Vísir - 03.10.1980, Page 14
/
VtSIR
Föstudagur 3.
október 1980.
' 7 * I I
BUBBI OG
EGILL BESTIR
4913-1038 skrifar:
Fyrir nokkru skrifaði einhver
Bolli i DB hina mestu lofrullu um
söngvarann Pálma Gunnarsson.
Hélt hann m.a. þvi fram að Pálmi
væri besti söngvarinn þó viðar
væri leitað.
Ég sendi strax athugasemd i
DB við þessa fáránlegu full-
yrðingu. NU eru liðnar hátt i 4 vik-
ur frá þvi ég sendi athugasemd-
ina. En ekkert bólar á henni i DB.
Ekki ætla ég að leiða getum að
þvi hvers vegna DB birtir bara
ósanngjarna auglýsingarullu um
Pálma en ekki sanngjarna at-
hugasemd við hana. Mér er nefni-
lega alveg sama þó að viss kliku-
skapur hafi myndast milli DB og
umboösaðila Pálma G. (einn af
yfirmönnum DB er t.d. blaðafull-
trúi Hljómplötuútgáfunnar hf. og
þar með Pálma). Hins vegar vil
ég benda á að fullyrðing um aö
Pálmi sé besti söngvarinn (þó
viðar væri leitað) er gróf móðgun
við bestu poppsöngvara landsins,
þá Bubba Morthens og Egil ólafs-
son.
Hafi Bolli aftur á móti átt við að
Pálmi sé besti söngvarinn sem
Hljómplötuútgáfan hf. hefur upp
á aö bjóða þá get ég vel fallist á
það. Plötur Mannakorns og
Heimavarnaliðsins bera þess
glögg merki aö Pálmi getur sung-
ið af innlifun og sannfæringu hafi
hann þannig efni að moða úr. Það
er meira en hægt er að segja um
aðra söngvara Hljómplötuútgáf-
unnar hf.
Bréfritara finnst Egill ólafsson ásamt Bubba Morthens bestu söngvar-
ar landsins.
„Guörún Helga í Gunnar hringdi/ Gervasoni aö heimta griö”.
Stundarfrlður
Reginn skrifar:
Guðrún Helga i Gunnar hringdi
Gervasoni að heimta grið -
Fljóð vor hyggja að frönsku yndi
frat þvi gefa i stjórnarfrið
Landsfaðirinn ljúfur sagði:
ég lit á málið Guðrún min.
Við gerum í að gleðja konur,
geymum til þess ráðin fin.
Ef þú bregst mér, á ég bendi,
itrekaði þingkonan,
krúna þin með kvenmannshendi
kippist yfir á fransarann
Grið og skjól hjá góðum konum
glæðir stjórnarsamstarfið.
Friðjón minn við færum honum
fransk-islenskan stundarfrið
Gleðifregn þá Gunnar sagði
Guðrúnu i talsimann.
Allt er klárt, á augabragði
ég afhendi þér fransarann.
Landsstjórnin á lukku frakkans
lifa mun þvi enn um skeið.
Svona geta settar konur
sómann bætt i lands vors neyð.
Nina Björk Arnadóttir, höfundur
Ljóðs dagsins.
LJOfi DAGSINS
Þegar kokteilar
islenzk peysuföt
ferðalög
smásögur
sverir morgunverðir
Alþingi íslendinga
(kjaftasamkunda)
rikisfjölmiðlarnir
manneskjur á borð við Svövu
Jakobsdóttur
kommadindlar eins og t.d. hann
Matthias
þýskarar
Búlgaria
Chiie
og manneskjur, að hugsa sér
manneskjur
• /
ja.
þegar allt þetta djöfuls húmbúg
sem rithöfundasambandið
liður og lætur sig varða
þetta húmbúg
sem liður rithöfundasambandið
og lætur
sig
það varða
þegar allur þessi ófögnuður
grúfist
yfir Svarthöfða
þá er munur að vera svarthöfði
já, þá er munur að vera
ekki manneskja
en vera svarthöfði.
sandkorn
Elias
Snæland
Jónsson
ritstjórnarfulltrúi
skrifar
fllöræösla á
Austfjörðum?
Beiðni Lúðviks Jósepssonar
um útreikning á bygginga-
kostnaði fyrir nýja alverk-
smiðju af svipaðri stærð og
álverið i Straumsvik, hefur
vakið mikla athygli, en Visir
skýrði frá henni i gær. Starfs-
menn tSAL reiknuöu þetta
dæmi fyrir Lúðvik, og liggur
skýrsla þeirra nú fyrir.
Margir velta þvi fyrir sér,
hvað valdi skyndilegum áhuga
Lúðviks á álbræöslu. Telja
kunnugir vist, aö Lúðvik sé að
velta fyrir sér stóriðju i
tengslum viö stórvirkjun á
Austurlandi, og hafi þar m.a. i
huga möguleikann á byggingu
álbræðslu þar, enda telji þeir
Lúðvik og Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðarráðherra
mikinn mun á álbræöslu á
Austfjörðum eða i Straums-
vik!
•
Stíf funda -
hdld um her-
inn og NflTO
Það hefur vakið umræður,
að Alþýðubandalagsmenn
hafa að undanförnu efnt til
margra funda um utanrikis-
og þjóðfrelsismál undir yfir-
skriftinni „Undirbúningur
fyrir landsfund". Fimmti sliki
fundurinn var haldinn á
vegum flokksfélagsins i
Reykjavik i gærkvöldi.
Þetta þykir nokkuð skritiö
þegar til þess er litiö, að Al-
þýðubandalagið hefur nú um
nokkurt skeið átt aðild að
rikisstjórnum sem hafa haft
áframhaldandi aðild að NATO
og óbreytta starfsemi banda-
riska herliðsins á Keflavikur-
flugvelli á stefnuskrá sinni.
Það er til að mynda stefna nú-
verandi rikisstjórnar, sem Al-
þýðubandalagið á sæti i.
A meðan svo er hlýtur þaö
að teljast skollaleikur einn að
láta landsfund samþykkja
miklar yfirlýsingar um brott-
för hersins og úrsögn úr
NATO. Nema ætlunin sé aö
lýsa yfir stuðningi viö
stjórnarstefnuna i þessum
málum? Allt getur svo sem
gerst i fslenskri pólitik!
Kvennasetur
Menntaskólinn á tsafiröi er
nú orðinn eins konar kvenna-
setur, þar sem stúlkur sækja
þar mun meira um skólanám
en piltar.
Nú i vetur eru 120 nemendur
i skólanum, Þar af eru 76
stúlkur en aðeins 44 piltar.
Þessu var öðru visi fariö
þegar menntaskólinn á tsa-
firði hóf göngu sina, þvi þá
voru aðeins örfáar stúlkur i
skólanum.