skrifar um í sömu nótissubók. Þröstur Helgason stýrir mál- stofunni. 9.30–10.30 Kvika í hrosshófi – Skáld og samfélag LEIKRIT Halldórs Laxness hafa alla tíð verið umdeild og hefur hverj- um sýnst sitt um gæði þeirra. Tveir fyrirlesarar í þessari málstofu fjalla sérstaklega um Strompleik sem nú er verið að sýna í Þjóðleikhúsinu en leikstjóri verksins, Kristín Jóhannes- dóttir er einmitt einn fyrirlesara. Hávar Sigurjóns- son kallar fyrirlestur sinn Frá Stromp- leiknum til Kristni- haldsins og segir hann hugmynd sína vera þá að skoða nokkur leikrit Hall- dórs Laxness í sam- hengi en þetta eru Strompleikur, Prjónastofan Sólin og Dúfnaveislan. Út frá þessum þremur leikritum veltir Háv- ar vöngum yfir því hvers konar leikrita- höfundur Laxness var — hverskonar leikrit eru þessi þrjú? Niðurstaða Hávars er sú að sum- part megi líta á skáldsöguna Kristni- hald undir Jökli sem afurð þessara þriggja verka og í raun sé sú saga bita- stæðasti afrakstur þess tímabils sem Halldór helgaði sig leikritun mest. Háv- ar telur erfitt að setja merkimiða á leikrit Halldórs Laxness. Verk hans eru tæplega absúrd verk, ekki einu sinni þótt maður felli þau undir eitt- hvað sem kalla má íslenskan absúrd- isma. Kannski helst að kalla verkin bókmenntalegar revíur. Þau eru full af ólíkindalátum, ekki djúp — lifa frekar á skopstælingunni. Halldór gerir grín að áhorfendum sínum og sjálfum sér í leiðinni. Kristín Jóhannesdóttir kallar fyr- irlestur sinn einfaldlega Um Stromp- leikinn. Í honum ætlar hún að fjalla um byggingu leikritsins og tengsl þess við dharmaheimspeki. Kerfið sem þessi austræna trúspeki beitir á heiminn styðst við andstæðurnar koan og mondo en í árekstrum þeirra opnast möguleikinn á uppljómun, dýpri skilningi. Kristín ætlar einnig að skoða höfundarverk Laxness frá þeim tíma er hann skrifaði Stromp- leik en það telur hún einkennast af frelsunarbaráttu. Tilraunir Halldórs til að brjótast út úr listrænni sjálf- heldu móta pólitískt uppgjör hans um leið að áliti Kristínar. Bjarni Jónsson fjallar um hvernig saga er löguð að miðli í fyrirlestri sínum Gengið yfir lík. Um ástríðufullar og dramatískar persón- ur í skáldsögunni Barn náttúrunnar og tilraun til þess að breyta henni í leik- gerð fyrir útvarp. Í fyrirlestrinum segir Bjarni frá tilraun til að skapa leikgerð upp úr þessari sögu sem nýtir sér textann óbreyttan en gerir þó meira en að hljóð- skreyta sögu. Bjarni vann að þessu ásamt fleirum hjá Útvarps- leikhúsinu en af- rakstrinum verður útvarpað á sunnudag. Í leikgerðinni er not- uð tónlist sem segja má að sé túlkanir á sönglögum við ljóð Halldórs. Þannig verður til margbrotið leikrit uppúr þessari fyrstu sögu Halldórs sem sumpart vísar til höf- undarverksins í heild. Bjarni segir söguna heilla fyrir það hve laus hún sé við loddaraskap og háð. Hún sé að mörgu leyti ólík seinni verkum Hall- dórs, en þó sé að finna í henni grunnstef sem borið hafi uppi skáld- sögur hans síðar. Árni Ibsen stýrir málstofunni. 