Vísir - 03.10.1980, Page 3
iSJLtt Föstudagur 3. október 1980.
rs
'3
si stofna málfundasam-
mennAlberts- ~. ma _ _ _
ýiSniiíor- tok eða nyjan nokk?
landsins:
Margir velta þvi fyrir sér
þessa dagana hvort stuðnings-
menn Alberts Guðmundssonar
séu á haganlegan hátt að undir-
búa stofnun nýs stjórnmála-
flokks. Eins og lesendum Visis
er kunnugt var nýlega haldinn
fundur i þeim hópi, þar sem
samþykkt var að stofna mál-
fundasamtök, þar sem þjóð-
málin verða rædd á opinn og
hlevDidómalausan hátt.
Ætlumn er að stofna mál-
fundafélög i hverju kjördæmi
og stærri kaupstöðum, sem
siðan mynda með sér landssam-
tök. Kosinn var starfshópur,
sem telur 10 manna lið úr öllum
kjördæmum, og skal hafa á
hendi þaö hlutverk að undirbúa
og koma á fót umræddum mál-
fundafélögum. 1 nefnd þessari
sitja eftirtaldir menn:
Ásgeir Hannes Eiriksson,
Þorvaldur Mawby og Óskar
Einarsson úr Reykjavik, Grétar
Norðfjörð, Reykjanesi, Þor-
björg Þórðardóttir, Vestur-
landi, Guðmundur H. Ingólfs-
son, Vestfjörðum, örn Björns-
son, Noröurlandi vestra, Jón
Arnþórsson, Norðurlandi
eystra, Rúnar Pálsson, Aust-
fjörðum og Þorsteinn Matthias-
son Suðurlandi.
Ýmsum þykir skipulagningin
bera svip þess að verið sé aö
byggja upp virkt stjórnmálaafl,
sem á fljótan og öruggan hátt
mætti ummynda i stjórnmála-
flokk, ef aöstæður breytast á
þann veg að slikt þætti henta.
Visir spurði nokkur þeirra, sem
starfshópinn mynda, hvort eitt-
hvaö v æri h æft i þeim hugm ynd-
um. Svör þeirra fara hér á eftir.
Þorbjörg Þórðardóttir:
„Ég held að það sé ekki tima-
bært að ræða um það núna. Til-
gangurinn er fyrst og fremst að
hittast og halda hópinn. Það er
búið að leggja drög að þessum
málfundasamtökum. Við eigum
svo eftir aö hittast seinna og þá
hlýtur ýmislegt að koma i ljós’..
Ásgeir Hannes Eiriks-
son:
„Tilgangurinn er aö efla
hvern félagsmann til aö verja
eigin hag, i ræðu og riti, innan
núverandi stjórnmálaflokka og
breyta stjórnmálaumræðunni,
losa hana úr fjötrum bölsvni,
ósannsögli og stéttaþvargs*
Rúnar Pálsson:
„Þaö má hver gæla við sinar
hugmyndir eftir geðþótta.það
bætir heilsuna. En ég tek þátt i
þessum samtökum i þeirri trú
aö verið sé aö koma á einskonar
málfundafélögum til að opna al-
menna þjóðfélagsumræðu,
þannig að hún fari fram á já-
kvæðan hátt”.
Guðmundur H. Ingólfs
son:
„Það er fráleitt aö ætla þaö i
dag. Þetta eru nokkurs konar
þjóðmálasamtök, sem eru
reiðubúin til umræöna. Ég er
ekki reiöubúinn til að skilgreina
hlutverk samtakanna, vegna
þess að ég hef ekki tekið nægi-
legan þátt i undirbúningsstarf-
inu til þess.”
Jón Arnþórsson:
„Þetta fæddist hjá mér meö
undirbúningi að forsetakosning-
unum og þetta er ekki sett upp
sem neinn flokksundirbúningur,
að minnsta kosti á þessu stigi
málsins, og er þaö ekki frá
minni hendi. En þaö er rétt,
þetta er nokkuö góð uppbygging
og býður ýmsum möguleikum
heim.’
Jón, sem tií þessa hefur tekið
þátt i störfum Framsóknar-
flokksins, var spurður hver
staöa hans yröi, ef til þess kæmi
að úr málfundasamtökunum
yröi stjórnmálaflokkur.
„Það er ekkert á döfinni hjá
mér,” sagði Jón,” i þá veru að
skipta um flokk og ég held bara
aö maður fari yfir þá brú þegar
maður kemur að henni og meti
þaö þegar hlutirnir verða ljós-
ari, hvaöa stefnu menn taka.”
SV.
Hluti jassbandsins, sem leikur á Hótel Loftleiöum i tengslum við Finn-
landskynninguna. (Mynd GVA).
Flnnlandskynning
á Hótel Loftlelðum
Þessa dagana stendur yfir á
Hótel Loftleiðum Finnlandskynn-
ing. Hún er haldin á vegum Loft-
leiða, Finnair, Finnwear, Ferða-
málaráðsskrifstofu Finna i Osló,
og Hótels Rantasippi, sem er
hótelhringur i Finnlandi. I tengsl-
um við kynninguna er staddur hér
á landi sölustjóri Finnair i Kaup-
mannahöfn, Bo Lang.
Kynningin hófst á miðvikudag
og henni lýkur á laugardag.
Kynningardagana veröa sérstök
Finnlandskvöld að Hótel Loft-
leiðum, en tilgangur þessa er að
auka þekkingu Islendinga á Finn-
landi. A dagskránni eru tiskusýn-
ingar, þar sem sýnd verða föt frá
Finnwear, þá verður á boðstól-
num finnskur matur, en kokkar
frá Hótel Rantasippi eru hér-
lendis af þvi tilefni og siðast en
ekki sist er hér 9 manna finnsk
jasshljómsveit, sem leikur gest-
um til ánægju og yndisauka.
Þetta er hljómsveit, sem er mjög
vinsæl i heimalandinu og lék i
fyrra á jasshátið i New Orleans
við góðan orðstir. Aðeins einn
spilaranna er atvinnumaður i
faginu.
—KP.
allt til sláturgerðar
nýtt og ófryst
slátur
afgreitt beint úr kæ/i
Opið:
Föstudaga kl. 14-20
Laugardaga kl. 9-12
Þriðjudaga til fimmtudaga kl. 14-18
Ath: Engin slátursala á mánudögum
Þægileg afgreiðsla
Næg bílastæði
Sparimarkaðurinn
Austurveri v/Háaleitisbraut ^
Neðra bílastæði (sunnan hússins)