13.30–14.30 Völvan með töfrasprotann – Leikrit og leikhús Morgunblaðið/Þorkell Úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Strompleiknum í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Í FYRIRLESTRINUM Chaplin í krosshliðinu fjallar Sigurbjörg Þrast- ardóttir um goðsögnina Laxness, um víðtæk áhrif hans burtséð frá lestri fólks á bókunum. Hún heldur því fram að áhrif hans á kynslóð ungra rithöfunda í dag séu ekki bein, þeir séu ekki að reyna að „skrifa sig frá Laxness“ enda hafi aðrir glímt við það á undanliðnum áratugum og tek- ist það. Laxness er stór höfundur en það er einmitt þessvegna sem hann getur sýnt rithöfundum hvað er hægt: að það er hægt að skrifa merkilega texta á íslensku, að það er hægt að gefa kerfinu langt nef, að allt er hægt... Laxness er stór, næstum jafnstór og Chaplin í augum kyn- slóðar sem fæddist fyrir þremur ára- tugum og miðar allt sitt við bíó og sjónvarp. Hann er stjarna en samt er hann lítillátur förumaður úr fortíð- inni, eins og hver annar gestur í krosshliðinu í Brekkukoti sem biður bara um húsaskjól yfir nóttina. Andri Snær Magnason kallar fyr- irlestur sinn Lengstur skuggi í kvöld- sól og í honum talar hann um myrkr- ið í skugga Laxness. Andri heldur því fram að skuggi Laxness hafi einkum færst yfir samtímamenn hans: Þeir sem lifðu og störfuðu á sama tíma og hann þurfa sterka umboðsmenn í nú- tímanum til þess að vega upp á móti stærð hans. En það er ekki þar með sagt að Laxness varpi skugga á rit- höfunda dagsins í dag. Eða eins og Andri orðar það sjálfur: „Laxness hefur safnast til forfeðra okkar og hann er undir og yfir og allt um kring ásamt Njálu og Jónasi og ásamt þeim mun hann skína á skáldin gegnum orð forseta Íslands og forsætisráð- herra og afmælishátíðarhaldara í ei- lífri framtíð (50 ár frá Nóbel, 175 ár frá Sölku, 275 ár frá Vefara) og þau munu fá ofbirtu í augun og líta undan en sjá ekkert nema sinn langa og mikla skugga í þögninni milli orða ræðumanna og skáldin munu neyðast til að atast í honum hvort sem þeim líkar betur eða verr, hvort sem verk hans hafa haft raunveruleg áhrif á þau eða ekki. Jónasarorðræðan mun neyða menn til þess að snúa útúr, vísa í verk og semja Sólliljuljóð, (sbr. Hallgerðarljóðin) neyða menn til upp- gjöra, stælinga, endurtekninga og nið- urrifs til eilífðar amen.“ Síðust rithöfundanna talar Auður Jónsdóttir en hún nefnir fyrirlestur sinn Fáðu þér fjallgönguskó! – Rang- hugmyndin um að íslenskir höfundar skrifi í skugga „,fjallsins“ Halldórs Laxness. Auður segir það einfaldlega ranghugmynd að íslenskir höfundar séu í skugga ,,fjallsins“, þ.e.a.s. Hall- dórs. Þvert á móti sé Laxness þeim hvatning. Hughrifin af lestri bóka hans geta gert lesandanum kleift að sjá mann- lífið í æðra ljósi því hann sé fyrst og fremst frábær listamaður. Þannig hafi hann miðlað listrænni tilfinningu til komandi kynslóða, sem hver og einn geti nýtt sér eftir eigin höfði. Þetta finnst Auði hafa gleymst í umræðunni um hann undanfarið enda sé hún yf- irboðskennd hvort sem um sé að ræða meiningar um stjórnmálaskoðanir hans eða eitthvert fjas um komplexa yngri höfunda gagnvart honum: „Kannski á minning hans ekki eftir að njóta sín í þessu ljósi fyrr en eftir nokkra áratugi þegar tilgangslaust verður að nota nafn hans sem póli- tískt vopn eða til að hæðast að sam- tímahöfundum okkar í stórkarlalegu jólabókaflóði. Því er ég þeirrar skoð- unar að ungir höfundar eigi ótrauðir að klífa fjallið í glaðasólskini, enda er Halldór Laxness ekki fjallið sjálft, heldur safaríkt nesti í farteskinu,“ segir Auður. Páll Valsson stýrir málstofunni. 15.00–16.00 „Að gánga á mála hjá lyginni“ – Laxness á nýrri öld Halldór kominn í stellingarnar. STÓRIR skáldsagnahöfundar eru auð- vitað alltaf að kljást við hin sígildu við- fangsefni mannsins í verkum sínum, ástina, dauðann, hamingjuleitina. Á þetta bendir Halldór Guðmundsson í fyrirlestri sínum „Einsog þráin sem ég bar“ – Um ástina í verkum Halldórs Laxness. Halldór ætlar að leggja út af endurteknum minnum í verkum nafna síns og skoðar einkum viðhorf hans til ástarinnar með þessum hætti. Halldór sýnir hvernig finna má hliðstæður í efnistökum Laxness í annars gerólík- um verkum, og hvernig ástinni bregður stundum fyrir einsog leiftri eða vitrun í sögum hans. Bergljót Kristjánsdóttir er á dálítið öðrum miðum með fyrirlestri sínum Tunga, samfélag, menning. Um málið á Gerplu. Bergljót ætlar að gera atrennu að því að tala um málið á Gerplu og velta sögunni fyrir sér út frá merking- arvirkni. Lesendum er ætlað mismikið hlutverk í skáldsögum – stundum ræð- ur sköpunargáfa þeirra miklu um merkingu sögunnar. Merkingarvirkni Gerplu er mikil í þessum skilningi að áliti Bergljótar. Halldór blandar saman ólíkum máltegundum í sögunni, setn- ingum og frösum í fornu máli og nýju, pólitísku dægurmáli og bókmennta- máli og því velta hugrenningatengslin sem textinn skapar mjög á lesandan- um, á því hvernig hann kemur að verk- inu. Gerpla er uppreisn gegn mótunar- afli menningarinnar og gerir þannig miklar kröfur til lesandans. Torfi Tulinius rannsakar hvernig Halldór notar íslenska alþýðumenn- ingu og þjóðtrú í skáldsögunni Sjálf- stætt fólk. Torfi bendir á að Halldór hafi staðið frammi fyrir ákveðnu fag- urfræðilegu vandamáli, því að gæða kotbændur innra lífi sem bókmennta- persónur. Þar dugar hin marxíska greining skammt og borgaralegar að- ferðir koma ekki til greina. Það er ekki fyrr en Laxness fer að beita þjóðtrúnni markvisst í persónusköp- un sem honum tekst að skapa þær persónur sem gefa sögunni líf. Í fyr- irlestri sínum Búkolla, Bjartur og blómin. Um þjóðtrú, myndmál og list skáldsögunnar í Sjálfstæðu fólki beinir Torfi einkum sjónum að kafla um eftirleitir og hvernig þjóðsagna- minni eru notuð til að byggja upp persónu Bjarts í þeim kafla. Torfi hugar einnig að náttúrmyndmáli Laxness, ekki síst blómamyndmáli sem talsvert kemur fyrir í Sjálfstæðu fólki, til dæmis í lýsingu á sambandi Bjarts og Ástu Sóllilju. Jaromil og Ljósvíkingurinn: Ímynd ljóðskáldsins hjá Laxness og Kundera er yfirskrift fyrirlestrar Friðriks Rafnssonar sem er sá síðasti í þessari málstofu. Friðrik ætlar að bera saman erkitýpu ljóðskáldsins hjá þessum tveimur höfundum. Jaromil er sögupersónu Kundera úr skáldsögunni Lífið er annarsstaðar sem svipar að nokkru leyti til Ólafs Kárasonar, sögupersónu Halldórs úr Heimsljósi. Báðir verða eins konar samnefnarar ljóðskáldsins. Þeir eiga sameiginlegt að vera óumdeilanlega mjög góð ljóðskáld. Staða þeirra í menningunni er hins vegar ólík. Í Heimsljósi er skáldið hluti af and- lausu umhverfi og öðlast stöðu snill- ingsins. Jaromil verður hins vegar ljóðrænunni að bráð í umhverfi bylt- ingarklisjunnar; umhverfi þar sem skáldleg, ljóðræn veruleikafirring blandast saman við pólitíska veru- leikafirringu. Firringin er hins vegar samkenni þeirra í einhverjum skiln- ingi: Hjá báðum hefur fegurðin stöðu andspænis raunveruleikanum. Brynhildur Þórarinsdóttir stýrir málstofunni. 11.00–12.00 Yfirdímensjóneruð örlög – Samtöl við skáldsögur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.